24 stundir - 11.03.2008, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 11. MARS 2008 24stundir
Samkomulag hefur náðst um að
Auðhumla muni héðan í frá ann-
ast söfnun mjólkur frá mjólk-
urframleiðendum Mjólku, auk
sinna eigin framleiðenda. Er von-
ast til að þessi ákvörðun muni
leiða til betri nýtingar flutnings-
tækja og lægri rekstrarkostnaðar.
Þetta muni ekki breyta því að fé-
lögin verði áfram í samkeppni á
vörumarkaði, segir í tilkynningu .
Samstarf mjólkursamlaga
Safnað saman
Ábyrgðartrygging verður innifal-
in í leyfisgjaldi fyrir hunda í Blá-
skógabyggð samkvæmt nýrri
gjaldskrá sem
byggðarráð hefur
samþykkt.
„Þetta er hugsað
til þess að auð-
velda og létta
þennan feril við
skráningu,“ segir
Valtýr Valtýsson
sveitarstjóri.
Ábyrgðartryggingin fer að sögn
Valtýs inn í tryggingapakka sveit-
arfélagsins. „Ég held að þetta sé
frekar til einföldunar heldur en
að óska eftir því að menn komi
með tryggingaskírteini fyrir
hundana.“ aij
Bláskógabyggð
Hundar tryggðir
Eftir Andrés Inga Jónsson
andresingi@24stundir.is
Benedikt Sigurðarson, sem setið
hefur í stjórn KEA frá árinu 2001,
gaf á ekki kost á sér til áframhald-
andi stjórnarsetu á síðasta aðal-
fundi. Þykir honum stjórn félags-
ins vera að villast af leið og er
meðal annars ósáttur við minnkað
vægi samfélagslegra verkefna fé-
lagsins. Formaður stjórnar segir
það af og frá.
Hvar er stemningin?
Benedikt þykir stemningin ekki
liggja með KEA og verkefnum þess.
„Það að 40 fulltrúar til aðalfundar
láta sig vanta bendir til þess að eitt-
hvað sé að í samskiptum stjórnar
og þessara fulltrúa,“ segir hann.
„Ég held að lífið og krafturinn í
samvinnufélagi byggist á því að
menn séu viljugir til þátttöku og
finni að þeir geti látið til sín taka.“
Samfélagsleg verkefni
„Það sem ég óttast fyrst og
fremst er að félagið missi tækifæri
til að vera það samfélagsafl sem
endurnýjun þess árin 1998 til 2002
stefndi að,“ segir Benedikt. „Á
sama tíma og fyrirtæki í einkaeigu
eru að leggja peninga til samfélags-
verkefna er mun meiri ástæða til að
félag sem er í svona dreifðri og
jafnri eign standi í stykkinu.“
Hannes Karlsson, formaður
stjórnar KEA, segist ekki ætla að
fara sérstaklega yfir ummæli Bene-
dikts, en telur að samfélagsleg
verkefni séu jafnhátt skrifuð hjá fé-
laginu og áður. „Auðvitað getur
þetta verið misjafnt á milli ára, það
er bara háð verkefnum. Það er ekk-
ert markvisst unnið að því að draga
úr þeim,“ segir Hannes.
KEA að villast
Áherslur í rekstri valda fráfarandi stjórnarmanni vonbrigðum
➤ Félagsmönnum hefur fjölgaðum 7.000 á síðustu 3 árum og
eru í dag tæplega 15.000.
➤ Hagnaður félagsins nam 913milljónum á síðasta ári.
➤ Á síðasta aðalfundi veittistjórnin styrki upp á 25 millj-
ónir til 4 verkefna.
REKSTUR KEA
Benedikt Sigurðarson
Kveður stjórn KEA.
Hjálparsími Rauða krossins
1717 stendur fyrir átaki þessa vik-
una, þar sem sjónum er beint að
málefnum fólks sem á í greiðsluerf-
iðleikum. Átakið var undirbúið í
samstarfi við Ráðgjafarstofu um
fjármál heimilanna og Fjármála-
þjónustuna. Rúmlega 600 manns
leituðu aðstoðar Ráðgjafarstofunn-
ar í fyrra.
Hafa sjálfboðaliðar sem svara í
1717 fengið þjálfun í því að veita
þeim sem hringja inn ráðgjöf og
upplýsingar um úrræði sem standa
þeim til boða.
Hjálparsíminn vonast til að
átakið muni hvetja til umræðu í
þjóðfélaginu um fjármálavanda
heimilanna, jafnframt því að benda
á leiðir til úrlausnar.
Segir í tilkynningu Hjálparsím-
ans að tímasetning átaksins miðist
við það að fyrstu mánuðir ársins
reynist fólki sem á í fjármálavanda
oft erfiðir. Hjá Hjálparsíma Rauða
krossins 1717 er hægt að létta á
hjarta sínu endurgjaldslaust og í al-
gerum trúnaði.
Hjálparsími Rauða krossins 1717
Réttir hjálparhönd í
greiðsluerfiðleikum
Faxafeni 12 - Sími 533 0095 I Afgreiðslutími virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga frá kl. 11-14
gluggatjöld
Alhliða þjónusta
- Mælum og gefum ráð.
- Framleiðum eftir máli.
- Setjum tjöldin upp.
Jeppadekk
ALORKA • Vagnhöfða 6 • Sími 577 3080
Heilsársdekk
31" kr. 13.900
(31x10.50R15)
33" kr. 15.900
(33x12.50R15)
Úrval annarra stærða upp í 38".
Felgustærð 15", 16" og 17".
Sendum frítt um land allt!
Við mælum með míkróskurði
P
IPA
R
• S
ÍA
• 8
016
5
Nánar á jeppadekk.is
Auglýsingasíminn er 510 3744