24 stundir - 11.03.2008, Blaðsíða 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 11. MARS 2008 24stundir
Sími 534 5300 • impex@impex.is • www.impex.is
Málmleitartæki
sem virkar...
Viðurkennd vara - gott verð
Ertu að leita að niðurfalli
eða brunnloki?
Lítið, létt og einstaklega
notendavænt tæki
Ert þú leið(ur) á
að skipta um perur?
DÍÓÐULJÓSIN FRÁ OKKUR ERU:
Ljósin frá okkue geta lýst leið þína lengi lengi ...
Klettagarðar 11, 104 Reykjavík
Sími 568 1580 Fax 568 0844
TRUCK - LITE
Ljósasamlokurnar frá okkur eru:
ÓBRJÓTANDI
HÖGGÞOLNAR
ENDAST OG ENDAST
ORKUSPARANDI
ÓBRJÓTANDI
10.000 KLST.
ÁBYRGÐ PASSA
FYRIR ALLAR
GERÐIR VÖRU- OG
FLUTNINGABÍLA
Ökunám í fjarnámi !!!!
Ekill ökuskóli. Sími 461-7800 www.ekill.is ekill@ekill.is
Ekill ökuskóli er eini ökuskólinn á landinu sem býður upp á
ökunám í fjarnámi. Þú getur unnið námskeiðin í tölvunni
heima þegar þér hentar.
Skoðaðu þennan frábæra kost á www.ekill.is
Námskeið sem hægt er að taka nú þegar eru fyrra nám-
skeið til almennra ökuréttinda (Ö1), bifhjólanámskeið og
námskeið fyrir lesblinda.
Fleiri námskeið eru væntanleg á næstu mánuðum, Ö2
námskeið og námskeið til aukinna ökuréttinda.
Skráning hafin á febrúarnámskeið
Heilsársdekk
vetrardekk
Öryggi bílsins
byggist
á góðum
hjólbörðum
Gúmmívinnustofan
SP dekk - Skipholti 35 -105 R
Sími: 553 1055
www.gummivinnustofan.is
RAFGEYMAR
:
. .
Eftir Svanhvíti Ljósbjörgu
svanhvit@24stundir.is
Sigurður E. Sigurðsson hlær þegar
hann er inntur eftir því hvort það
hafi verið bernskudraumur að
vinna á gröfu. „Nei, þetta er ekki
eitthvað sem mig dreymdi um í
æsku. Ég byrjaði að vinna sem
verkamaður og svo fór ég að hafa
áhuga á vinnuvélum eftir að hafa
verið í kringum vélarnar og kall-
ana sem unnu á þeim. Ég fékk svo
að prófa vélarnar á meðan þeir
fóru í kaffi og mat. Núna er ég bú-
inn að vera viðriðinn þennan
bransa í tíu ár og hef verið á gröfu
í níu ár. Ég hef svo sem prófað
aðrar vinnuvélar en hef mest-
megnis verið á gröfu,“ segir Sig-
urður sem er mjög sáttur í starf-
inu, þrátt fyrir að
æskudraumurinn hafi verið annar.
„Þetta er mjög fínt starf og
skemmtilegt. Þetta valdi ég og er
það ánægður að ég er hér enn.“
Ekkert mál
Um þessar mundir er Sigurður
að starfa að verkefni í Kaplakrika
en hann segir að það sé alltaf nóg
að gera. „Í Kaplakrika erum við
undirverktakar hjá Klæðningu en
þar erum við að sinna ýmsum
verkefnum, fylla í sökkla, leggja
lagnir og fleira,“ segir Sigurður
sem kannast ekki við að það sé
flókið að stjórna gröfu. „Það er
allt öðruvísi að vera á hjólavél en
beltavél. Ég er á hjólavél og það er
heldur flóknara. Það er hins vegar
ekkert mál að vera innilokaður í
húsinu allan daginn, maður er
bara með gott útvarp með sér. Svo
er alltaf fullt af fólki í kringum
mann.“
Snjórinn tefur fyrir
Sigurður segir að það sé svart
og hvítt að vinna á gröfu á sumrin
eða veturna enda geti það stund-
um verið erfitt að vinna í miklum
snjó. „Við erum ekki alltaf ánægð-
ir með mikinn snjó en eftir snjó-
þunga nótt er nauðsynlegt að
bræða snjóinn með heitu vatni áð-
ur en við getum hafist handa. Það
eru verkamenn sem sjá um að
bræða snjóinn fyrir okkur. Ef það
er snjór mætum við til vinnu um
fimmleytið en ef það er snjólaust
þá um hálfátta. Það tefur okkur
alltaf eitthvað ef það er mikill
snjór enda jafnan frost í jörðu.
Þegar mikið frost er í jörðu þá
notum við annað hvort tennta
skóflu eða gröfu með fleyg, en það
er nokkurs konar hamar sem brýt-
ur jarðveginn niður,“ segir Sig-
urður sem sér líka um að moka
snjó, á snjóþungum dögum. „Það
er ágætis tilbreyting að moka snjó
en við höfum gert töluvert af því í
vetur. Til að mynda höfum við
verið með bílastæðið við Smára-
lind. Snjónum er yfirleitt mokað í
hrúgu í hornið og síðan fjarlægður
þaðan. Yfirleitt er snjóhrúgan
keyrð út í sjó eða á lagerpláss.“
24stundir/Frikki
Skemmtilegt að starfa á gröfu
Ekki alltaf ánægður
með snjóinn
➤ Sigurður E. Sigurðsson ogGestur Pálsson eiga fyr-
irtækið SE gröfur.
➤ Fyrirtækið hefur verið starf-rækt í tvö ár.
➤ Fyrirtækið heldur úti tveimurgröfum sem Gestur og Sig-
urður vinna sjálfir á.
SE GRÖFURSigurður E. Sigurðsson
hjá SE gröfum hefur unn-
ið á gröfu í níu ár en við-
urkennir að það hafi ekki
verið æskudraumur.
Starfið segir hann vera
skemmtilegt þó að snjór-
inn geti tafið heilmikið
fyrir á veturna.
Sigurður E. Sigurðsson: „Það
er allt öðruvísi að vera á hjólavél
en beltavél. Ég er á hjólavél og
það er heldur flóknara.“
Fleiri karlar en konur starfa við
þungavinnuvélar bæði hérlendis
og erlendis. Konum í greinum
þar sem unnið er á slík tæki fer
þó alltaf fjölgandi en í Bandaríkj-
unum eru nú mun fleiri konur
stjórnendur vinnuvéla en áður.
Þrátt fyrir að konur séu enn í
miklum minnihluta þá starfa
hundruð þúsunda þeirra við
þungavinnuvélar í Bandaríkj-
unum. Þarlendis starfa rúmlega
18.000 konur sem vörubílstjórar
en þær eru um 5% vörubílstjóra.
Um 1.000 konur starfa sem
kranamenn en hlutfall þeirra er
aðeins um 1,5%. Álíka margar
vinna á jarðýtum en rúmlega
40.000 konur vinna við mann-
virkjagerð sem stjórnendur
trukka, dráttarvéla eða annarra
stórra ökutækja.
Eru ennþá aðeins lítill hluti af starfsmönnum
Fleiri konur á vinnuvélar