Morgunblaðið - 03.11.2004, Síða 44
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
ÍSLENSKA kvikmyndin Nói albinói eftir
Dag Kára Pétursson er í 50. sæti yfir vin-
sælustu leigumyndböndin í Bandaríkj-
unum um þessar mundir.
Myndin hefur verið sýnd í völdum kvik-
myndahúsum í Bandaríkjunum á árinu og
að sögn Þóris Snæs Sig-
urjónssonar, annars
framleiðanda mynd-
arinnar fyrir Zik Zak,
hefur gengið ágætlega,
af erlendri mynd að
vera.
Umsagnir þarlendra
fjölmiðla um myndina
hafa almennt verið já-
kvæðar og virðist sú jákvæða umræða nú
vera að skila sér í mikilli forvitni fyrir
myndinni á leigumyndbandi, en hún kom á
leigurnar fyrir nokkrum vikum.
Þórir Snær segir þessa velgengni mynd-
arinnar á myndbandaleigunum ekki skila
þeim miklu í aðra hönd, því löngu sé búið
að ganga frá söluréttinum á myndinni, til
bandaríska sölu- og dreifingarfyrirtæk-
isins Palm Pictures. „Það þarf ansi mikið
að gerast til að við förum að sjá eitthvað
skila sér inn.“
En Þórir Snær segist þó vonast til að
þessi áhugi á myndinni eigi eftir að skila
sér í því að eftir nafni Dags Kára og Zik
Zak verði frekar tekið í framtíðinni og að
auðveldara verði að fjármagna og koma á
framfæri næstu myndum. „Vonandi skilar
þetta einhverju fyrir næstu mynd Dags
Kára sem við erum einmitt að fjármagna
núna.“ Þar á Þórir Snær við myndina The
Good Heart, sem Zik Zak mun framleiða,
og Dagur Kári hyggst gera á ensku í New
York-borg.
Myndbandalistinn
í Bandaríkjunum
Nói albinói
í 50. sæti
ÞÓRÓLFUR Árnason borgarstjóri nýtur ekki
fulls trausts Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs í Reykjavík eftir framkomna skýrslu
samkeppnisráðs um verðsamráð olíufélaganna.
Var það niðurstaða samráðsfundar trúnaðar-
manna flokksins í gærkvöldi sem m.a. þing-
menn, borgarfulltrúar, nefndarmenn og stjórn-
armenn Reykjavíkurfélaganna sátu. Þórólfur
mætti á fundinn til að útskýra sína sýn á málið.
„Við getum ekki sagt fortakslaust að traust
ríki enda væri það óábyrgt eftir skýrslu sam-
keppnisráðs,“ segir Svandís Svavarsdóttir, for-
maður VG í Reykjavík. „Þetta mál er engan
veginn til lykta leitt. Það var algjör einhugur
um það á fundinum og fullum stuðningi lýst yfir
við sjónarmið Árna Þórs Sigurðssonar í Ríkis-
útvarpinu í gærmorgun.“
Svandís segir að borgarfulltrúar R-listans
muni hittast í dag þar sem greint verður frá af-
stöðu VG til málsins. Jafnframt muni hún hitta
formenn Reykjavíkurfélaga Samfylkingarinnar
og Framsóknarflokksins í hádeginu. Í fram-
haldinu verður haldinn almennur félagsfundur
vinstri grænna í Reykjavík þar sem farið verður
yfir þetta mál til að fá skýra afstöðu fé-
lagsmanna.
Borgarfulltrúar R-listans hittust fyrir fund
borgarstjórnar í gær og ræddu m.a. stöðu Þór-
ólfs Árnasonar borgarstjóra eftir framkomna
skýrslu samkeppnisráðs um ólögmætt samráð
olíufélaganna. Anna Kristinsdóttir, borgar-
fulltrúi og formaður R-listans, sagði eftir fund-
inn að meirihluta borgarstjórnar bæri fullt
traust til starfa Þórólfs. „Við teljum að ekkert
hafi komið nýtt fram í málinu eins og er.“
Þórólfur Árnason sagði það ekki hafa komið
upp í huga sinn að segja af sér embætti vegna
skýrslu samkeppnisráðs. Reykjavíkurlistinn
hefði ráðið hann til starfa og staða hans væri
óbreytt. Hann hefði ekki áhyggjur af pólitískri
framtíð sinni og það réðist seinna hvort hann
leiddi Reykjavíkurlistann í næstu kosningum.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Þórólfur Árnason borgarstjóri býr sig undir að halda á fund borgarstjórnar í Ráðhúsi Reykjavíkur eftir að hafa svarað spurningum fréttamanna.
Borgarstjóri nýtur
ekki fulls trausts VG
Reykjavíkurborg/11
ÍSLANDSFLUG hefur gert samninga um
leigu á tveimur flugvélum með áhöfn, við-
haldi og tryggingum fyrir samtals þrjá millj-
arða króna. Að sögn Garðars Forberg, fram-
kvæmdastjóra sölu- og markaðssviðs
Íslandsflugs, eru hinir nýju samningar með
þeim stærstu sem félagið hefur gert og jafn-
framt til lengri tíma en almennt gerist á þeim
markaði sem félagið starfar á.
„Við erum að fara inn á nýtt svið hjá Ís-
landsflugi því við erum að bæta við breið-
þotu, Airbus 310-farþegavél,“ segir Garðar.
„Til þessa höfum við einungis verið með
minni flugvélar í farþegafluginu og þetta er
því mikil breyting fyrir félagið. Engu að síð-
ur fluttum við að jafnaði um 110 þúsund far-
þega í hverjum mánuði á nýliðnu sumri, sem
er auðvitað met hjá félaginu.“
Hann segir að þessi Airbus 310-flugvél frá
Íslandsflugi verði á samningi hjá Corsair í
Frakklandi í vetur. Næsta sumar muni hún
hins vegar fljúga frá Dublin á Írlandi og
næsta vetur aftur frá Frakklandi. Vélin verði
með tveim farrýmum og samtals 254 sætum.
„Svo erum við einnig að bæta við Airbus
300-600 fraktflugvél sem fer til nýs flug-
félags, Etihad, í Sameinuðu arabísku fursta-
dæmunum. Samningurinn um þá flugvél er
til ársins 2007, sem er frekar langur samn-
ingstími á þessum markaði.
Þessir tveir samningar eru samtals upp á
þrjá milljarða króna, annars vegar í tæp þrjú
ár og hins vegar í u.þ.b. eitt og hálft ár,“ segir
Garðar.
Um næstu áramót verða flugfélögin Ís-
landsflug og Air Atlanta Icelandic sameinuð
undir móðurfélaginu Avion Group. Ómar
Benediktsson, forstjóri Íslandsflugs, verður
forstjóri hins sameinaða félags.
Íslandsflug
gerir samn-
inga upp á
þrjá milljarða
SKEIÐARÁRHLAUPIÐ virðist hafa náð há-
marki í gær miðað við niðurstöðu rennslismæl-
ingar vatnamælingamanna við Skeiðará í gær-
kvöldi. Samkvæmt fyrstu úrvinnslu þeirra var
rennslið í gærkvöldi um 2.600 rúmmetrar á sek-
úndu (m3/s) og hafði minnkað frá því í gærdag, að
sögn Gunnars Sigurðssonar, verkfræðings á
vatnamælingasviði Orkustofnunar.
Efnagreining hlaupvatnsins sýndi að vatn frá
gosstöðinni í Grímsvötnum var komið fram í
Skeiðará um 12 klukkustundum eftir upphaf
gossins. Þá könnuðu vatnamælingamenn stöðu
mála í Gígju og Núpsvötnum í gær. Rennsli
þeirra reyndist ekki tiltakanlega mikið, en nið-
urstöður leiðnimælinga bentu til þess að talsvert
hátt hlutfall hlaupvatns væri í báðum ánum.
Hlaupið í Skeiðará er þegar orðið mun stærra
en hlaupið sem kom í ána í febrúar árið 1999. Síð-
degis í gær var rennsli Skeiðarár komið í tæp-
lega 2.900 m3/s, en hámarksrennsli í ánni í febr-
úar 1999 fór í 1.800 m3/s. Það hlaup kom í kjölfar
goss í Grímsvötnum í desember 1998 en nú fór
að gjósa eftir að vötnin hlupu. Til samanburðar
má geta þess að hámarksrennsli í stóra hlaupinu
sem kom í kjölfar gossins í Gjálp árið 1996 var
45.000 m3/s.
Síðdegis í gær var vatnshæð á sjálfvirkum
mæli í Skeiðará komin upp í 2,80 metra, en fyrir
hlaup var mælirinn í u.þ.b. 0,60 metra hæð.
Gunnar sagði í gærdag að leiðni í ánni hefði
aukist jafnt og þétt. Hann sagði að vatn flæddi
undir mestalla brúna yfir Skeiðará. Dálítið væri
um jaka í ánni en ekki mikið.
Árni Snorrason, vatnamælingamaður hjá
Orkustofnun, fór í eftirlitsflug Flugmálastjórnar
síðdegis í gær ásamt fleiri vísindamönnum.
Hann sagði vatnsmagnið í hlaupinu hafa aukist
stig af stigi og álíka hratt og árið 1999. Það gæti
einnig minnkað hratt aftur. Í fyrstu mælingum
nú hefði rennslið verið 600 rúmmetrar á sek-
úndu, um 1.500 rúmmetrar á mánudag og tæpir
3.000 rúmmetrar á sekúndu síðdegis í gær.
Morgunblaðið/RAX
Vatnamælingamennirnir og jarðfræðingarnir Bjarni Kristinsson og Snorri Zóphoníasson voru
að störfum við Skeiðará í gær og mældu stærð hlaupsins. Heldur dró úr rennsli með kvöldinu.
Rennslismælingar sýna að Skeiðarárhlaupið nú er mun stærra en 1999
Hlaupið hefur líklega náð hámarki
♦♦♦