Morgunblaðið - 04.10.2004, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. OKTÓBER 2004 29
MINNINGAR ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
Vélavörður
Vélavörður óskast á 207 rúmlesta bát, sem
gerður er út á snurvoðaveiðar frá Þorlákshöfn.
Nánari upplýsingar gefur Kristjón í síma
868 9976 eða Hjörleifur í síma 893 2017.
The European Free Trade Association is currently
seeking, for its Secretariat in Brussels,
Legal Secretary
(n° 21/2004)
The legal team of the EEA Co-ordination Unit is
responsible for the overall supervision of EEA activit-
ies and for servicing EFTA's advisory committees.
As Secretary to and member of the legal team in
the EEA Co-ordination Unit, the incumbent will
update all legal documents including, Standing
Committee information documents, and maintain
the legal sections of the Extranet. The incumbent
will in addition organise administrative files and
records, distribute and archive legal documents
and minutes of the Standing Committee and EEA
Joint Committee and liaise with the EEA EFTA
Member States and the European Commission.
He/she will also prepare and assist with meetings
of Subcommittee V and related groups, prepare,
edit and distribute documents related to those meet-
ings and carry out general secretarial and admin-
istrative duties for the lawyers of the EEA Co-ord-
ination Unit.
Candidates for this position should have a comm-
ercial diploma, high school education or equivalent
and several years of experience of secretarial and
administrative tasks preferably with a legal depart-
ment of an international organisation or a law firm.
Excellent knowledge of MS Office products
(Word, XP, Excel and Power Point) and use of
Internet/E-mail technologies. You need to have
the ability to work in an organised manner on
several projects simultaneously with attention to
detail, accuracy and follow up, while remaining
focused on the client. You should have an excellent
command of written and spoken English.
Those interested should consult our website at:
http://secretariat.efta.int for the full announce-
ment and must return a completed EFTA
application form.
Deadline for applications: 29 October 2004.
Starfsmaður óskast
Óska eftir starfsmanni til starfa við þjónustu-
og sölustörf. Starfið fer að hluta til fram í
verslunum á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni.
Bílpróf nauðsynlegt. Uppl. sendist á auglýsinga-
deild Mbl. merktar A-16129 fyrir 8. okt.
Starfskraftur óskast
til starfa í heildverslun í Reykjavík.
Almenn tölvukunnátta nauðsynleg.
Upplýsingar sendist á auglýsingadeild Mbl.
merkt A-16130 fyrir 7. okt.
MÍMIR 6004100419 I
HEKLA 6004100419 IV/V
GIMLI 6004100419 III
I.O.O.F. 19 1851048 0*
ATVINNUAUGLÝSINGAR
sendist á augl@mbl.is
ar sem við áttum með þér. Þú varst
alltaf svo glöð þegar við komum til
þín í kleinur og kex. Eftir að þú flutt-
ir á Höfða þá var það nammiskálin
þín sem alltaf var full af einhverju
gómsætu sem við kunnum svo vel að
meta. Við söknum þín og kveðjum
með þessu fallega ljóði. Sofðu rótt.
Að ljósum perluskeljum
á lífsins fjörusandi
sér leika börnin fagran æskudag.
Og dularfull er gátan
sem draumur þeirra geymir
en dýrðlegt þeirra bjarta sólskinslag.
Svo stækka börn og þroskast
er straumur tímans niðar
og stærri leikir hrífa brjóstsins þel.
Og tigin djúpsins alda
sig teygir inn á sandinn
og týnir þeirra hvítu perluskel.
En gullintónar vaka
og glaðir bernskuleikir
ei gleymast langan, þungan ævidag.
Og tigin lyftist aldan
með tregaljóð í fangi
sem texta við hið bjarta sólskinslag.
(Guðfinna Jónsdóttir.)
Vera Mjöll og Elka Sól.
Elsku langamma Þóra.
Okkur þykir mjög vænt um þig og
við gleymum aldrei góða hafrakex-
inu þínu og kleinunum. Og svo má
ekki gleyma öllu gotteríinu í nammi-
skálinni. Þú varst alltaf í svo góðu
skapi og komst okkur alltaf til að
hlæja. Við söknum þín og vonum að
þér líði vel.
Kærar kveðjur,
Daisy, Heiður, Ingvar
og Karen.
Elsku frænka mín.
Ég þakka þér af alhug allt sem þú
gerðir fyrir mig og mína fjölskyldu,
lífið verður tómlegt án þín. Ég bið
Guð að varðveita þig.
Það voru orð að sönnu sem voru
sögð við mig eftir andlát þitt. „Frá-
bær karakter, mikil kona með mikla
útgeislun.“
Sjálfur, ef vin þú átt góðan í grennd
gleymd’ ekki, hvað sem á dynur,
að albesta sending af himnunum send
er sannur og einlægur vinur.
(Þýð. Sig. Jónsson.)
Elsku frænka, Guð veri með fjöl-
skyldu þinni.
Þín
Fríða.
Ég kveð elsku frænku mína, sem
var móðursystir mín, með miklum
söknuði. Það er margs að minnast,
hún bakaði svo góðar kleinur. Einu
sinni er ég kom til hennar sagðist
hún vera að baka til útflutnings, þá
hafði kona sem bjó erlendis komið til
hennar og beðið hana að baka fyrir
sig kleinur áður en að hún færi út
aftur.
Hún var alltaf svo létt, og stutt í
húmorinn. Einu sinni sem oftar
hringdi ég í hana (ég hringdi á hverj-
um degi) og spurði frétta, sagðist
hún þá hafa verið að innrita sig í
Fjölbrautaskólann, þá 88 ára gömul.
Svo ég hélt að hún væri að grínast,
en aldeilis ekki. Hún fór að læra
skrautskrift. Hún var mikil hann-
yrðakona, málaði dúka og margt
fleira. Aldrei fór málningin út fyrir
munstrið, hún hafði svo styrka hönd.
Hún hafði gaman af að ferðast.
Hún fór með okkur Reimari til Nor-
egs 1987. Þetta var alveg dásamleg
ferð fyrir hana og okkur. Hún talaði
oft um að sig langaði að fara aftur.
Svo má ekki gleyma öllum jólunum
og afmælunum hjá okkur, hún var
alltaf númer eitt, alltaf var spurt:
Kemur ekki frænka? Svo það verður
tómlegt næstu jól og afmæli, en við
minnumst hennar með söknuði. Hún
varð 94 ára hinn 17. september síð-
astliðinn, svo þetta var orðinn hár
aldur, enda sagði hún að þetta væri
orðið gott og hún yrði hvíldinni fegin.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(Vald. Briem.)
Kæri Venni og fjölskylda, megi
Guð blessa ykkur og styrkja á þess-
ari sorgarstundu.
Inga Magnúsdóttir.
Í dag kveðjum við Þóru frænku
eða frænku eins og hún var oftast
nefnd.
Hún var eins konar klettur og
kjölfesta fjölskyldunnar, svo ein-
staklega hlý og alltumvefjandi
manneskja. Hún fylgdist með öllum í
stórfjölskyldunni, tók þátt í gleði
okkar og sorgum og var svo einlæg-
lega þakklát fyrir allt sem fyrir hana
var gert.
Ófáar voru sendingarnar til okkar,
kassar fullir af kleinum, hafrakexi,
brauði og kökum.
Mestar áhyggjur hafði hún af því
að við þyrftum að „snúast þetta fyrir
hana“ og sækja góðgætið í Akra-
borgina.
Hún lífgaði upp á fjölskylduboðin
enda eftirsótt í þau og húmornum
hélt hún til hinsta dags og gantaðist
jafnvel með veikindi sín, sagðist í
sumar vera í vondum málum því hún
gengi með eitthvað í maganum sem
enginn vildi gangast við.
Árum saman leigði Þóra íbúð hjá
Guðrúnu Bjarnadóttur en þær voru
vinkonur til margra ára. Kvartaði
hún oft yfir leiguverðinu sem henni
þótti allt of lágt en Gunna ófáanleg
til að hækka.
Meðan Þóra hélt heimili, nú síðast
á Skólabrautinni, var það sjálfsagður
fyrsti viðkomustaður ættingjanna
enda var hún alltaf til staðar og vék
ekki af bæ ef hugsast gæti að ein-
hver liti inn.
Margir komu til hennar daglega
og átti Ingi frændi öruggt skjól hjá
henni í áratugi. Þegar Þóra fluttist
síðan á Dvalarheimilið Höfða launaði
hann umhyggjuna með heimsóknum
hvenær sem færi gafst.
Heimsóknir Þóru til Reykjavíkur
eru okkur minnisstæðar. Hún flutti
með sér svo mikla glaðværð og ást
og var okkur öllum upplyfting og
hvatning. Okkur fannst jafnvel við-
skiptin taka kipp þegar hún birtist.
Þegar okkur fæddist dóttir árið 1980
kom ekki annað til greina en að skíra
hana Þóru. Nú tuttugu og fjórum ár-
um síðar, daginn áður en hún lést,
kom nafna hennar með litla dóttur
sína til að kveðja elsku frænku. Bros
færðist yfir andlitið og hún kvaddi
þær með orðunum „blessuð börnin
mín“.
Þannig munum við hana, þannig
talaði hún ætíð um elsku drengina
sína, systkinin á Vesturgötu 25 og
vini og vandamenn sem studdu hana
þar til yfir lauk.
Guð geymi þig elsku frænka.
Hjartans þökk fyrir allt,
Leifur og Guðleif.
Þóra frænka eins og hún var köll-
uð, er nú látin. Hún var manneskja
sem alltaf var eins, sama hvað árin
liðu, þar til nú síðastliðið ár. Þá var
aldurinn farinn að segja til sín en
samt var hún alltaf með allt á hreinu.
Þóra frænka var mér meira en
bara frænka, mér fannst hún alltaf
vera eins og amma mín þar sem föð-
uramma mín, systir Þóru, lést áður
en ég fæddist. Ég var skírð í höfuðið
á Þóru og hélt hún mér undir skírn á
70 ára afmæli sínu. Þegar við fórum
upp á Akranes daginn áður en Þóra
lést voru ekki mikil svipbrigði á and-
liti hennar, en þegar hún sá Birtu
Maríu dóttur mína var eins og lifnaði
yfir henni og hún brosti út að eyrum
og sagði „blessuð börnin“, eins og
hún sagði alltaf.
Þær voru ófáar sendingarnar sem
við fengum af hinum frægu Þóruk-
leinum sem voru hennar aðalsmerki.
Þóra var handlagin kona og var hin
flinkasta að mála á styttur og dúka
og fannst henni þetta þó alltaf svo
ómerkilegt sjálfri.
Elsku Þóra frænka, þakka þér fyr-
ir allt. Ég veit að þér líður vel þar
sem þú ert.
Þín nafna,
Þóra Leifsdóttir.
Elsku besta frænka mín.
Ég vil ekki trúa því að þú sért dá-
in. Vildi óska þess að þetta væri ekki
satt, ég sakna þín svo mikið. Þú og
ég, við vorum svo góðar vinkonur, þú
áttir svo mikið í mér og munt alltaf
eiga. Við gátum spjallað um allt sem
okkur lá á hjarta, hlegið og fíflast. Þú
varst algjör perla, svo dugleg, kvart-
aðir aldrei og vildir alltaf allt fyrir
alla gera. Þú varst líka snillingur í
bakstri og handavinnu, og það er
bara örstutt síðan þú hættir að vinna
í föndrinu á Höfða. Manstu öll bréfin
sem við sendum hvor annarri þegar
ég átti heima í Belgíu og Svíþjóð. Þú
um nírætt og ég um tvítugt og við
skrifuðumst á eins og sannar vinkon-
ur.
Þegar við vorum að taka til í
dótinu þínu fann ég öll bréfin sem ég
hafði sent þér. Þau voru í stóru um-
slagi og á því stóð „Perlurnar mín-
ar“. Mér þótti afskaplega vænt um
að sjá þetta.
Þú varst okkur systkinunum sem
amma og við litum upp til þín. Þú
varst alltaf hjá okkur á aðfangadag
og flestalla hátíðisdaga. Hvernig
verða jólin án þín? Þú varst ein af
fjölskyldunni og áttir stóran hlut í
hjarta okkar allra. Þú horfðir á alla
fótboltaleiki í sjónvarpinu og fylgdist
grannt með gengi ÍA og sérstaklega
hvernig Doddi og Stefán stóðu sig í
leikjunum. Alltaf varstu svo góð við
alla og litlu krakkarnir dýrkuðu þig.
Ef þú vissir hvað það er tómlegt án
þín. Við sem hittumst á næstum því
hverjum degi.
Takk fyrir allt sem þú hefur kennt
mér og allar okkar yndislegu stundir
saman.
Ég bið góðan Guð að styrkja fjöl-
skyldu þína í sorginni.
Ég minnist þín um daga og dimmar nætur
mig dreymir þig, svo lengi hjartað slær.
Og meðan húmið hylur allt sem grætur,
mín hugarrós á leiði þínu grær.
Þín kærleiksbros, þau aldrei, aldrei
gleymast
þitt allt, þitt bænamál og hvarms þíns tár.
Hvert bros, hvert orð, hvert armtak þitt
skal geymast
þín ástarminning græðir lífs míns tár.
Elsku frænka, ég mun aldrei þér
gleyma. Þín
Anna María.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson.)
Íris Þöll Hauksdóttir.
HAUKUR
NÍELSSON
✝ Haukur Níelsson, bóndi áHelgafelli í Mosfellssveit,
fæddist í Reykjavík 13. desember
1921. Hann andaðist 27. ágúst síð-
astliðinn og var útför hans gerð
frá Lágafellskirkju 9. september.
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar alla útgáfudagana.
Skil Minningargreinar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins:
mbl.is (smellt á reitinn Morgun-
blaðið í fliparöndinni – þá birtist
valkosturinn „Senda inn minning-
ar/afmæli“ ásamt frekari upplýs-
ingum).
Minningar-
greinar