Morgunblaðið - 04.10.2004, Qupperneq 32
32 MÁNUDAGUR 4. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú vilt koma vini þínum til hjálpar núna,
eða ef til vill að hjálpa honum að hjálpa
öðrum. Hvort sem er þá ertu uppfullur
af samúð gagnvart minni máttar.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú getur beitt áhrifum þínum í vinnunni
gagnvart þeim sem valdið hafa til vernd-
ar réttindum þeirra sem þú þekkir. Þú
veist að það sem gert er á hlut eins er í
raun gert á hlut allra.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Ímyndunarafl þitt er einkar fjörugt
þessa dagana. Þú hugsar utan rammans
og ættir að deila hugmyndum þínum
með sem flestum.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þig langar að koma fjölskyldumeðlimi til
hjálpar í dag. Þú ert jafnvel tilbúinn að
axla ábyrgðina að mestu leyti sjálfur
enda ertu vel meðvitaður um að aðrir
þarfnast hjálpar.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú ert uppfullur af háleitum hugsjónum
og rómantískum hugmyndum varðandi
samband þitt við þína nánustu í dag.
Forðastu samt sem áður setja ástvini
þína á stall og mundu að þeir eru mann-
legir rétt eins og þú.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú kannt að uppgötva nýjar aðferðir til
að bæta fjárhaginn í dag og sérð vissu-
lega líka nýjar leiðir til að eyða hagn-
aðinum. Þú gætir þó líka sýnt af þér ör-
læti og gefið féð til góðgerðarmála.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú þarft tíma fyrir sjálfan þig fjarri öðr-
um til að hugleiða málin og fá skýrari
mynd af því hvar þú ert staddur í lífinu
og hvert þú vilt stefna.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Einvera á vel við þig í dag. Þú þarft tíma
til að hvílast og safna kröftum. Reyndu
að forðast allar truflanir.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Ekki láta háleitar innri hugsjónir sann-
færa þig um að ástvinir þínir séu annað
en mannlegir. Þeir eru vissulega ein-
stakir, en það ert þú líka.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Yfirmaður þinn eða einhver í valdstöðu
kann að fara þess á leit við þig að þú
sinnir góðgerðarmálum. Þú átt ekki eftir
að iðrast þess að eyða örlitlum hluta
tíma þíns öðrum til hagsbóta.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Það er svo margt sem þig langar til að
gera og fræðast um í dag. Þig langar að
læra meira um veröldina í kringum þig,
aðra menningarheima og annað fólk.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Hjálp frá öðrum berst þér í dag og þú ert
því aldrei þessu vant þiggjandi í stað
þess að vera í hlutverki gefandans, sem
er svo gjarnan staða fisksins.
Stjörnuspá
Frances Drake
Vog
Afmælisbörn dagsins:
Eru heillandi raunsæismanneskjur og
mun meira í þau spunnið en virðist í
fyrstu. Á yfirborðinu eru þau félagslynd
og þægileg í samskiptum en mun harðari
undir yfirborðinu en virðast kann og láta
ekki spila með sig. Þau ættu að beina at-
hyglinni að sínum nánustu næsta árið.
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda. 6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Krossgáta
Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/f olk/krossgata/index.html
Lárétt | 1 veldur böli, 8
mannsnafn, 9 tölum um,
10 veðurfar, 11 aflaga, 13
út, 15 þvottasnúru, 18 kýr,
21 grænmeti, 22 berja, 23
aflöng, 24 hjónavígslu.
Lóðrétt | 2 drukkin, 3
hornmyndun á húð, 4 nam,
5 grjótskriðan, 6 hæðir, 7
hneisa, 12 háttur, 14 spils,
15 slæman félagsskap, 16
vesæll, 17 rifa, 18 vand-
ræði, 19 vel gefin, 20 úr-
koma.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt | 1 slang, 4 hokur, 7 aldin, 8 öflug, 9 góm, 11 arða, 13
fata, 14 skæra, 15 bæli, 17 túli, 20 eta, 22 takki, 23 ungar,
24 rengi, 25 tórir.a
Lóðrétt | 1 slaga, 2 andúð, 3 gang, 4 hröm, 5 kolla, 6 rugla,
10 ótækt, 12 asi, 13 fat, 15 bútur, 16 lokan, 18 úrgur, 19 iðr-
ar, 20 eiri, 21 autt.
Fundir
Breiðfirðingabúð | Félag breiðfirskra
kvenna heldur fund í kvöld kl. 20. Sér-
stakur gestur er Þórhallur Guðmundsson
miðill.
Iðnó | Vinafélag Sinfóníuhljómsveitar Ís-
lands efnir til umræðufundar í Iðnó um
hlutverk Sinfóníunnar í samtímanum.
Frummælendur eru Arnþór Jónsson,
Hjálmar H. Ragnarsson, Jónas Sen og Sig-
fríður Björnsdóttir.
Félagsstarf
Árskógar 4 | Bað kl. 8–14, handavinna kl.
9–16.30, smíði, útskurður kl. 13–16.30, fé-
lagsvist kl. 13.30, myndlist kl. 16.
Bólstaðarhlíð 43 | Kl. 9–16 vinnustofan
opin, kl. 9–16 bútasaumur, kl. 10–11 sam-
verustund.
Dalbraut 18–20 | Kl. 9–11 kaffi og dagblöð.
Kl. 10–10.45 leikfimi, kl. 13–16.45 brids, kl.
15–15.45 kaffi.
Félag eldri borgara í Hafnarfirði | Opnað
kl. 9, blöðin, rabb og kaffi á könnunni. Frjáls
prjónastund. Pútt kl. 10–11.30, gangan kl.
10, félagsvist kl. 13.30, Gaflarakórinn æfing
kl. 17.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids í
dag kl. 13, kaffitár með ívafi kl. 13.30, línu-
danskennsla byrjendur kl. 18, samkvæm-
isdans framhald kl. 19 og byrjendur kl. 20.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Gull-
smárabrids. Eldri borgarar spila brids í
Gullsmára 13 alla mánu- og fimmtudaga.
Skráning kl. 12.45.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ | Bókband
kl. 10, kvennaleikfimi kl. 9.15, 10.05 og 11,
ullarþæfing kl. 13, pílukast í Garðabergi kl.
13, tölvunámskeið 1. tími í Garðaskóla kl. 17.
Hvassaleiti 56–58 | Opin vinnustofa kl. 9–
16, jóga kl. 9–11. Frjáls spilamennska kl. 13–
16. Fótaaðgerðir.
Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun, þriðju-
dag, sundleikfimi í Grafarvogslaug kl. 9.30.
Norðurbrún 1 | Kl. 9 smíði, kl. 9 fótaað-
gerð, kl. 10 ganga, kl. 13 opin vinnustofa, kl.
15 kaffi.
Sjálfsbjörg félag fatlaðra á höfuðborg-
arsvæðinu | Brids í kvöld kl. 19 í félags-
heimilinu, Hátúni 12.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla og
fótaaðgerðir, kl. 9.15–15.30 handavinna, kl.
9–10 boccia, kl. 9.30–11.30 skrautskrift, kl.
11–12 leikfimi, kl. 11.45–12.45 hádegisverður,
kl. 13–16 kóræfing, kl. 14.30–15.45 kaffiveit-
ingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 8.45,
bókband og myndlist kl. 9, morgunstund kl.
9.30, boccia kl. 10, handmennt, gler-
bræðsla og frjáls spilamennska kl. 13.
Kirkjustarf
Breiðholtskirkja | Barnakórsæfing fyrir
yngri hóp, 7–9 ára, alla mánudaga kl. 15:30
og eldri hóp, 10 ára og eldri, kl. 16:30.
Grafarvogskirkja | Safnaðarfélag Grafar-
vogskirkju heldur haustfund sinn í safn-
aðarsal kirkjunnar kl. 20:00. Guðfinna Ey-
dal sálfræðingur flytur fyrirlestur er hún
nefnir: Hvað er sérstakt við miðjan aldur?
Ólík staða kvenna og karla. Kaffiveitingar
og fyrirspurnir. KFUK fyrir stúlkur 9–12 ára
kl. 17:30–18:30.
Grensáskirkja | Foreldramorgunn alla
mánudaga kl. 10–12, kaffi og rabb, fræðsla
og leikur.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Alfa 2 og
unglinga-Alfa er í kvöld kl. 19.
Langholtskirkja | Kirkjuprakkarar, starf
fyrir 7–9 ára börn mánudaga kl. 16–17 í
safnaðarheimili Langholtskirkju. Umsjón
hafa Ólafur Jóhann og Guðmundur Örn. Öll
börn 7–9 ára velkomin. Fjölbreytt dagskrá.
Laugarneskirkja | Kl. 18 opinn 12 spora
fundur í safnaðarheimilinu. Vinir í bata. Kl.
20 tólfsporahópar koma saman í Laugar-
neskirkju. (Gengið inn um aðaldyr kirkju að
þessu sinni.) Kl. 20 fyrsti fundur Kven-
félags Laugarneskirkju á nýju starfsári.
Staður og stund
http://www.mbl.is/sos
VINAFÉLAG Sinfóníuhljómsveitar Íslands heldur opinn málfund í Iðnó í kvöld kl. 20 þar
sem ætlunin er að ræða hlutverk hljómsveitarinnar í samtímanum. Leitað verður svara
við spurningum sem vaknað hafa í umræðu um listræna stefnu hljómsveitarinnar á
undanförnum vikum. Hvers konar tónlist á Sinfóníuhljómsveitin að spila? Hvert á að
vera hlutfall þekktra verka og lítt þekktra? Hvert á að vera vægi íslenskrar tónlistar? Á
hljómsveitin að laga sig að óskum áheyrenda eða fylgja sinni eigin menningarpólitík?
Morgunblaðið/Kristinn
Málfundur um hlutverk Sinfóníuhljómsveitarinnar
Staður og stund á mbl.is. Nánari upplýsingar um
viðburði dagsins er að finna á Staður og stund
undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6
5. 0-0 Be7 6. He1 b5 7. Bb3 d6 8. c3 0-0
9. h3 Rb8 10. d4 Rbd7 11. Rbd2 Bb7 12.
Bc2 He8 13. Rf1 Bf8 14. Rg3 g6 15. b3
Bg7 16. d5 De7 17. c4 c6 18. Bg5 bxc4
19. bxc4 Rc5 20. Rd2 Dc7 21. Rb3 Rfd7
22. Hc1 Rxb3 23. axb3 a5 24. Dd2 Hec8
25. h4 cxd5 26. exd5 a4 27. bxa4 Rb6 28.
h5 Rxc4 29. Dd3 Dc5 30. Rf5 Bf8 31.
hxg6 fxg6 32. Bb3 gxf5 33. Hxc4 Ba6
34. Dg3 Da7 35. Hc6 Dg7 36. Dh4 Bb7
Staðan kom upp í landskeppni
Þýskalands og Ungverjalands sem
lauk fyrir skömmu í Búdapest. Christ-
opher Lutz (2.596) hafði hvítt í stöð-
unni gegn Zoltan Gyimesi (2.618). 37.
He3! f4 37. – Bxc6 var ófært vegna 38.
dxc6+ og hvítu biskuparnir myndu
veita svörtum náðarhöggið. 38. Hh3
Hab8 39. Bf6 Dg6 40. Bc2 e4 41. Dxf4
Bxc6 42. dxc6 Kf7 43. Bh4+ Ke8 44.
Bxe4 Df7 45. He3! Be7 Ekki gat svart-
ur tekið drottninguna þar sem eftir 45.
– Dxf4 mátar hvítur með 46. Bg6#. 46.
Bf5 og svartur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
Endurskoðun.
Norður
♠ÁKD
♥K732
♦G85
♣G104
Suður
♠G97
♥ÁG1084
♦ÁD2
♣D7
Fyrir um það bil tveimur vikum
fengu lesendur dálksins það viðfangs-
efni að spila fjögur hjörtu úr suðursæt-
inu. Vestur tók ÁK í laufi og spilaði því
þriðja. Sagnir voru uppgefnar og þar
kom fram að vestur hafði passað í upp-
hafi sem gjafari. Í því ljósi er ósennilegt
að vestur eigi bæði tígulkóng og hjarta-
drottningu til hliðar, svo mælt var með
því að svína fyrst í tígli áður en afstaða
væri tekin til hjartaíferðarinnar. Rök-
rétt, en einfalt fyrir vana menn.
Guðlaugur R. Jóhannsson sendi um-
sjónarmanni tölvupóst og benti rétti-
lega á að spilið væri meira spennandi ef
ekki er vitað um punktastyrk vesturs.
„Hvernig á þá að spila,“ spyr Guð-
laugur og svarar sjálfur:
„Suður hendir spaða í laufgosa og
tekur hjartakóng. Ef báðir fylgja, held
ég að best sé að spila spaða þrisvar. Ef
austur trompar þriðja spaðann er yfir-
trompað og þá er hjartað komið. Ann-
ars er tígli hent í þriðja spaðann.
Trompi vestur þann slag er hann enda-
spilaður, nema hann hafi átt Dxx í
trompi í upphafi. En fylgi báðir í þrjá
spaða er trompi spilað og svínað fyrir
drottningu ef austur fylgir. Þá er vest-
ur endaspilaður hafi hann byrjað með
Dx, en hafi austur ekki átt nema eitt
hjarta, er ásinn tekinn og vestur send-
ur inn með sömu niðurstöðu.“
Þetta er auðvitað allt rétt hjá Guð-
laugi, enda vanur endurskoðandi.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
Hlutavelta | Þessar brosmildu stúlk-
ur héldu nýlega hlutaveltu á Sval-
barðseyri til styrktar Rauða krossi Ís-
lands og söfnuðust 1.700 krónur. Þær
heita Guðrún Sveinsdóttir og Sunna
Rae George.
Morgunblaðið/Kristján
JPV ÚTGÁFA hef-
ur sent frá sér
fjórar bækur um
Ungfrúrnar eftir
breska höfund-
inn Roger Har-
greaves en hann
er einkum þekkt-
ur fyrir bækur
sínar um Herramenn sem notið hafa
mikilla vinsælda. Þýðandi er Guðni
Kolbeinsson.
Bækur um Ungfrúrnar komu fyrst út
í Englandi upp úr 1980 en þá hafði
höfundurinn þegar slegið í gegn með
Herramenn og var Ungfrúnum ekki
síður tekið af lesendum. Bækurnar
njóta enn gífurlegra vinsælda víða um
heim enda má með sanni segja að
efni þeirra sé sígilt og þær eigi alltaf
erindi við nýja lesendur.
Fyrstu Ungfrúrnar sem nú mæta til
leiks eru: Ungfrú Heppin, Ungfrú
Töfra, Ungfrú Stjarna og Ungfrú Þrifin.
Börn endursögn Þrándar Thoroddsen ogGuðna Kolbeinssonar. Bækur um
Herramenn komu fyrst út á íslensku
fyrir um aldarfjórðungi og nutu mikilla
vinsælda hjá íslenskum börnum.
Þættir byggðir á sögunum voru sýndir
í Sjónvarpinu. Einungis hluti bókanna
komu út á sínum tíma en JPV útgáfa
hefur endurútgefið þær síðustu miss-
eri ásamt þeim bókum sem ekki hafa
komið út áður á íslensku. Bækurnar
njóta enn gífurlegra vinsælda víða um
heim enda má með sanni segja að
efni þeirra sé sígilt og þær eigi alltaf
erindi við nýja lesendur. Herramenn-
irnir sem nú mæta til leiks eru: Herra
Skoppi, Herra Ómögulegur, Herra Há-
vær og Herra Rugli.
JPV ÚTGÁFA
hefur gefið út
fjórar nýjar
bækur um
Herramennina
eftir breska
höfundinn Rog-
er Hargreaves í
þýðingu og
Fyrir
flottar
konur
Bankastræti 11 sími 551 3930