Morgunblaðið - 03.11.2004, Qupperneq 2
2 MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
KOSIÐ Í BANDARÍKJUNUM
Bandaríkjamenn gengu að kjör-
borðinu í gær og kusu sér forseta
fyrir næstu fjögur árin. Metþátttaka
var í kosningunum og virtist allt
stefna í að kjörsókn yrði 60% eða
jafnvel meiri. Var ljóst að mjög
mjótt yrði á munum milli demókrat-
ans Johns Kerrys, öldungadeild-
arþingmanns frá Massachusetts, og
sitjandi forseta, repúblikanans
George W. Bush. Biðraðir voru við
marga kjörstaði en spennan var sér-
staklega mikil í Ohio, Flórída og
Pennsylvanyu, þar sem talið var að
úrslitin gætu ráðist.
Gos í Grímsvötnum
Vísindamenn fóru í annað eftirlits-
flug yfir gosstöðvarnar síðdegis í
gær með flugvél Flugmálastjórnar.
Að sögn þeirra náðu þeir að átta sig
betur á gosstöðvunum í seinni flug-
ferðinni. Þeir segja aðalgosopið hafa
sést vel og verið um kílómetra á
breidd. Síðdegis í gær gengu yfir
tímabil þar sem sprengjuvirkni var
mjög mikil og öskufall sömuleiðis.
Skeiðarárhlaup
Hlaupið í Skeiðará er þegar orðið
mun stærra en hlaupið sem kom í
ána í febrúar árið 1999. Ekki er ljóst
hvort hlaupið hefur náð hámarki.
Síðdegis í gær var rennsli Skeiðarár
komið í tæplega 2.900 rúmmetra á
sekúndu, en í hámarksrennsli í ánni í
febrúar 1999 fór í 1.800 rúmmetra.
Stórsamningar Íslandsflugs
Íslandsflug hefur gert samninga
um leigu á tveimur flugvélum með
áhöfn, viðhaldi og tryggingum fyrir
samtals þrjá milljarða króna. Eru
hinir nýju samningar með þeim
stærstu sem félagið hefur gert.
Y f i r l i t
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfull-
trúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@ .is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf
Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl
edda.is
Best of Grim
eftir Hallgrím Helgason
Hinn heillandi hugarheimur Grims; teikningar,
myndasögur, skissur, málverk – loksins á einni
bók, á íslensku og ensku.
5. sæti
Penninn Eymundsson
og Bókabú›ir MM
20. – 26. okt.
Handbækur
Í dag
Sigmund 8 Viðhorf 24
Viðskipti 13 Bréf 24
Erlent 14 Minningar 25/29
Höfuðborgin 16 Dagbók 32/34
Suðurnes 16 Menning 35/36
Akureyri 17 Fólk 38/41
Landið 17 Bíó 38/41
Listir 18 Ljósvakamiðlar 42
Umræðan 20/24 Veður 43
Forystugrein 22 Staksteinar 43
* * *
!
"
#
$
%&' (
)***
REYKJAVÍKURBORG greiðir um
næstu mánaðamót rúmlega 600 millj-
ónir króna í eftir á greidd laun til
4.200–4.300 starfsmanna sinna vegna
nýs launakerfis sem tekið hefur verið
í notkun. Kerfið átti að taka gildi fyrir
tveimur árum. Meðalgreiðsla á hvern
starfsmann er um 140 þúsund krón-
ur.
Kjarasamningurinn, sem gerður
var í ársbyrjun 2001, kvað á um að
nýtt starfsmatskerfi ætti að taka gildi
1. desember 2002. Vinna við starfs-
matið reyndist hins vegar umfangs-
meiri og tímafrekari en reiknað var
með og því er það fyrst nú sem þessi
hluti kjarasamningsins kemur til
framkvæmda.
4.200–4.300 fá
einhverja hækkun
Starfsmatið nær til félagsmanna í
Starfsmannafélagi Reykjavíkurborg-
ar, Eflingu og Kjarafélagi Tækni-
fræðingafélags Íslands sem starfa hjá
Reykjavíkurborg.
Markmiðið með nýju starfsmats-
kerfi er að greiða sömu laun fyrir
sambærileg og jafnverðmæt störf hjá
öllum stofnunum og fyrirtækjum
Reykjavíkurborgar.
Starfsmatið nær til um 400 starfs-
heita og um 4.500 starfsmanna
Reykjavíkurborgar sem gegna þeim.
Að sögn Birgis Björns Sigurjónsson-
ar, forstöðumanns kjaraþróunar-
deildar Reykjavíkurborgar, fá 4.200–
4.300 núverandi og fyrrverandi
starfsmenn borgarinnar einhverja
hækkun út úr starfsmatinu. Um 200
starfsheiti af þessum 400 tóku ein-
hverjum launaleiðréttingum 1. nóv-
ember að því er fram kemur í frétta-
tilkynningu frá samningsaðilum. Þar
segir jafnframt að tekist hafi að ljúka
vinnu við starfsmatið með mikilli og
góðri samvinnu samningsaðila. Áður
hafi hæfnislaun vegna virkrar þátt-
töku í símenntunaráætlun stofnunar
verið tekin upp 1. mars sl. en sam-
kvæmt kjarasamningum átti að
greiða þau frá 1. desember 2002.
Birgir Björn sagði að upphaflega
hefði verið ætlunin að greiða þær leið-
réttingar sem miðast við 1. desember
2002 nú um mánaðamótin, en þegar á
reyndi hefði bókhaldið ekki ráðið við
það. Því hefðu laun sem byggðust á
starfsmati aðeins verið greidd fyrir
einn mánuð. Leiðrétting aftur í tím-
ann yrði greidd 1. desember nk.
Birgir Björn sagði að ef starfs-
menn teldu niðurstöðu starfsmatsins
ekki rétta ættu þeir að snúa sér til
síns trúnaðarmanns eða forstöðu-
manns, en jafnframt væri gert ráð
fyrir að starfsmenn gætu áfrýjað nið-
urstöðu starfsmatsnefndar til sér-
stakrar áfrýjunarnefndar.
Yfir 4.200 starfsmenn Reykjavíkurborgar hækka
í launum um mánaðamótin með nýju launakerfi
Greiða um 600 millj-
ónir vegna starfsmats
„EDDUKVÆÐIN eru gjöful upp-
spretta fyrir tónskáld og við erum
heppnir að hafa fengið þennan sam-
norræna arf. Þennan arf varðveitum
við með því að
taka hann upp
úr kössunum
og endur-
skapa. Það
reyndum við
að gera í
þessu verki
Fjórða söng
Guðrúnar,“
sagði Haukur
Tómasson
þegar hann
tók við tón-
listarverð-
launum Norð-
urlandaráðs í
ráðhúsi Stokkhólms í gærkvöldi. Að
sögn dómnefndar þótti Fjórði söngur
Guðrúnar vera „gífurlegt verk, þar
sem lostafullir taktar taka við af
hljómfögrum og tilfinningaþrungnum
aríum og þar sem heildaráhrifin
minna á Íslendingasögurnar“. Verð-
launin voru afhent við hátíðlega athöfn
þar sem einnig voru veitt Náttúru- og
umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs
sem féllu umhverfissamtökunum
Coalition Clean Baltic frá Svíþjóð í
skaut. Einnig voru finnska rithöfund-
inum Kari Kotakainen afhent bók-
menntaverðlaun ráðsins.
Leiknir voru tveir þættir úr verki
Hauks, Löngum skugga, við athöfn-
ina.
Tónlistarverðlaun
Norðurlandaráðs afhent
Hauki Tómassyni
Eddukvæð-
in gjöful
uppspretta
Haukur Tómasson tók
við verðlaunum sínum.
MÖRG hundruð manns komu sam-
an í Listasafni Reykjavíkur í
Hafnarhúsinu í gærkvöldi í tilefni
bandarísku forsetakosninganna en
sendiráð Bandaríkjanna stóð þar
fyrir kosningavöku. Haldnar voru
pallborðsumræður um kosninga-
baráttuna og fylgst var með kosn-
ingasjónvarpi frá Bandaríkjunum.
Gátu gestir gætt sér á amerískum
veitingum um leið og þeir skegg-
ræddu stöðuna. Eftir því sem leið
á kvöldið fór spennan að magnast
en menn voru þó viðbúnir því að
kosningavakan stæði langt fram á
nótt.
Sendiráðið hugðist síðan standa
fyrir pallborðsumræðum um úrslit
kosninganna í Norræna húsinu í
morgunsárið í dag, áttu þær að
hefjast kl. 8.
Morgunblaðið/Kristinn
Mörg hundruð manns á kosningavöku
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur úrskurðað fimmtán ára pilt í
síbrotagæslu að kröfu lögreglunn-
ar í Reykjavík sem lögð var fram í
fyrradag. Pilturinn, sem hefur
ítrekað komið við sögu auðgunar-
brota að undanförnu, mun sitja í
gæsluvarðhaldi fram til 13. desem-
ber.
Í fylgd unglings á stolnum bíl
Að sögn Ómars Smára Ár-
mannssonar, aðstoðaryfirlögreglu-
þjóns í Reykjavík, braust pilturinn
um nýliðna helgi m.a. inn í íbúðar-
hús í Mosfellsbæ og í raftækja-
verslun við Lágmúla þaðan sem
stolið var átta skjávörpum. Í inn-
brotinu í Lágmúla var hann ásamt
16 ára pilti á stolinni bifreið. Þeir
reyndu að komast undan lögreglu
en eftirförinni lauk þegar bifreið-
inni var ekið inn í garð í Smá-
íbúðahverfinu í Fossvogi. Að sögn
Ómars Smára leikur grunur á að
þriðji aðili hafi fengið þá til að
brjótast inn í fyrirtækið gegn
greiðslu. Ætlunin var að nota pen-
ingana til greiðslu fíkniefnaskulda.
Ómar Smári segir það ekki óal-
gengt að grunur vakni um að
menn séu fengnir til innbrota. Það
sem sé sérstakt í þessu máli sé
fyrst og fremst hve pilturinn, sem
dæmdur var í síbrotagæslu, er
ungur.
Fimmtán ára pilt-
ur í síbrotagæslu
Grunur um að hann og 16 ára félagi
hans hafi verið fengnir til innbrota
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
hefur ákveðið að samræmd próf í
íslensku og stærðfræði í 4. og 7.
bekk verði haldin fimmtudaginn 25.
nóvember og föstudaginn 26. nóv-
ember. Þetta var ákveðið með fyr-
irvara um að skólahald í grunnskól-
unum verði með eðlilegum hætti á
næstu vikum en ákvörðunin var
tekin í samráði við Námsmats-
stofnun sem sér um framkvæmd
prófanna.
Ekki hefur verið tekin ákvörðun
um neinar breytingar á samræmd-
um prófum í 10. bekk í íslensku,
ensku, dönsku, samfélagsgreinum,
náttúrufræði og stærðfræði en þau
á að halda dagana 2. til 10. maí í
vor.
Samræmd próf
í lok nóvember