Morgunblaðið - 03.11.2004, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 03.11.2004, Qupperneq 26
26 MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Árni Björnssonlæknir fæddist í Reykjavík 14. júní 1923. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut aðfara- nótt sunnudagsins 24. október síðastlið- ins. Foreldrar hans voru Kristín Jens- dóttir verkakona, f. á Torfastöðum í Fljótshlíð, Rang. 11.7. 1892, d. 13.10. 1983, og Björn Árna- son stýrimaður, f. í Víðinesi í Mosfells- sveit 11.5. 1893, d. 8.2. 1925. Systir Árna var Birna Björnsdóttir Löv- dal sjúkraliði, f. 29.5. 1925, d. 25.11. 1980, hún var gift Ingiberg (Inga) Lövdal, f. 8.9. 1921, d. 5.9. 2000. Hinn 25.8. 1945 kvæntist Árni Guðnýju Theódórsdóttur Bjarnar, f. 9.4. 1922. Foreldrar hennar voru Vilborg Vilhjálmsdóttir, f. 21.10. 1889, d. 21.9. 1923, og Theódór Vilhjálmsson Bjarnar verslunar- maður, f. 9.11. 1892, d. 7.2. 1926. Árni og Guðný eignuðust sex börn. Þau eru: 1) Vilborg Sigríður söng- kona, f. 7.1. 1946, maki Ari Jó- hannesson læknir, f. 26.7. 1947. Þau eru skilin. Börn þeirra eru Jó- hannes og Árni Gautur. 2) Kristín hjúkrunarfræðingur, f. 21.11. 1948, maki Ásgeir Þór Ólafsson tæknifræðingur, f. 10.5. 1947. Börn þeirra eru Árni Ólafur, Ása Guðný og Þóra Kristín. 3) Björn deild í Skotlandi og Uppsölum í Svíþjóð. Hann var yfirlæknir á Landspítalanum frá árinu 1983 til 1994. Árni stundaði ýmsar vísinda- rannsóknir, í samstarfi við inn- lenda og erlenda aðila, einkum er tengdust faraldursfræði og erfð- um vara- og gómskarða. Árni var virkur í félagsmálum lækna og var m.a. formaður Læknafélagsins Eir, Læknafélags Reykjavíkur, Fé- lags lýtalækna, Læknaráðs Land- spítalans og forseti norræna lýta- læknafélagsins. Einnig sat hann í mörgum nefndum um heilbrigðis- mál og félagsmál á vegum heilbrigðisyfirvalda, læknasam- takanna og ríkisspítalanna. Eftir að Árni lauk störfum var hann m.a. formaður öldungadeildar LÍ 1994–1997 og formaður Hollvina- félags læknadeildar HÍ 1996–1999. Árni hlaut fjölmargar viðurkenn- ingar fyrir störf sín sem læknir. Má þar nefna að hann varð heið- ursfélagi Félags íslenskra lýta- lækna 1993, Læknafélags Reykja- víkur 1999 og Skurðlæknafélags Íslands 2001. Að auki var Árni sæmdur Riddarakrossi Hinnar ís- lensku fálkaorðu 1993. Árni skrif- aði fjölmargar greinar um læknis- fræði í erlend og innlend fræði- tímarit. Að auki var Árni mjög virkur í umræðunni um heilbrigð- ismál og önnur þjóðmál, en hann skrifaði reglulega um hin ýmsu málefni í tímarit og dagblöð. Árni var einnig mikill áhugamaður um bókmenntir, listir, íslenska nátt- úru og hestamennsku, en hann var um tíma í hrossarækt austur í Flóa og síðar í Ölfusi ásamt fjölskyldu sinni og vinum. Útför Árna fer fram frá Hall- grímskirkju í dag og hefst athöfn- in klukkan 13. Theódór, tónlistar- maður og skólastjóri, f. 25.9. 1950, maki Sig- urlín Einarsdóttir Scheving flugfreyja, f. 27.5. 1950. Börn þeirra eru Þóranna Dögg og Árni. 4) Ein- ar Sveinn skólastjóri, f. 12.8. 1952, maki Margrét Þorvarðar- dóttir kennari og myndlistarmaður, f. 14.5. 1953. Börn þeirra eru Gyða og Guðný. 5) Árni af- greiðslumaður, f. 1.12. 1956. 6) Vilhjálmur Jens, heimspekingur og forstöðumaður, f. 23.6. 1964, maki Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarfulltrúi og aðstoðarframkvæmdastjóri, f. 12.10. 1966. Börn þeirra eru Að- alheiður og Theódóra Guðný. Árni átti þrjú langafabörn: Telmu Jó- hannesdóttur, Ara Jóhannesson og Kristínu Örnu Árnadóttur. Árni lauk stúdentsprófi frá MR 1943 og kandídatsprófi í læknis- fræði frá Háskóla Íslands 1951. Eftir framhaldsnám og störf í Sví- þjóð hlaut hann sérfræðiviður- kenningu í almennum handlækn- ingum 1959 og síðar í lýtalækn- ingum 1976, fyrstur Íslendinga með lýtalækningar sem sérgrein. Árni starfaði lengst af á Landspít- alanum við Hringbraut en einnig starfaði hann á Centrallasarettet í Södertälje, St. Görans Sjukhuset í Stokkhólmi og á lýtalækninga- „Gerið bara ekki eitthvað úr mér sem ég ekki var,“ sagði tengdafaðir minn þegar við ræddum þá alvarlegu stöðu sem upp var komin í veikind- um hans og þá staðreynd að líklega fengju ungar dætur okkar Vilhjálms ekki tækifæri til að kynnast afa sín- um, nema í gegnum góðar minningar okkar sem eldri erum. Þessi ósk Árna segir ýmislegt um þennan vandaða og merka mann, sem alltaf skoðaði veruleikann og viðfangsefni hans af heiðarleika og raunsæi og vildi öðru fremur að hans yrði minnst fyrir verk sín og viðhorf til lífsins. Árni Björnsson var einstakur maður í svo mörgum skilningi þess orðs. Hann hafði sterkan persónu- leika, sterka og mikla nærveru og ákveðnar skoðanir á flestu því sem mannlegt er. Vegna þessa hafði Árni mikil áhrif á þá sem honum kynntust og þannig var því einnig farið um mig. Ég var tuttugu og tveggja ára þegar ég varð hluti af þeim sam- stillta hópi sem stórfjölskylda Árna og Guðnýjar er. Ég man vel þegar Vilhjálmur kynnti mig fyrst fyrir verðandi tengdaforeldrum mínum í Blátúninu og í minningunni gáfu þessi fyrstu kynni mér strax góða mynd af hjónunum, sem síðan hafa kennt mér svo margt með reynslu sinni, visku og heilbrigðri lífsskoðun. Geislandi af gleði, einlægni og hlýju bauð Guðný mig velkomna. Viðbrögð Árna voru varkárari, augnaráðið al- varlegra, en handtakið alveg jafn þétt, traust og innilegt. Frá þeim degi hef ég notið þeirrar gæfu að eiga þau Guðnýju og Árna að og á þau samskipti hefur aldrei nokkur skuggi fallið. Þau hafa verið okkur allt í senn, góðir foreldrar, tengda- foreldrar, amma og afi – en ekki síðri hafa þau verið sem félagar okkar, vinir og fyrirmyndir. Árni sagði mér eitt sinn að hann vildi helst hafa að leiðarljósi í sínu lífi þá speki Hávamála, þar sem segir; Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. Þegar horft er til baka yfir þann farveg sem Árni Björnsson kaus lífi sínu má ljóst vera að honum varð að ósk sinni. Hann skipti máli í lífi ann- arra og gat sér góðan orðstír. Þetta á við hvort sem litið er til læknisins, vísindamannsins, hugsjónamannsins eða fjölskyldumannsins Árna Björnssonar. Hann vann öll sín verk af trúmennsku, eldmóði og ein- stökum vilja til að láta gott af sér leiða. Hann var maður stórra hug- sjóna og stórra tilfinninga, bar mikla virðingu fyrir náttúrunni, manninum og lífinu og leyfði því að hreyfa við sér um leið og hann hreyfði við eigin samtíð og samferðamönnum. Þess vegna var Árni maður sem munaði um og þess vegna verður svo erfitt að venjast veruleikanum án hans. Nú þegar komið er að leiðarlokum í lífi þessa góða manns þakka ég samfylgdina og allt það sem Árni Björnsson var mér og fjölskyldu minni. Hanna Birna Kristjánsdóttir. Ég var á brauðfótum er ég hitti tengdaföður minn og fjölskyldu hans fyrst fyrir alvöru en þá um nokkurt skeið höfðum við Kristín verið í nán- um vinskap. Ekki var mikill kvíði eft- ir fyrstu kynni við hann því viðmótið var ljúft, glatt, hlýtt og innilegt. Í yf- ir þessi þrjátíu ár sem kynni við hann hafa staðið hefur hvergi borið skugga á. Bóngóður var hann og snjall til að leysa vanda sem upp kom. Áhugamálin voru ævistarfið, fjöl- skyldan, hestar og útilíf og voru stunduð ferðalög í leik og starfi bæði innan lands og utan ásamt útreiðum. Aðdáunarvert var að fylgjast með áhuga hans í hrossastússinu og bú- skapnum bæði í Austurkoti og Auðs- holtshjáleigu þar sem mörgum stundum var varið í vina hópi. Ekki var hann neinn sérstakur smiður eða vélamaður en flest annað lék í hönd- um hans. Hann var alltaf mikill bóndi, fannst illa farið með land ef í það var plantað skógi, hann vildi láta hross ganga þar á beit eða að landið væri ræktað til heyja fyrir hesta og annan búsmala. Skoðanir hafði hann á flest öllum málum í samfélaginu, ófáir pistlar í dagblöðum og tímaritum um hin margvíslegu málefni líðandi stundar, sem yfirleitt vöktu mikla athygli. Mest fyrir hina drengilegu fram- setningu þar sem sanngirni, um- burðarlyndi, kímni og djúpur skiln- ingur á málefninu kom svo skýrt fram. Hann hafði ákveðnar skoðanir á vísindastarfi samtímans, í hans huga var ekki verjandi að vísindi yrðu vettvangur viðskipta þar sem grunnur rannsókna voru lífsýni, að nota lífsýni sem verslunarvöru sam- rýmdist ekki siðferðisvitund hans. Mikil veikindi átti hann við að glíma fyrir fjórum árum en stóð þau öll af sér. Eftirminnileg verður Skot- landsferðin sem farin var árinu seinna þar sem farið var m.a. í úttekt á Skoska vatninu. Þar var okkur sagt að það hægði á öldrun. Hann saknaði þess nokkuð er ljóst var að búið var að rífa sjúkrahúsið í nágrenni Ed- inborgar þar sem hann stundaði nám og störf við lýtalækningar fyrr á ár- um. Dvölin þar var honum mikils virði. Þar urðu til fleygar setningar eins og þegar lærimeistari hans vildi fá álit á nefi sem var til lagfæringar. „It’s different“ sagði hann og varð þetta ódauðlegt meðal samstarfs- manna og vina og oft vitnað til þess síðar. Hann hafði orð og hugtök yfir alla hluti, setti fram á skýran hátt um- ræðuefnið svo allir skildu. Í seinni tíð skrifaði hann ljóð og hugleiðingar um daglegt líf sitt og samferða- manna sem enn kom á óvart fyrir einfaldleikann og túlkunina á lífinu og þeirri stöðu sem hann var í. Ég vil þakka samferðina síðustu áratugi, er betri maður eftir þau kynni. Ég votta tengdamóður minni og börnum þeirra og öðrum ættingjum mína dýpstu samúð. Ásgeir Þór Ólafsson. Nú er hann afi farinn á annað stig hinnar óendanlegu hringrásar lífs- ins. Þrátt fyrir það lifir hann áfram í þeim sem hlotnaðist sá heiður að kynnast honum. Við systkinin vorum þar á meðal. Það er erfitt að lýsa þeim áhrifum sem hann hafði á okk- ur, en þau voru mikil og munu fylgja okkur alla ævi. Að okkar mati var afi Árni ekkert minna en stórmenni, ekki bara í þeim skilningi að hann hafi verið hávaxinn og vörpulegur á velli held- ur ekki síst hvernig hann lifði lífi sínu. Það tæki margar síður Mogg- ans að rita um það allt en við viljum minnast á þrennt sem hann átti stór- an þátt í að kynna fyrir okkur og á vonandi eftir að fylgja okkur í gegn- um lífið. Afi var heill í gegn, allt sem hann tók sér fyrir hendur gerði hann af fullum heilindum. Hann afi okkar var umburðarlyndur og víðsýnn. Hann tók öllum eins og þeir voru og bar virðingu fyrir skoðunum ann- arra. Bakgrunnur hans var ansi fjöl- breyttur; hann var sveitastrákur, hann var heimsborgari, hann var námsmaður, hann var fátækur og hann var ríkur. Hann vann sem læknir á Eskifirði og í Afríku. Allt þetta gerði honum kleift að skilja betur og virða fjölbreytileika og breyskleika mannsins. Við söknum hans sárt en vitum reyndar eins og hann sagði sjálfur að það eina sem er öruggt í þessu lífi er að við munum öll deyja. Þó okkar söknuður sé mikill þá er söknuður ömmu sárastur, en þeirra samband var einstakt. Ástina á milli þeirra var jafn auðveldlega hægt að finna eins og ilminn af nýútsprunginni rós. Elsku amma, hugsanir okkar eru hjá þér. Það er haust, þá fella trén laufin. Þitt tré er bú- ið að fella sitt síðasta lauf. Samt mun tréð þitt lifa áfram. Það mun lifa í mörgum öðrum trjám. Það mun lifa í okkar trjám því okkar tré eru kvistar af kvisti frá þér. Tréð þitt er fagurt og kvist mikið, það bar falleg lauf. Þó svo það sé fest niður með rótum þá hefur það komið víða við. Það hefur nært mörg önnur tré og styrkt. Við vonum að okkar tré verði jafn falleg og þitt. Okkar tré eru rétt að byrja að blómstra. Þú hefur hjálpað þeim að blómstra. Takk fyrir það. Árni Ólafur, Ása Guðný, Þóra Kristín. Árni Björnsson var tengdafaðir minn um árabil og áhrifavaldur í lífi mínu á margan hátt. Hann var fáum öðrum líkur. Skapferli hans og svip- mikið útlit ollu því að nærvera hans var aldrei hlutlaus, ávallt örvandi og oftast skemmtileg. Stórbrotin lundin speglaðist iðulega í svip hans, eink- um augnaráðinu, sem gat á stundum orðið hvasst sem byssustingur, en þó stafaði miklu oftar frá því glettni og hlýju, sem laðaði menn fölskvalaust til sín. Framan af ferli sínum var hann einkum þekktur sem afburða- skurðlæknir og brautryðjandi í lýta- lækningum. Á seinni árum gerðist hann gagnrýninn pistlahöfundur svo að eftirtekt vakti. Sumir pistlarnir voru með því heimspekilega ívafi, sem löngum einkenndi hugsun hans, aðrir voru beinskeytt, tæpitungulaus ádeila. Oftar en ekki beindi hann gagnrýni sinni að læknastéttinni og var þá sem skurðhnífurinn væri nú notaður til þess að stinga á þeim kýl- um, sem vaxa stundum á þeirri stétt. Eins og að líkum lætur hlaut hann ekki einróma þakklæti allra fyrir skrifin og ætlaðist raunar ekki til þess. Árni var hestamaður af lífi og sál meðan heilsan leyfði, og leiddi mig reyndar inn í töfraheim hesta- mennskunnar. Ótalmargar minning- ar geymi ég frá þeim tíma. Ein er frá sumardegi í Austurkoti, sem var hlutaeign fjölskyldunnar um tíma. Nýkeyptan fola úr Skagafirði átti að prófa. Nokkur grunur lék á því að sá tvístjörnótti væri ekki allur þar sem hann var séður. Ég þóttist þurfa að sanna mig á þessum vettvangi og bauðst til þess að prófa trippið. Nokkrum stungum síðar er ég skreiddist á fætur úr forinni skellihló Árni og þakkaði mér kærlega fyrir skemmtunina. Minnisstæðust frá þessum árum eru þó hestaferðalög- in. Hér naut sagna- og kvæðamað- urinn sín til fulls, ekki síst ef ferðast var um Njáluslóðir. Heilu kvæðin voru þulin í áningarstöðum, Íslend- ingasögur tengdar nútímanum yfir glasi í náttstað. Árni gerði miklar kröfur til reiðhesta sinna eins og hann gerði reyndar til samstarfs- fólks síns. Mestar kröfur gerði hann þó til sjálfs sín, enda skilaði hann feiknadrjúgu ævistarfi. Mér var Árni Björnsson ógleym- anlegur leiðbeinandi og félagi og eins skilningsríkur og hægt var að ætlast til þegar atvikin höguðu því þannig að tengdaböndin rofnuðu. Jó- hannesi, Árna Gauti og langafabörn- unum var hann ástríkur afi og langafi. Að leiðarlokum þakka ég samfylgdina, votta Lóló og allri fjöl- skyldunni samúð mína og kveð ljóða- vininn og hestamanninn með tönku, sem ég laumaði í hnakktösku hans skömmu áður en hann lagði á hinsta vaðið. Ljóðhesti riðið lyftingin, taktföst mýktin. Allt hefur einn hljóm þokki hans, hamingja þín og þessi bjarti morgunn. Ari Jóhannesson. Það slær þögn á, Árni dó í nótt. Minningarnar streyma fram hver af annarri. Minningar um góðan dreng sem auðgaði líf okkar með návist sinni. Fjölskyldutengslin voru sterk, því að frændrækni Árna var einstök. Það var ekki skyldurækni heldur ást og alúð fyrir þeim sem nálægt stóðu, það var svo mikið að gefa, hlýjan og einlægnin ótakmörkuð. Við bjuggum í Vestmannaeyjum og því var oft leitað til ættingja og vina þegar á meginlandið var komið. Það var aldrei í kot vísað í Stigahlíð- inni hjá Árna og Lóló. Seinna meir þegar við fluttum til Reykjavíkur varð sameiginlegur áhugi á hestum og hestamennsku ekki síst til þess að fjórar fjölskyldur keyptu jörðina Austurkot í Sandvíkurhreppi og hófu þar hrossabúskap. Að þessum rekstri stóðu Þorvarður Árnason, Lúðvík Jónsson, Árni Björnsson og undirritaður. Þetta var ógleyman- legur tími, margt þurfti að kljást við, en það sem stendur upp úr er tími vináttu, glens og gamans. Árni átti ekki minnstan þátt í því. Þrátt fyrir virðuleikann var stutt í æringjann. Hann gleymdi sér æði oft og var áð- ur en hann vissi kominn í hörku slagsmál við trippin, hafði snarað sér á einhverja ótemjuna eða það var fundið upp á að skjótast í hestaferð þegar komið var undir miðnætti. Það var fátt eins gaman og láta hrossin taka á, sýna hvað í þeim bjó. Auðvit- að hljóp kapp í mannskapinn og þeg- ar einhverjum blöskraði reiðlagið var haft á orði að þetta væri hálfgerð „Fljótshlíðarreið“. (Sjálfsagt vegna þess að Fljótshlíðingar voru svo vel ríðandi og kunnu að láta hrossin skyrpa úr hófum.) Elsku frændi, við þökkum þér samfylgdina og allar frábæru minn- ingarnar. Þau ár sem við nutum nær- veru þinnar eru ómetanleg. Elsku Lóló, Vilborg, Kristín, Björn, Einar Sveinn, Árni, Vilhjálm- ur og fjölskyldur, Guð veri með ykk- ur og veiti ykkur styrk. Eyvindur Hreggviðsson og fjölskylda. Árni Björnsson, minn kæri mágur, er látinn og á að baki langan og strangan vinnudag en giftudrjúgan fyrir svo ótal marga sem þurftu á læknishjálp hans að halda. Það eru nærri sex áratugir síðan ég kynntist honum en þá höfðu hann og systir mín ákveðið að ganga sam- an æviveginn. Þá var hann sjálfur að ganga menntaveginn en hugur hans beindist fljótt inn á læknisfræði- brautina. Fljótt komu börnin til sög- unnar og urðu þau sex. Oft þurfti fjölskyldan að skipta um dvalarstað, bæði hér á landi og er- lendis, á þessum langa námsferli og ávallt mátti treysta á bakhjarlinn, konu hans Guðnýju, í öllum hans ráðagerðum. En áfram miðaði að settu marki og lauk hann sérgrein sinni í lýtalækningum í Svíþjóð á sjötta áratugnum. Árni hafði mjög þægilega nærveru og fannst mér ómetanlegt að geta leitað til hans ef eitthvað bjátaði á og geta margir tekið undir það að gott var að vita af honum, „þá var hann þar“. En margt var sér til gamans gert utan læknisstarfanna, áhugamálin voru svo ótal mörg. Hann var sannur hestamaður og lestrarhestur var hann bæði á bundið og óbundið mál. Árni var mjög vel ritfær og viðraði oft skoðanir sínar opinberlega um ýmis þjóðmál og talaði þá enga tæpi- tungu. Þau hjónin voru miklir tón- listarunnendur og sóttu ótal tónlist- arviðburði. Já margs er að minnast á langri vegferð og þegar ég hugsa um Árna hefur sveimað í huga mér vísa sem við sungum oft saman á fögrum sum- arkvöldum eftir Hannes Hafstein við lag Jóns Laxdal: Oft um ljúfar, ljósar sumarnætur læðist kvæði fram í skáldsins önd. ÁRNI BJÖRNSSON

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.