24 stundir - 12.04.2008, Qupperneq 28
28 LAUGARDAGUR 12. APRÍL 2008 24stundir
Þegar ég heyrði í kvöldfréttum
Sjónvarpsins á fimmtudaginn við-
tal við Gylfa Magnússon, dósent í
hagfræði við Háskóla Íslands, þá
hnykkti mér illa við.
Því hvernig stóð á því að Háskóli
Íslands hefði ráðið í svo virðulegt
embætti þjóðhættulegan óeirða-
segg? Var maðurinn kannski
kommúnisti? Íslamískur hryðju-
verkamaður? Náttúruverndarsinni
á snærum Saving Iceland?
Eða jafnvel útsendari Baugsveld-
isins?
Hann hlaut að minnsta kosti að
vera eitthvað skrýtinn.
Því boðskapur Gylfa var hvorki
meira né minna en sá að peninga-
málastjórn Seðlabanka Íslands væri
ónýt.
Krónuræfillinn enn
Það út af fyrir sig var kannski
ekki nýlunda. Það höfum við heyrt
áður. Og það vitum við reyndar
líka fullvel sjálf. Hinar endalausu
stýrivaxtahækkanir bankans, sem
virðast vera hans eina ráð hvað sem
á gengur, hvort sem krónan hækk-
ar eða lækkar eða fer út eða suður
eða norður eða niður - þær hafa
löngu leitt okkur fyrir sjónir að
bankinn er ónýtt tæki til að stýra
peningamálum þjóðarinnar.
Bankanum er vissulega að sumu
leyti vorkunn, að þurfa að basla
með þennan krónuræfil okkar eins
og krónan sé alvörupeningur. Þótt
auðvitað kunni að draga úr vor-
kunn okkar þegar við minnumst
þess að einmitt þar innan dyra eru
sumir þeir menn sem fastast bíta í
skjaldarrendur til varnar hinum
ónothæfa krónuræfli.
En af þessum vandræðum Seðla-
bankans vitum við og þetta veit
Gylfi væntanlega líka.
Annaðhvort væri nú.
En samt – og nú þegar kenn-
arinn hélt áfram sperrti ég eyrun
við útvarpinu sem ég var að hlusta
á Sjónvarpsfréttirnar í – samt var
hin ónýta íslenska króna ekki
helsta skýringin á óförum okkar að
hans mati.
Raunar minntist hann á krón-
uræfilinn svo ég heyrði.
Traustið á Halldóri Blöndal
Í staðinn beindi hann athyglinni
að því að sjálf stjórn bankans væri
komin í þrot. Uppstokkun væri
nauðsynleg. Algjör uppstokkun.
Því hann sagði beinlínis að það
þyrfti að víkja frá bæði bankastjór-
um og bankaráðinu.
Í staðinn þyrfti að fá þarna inn
sérfræðinga í peningamálum, bæði
Íslendinga og útlendinga, sem
hefðu – eins og hann orðaði það
svo skemmtilega – „áunnið sér
traust með verkum sínum“.
Þegar Gylfi minntist á bankaráð-
ið í þessu sambandi þá hló Mar-
bendill. Því formaður bankaráðs-
ins er Halldór Blöndal.
Já, á einhverjum viðsjárverðustu
og viðkvæmustu tímum í efna-
hagsmálum lýðveldisins, þegar
mest ríður á að stjórn peningamála
sé farsæl og örugg, þá er formaður
bankaráðs Seðlabanka Íslands
Halldór Blöndal.
Með fullri og djúpri virðingu
fyrir Blöndalsættinni eins og hún
leggur sig: Hefur Halldór Blöndal
„áunnið sér traust“ í peningamál-
um?
Eða sumir bankaráðsmennirnir
eins og Hannes Hólmsteinn Giss-
urarson?
Myndarleg launahækkun og
eftirlaun
Marbendill hætti hins vegar að
hlæja þegar rifjaðist upp fyrir hon-
um að hverjum orðum Gylfa
Magnússonar var fyrst og fremst
beint.
Hvern hann vildi umfram allt
láta reka úr starfi.
Það er Davíð Oddsson yfir-
bankastjóri.
Davíð Oddsson hefur vissulega
áunnið sér traust síns fólks í pen-
ingamálum. Hann lét hækka mjög
myndarlega við sig launin eftir að
hann kom í Seðlabankann svo
hann hefur nú hærri laun en forseti
Íslands. Og hann þiggur líka í
hverjum mánuði svimandi há eft-
irlaun sem hann skammtaði sér
sjálfur.
Hans fólk mun ekkert skorta.
En traust annarra á verkum
Davíðs í peningamálum er greini-
lega orðið svo lítið að menn eins og
Gylfi – virðulegur háskólakennari,
altso - krefjast þess nú að hann
verði rekinn.
Svo það komist að menn sem
hafa vit á hlutunum.
Og hafa áunnið sér traust.
Með verkum sínum, eins og dós-
entinn orðaði það.
Það voru þessi orð sem gerðu að
verkum að stundarkorn átti ég bágt
með að trúa eigin eyrum. Svo
mengaður er maður orðinn af
átakapólitíkinni sem Davíð
þreifst á og gegnsýrði samfélagið á
hans dögum, að mér fannst að eitt-
hvað hlyti að búa undir hjá Gylfa.
Hann væri bara á móti honum
Davíð okkar af einhverjum tor-
tryggilegum ástæðum.
Hinn mikli og ástsæli leiðtogi
En nú er ég búinn að leita um
allt Internetið að grunsamlegum
upplýsingum um Gylfa Magnús-
son. Að einhverju sem gæti gefið
vísbendingu af hverju hann ræðst
svo heiftarlega að okkar mikla og
ástsæla leiðtoga og öruggri hækkun
hans á stýrivöxtum.
En ég finn ekkert. Það næsta sem
hann hefur komið pólitík sýnist
mér vera að hafa verið blaðamaður
á Mogganum. Og hann hefur aldr-
ei unnið hjá Baugi.
Og þá stendur aðeins eitt eftir.
Að fagmanninum hafi blöskrað
þetta fúsk. Að hagfræðidoktornum
frá Yale-háskóla ofbjóði af fyllstu
einlægni að horfa upp á aðfarirnar
í Svörtuloftum.
Nú væri gaman að vita hvort
einhver er að hlusta. Til dæmis í
Stjórnarráðinu. Eða hvort tryggð
arftakanna við hinn mikla og ást-
sæla leiðtoga er slík að fyrr skuli
peningamál lýðveldisins fara til
andskotans en hróflað verði við
honum.
Þegar doktornum ofbauð
aIllugi Jökulsson skrifar um fjármál
Og þá stendur
aðeins eitt
eftir. Að fag-
manninum
hafi blöskrað
þetta fúsk.
Að hagfræði-
doktornum
frá Yale-háskóla ofbjóði
af fyllstu einlægni að
horfa upp á aðfarirnar í
Svörtuloftum.
Gylfi Magnússon. „Bank-
anum er vissulega að sumu
leyti vorkunn, að þurfa að
basla með þennan krón-
uræfil okkar eins og krónan
sé alvörupeningur.
24stundir/Ómar
WWW.SVAR.IS - SÍÐUMÚLA 37 - SÍMI 510 6000
179.900-
249.900-VERÐ ÁÐUR:
SAMSUNG 40” LCD - R86 / R87
HDTV Ready / 1366x768 upplausn /
stafrænn móttakari / 8.000:1 skerpa /
6 ms. svartími
Sumarbústaðurinn er 48,6
fm + stórt svefnloft og er
rúmlega tilbúið til
innréttinga. Er á fallegum
stað undan Búrfelli,
nálægt Kerinu í Grímsnes-
og Grafningshrepp.
Tvö svefnherbergi,
baðherbergi, stofa og
eldhús. Rafmagn er komið
í húsið ásamt köldu vatni en heitavatnið er áætlað að komi á árinu.
Húsið stendur á 8.200 fm eignarlóð. Langtímalán til yfirtöku.
Eggert Sk. Jóhannesson, Jóhannes Eggertsson, Ólafur Thoroddsen hdl.
Nánari upplýsingar veitir
Fasteignasalan Eignaver
Sími 553-2222 • eignaver.is
Síðumúli 13 • 108 Reykjavík
Nýtt sumarhús
við Kerið í Grímsnesi sölu