Morgunblaðið - 04.10.2004, Side 36
36 MÁNUDAGUR 4. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
S.V. Mbl.
HP. Kvikmyndir.com
Ó.H.T Rás 3.
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.15. B.i 14 ára. Sýnd kl. 10.40. B.i 16 ára.Sýnd kl. 6 .
S.V. Mbl.
DV
Ó.H.T. Rás 2
Frábær og eftirminnileg kvikmynd eftir
meistaraleikstjórann, Steven Spielberg.
Með óskarsverðlaunahöfunum Tom Hanks
og Catherine Zeta Jones.
Lífið er bið
Tom Hanks Catherine Zeta JonesTOM CRUISE JAMIE FOXX
COLLATERAL
Hörkuspennumynd frá
Michel Mann leiksjóra Heat
J.H.H KVIKMYNDIR.COM
H.L. MBL
DENZEL WASHINGTON
Frábær ný mynd frá þeim sömu og framleiddu
nóa albínóa í aðalhlutverkum eru Gary Lewis,
Martin Compston og Guðrún Bjarnadóttir
H.I. Mbl.
Ó.Ó.H. DV
Ó.H.T. Rás 2
SG Mbl
Before sunset
AKUREYRI
Sýnd kl. 10.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 8 og 10.
Ég heiti
Alice og
ég man
allt
KRINGLAN
Sýnd kl. 8 og 10.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.15. B.i. 16 ára.
KRINGLAN
Sýnd kl. 6, 8 og 10.15.
Sýnd kl. 6, 8 og 10. Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.20. B.i. 16 ára. Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
s t ri t J s
Sýnd kl. 8 . B.i 16 ára.
Fór beint á toppinn í USA
Milla Jovovich er mætt aftur í toppformi sem
hasargellan Alice í svölustu hasarmynd ársins. Milla Jovovich
er mætt aftur í
toppformi sem
hasargellan Alice
í svölustu
hasarmynd
ársins.
Vinafélag Sinfóníuhljóm-sveitar Íslands heldur op-inn málfund í Iðnó í kvöld
kl. 20 þar sem ætlunin er að ræða
hlutverk hljómsveitarinnar í sam-
tímanum. Leitað verður svara við
spurningum sem vaknað hafa í
umræðu um listræna stefnu
hljómsveitarinnar á undanförnum
vikum hér í Morgunblaðinu. Hvers
konar tónlist á Sinfóníuhljóm-
sveitin að spila? Hvert á að vera
hlutfall þekktra verka og lítt
þekktra? Hvert
á að vera vægi
íslenskrar tón-
listar? Á
hljómsveitin að
laga sig að óskum áheyrenda eða
fylgja sinni eigin menningar-
pólitík? Hvernig getur sinfónían
best verið hljómsveit allra lands-
manna? Og er henni gert kleift að
sinna sínu lögboðna hlutverki?
Að sögn Halldórs Haukssonar,
stjórnarmanns í vinafélagi hljóm-
sveitarinnar, er það tilgangur
fundarins að halda áfram með þá
umræðu sem farið hefur fram á
síðum blaðsins. Hún hófst með
greinum Bergþóru Jónsdóttur
blaðamanns og Jónasar Sen tón-
listargagnrýnanda 10. og 11. sept-
ember þar sem verkefnaval hljóm-
sveitarinnar var harðlega
gagnrýnt. Í greinunum báðum var
átalið að engin ný íslensk verk
yrðu flutt í vetur af eigin hvöt
hljómsveitarinnar, eins og það var
orðað. Meginefni greinar Jónasar
var hins vegar að sýna fram á að
Sinfóníuhljómsveit Íslands legði
fullmikla áherslu á léttmeti í dag-
skrá sinni á kostnað hámenning-
arlegri og einkum nýrri verka:
„Þetta höfuðtónlistarvígi hámenn-
ingar á Íslandi leggur æ meira
upp úr því að hafa sígild, vinsæl
verk sem flestir þekkja á efnis-
skránni en að sama skapi verða
íslenskar tónsmíðar, sérstaklega
þær nýjustu, stöðugt fyrirferð-
arminni.“
Jónas segir í grein sinni aðmörk há- og lágmenningar
væru óðum að hverfa, stundum
með afar frjóum og áhugaverðum
afleiðingum en stundum með mið-
ur góðum afleiðingum eins og í
tilfelli Sinfóníunnar: „Hér virðast
mörkin á milli lágmenningar og
hámenningar ekki vera að eyðast;
hámenningin er einfaldlega að
hverfa í skuggann á lágmenning-
unni,“ segir Jónas um verkefnaval
hljómsveitarinnar.
Leitað var viðbragða við þess-
um skrifum. Þar tóku viðmæl-
endur undir þau sjónarmið sem
fram höfðu komið í greinunum.
Athygli vakti að Steinunn Birna
Ragnarsdóttir, sem á sæti í verk-
efnavalsnefnd hljómsveitarinnar,
sagðist telja að Sinfónían væri ef
til vill að teygja sig of langt, „ekki
bara frá lögboðnum markmiðum
heldur einnig frá því sem ég tel
að sé faglega eftirsóknarvert“.
Sagði Steinunn Birna að hljóm-
sveitin yrði að halda faglegri
reisn. Kjartan Ólafsson, formaður
Tónskáldafélags Íslands, benti á
að minni flutningur hljómsveit-
arinnar á íslenskum verkum hefði
orðið til þess að færri og færri ís-
lensk hljómsveitarverk yrðu til.
Og Sigfríður Björnsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Íslenskrar tón-
verkamiðstöðvar, taldi að verk-
efnaval Sínfóníunnar lýsti lítilli
djörfung.
Í Lesbók 25. september birtistsíðan svargrein Þorkels Helga-
sonar, formanns stjórnar Sinfón-
íuhljómsveitar Íslands, en hann
telur að gagnrýnin sé ekki studd
sterkum rökum og byggð á full-
yrðingum sem hver hefur eftir
öðrum. Að mati Þorkels er það
ekki stefnubreyting að fá íslensk
verk séu á verkefnaskrá hljóm-
sveitarinnar í vetur heldur til-
viljun en hann bendir á að sjö til
sextán íslensk verk hafi verið
frumflutt árlega seinustu sex ár.
Þorkell segir að sígild verk beri
að flytja æ ofan í æ, þó ekki væri
nema vegna þess að nýjar kyn-
slóðir vaxa úr grasi. „Þannig er
það á ábyrgð þessarar einu at-
vinnuhljómsveitar landsins að
ekkert ungmenni fari frá bernsku
til fulls þroska án þess að eiga
þess kost að heyra í lifandi flutn-
ingi öndvegistónverk vestrænnar
menningar eins og t.d. hetju-
sinfóníu Beethovens.“
Forvitnilegt verður að sjá
hvernig þessi umræða æxlast en
augljóst er að ekki eru allir sam-
mála um það hvað Sinfón-
iuhljómsveitin er að gera, hvert
hlutverk hennar sé eða hvert hún
skuli stefna.
Hvað á Sin-
fónían að spila?
’Hvers konar tónlist áSinfóníuhljómsveitin að
spila? Hvert á að vera
hlutfall þekktra verka
og lítt þekktra? ‘
AF LISTUM
Eftir Þröst Helgason
throstur@mbl.is
EKKI verður annað sagt en að árið
hafi verið gott fyrir tónlistar-
áhugamenn, ekki bara Pixies, Kraft-
werk, Marc-André Hamelin og Lou
Reed, heldur hélt Van Morrison frá-
bæra tónleika í Laugardalshöll laug-
ardagskvöld. Undanfarin ár hefur
Morrison velt fyrir sér fortíðinni, leit-
að í þá tónlist sem hann ólst upp við
og draga fjórar síðustu plötur hans
dám af því, Back on Top sprottin úr
blús og hrynblús, The Skiffle Sess-
ions hylling skiffle-tónlistarinnar,
eins og nafnið bendir til, en skiffle er
taktfastur blús, Down the Road hryn-
blús, djass og kántrý og svo loks
What’s Wrong With This Picture?,
djassblúsplata af bestu gerð.
What’s Wrong With This Picture?
kom út á síðasta ári og tónleikar sem
Morrison hefur haldið eftir það hafa
eðlilega verið litaðir af þeirri gerð
tónlistar. Það mátti og heyra á upp-
hafslagi tónleikanna á laugardags-
kvöld, sannkölluð stuðsveifla í lagi
Leadbetters „Good Morning Blues“.
Morrison blés í saxófón og söng vel
studdur af framúrskarandi skemmti-
legri hljómsveit. Það var reyndar
gaman að heyra í Morrison spila á
saxófóninn, því hann veldur honum
vel, átti góða spretti og góða sóló-
kafla, og líka var gaman að heyra
hann spila á gítar, einfaldar línur með
skemmtilega blúsuðum hljóm.
Lögin sem hann tók á tónleikunum
voru flest frá síðustu árum, sextán lög
alls, spiluð á hundrað mínútum og
ekkert stopp á milli laga; um leið og
síðustu hljómar hljóðnuðu á einu lagi
byrjaði annað. Á eiginlegri tónleika-
dagskrá var elst lagið „Jackie Wilson
Said (I’m in Heaven When You
Smile)“ frá 1972, en svo voru þrjú lög
af hvorri plötu, Down the Road og
What’s Wrong With This Picture?,
tvö af Into The Music, Days Like
This, og How Long Has This Been
Going On?
Framan af var fjörið mikið, vel
keyrt á frábærum blásurum, píanói /
orgeli og skemmtilegu slagverki, en
svo hægði hann aðeins á ferðinni með
framúrskarandi flutningi á „Philos-
ophers’ Stone“ af Back On Top, þar
sem hann hverfur innávið, syngur um
uppruna sinn og köllun.
Síðan var snúið aftur í meiri djass-
bræðing sem náði hápunkti í sveiflu-
kenndri útsetningu, nánast galsa-
kenndri, á „Have I Told You Lately“,
mærðarlegur texti en fínt lag engu að
síður.
Þannig voru tónleikarnir kafla-
Yfirvegað og temprað stuð
TÓNLIST
Laugardalshöll
Van Morrison með hljómsveit. Tónleikar
á Jazzhátíð Reykjavíkur. Haldið í Laug-
ardalshöll sl. laugardag.
Van Morrison
MINNINGARTÓNLEIKAR um
tónlistarmanninn Fróða Finns-
sonfóru fram í Iðnó á fimmtu-
daginn. Vinir og kunningjar
Fróða, sem margir eru starf-
andi tónlistarmenn í dag, heiðr-
uðu minningu hans með því að
leika á tónleikunum.
Fróði lést árið 1994, þá að-
eins nítján ára að aldri, eftir
erfiða baráttu við krabbamein.
Hann var einkar umsvifamikill í
íslensku tónlistarlífi á meðan
hann lifði og hafði mikil áhrif á
samferðamenn sína.
Einar Örn, Gísli Galdur,
Bibbi Curver og sonur Ein-
ars, Hrafnkell.
Morgunblaðið/Golli
Hljómsveitin
Drep steig á svið í
Iðnó ásamt fjöl-
mörgum öðrum
listamönnum.
Minningartónleikar
um Fróða Finnsson
Fjölmargir lögðu leið sína
í Iðnó á fimmtudagskvöldið
til þess að hlýða á tónleikana
og minnast Fróða.