Morgunblaðið - 03.11.2004, Side 38
38 MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Miðasala opnar kl. 15.30
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
VINCE VAUGHN BEN STILLER
DodgeBall
Ó.Ö.H. DV
S.V. Mbl.
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 14 ára.
Sýnd kl. 6. Síðasta sýning
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.15.
Sýnd kl. 5, 8 og 10.50. B.i. 16 ára.
Bakvið martraðir hans leynist óhugnalegur sannleikur
DENZEL WASHINGTON MERYL STREEP
Frá leikstjóra Silence of the Lambs
THE HUNT FOR THE BLOOD ORCHID
„Ég anda, ég sef, ég míg
... Tónlist“ Bubbi
Morthens
Til heljar og til baka með
atómbombunni Bubba
Morthens
Sýnd kl. 6 og 8.
ÞÆR ERU MÆTTAR AFTUR...ENN BLÓÐÞYRSTARI!
KYNGIMAGNAÐUR SPENNUTRYLLIR SEM FÆR HÁRIN TIL
AÐ RÍSA.
DV
V.G. DV S.V. Mbl.
THE HUNT FOR THE BLOOD ORCHID
ÞÆR ERU MÆTTAR AFTUR...ENN
BLÓÐÞYRSTARI!
KYNGIMAGNAÐUR SPENNUTRYLLIR SEM
FÆR HÁRIN TIL AÐ RÍSA.
Loksins mætast frægustu skrímsli
kvikmyndasögunnar í mögnuðu uppgjöri!Loksins mætast frægustu skrímsli
kvikmyndasögunnar í mögnuðu uppgjöri!
kl. 3.40, 6, 8.30 og 10.50. B.i. 14 ára.
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i. 14 ára.
Sýnd kl. 10. B.i. 16 ára.
Þorirðu að velja á milli?
Þorirðu að velja á milli?
Fór beint á
toppinn USA!Fór beint á
toppinn USA!
Kvikmyndir.is
Ó.H.T Rás 2
8. B.i. 16 ára. Síðasta sýning10. B.i. 16 ára. Síðasta sýning
Mjáumst
í bíó!
Sýnd kl. 4. Ísl. tal. Sýnd kl. 4. Ísl. tal.
Virðulegu forsetar heitir tónverk eftirJóhann Jóhannsson fyrir 12 mannalúðrasveit, slagverksleikara og
„drone“ hljóðfæri.
Verkið er klukkutíma langt og hefst á „há-
tíðlegu, hægfara 12 takta stefi sem er leikið á
lúðra, en þetta einfalda stef er svo endur-
tekið í gegnum allt verkið í mismunandi
raddsetningum“ eins og komist var að orði í
Morgunblaðinu áður en það var frumflutt í
Hallgrímskirkju 31. maí 2003 á Kirkju-
listahátíð.
„Smátt og smátt er líða tekur á verkið
hægist á tempóinu. Þessi einfaldi hægfara
„prósess“ leiðir smám
saman í ljós nýjar víddir
í músíkinni. Þetta ein-
falda stef fær smám
saman á sig sálmablæ
og verður sífellt fal-
legra og áhugaverðara eftir því sem á líður
og tempóið hægist. Leiðsluástand myndast
hjá hlustandanum og skynjunin á tónlistinni
breytist.“
Og tónskáldið sjálft lýsti svo að „um miðbik
verksins hraðar síðan aftur á
tónlistinni þangað til hún er
komin aftur á sama tempó
og í upphafi. Bygging verks-
ins er því bæði symmetrísk
og hringlaga. Undir kraum-
ar svo allan tímann lagtíðni
„drone“ sem samanstendur
af orgelpunkti, rafbassa-
hljóðum og elektróník ýmiss
konar. Áferð þessarar und-
irliggjandi „mottu“ breytist
smám saman eftir því sem
líður á verkið“.
Tónleikarnir í Hallgríms-kirkju þóttu takast með
miklum ágætum og verkið –
sem Jóhann sagði sjálfur að
væri samið undir áhrifum
frá hugmyndum Nietzsches
um „wiederkehr des ewig
Gleichen“, það er, að allt sem gerist í heim-
inum sé hluti af röð atburða sem endurtaki
sig endalaust. Sagan sé því hringlaga og end-
urtaki sig – fékk lofsamlega dóma hjá gagn-
rýnanda Morgunblaðsins Bergþóru Jóns-
dóttur sem sagði það „einstaklega fagurt
verk“ í öllum sínum einfaldleika.
Nú er Virðulegir forsetar loksins komið út
á plötu á vegum hins virta breska útgáfufyr-
irtækis Touch, sem einnig gaf út hina marg-
rómuðu plötu Jóhanns Englabörn, sem inni-
heldur tónlist úr samefndu leikriti Hávars
Sigurjónssonar.
Í tilefni af útgáfu plötunnar heldur Jóhann
útgáfutónleika í Neskirkju í kvöld þar sem
flytjendur verða hinir sömu og tóku þátt í
upptöku á plötunni, blásarasveit úr röðum
Caput-hópsins undir stjórn Guðna Franzson-
ar, auk Skúla Sverrissonar, Matthíasar M.D.
Hemstock, Harðar Bragasonar og höfund-
arins, Jóhanns Jóhannssonar.
Jóhann er óumdeilanlega einhver fjölhæf-asti nústarfandi tónlistarmaðurinn,
hvort sem litið er inn eða út fyrir íslenska
landsteina. Hann hefur komið ótrúlega víða
við á nær tveggja áratuga löngum ferli
sínum. Sín fyrstu tónlistarskref steig hann
með framsæknum rokk- og poppsveitum,
nægir þar að nefna Daisy Hill Puppy Farm,
Ham og Lhooq. Þá hefur hann starfað með
ótal öðrum sveitum og leitandi listamönnum
og sett áberandi mark sitt á. Hann hefur
unnið með Skúla Sverrissyni, Möggu Stínu,
Hilmari Jenssyni og kokkað mikið með
honum og öllu hinum í Tilraunaeldhúss-
genginu. Þá hefur Jóhann unnið mikið með
erlendum listamönnum. Samdi tónlistina og
útsetti fyrir plötuna Strange Things með
breska söngvaranum
Marc Almond og hefur
samið og unnið með
öðrum vel kunnum og
framsæknum erlendum
listamönnum á borð við
Barry Adamson, Pan
Sonic og The Hafler
Trio. Sem liðsmaður
Orgelkvartettsins
Apparat hefur hann svo
síðustu árin búið til
speisuðustu popptónlist
sem um getur og sam-
fara því sótt æ frekar í
sig veðrið sem tónskáld
og höfundur og flytj-
andi leikhúss- og kvik-
myndatónlistar. Platan
með tónlistinni úr verk-
inu Englabörn hefur
vakið heimsathygli og
fékk mikið lof erlendra
sem innlendra gagnrýnenda, þ.á m. hjá tíma-
ritinu The Wire og á vefmiðlunum Pitch-
forkmedia, Boomkat, All Music Guide og
Musicwire.
Þegar ákveðið var að hljóðrita verkið þótti
viðeigandi að reyna að endurskapa þann
hljómburð sem það naut við frumflutninginn.
Var því ákveðið að hljóðrita verkið í Hall-
grímskirkju. Og til þess að fanga hljóm kirkj-
unnar sem best á plötu fylgir með hinum
hefðbundna hljómdiski, DVD-diskur þar sem
er að finna 6 rása hringhljómblöndum – 24
bita 5.1 „surround“ blöndun – sem skilar
ótrúlegum hljómgæðum fyrir þá sem á annað
borð eiga DVD-spilara sem spila DVD-Audio
hljómdiska, en þeir eru sérstaklega gerðir til
að fullnýta „surround“ hljóðkerfi – eða
„heimabíó“ eins og stundum er kallað hér-
lendis. Virðulegum forsetum er með því
sýndir sá heiður sem þeir eiga skilið.
Hátíðlegir og hægfara
’Jóhann er óumdeilanlegaeinhver fjölhæfasti nústarf-
andi tónlistarmaðurinn,
hvort sem litið er inn eða út
fyrir íslenska landsteina.‘
AF LISTUM
Skarphéðinn
Guðmundsson
skarpi@mbl.is
Virðulega tónskáldið
Jóhann Jóhannsson.
Tónleikar Jóhanns Jóhannssonar í Neskirkju
byrja klukkan 21:00.
BRESKA popp- og rokktímaritið Q birtir í
nóvemberhefti sínu athyglisverðan lista yfir
fimmtíu „stærstu“ hjjómsveitir heims, fyrr og
síðar. Með orðinu „stór“ er átt við plötusölu,
tónleikaaðsókn auk allra handa umfangs, veri
það fjölmiðla- eða „rokkstæla“-lega séð og
byggðu blaðamenn Q niðurstöður m.a. á
breskum og bandarískum vinsældalistum og
sölutölum ásamt fjölmennustu tónleikum
sveitanna (Rolling Stones spiluðu fyrir 500.000
manns árið 1969 í Hyde Park!)
Það kemur ekki á óvart að breska sveitin
Pink Floyd toppar listann. Tónleikar Floyd
eru stórkostlegt sjónarspil og er ekkert til
sparað í íburðinum. Plata þeirra, Dark Side of
the Moon (1973) sat þá á bandaríska vinsælda-
listalistanum í fjórtán ár og The Wall hefur nú
selst í 23 milljónum eintaka, þriðja mest selda
plata heims.
Led Zeppelin ná öðru sætinu en leikvanga-
tónleikar þeirra á áttunda áratugnum voru það
rosalegasta sem fólk hafði upplifað fram að því
(„arena“ en stundum er talað um „arena-rock“
þegar rætt er um stærstu rokksveitirnar). Vin-
sældir Zeppelin eru stöðugar og hefur Led
Zeppelin IV (sú með „Stairway to Heaven“)
selst í 22 milljónum eintaka.
Rolling Stones hafna í þriðja sæti og er enn
gríðarlega vinsæl en 3,4 milljónir manna
mættu til að berja sveitina augum á síðasta
túr. Engin sveit hefur átt fleiri plötur á topp
tíu listum í Bandaríkjunum og Bretlandi en
Stones.
Það sem helst stingur í augu á listanum er
Hootie & The Blowfish (frumburður þeirra er
tólfta mest selda plata allra tíma! Sextán millj-
ónir eintaka), breski tölvudúettinn Erasure
(hafa selt plötur sínar í fjórtán milljónum ein-
taka samtals) og Journey (Sá sem getur nefnt
eitt lag með Journey fær verðlaun).Listinn yfir
tíu stærstu hljómsveitir sögunnar skv. út-
reikningum Q er eftirfarandi:
1. Pink Floyd
2. Led Zeppelin
3. Rolling Stones
4. U2.
5. Queen.
6. Dire Straits.
7. Bruce Springsteen & The E Street Band.
8. The Beatles.
9. Bob Marley & The Wailers.
10. Fleetwood Mac.
Enginn slær Pink Floyd við í mikilfengleikanum.
Pink Floyd
„stærst“
Tónlist | Stærstu hljómsveitir í heimi
ARTURO Pérez-Reverte er frægur fyrir há-
reistar glæpasögur, íburðarmiklar og flúraðar,
snúnar og lyklaðar. Hann er spænskur, fæddur
í Cartagena og sló í gegn utan heimalandsins
með The Fencing Master. Í kjölfarið fylgdu
bækur sem voru ekki síður vinsælar, verðlauna-
bókin The Flanders Panel, The Club Dumas og
The Seville Communion.
The Queen of the South kom út á spænsku
fyrir tveimur árum og svo á ensku í sumar. Ólíkt
öðrum bókum Revertes er aðalsögupersónan
kona, Teresa Mendoza, sem brýst úr örbirgð í
að verða drottning smyglaranna.
Teresa Mendoza er mexíkósk og dregst inn í
fíkniefnaheiminn eins og svo títt er með ung-
menni á hennar heimaslóðum, í Sinalóa. Hún
kemst naumlega undan er sambýlismaður
hennar er myrtur, flýr til Marokkó og hefur þar
nýtt líf með reynsluna frá Mexíkó í farteskinu.
Teresa er klók og útsjónarsöm, ákveðin og
skipulögð og ekki líður á löngu að hún er orðin
einn umsvifamesti smyglari við Miðjarðarhaf.
Enn eru þó óuppgerð mál heima í Sinalóa og
eigi má sköpum renna.
The Queen of the South er besta bók Pérez-
Revertes hingað til, Tersa
Mendoxza trúverðugasta
persóna hans hingað til og
framvindan einkar skemmti-
lega snúin, ekki beint sann-
færandi á köflum, en eins og
Bretinn segir: ekkert er of
einkennilegt til að vera satt.
Sagan er í raun eins og
langt narcocorrido-lag,
dregur dám af hetjusöngvum um bófa og ill-
virkja sem mjög eru í tísku vestur í Mexíkó nú
um stundir. Hún er líka hlaðin vísunum í meist-
araverk Alexandre Dumas eldri um Greifann af
Monte Cristo, ekki síst eftir að Teresa Mendoza
kemst yfir eintak af bókinni þar sem hún situr í
fangelsi í fyrsta og eina sinn, hittir þar sinn
Faría ábóta og finnur í framhaldinu fjársjóðinn
sem breytir lífi hennar. Það kemur reyndar ekki
á óvart að Reverte skuli vitna þannig í sér Dum-
as, enda snerist The Club Dumas öðrum þræði
um handritsbrot úr Skyttunum þrem.
Eini galli við bókina er sögumaðurinn, blaða-
maður sem segir söguna eins og hann sé að rita
ævisögu Teresu. Hlutverk hans er óþarft og
hann þvælist í raun bara fyrir, spillir framvind-
unni þegar hann skýtur sér inn í. Annars er The
Queen of the South hin besta skemmtun, ríku-
lega skreytt mannlífsmyndum og þrungin
stemningu og lýkur með sannkallaðri flug-
eldasýningu.
Drottning smyglaranna
BÓKMENNTIR
Erlendar bækur
The Queen of the South, skáldsaga eftir Arturo Pér-
ez-Reverte. Picador gefur út 2004. 435 síður innb.
The Queen of the South
Árni Matthíasson