Morgunblaðið - 04.10.2004, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 04.10.2004, Qupperneq 35
Hverfisgötu ☎ 551 9000 Sýnd kl. 6 og 8. Sýnd kl. 8. Sýnd kl. 6. Ísl. tal. www.regnboginn.is Nýr og betri Kr. 450 www.laugarasbio.is  Kvikmyndir.comi ir. Á einfaldari tímum þurfti einfaldari mann til að færa okkur fréttirnar GEGGJUÐ GRÍNMYND Kr. 450 Sýnd kl. 6, 8 og 10. Sýnd kl. 4. ísl tal Kr. 500 NOTEBOOK Sýnd kl. 4. ísl tal VINCE VAUGHN BEN STILLER Óvæntasti grínsmellur ársins Fór beint á toppinn í USA Klárlega fyndnasta mynd ársins! Þú missir þig af hlátri...  H.L. MBL punginn á þér! Frums. 8. okt. VINCE VAUGHN BEN STILLER Snargeggjuð gamanmynd frá hinum steikta Scary Movie hóp VINCE VAUGHN BEN STILLER VINCE VAUGHN BEN STILLER DodgeBall Óvæntasti grínsmellur ársins Fór beint á toppinn í USA Þú missir þig af hlátri... punginn á þér! Klárlega fyndnasta mynd ársins! D Ö N S K KVIKMYNDAHÁTÍÐ 1-10. OKT. Terkel i knibe / Terkel in Trouble sýnd kl. 6 De grönne slagtere / The Green Butchers sýnd kl. 8 Arven / Inheritance sýnd kl. 10 Lad de sma börn../ Aftermath sýnd kl. 10.30 Sýnd kl. 10.Sýnd kl. 6.30, 8.30 og 10.30. Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. DodgeBall TOM CRUSE JAMIE FOXX Hörkuspennumynd frá Michel Mann leiksjóra Heat COLLATERAL Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.15. B.i. 16 ára. MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. OKTÓBER 2004 35 AUGNABLIK sannleikans skipta sköpum í lífinu, ekki síst á þeim byltingartímum í líkams- starfseminni sem við köllum gelgjuskeið. Hin einfalda og ánægjulega þroskasaga Bjarg- vættur, útskriftarverkefni Erlu B. Skúladóttir, segir frá slíkum tímamótum í lífi stúlkunnar Kaju (Freydís Skúladóttir). Hún er að breytast úr barni í stúlku, hafi hún ekki áttað sig á því fær Kaja fullvissuna þegar sund- kennari kyssir hana fyrsta koss- inn. Kaja er Reykvíkingur, ein- birni nýkomin á táningsárin. Foreldrarnir eru afar uppteknir af sjálfum sér og varpa um sinn nýtilkominni ábyrgðinni sem fylgir kynþroskaaldri dótt- urinnar á sumarbúðir þjóðkirkj- unnar. Kaja hefur ekki atkvæð- isrétt í málinu og verður að sætta sig við félagsskap sér yngri telpna, víðs fjarri borg- arlífinu. Þá kemur sundkenn- arinn til sögunnar, stór og stæði- legur strákur sem hún heldur sig pínulítið skotin í – uns hann leitar á hana. Þá myndast brest- ir í hami bernskunnar, fram á sviðið brýst ný og þroskaðri Kaja sem tekur stjórnina. Ákveður að hvorki réttur gaur né réttur tími sé kominn fyrir ástina. Í framhaldinu heldur Kaja til fjalla til að hugleiða stöðuna og rétt eins og austurlenskur spek- ingur kemur hún vísari til baka. Kaja hefur uppgötvað sjálfa sig og náð fyrstu sundtökunum í lífsins ólgusjó. Erla kemur boð- skapnum rakleitt til skila án óþarfa málalenginga og af fag- mannlegu öryggi. Velur leikhóp- inn og tökustaðina af smekkvísi (það kitlaði óneitanlega að þeir eru mínar eigin bernskuslóðir undir Jökli). Freydís fer óaðfinn- anlega með stórt aðalhlutverkið og það kemur sannarlega ekki á óvart að Bjargvætturinn er í sig- urför um heiminn. Hún er að- standendum sínum til sóma. Kaja nær tökunum KVIKMYNDIR Háskólabíó Íslensk stuttmynd. Leikstjóri: Erla B. Skúladóttir. Handrit: Erla B. Skúladóttir og Bradley Boyer. Kvik- myndataka: Brian Rigney Hubbard. Tónlist: Freyr Ólafsson, Alllen Won. Aðalleikendur: Freydís Kristófers- dóttir, Kristbjörg Kjeld, Kristjana Júl- ía Þorsteinsdóttir, Ívar Örn Sverr- isson, Jóhann Sigurðarson, Guðlaug María Bjarnardóttir o.fl. 28 mínútur. Morning Moon Films. Ísland. 2004. Bjargvættur (Savior)  Sæbjörn Valdimarsson ÍSLENSK reggítónlist á sér ekki langa og glæsta sögu og þeir eru sárafáir sem lagt hafa fyrir sig þessa guð- dómlegu tónlistarstefnu sem upprunnin er í Karíbahafinu. Engir sem maður rekur minni til hefur heldur sér- hæft sig í reggíinu, heldur hafa menn fremur verið að daðra við það, gripið til þess í tæki- færisskyni. Jóhann G. Jóhannsson kemur upp í hugann, Pálmi Gunnars er annar en Utangarðsmenn og Bubbi eiga kannski eft- irminnilegustu ís- lensku reggílög sem samin hafa verið og voru kannski einir um að skapa eitthvað sem greina mætti sem íslenskt reggí. Með tilliti til þessarar rýru reggí- hefðar hér á landi hlýtur fyrsta plata hljómsveitarinnar Hjálma að teljast mikill tónlistarviðburður því þar fer íslenskt reggí, út í gegn. Engir út- úrdúrar, ekkert grín, ekkert verið að endurvinna annarra manna reggí, eins og sveitir á borð við Reggea on Ice stunduðu og áunnu sér skamm- vinna frægð fyrir. Segja mætti að Hjálmar eigi sér rætur í Fálkum, þar sem þeir fóru mikinn Guðm. Kristinn Jónsson og Sigurður Guðmundsson, liðsmenn Hjálma og upptökustjórar. Þeir tveir hafa komið víða við hjá Geimsteini, útgáfufyrirtæki Rúnars Júlíussonar, og eiga þátt í að síðustu plötur gamla Hljómabassans eru líklega hans bestu. Greina mátti á gæðagripnum Það þarf fólk eins og þig þennan reggí- áhuga tvíeykisins, m.a. í laginu frá- bæra „Gott er að gefa“ og vonaði maður satt að segja að þeir myndu gera meira af slíku. Það sem meira er þá njóta þeir fulltingis Þorsteins nokkurs Einarssonar sem semur all- nokkur laga plötunnar og gerir mjög vel. Lögin ellefu á þessari fínu frum- raun eru öll hin ágætustu. Stemn- ingin einlæg og hreinræktuð, svífandi og vel reykmettuð, alveg eins og hún á að vera. Hljómurinn alveg frábær og grúvið líka að gera sig. Sparlegur gítarleikurinn afar smekkvís, org- elleikur Guðm. Kristins hreint af- bragð og rödd Þorsteins alveg hreint silkimjúk og fín, uppfull af sál og til- finningu. Gott ef hann minnir ekki einmitt á okkar besta sálarsöngvara, Jóhann G. Jóhannsson, sem eins og áður sagði daðraði við reggítilfinn- inguna hér á 8. áratug síðustu aldar. Textasmíðar langsóttar og svífandi skýjum ofar – sem sagt vel við hæfi hins reykneska reggís. Ánægjulegt er að sjá þá félaga spreyta sig á reggískum lagasmíðum. „Borgin“, „Bréfið“, hið Bubba-lega „Mött er in meyrasta“ og sér í lagi hið fallega titillag eftir Þorstein virka best eins og stendur, en önnur lög eiga svo vafalaust eftir að koma sterk inn við enn frekari hlustun. Þá er vel farið með standarda Marleys og Trojan- listamannsins Plutos Shervingtons. Hjálmar hafa gefið út alvöru ís- lenska reggíplötu, kannski þá fyrstu sinnar tegundar. Ekki bara vegna þess að takturinn er kenndur við reggí heldur vegna þess að tilfinn- ingin er einnig alveg ekta. Með Hjálmum skal íslenskt reggí byggja. Með Hjálmum skal ís- lenskt reggí byggja TÓNLIST Íslenskar plötur Fyrsta plata hljómsveitarinnar Hjálma. Sveitina skipa Þorsteinn Einarsson, Guðm. Kristinn Jóns- son, Kristinn Snær Agnarsson, Petter Winnberg, Sigurður Hall- dór Guðmundsson. Lög: Þor- steinn Einarsson, Guðm. Kristinn Jónsson, Hjálmar, Yabbi You, Bob Marley, Pluto Shervington, Sig- urður Guðmundsson. Textar: Hjálmar, Þorsteinn Einarsson, Einar Georg Einarsson, Sigurður Guðmundsson. Upptökur gerðar í Geimsteini 2004. Upptökumenn Sigurður Halldór Guðmundsson, Guðm. Kristinn Jónsson. Útgef- andi Geimsteinn. Hjálmar – Hljóðlega af stað  Þorsteinn Einarsson og félagar í Hjálmum hafa búið til alvöru reggíplötu. Skarphéðinn Guðmundsson AP AP

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.