24 stundir - 11.03.2008, Blaðsíða 15
24stundir ÞRIÐJUDAGUR 11. MARS 2008 15
Framtíðarlandið hélt málþingá Höfn í Hornarfirði álaugardag.
Félagið leigði flug-
vél til þess að fljúga
með ráðstefnugesti
frá Reykjavík til
Hafnar. Árni John-
sen hafði samband
við Framtíðarlandið og spurði
hvort það væri laust sæti í vélinni
og hvort hann mætti koma með ef
svo væri. Hann fékk það svar að
það væri sjálfsagt. Seint á föstudag
hafði hann aftur samband við
Framtíðarlandið. Þá sagðist hann
vera í Vestmannaeyjum og spurði,
í fullri alvöru, hvort flugvélin gæti
ekki komið við í Vestmannaeyjum
á leiðinni til Hafnar og tekið hann
upp í. Það var ekki hægt að verða
við þeirri ósk hans.
Stefán Bogi Sveinsson, vara-formaður Sambands ungraframsóknarmanna, veltir
því fyrir sér á bloggi sínu hvort
Björn Bjarnason sé
að koma sér upp
einkaher miðaldra,
nauðasköllóttra og
illilegra karlmanna
með gleraugu og
birtir því til sönn-
unar myndir af nýjum aðstoð-
armanni ráðherra, Þóri Hrafns-
syni, Georg Lárussyni, forstjóra
Landhelgisgæslunnar, og Karli
Steinari Valssyni, yfirmanni
fíkniefnadeildar. „Það er þekkt í
sögunni að valdamiklir menn
hafa komið sér upp lífvörðum
með einhverja sérstaka eig-
inleika,“ segir Stefán og bætir við
eftir að hafa rifjað upp nokkur
dæmi: „Mætti ég þá frekar biðja
um fagrar konur, nú eða dverga.“
Sjálfstæðismaðurinn PéturÓskarsson hefur setið ístjórn samtakanna Sól í
Straumi og barðist gegn stækkun
álversins í Straums-
vík. Pétur var þar á
skjön við sjálfstæð-
ismenn í bæj-
arstjórn Hafn-
arfjarðar sem
studdu stækkunina.
Nú hefur Pétur boðað að hann
ætli að gefa kost á sér til næstu
sveitarstjórnarkosninga í Hafn-
arfirði og það fyrir sinn flokk.
Ekki er víst að bæjarfulltrúar
flokksins verði hrifnir af því en
það er spurning hvort Pétur getur
breytt viðhorfi sitjandi bæjarfull-
trúa til umhverfismála. Þótt íbúa-
kosning hafi komið í veg fyrir
stækkun álversins verður þetta
mál án efa heitt kosningamál í
næstu kosningum. elin@24stundir.is
KLIPPT OG SKORIÐ
Vaxandi kröfur um áframhald-
andi uppbyggingu innviða og
aukna þjónustu hins opinbera
hafa verið áberandi samfara þró-
un samfélagsins og aukinni vel-
megun á undanförnum árum. Á
sama tíma hafa umsvif hins op-
inbera aukist í tengslum við al-
þjóðastarf og þjóðréttarlegar
skuldbindingar sem við höfum
tekið á okkur í því samhengi. Sjá
má merki þessarar þróunar í lög-
um og einnig í lagafrumvörpum
sem eru til umfjöllunar í nefnd-
um Alþingis. Þingmenn eru ým-
ist að samþykkja lög eða ræða
um frumvörp sem fela í sér að
koma á fót stofnunum, breyta
stofnunum eða efla stofnanir, svo
ekki sé minnst á allar þær sér-
nefndir og ráð sem fylgja.
Hið opinbera
Í þessu sambandi er forvitni-
legt að skoða fjölgun stofnana og
þróunina í starfsmannafjölda
ríkis og sveitarfélaga á undan-
förnum árum. Upplýsingar um
fjölda stofnana voru ekki tiltækar
né heldur nákvæmar tölur um
fjölda opinberra starfa. Hagstof-
an flokkar störf í 18 mismunandi
atvinnugreinar og starfsmenn
þar bentu mér á að nálgast mætti
vísbendingu um fjölda opinberra
starfa með því að leggja saman
fjölda starfa í þremur atvinnu-
greinum, þ.e. í opinberri stjórn-
sýslu, fræðslustarfsemi og heil-
brigðis- og félagsþjónustu, enda
væru þar flestir starfsmenn starf-
andi fyrir ríki og sveitarfélög. Til
þess að setja fjölda starfa í þess-
um atvinnugreinum í víðara
samhengi bar ég þróunina saman
við heildarfjölgun starfa á vinnu-
markaði á síðustu 10 árum.
Heildarvinnuaflið hér á landi
hefur aukist um 25 prósent sl.
áratug. Árið 1997 taldi vinnu-
markaðurinn 142 þúsund störf,
en þeim hafði fjölgað í ríflega
177 þúsund árið 2007. Á sama
tíma hefur fólki í ofangreindum
þremur „opinberu“ atvinnu-
greinum fjölgað um 35 prósent,
frá tæplega 36 þúsund manns ár-
ið 1997 í ríflega 48 þúsund árið
2007. Ég ítreka að þessar upplýs-
ingar eru settar fram með fyr-
irvara, þar sem mér tókst ekki að
fá góða greiningu á fjölgun starfa
hjá ríki og sveitarfélögum. Ef
einhver lesandi getur vísað mér á
betri gögn, er slík ábending vel
þegin.
Greiningin
Í grófum dráttum virðist störf-
um hjá ríki og sveitarfélögum
hafa fjölgað hlutfallslega meira
en störfum á almennum vinnu-
markaði sl. áratug.
Varlega ber þó að álykta út frá
þessum samanburði, því það gef-
ur augaleið að ekki eru allir
starfsmenn sem flokkast í ofan-
greindar þrjár atvinnugreinar í
vinnu hjá ríki og sveitarfélögum.
Einnig verður að gera þann fyr-
irvara að mögulega sé að finna
opinbera starfsmenn í öðrum at-
vinnugreinum en þeim þremur
flokkum sem hér er stuðst við.
Þannig er spurningunni um
fjölgun opinberra stofnana og
starfa ríkis og sveitarfélaga engan
veginn svarað, heldur vakna
ýmsar spurningar í kjölfarið. Í
fyrsta lagi má spyrja hvort ekki
sé skynsamlegt að halda til haga
upplýsingum um fjölda stofnana
og starfsmanna hjá hinu opin-
bera þannig að unnt sé að fylgj-
ast með þróuninni. Í öðru lagi
má velta fyrir sér hvernig best
væri að standa að því að fækka
stofnunum, auka skilvirkni
þeirra eða sameina þær þegar við
á, m.a. til að ná fram aukinni
stærðar- og kostnaðarhagkvæmni
og einnig til að bregðast við þeg-
ar stofnanir og störf úreldast.
Það er vandasamt verk að
uppfylla þarfir og væntingar um
aukna samfélagsþjónustu, upp-
byggingu innviða og innleiðingu
tilskipana á sama tíma og reynt
er að halda aftur af fjölgun
stofnana og starfa hins opinbera.
Þetta er engu að síður verkefni
sem þarf að sinna því nauðsyn-
legt er að draga úr vexti hins op-
inbera. Ég minni þó á, að árang-
ur í ofangreindum þáttum er
ekki beintengdur fjölgun stofn-
ana eða aukningu starfa hjá ríki
og sveitarfélögum.
Höfundur er alþingismaður
Stofnun stofnana
VIÐHORF aGuðfinna S. Bjarnadóttir
Í grófum
dráttum virð-
ist störfum
hjá ríki og
sveitarfélög-
um hafa
fjölgað hlut-
fallslega meira en störf-
um á almennum vinnu-
markaði sl. áratug.
Erum í Dugguvogi 2. Sími 557-9510
HÚ
SG
AG
NA
-
L
AG
ER
SA
LA HÚSGAGNALAGERSALA
Opnunartími
mán-fös 9.00-18.00 lau 11.00-16.00
70%
afsláttur
LEÐUR SÓFASETT
TAU SÓFASETT
LEÐUR HORNSÓFAR
TAU HORNSÓFAR
TUNGUSÓFAR
TUNGUHORNSÓFAR
STAKIR SÓFAR
BORÐSTOFUSTÓLAR
BORÐSTOFUHÚSGÖGN
ELDHÚSBORÐ
RÚMGAFLAR JÁRN
RÚM 120-150-180X200
Allt að
Efalex eflir einbeitingu og sjón og stuðlar
þannig að betri námsárangri.
Vönduð blanda fiski- og
kvöldvorrósarolíu sem
eflir og styrkir:
• Hugsun
• Einbeitingu
• Sjón
• Hormónajafnvægi
Einstakt gegn
lesblindu og
ofvirkni.
Hentar fólki á öllum aldri.
Fæst í fljótandi formi
og hylkjum í lyfja- og
heilsuverslunum.
Efalex er einstök samsetning úr hreinni
kvöldvorrósarolíu og fiskiolíu sem innihalda þrjár
mikilvægar fitusýrur, DHA, AA og GLA ásamt
tveimur öflugum andoxunarefnum, E-vítamíni
og tímían olíu sem vinna saman að viðhaldi
lífsnauðsynlegra fitusýra í líkamanum.
Nægt magn þessarra olía í líkamanum stuðla
að skarpari hugsun og betri einbeitingu sem
eykur færni okkar til þess að læra.
Þið fáið líka buxur á ykkur á
gallabuxnadögum
6. - 13. mars
Tilboð sem ekki
er hægt að sleppa
3 verð í gangi
3000 kr
4900 kr
7740 kr
af öllum LEE &
Wrangler Gallabuxum
www.respekt.is
Respekt • Firði, 2. hæð • sími 533 3931
Gallabuxnadagar
Strákar!
Draupningsgata 7,m 603 Akureyri S: 462 - 6600 polyak@simnet.is