24 stundir - 11.03.2008, Blaðsíða 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 11. MARS 2008 24stundir
24LÍFIÐ
24@24stundir.is a
Það fyrsta sem við sáum þegar við
opnuðum kassann frá honum var risa-
stórt, ljósfjólublátt, rafknúið kynlífsleikfang
sem var ennþá með verðmiðanum á.
Lisa Marie Presley, dóttir Elvis
heitins Presleys, hefur nú höfðað
mál gegn fjölmörgum tímaritum
vestanhafs sem hafa kallað hana
feita og gefið í skyn að hún muni
hljóta sömu örlög og faðir sinn
sem borðaði sig í hel. Eins og við
er að búast krefst Lisa Maria him-
inhárra skaðabóta. vij
Ég er ekki feit eins og pabbi
Eftir Viggó I. Jónasson
viggo@24stundir.is
„Þetta byrjaði fyrir um sex vikum
með bréfum sem bárust um það
bil einu sinni í viku. En fljótlega
þróaðist þetta yfir í stærri pakka
sem berast nú tvisvar til þrisvar
sinnum í viku,“ segir heimild-
armaður tímaritsins OK! sem
greindi fyrst frá þessum nýja um-
sátursmanni söngspírunnar Brit-
ney Spears. Þessir pakkar eru iðu-
lega sendir á sama heimilisfangið í
Los Angeles, stílaðir á ungfrú
Spears, en furðu vekur að þetta til-
tekna heimili er ekki heimili söng-
konunnar.
Ógnvekjandi innihald
Söngkonunni ungu er skilj-
anlega brugðið út af þessum bréfa-
sendingum en í bréfunum útlistar
umsátursmaðurinn allskonar
subbulegar kynlífsathafnir sem
hann langar að upplifa með Brit-
ney. Hann hefur einnig sent söng-
konunni vafasamar myndir af sjálf-
um sér þar sem hann hefur klippt
burt augu sín.
Umsátursmaðurinn hefur einn-
ig tekið upp á því að senda Britney
kynlífsleikföng. „Það fyrsta sem við
sáum þegar við opnuðum kassann
frá honum var risastórt, ljós-
fjólublátt, rafknúið kynlífsleikfang
sem var ennþá með verðmiðanum
á,“ sagði hinn ónefndi heimild-
armaður við OK! Starfsfólk Brit-
ney hefur nú sent bréfin og pakk-
ana áfram til bandarísku
alríkislögreglunnar, FBI, sem mun
rannsaka þessar óhugnanlegu
sendingar.
Umsátursmaður með Britney á heilanum
Sendir bréf og
kynlífsleikföng
UMSÁTURSMENN FRÆGA FÓLKSINS
Með Jodie á
heilanum
John Hinckley jr. er líklega
frægasti umsátursmaður Holly-
wood. Eftir að hafa horft á mynd-
ina Taxi Driver heillaðist hann
af Jodie Foster og endaði þrá-
hyggja hans með því að hann
reyndi árið 1981 að myrða Ron-
ald Reagan Bandaríkjaforseta
til að ná athygli leikkonunnar.
Hinckley var vistaður inni á stofnun
til ársins 2005 en þá var honum
sleppt úr haldi.
Djöfladýrkandinn
Steven Spielberg
Félagsráðgjafinn Diana Na-
polis sannfærðist um það að
leikstjórinn Steven Spielberg
og eiginkona hans tilheyrðu
djöflatrúarhópi sem reyndi að
koma örflögu fyrir í heila henn-
ar sem myndi stjórna hugsun
hennar. Eftir að Spielberg fékk
nálgunarbann á Napolis sneri
hún sér að leikkonunni Jenni-
fer Love Hewitt, sem hún taldi
að væri að reyna að myrða sig.
Vildi biðja með Gibson
Útigangsmaðurinn Zack Sinclair
vaknaði dag einn og hafði
þá fengið skilaboð frá Guði
sjálfum um að tilgangur
hans í lífinu væri að biðjast
fyrir með Mel Gibson. Sincla-
ir gerði ítrekaðar tilraunir til
að ná fundi með Gibson og
tókst að lokum að ryðjast inn
á leikstjórann þar sem hann
var að biðjast fyrir. Í stað eilífrar
blessunar frá Guði hlaut Sinclair
þriggja ára fangelsisdóm fyrir að
sitja um Gibson.
Zeta-Jones skal deyja
Eftir að Dawnette Knight las að
Catherine Zeta-Jones ætti í
ástarsambandi við einn af
mótleikurum sínum ákvað
hún að Zeta-Jones yrði að
deyja. Hún sendi því leik-
konunni 12 bréf þar sem
hún hótaði henni lífláti og
sagðist ætla að skera hold
hennar af beinunum og gefa
hundunum. Zeta-Jones var á
barmi taugaáfalls eftir send-
ingarnar en Knight var dæmd
til þriggja ára fangelsisvistar.
Einhverjir verstu fylgifiskar frægðarinnar eru hinir kræfu umsátursmenn sem
gera ýmsa heimskulega hluti til að ná athygli þeirra stjarna sem þeir hafa feng-
ið á heilann. Sumir af þessum umsátursmönnum og -konum láta sér nægja að
hringja í stjörnurnar eða senda þeim bréf á meðan aðrir ganga skrefinu lengra
og þá stundum með skelfilegum afleiðingum.
Söngkonan Britney
Spears glímir um þessar
mundir við ákafan aðdá-
anda. Maðurinn hefur
meðal annars sent henni
klúr bréf og rafknúin
kynlífsleikföng.
MYNDASÖGUR
Bizzaró
Aðþrengdur
Afsakið að ég er til!
Getur þú séð tegundina sem réðst á
þig hér í réttarsalnum og getur þú
borið kennsl á hana?
ÉG ER RÉTT I MAÐURINN FYRIR
YKKUR, AUÐV ITAÐ ER ÉG LÖG-
GILTUR ENDURSKOÐANDI, SVO ER
ÉG LÍKA MEÐ HJÁLP Í VIÐLÖGUM.
ÞETTA ER GEGN ÞUNGLYNDI HJÁ MÉR.
FÁIÐ YKKUR EIGIN LAMPA.
VIÐ HÖFUM EKKI ENN KOMIST AÐ NIÐURSTÖÐU.
GETIÐ ÞIÐ EKKI BARA SAMIÐ VIÐ SAKSÓKNARANN.
Líkamskrem frá
KARIN HERZOG
STERKUR – STINNARI OG FALLEGRI
LÍKAMI
1 – 2 – 3 fyrir fullkominn líkama
Tilboðið inniheldur Silhouette súrefniskrem sem vinnur á
appelsínuhúð.
Tonus B12 - sem styrkir, stinnir og hjálpar húðinni að losa
við óæskileg efni.
SHOWER BODY SCRUB fylgir frítt með
Fæst í Verslunum Hagkaupa Kringlunni, Smáralind
og Apóteki Vesturlands
Bowel Biotics+
Einstök formúla fyrir heilbrigði maga og ristils
- ráðlagt af meltingarlæknum og heilsusérfræðingum
Physillium Husk
Prebiotica Inulin FOS
Probiotics 5 tegundir
mjólkursýrugerla
Vinsælasta magaheilsuefnið
í Bretlandi og víðar
Ummæli íslenskra neytenda:
„Það besta og fljótvirkasta sem við höfum prófað”
Bowel Biotics+ Kids Sérstaklega
samsett svo hæfi meltingu barna
Fæst í apótekum og heilsubúðum Celsus