24 stundir - 11.03.2008, Blaðsíða 26
Bærinn Sisimiut Fimbulkuldi
og frosnir firðir gera verk við
virkjun í grennd við bæinn allt
annað en auðvelda.
Ístak er aðalverktaki við bygg-
ingu virkjunar og lagningu há-
spennulínu til bæjarins Sisimiut á
Vestur-Grænlandi. Eftir bygg-
inguna mun Ístak koma að rekstri
hennar í fimm ár eftir gangsetn-
ingu. Flutningar til virkjunarfram-
kvæmda Ístaks við Sisimiut hafa
verið erfiðir í janúar og febrúar
vegna óvenjumikils kulda og mikils
rekíss við vesturströnd Grænlands.
Um jól og áramót kólnaði verulega
með aukinni ísmyndun á firðinum
svo að ekki reyndist unnt að sigla.
Á heimasíðu Ístaks kemur fram
að flutningar á mannskap og smá-
vörum hafi því farið fram með vél-
sleðum og snjóbíl eftir snjóvegum
og ísilögðum firði og ísilögðum
vötnum um 65 km leið. Við jarð-
gangagerð og rekstur vinnustaðar
þarf um 3-4 tonn af dísilolíu hvern
dag til að knýja vélar og framleiða
rafmagn og hita. Ekki þótti fýsilegt
að flytja olíu land- og ísaleiðina
vegna vondrar færðar og kostn-
aðar. Það var því lán í óláni að tog-
arinn Polar Nataarnaq komst ekki
til sinna veiða vegna rekíss og skip-
stjórinn bauðst til að brjóta ísinn á
öðrum firði til að koma olíu á
vinnustaðinn fyrir fasta upphæð.
Það tók togarann, sem er 700
brúttólestir að stærð, nærri 6 sólar-
hringa að brjótast í gegnum ísinn á
firðinum sem er um 22 km að
lengd. Fjörðurinn er með þreng-
ingum sem erfitt var að komast í
gegnum og því þurftu vaskir starfs-
menn Ístaks að hjálpa til með því
að sprengja vakir með dýnamíti og
létta þannig leiðina fyrir togarann.
Með dugnaði og seiglu áhafnar
togarans, starfsmanna Ístaks og
síðast en ekki síst þrjósku skip-
stjórans tókst ætlunarverkið „að
brjótast inn“.
dista@24stundir.is
Virkjun við Sisimiut á Grænlandi
Erfiðar aðstæður
26 ÞRIÐJUDAGUR 11. MARS 2008 24stundir
Ökumannshús dráttarvéla
þurfa að vera vel búin þannig að
þau auki öryggi ökumanns og
dragi úr óþarfa slysahættu og
álagi. Slæm aðstaða ökumanns
getur valdið ýmiss konar lík-
amlegum óþægindum og sé lítil
einangrun getur mikill og stöð-
ugur hávaði valdið heyrn-
arskemmdum.
Ástand kannað fyrir kaup
Þegar verið er að kaupa drátt-
arvél ætti að huga vel að smáat-
riðum er varða aðstöðu í öku-
mannshúsi. Ennfremur skal fara
vel yfir ástand húsanna á eldri
vélum en með litlum tilkostnaði
má gera ýmsar úrbætur sé þess
þörf.
Á vefsíðu Rannsóknarstofn-
unar landbúnaðarins er að finna
gátlista sem vert er að kynna sér
áður en gengið er til kaupa á
dráttarvélum. Fyrst ber að huga
að aðgengi inn í og úr drátt-
arvélum. Ökumenn vélanna
þurfa að komast á auðveldan og
þægilegan hátt að og frá vélinni
og þarf að gæta þess að ekkert
hamli för þeirra. Tröppur upp í
ökumannshús skulu vera breiðar
og mega ekki vera hálar jafnvel
þótt stigið sé í þær í mjög skít-
ugum skóm. Þrepin þurfa að
þola bleytu og hurð ökumanns-
hússins skal vera breið og há
með góðu aðgengi að handfangi.
Hurðin skal einnig opnast vel og
kvikna skal á inniljósi þegar
dyrnar eru opnaðar. Ökumanns-
húsið skal vera rúmgott og auð-
velt á að vera að halda því
hreinu. Húsið skal vera laust við
lagnabúnað sem getur valdið ol-
íuleka og sætin eiga að vera still-
anleg. Fjöðrun og dempun sætis
skal vera til staðar og stýrishjól
ætti að vera hægt að stilla eftir
þörfum ökumanns. Útsýni úr
ökumannshúsi skal vera gott til
allra átta, en hindri eitthvað yf-
irsýn ökumannsins getur mikil
slysahætta skapast.
hilda@24stundir.is
Hugað að smáatriðum við kaup á dráttarvél
Gátlisti eykur öryggi
Öryggi Ökumannshús
þurfa að tryggja öryggi
ökumannsins.
Áhættuþættir tengdir því að
vinna með loftpressu eða glussavél
geta tengst þyngd þeirra véla og
þeim titringi sem þær valda á lík-
ama starfsmannsins.
Loftpressur geta vegið um 25-50
kg.
Þegar lyfta þarf þyngd yfir 25 kg
er aukin hætta á heilsutjóni. Að
lyfta 25 kg einu sinni veldur ekki
endilega heilsutjóni, en ef þörf er á
endurtekningum gæti það orðið og
telst óviðunandi.
Um það hvort það er hættulegra
konum en körlum að vinna á loft-
pressu eða glussafleyg má segja að
almennt eru konur minni og veik-
byggðari en karlar og því líklegri til
að verða fyrir álagseinkennum
vegna erfiðisvinnu. Undantekn-
ingar eru að sjálfsögðu frá þessu og
sumar konur geta haft styrk og
burði á við karlmenn. Því er þetta
alltaf háð líkamsburði einstaklinga
en ekki kyni.
Varðandi þungaðar konur gilda
reglur nr. 931/2000 um öryggi og
heilbrigði á vinnustöðum fyrir
konur sem eru þungaðar. Í þeim er
tekið fram að titringur sé áhættu-
þáttur á ákveðnum tíma með-
göngu og því þurfi að taka tillit til
þess við gerð áhættumats í sam-
ræmi við reglugerðina.
dista@24stundir.is
Er óhollt fyrir konur að vinna á loftpressu?
Styrkurinn skiptir máli
Kynið skiptir ekki máli Mýtan um að
konur megi ekki vinna á loftpressu er
vitleysa. Þungaðar konur ættu þó ekki
að vinna á loftpressu.
P
R
E
N
T
S
N
IÐ
HEILDARLAUSNIR
Í DRIFSKÖFTUM
Landsins mesta úrval
af hjöruliðum og
drifskaftsvörum
Jafnvægisstillingar
Vagnhöfða 7
110 Reykjavík
Sími: 517 5000
Bíldshöfði 14 - Sími 553 1244 – ljosboginnehf@simnet.is
Mikið úrval af:
störturum og alternatorum fyrir
flestar gerðir fólksbíla, vörubíla og
vinnuvéla. Einnig varahlutaþjónusta
Gazelle 4x4 með krana
og sturtupalli
Gazelle 4x4 Sendibifreið
7 manna
Sunward beltagröfur
Ikura Rafmagns handlokkar og
segulborvélar
Soosan Fleygar í öllum stærðum
sennilega þeir bestu í dag
Gazelle 4x2 með sturtupalli
Skútahrauni 11
220 Hafnarfjörður
S. 565 2727
www.hraunbt.is
Gazelle 4x4 með krana og sturtupalli.
Verð 3.680 þ. + vsk.
Gazelle 4x4 sendibifreið 7 manna.
Verð 2.817.500 + vsk.
Gazelle 4x2 með sturtupalli
Verð 2.780 þ. + vsk.
Auglýsingasíminn er
510 3744
stundir