24 stundir - 11.03.2008, Blaðsíða 27
24stundir ÞRIÐJUDAGUR 11. MARS 2008 27
Hjá Vinnueftirlitinu verður
haldið námskeið í meðhöndlun
sprengiefnis í lok marsmánaðar.
Gylfi Már Guðjónsson hjá Vinnu-
eftirlitinu segir þörf á því að halda
slík námskeið að minnsta kosti
árlega. „Þekking á meðhöndlun
efnanna skiptir miklu máli hvað
varðar öryggi,“ segir hann. Gylfi
segir lítið hafa verið um slys ný-
verið þótt einhver hafi þau verið.
„Síðasta slys sem ég vissi af var, að
ég held, við Kárahnjúka.
Námskeiðið stendur yfir í fimm
daga og samanstendur af fyr-
irlestrum, kennslu í útreikningi
og fræðslu um eiginleika og með-
höndlun ýmissa sprengiefna. Þá
eru tekin bæði bókleg og verkleg
próf hjá prófdómara. Verklega
prófið fer fram í raungerðum
kringumstæðum á vinnusvæði
þar sem er verið að sprengja. Að
bóklega hlutanum koma nokkrir
og deila með þátttakendum
reynslu sinni og þekkingu.“ Gylfi
nefnir Gunnar Birgisson sem er
verkfræðimenntaður með áherslu
á meðferð sprengiefna og Árna
Baldursson, sprengistjóra hjá Ís-
taki.
Sprengiefnin á Hólmsheiði
Sprengiefni í framkvæmdir á
vegum borgarinnar eru enn
geymd á Hólmsheiði við Norð-
lingaholt. Byggðin er að færast
nær sprengjuefnageymslunum.
Um 4 ár eru síðan ábendingar
komu fram um að færa þyrfti
sprengiefnageymslurnar vegna
nálægðar við fyrirhugaða byggð á
Norðlingaholti.
dista@24stundir.is
Námskeið um meðhöndlun sprengiefna
Sprengjusérfræðingar kenna
Sjö tonn af sprengiefni
Bergstálið í gljúfrinu við
Kárahnjúka sprengt.
Sprengiefni í grennd við byggð
Hólmsheiði við Norðlingaholt.
Fyrirtækið JCB hefur hannað
hraðskreiðustu gröfu í heimi fyrir
bandaríska herinn en vélarnar
verða sendar til herliða í Afgang-
istan og Íran.
Grafan sem er afar öflug og
hreyfanleg er kölluð Batman-bíll
vinnuvélanna en hún á að auð-
velda Bandaríkjaher störfin á af-
skekktum svæðum í löndunum
tveimur. Grafan á einnig að auka
öryggi þeirra sem á þeim starfa og
gera ökumönnum kleift að koma
sér í burtu mun hraðar en áður,
brjótist átök út og verði þess þörf.
Vélin er auk þess búin öðrum kost-
um sem eiga að nýtast vel í hern-
aðarlegum tilgangi.
Hraðskreiðasta grafa í heimi
Hönnuð fyrir Bandaríkjaher
Nýr leikmaður
í þungavigtardeild
...með mikla reynslu
Flugumýri 28 · 270 Mosfellsbæ
Sími 544 2090 · Fax 544 2091
www.global-taeki.com
SUPER-EXCEED samanstendur
af breiðri línu beltavéla frá 7 tonnum
upp í 46 tonn.
SUPER-EXCEED vélarnar eru:
- sérlega hagkvæmar í rekstri
- hraðvirkar og öflugar
- sterkbyggðar
- með háþróað vökvakerfi
- með vinnuvænt stjórnhús
- þægilegar í öllu aðgengi
Umboðsaðili fyrir KATO á Íslandi:
Japanskar vinnuvélar
Stofnað 1895