24 stundir - 03.05.2008, Blaðsíða 1
„Það er ljóst að lögreglan gæti gert svo miklu meira fengi hún meiri fjár-
muni.Við munum sennilega sjá meira af götuvændi, vasaþjófnaði og rán-
um á götum úti ef ekki er brugðist við í tíma og löggæslan sett á þann stall
sem hún á að vera á þegar kemur að fjárveitingum,“ segir
Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins. »42
Gætum gert svo
miklu meira
24stundir/Júlíus„Þarf að bregðast við í tíma“
24stundirlaugardagur3. maí 200883. tölublað 4. árgangur
Júlíana Bjarnadóttir hefur starfað
í lögreglunni í tvö ár. Á þeim stutta
tíma hefur hún þegar orðið vör við
breyttar starfsaðstæður. „Þetta er
að verða grófara og fólk leyfir
sér að vaða í okkur.“
Grófara mannlíf
VIÐTAL»50
Einar Gústavsson matreiðslumaður
segir að bylting hafi orðið í íslenskri
matreiðslu um aldamótin og sé hún nú
á háum stalli. Þá varð auðveldara að fá
gott hráefni og metnaðurinn jókst
um svipað leyti.
Á háum stalli
MATUR»46
96% verðmunur
á Fitty brauði
NEYTENDAVAKTIN »4
Rúmenskur karlmaður hefur
farið fram á að Neytendastofa
þar í landi rannsaki ákveðna
bjórtegund, eftir að hann varð
ofurölvi af því að drekka ein-
ungis einn bjór.
Hinn 35 ára Iancu Boroi
kveðst allt annað en sáttur við
að hafa nærri dáið áfeng-
isdauða vegna bjórdrykkj-
unnar. „Ég kann sko alveg að
fara með áfengi. Eitthvað hlýt-
ur að hafa farið úrskeiðis og
ég mun fara fram á skaðabæt-
ur.“ aí
Varð ölvaður
af einum bjór
GENGI GJALDMIÐLA
SALA %
USD 76,74 21,7
GBP 151,65 1,72
DKK 15,87 1,12
JPY 0,73 1,32
EUR 118,43 1,12
GENGISVÍSITALA 153,05 1,46
ÚRVALSVÍSITALA 5.171,38 -0,77
6
8
5
3 3
VEÐRIÐ Í DAG »2
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@24stundir.is
Yfirmenn á opinbera markaðnum
hafa beitt starfsfólk með langan veik-
indarétt þrýstingi og gert því að
ganga frá starfslokum þegar heilsan
hefur bilað eða þegar veikindi hafa
staðið í langan tíma. Í fréttablaði Efl-
ingar, sem kom út 1. maí síðastlið-
inn, er varað við þessari þróun og
launafólk hvatt til þess að vera vel á
varðbergi.
„Það er í raun verið að þvinga fólk
til að segja upp. Það hafa komið upp
þónokkur slík tilfelli þau tvö ár sem
ég hef starfað hér. Starfsmenn hjá
ríkinu, Reykjavíkurborg og sjálfeign-
arstofnunum hafa leitað til okkar.
Flest tilfellin tengjast sjálfseignar-
stofnunum,“ segir Ragnar Ólason,
þjónustufulltrúi hjá Eflingu sem
jafnframt situr í stjórn sjúkrasjóðs
Eflingar.
360 daga veikindaréttur
Hann segir að oftast sé um að
ræða fólk sem komið er yfir fertugt.
„Það er þá sem heilsan fer að bila. Ef
fólk er búið að vinna í 18 ár í þessu
umhverfi er það komið með 360
daga veikindarétt. Þess vegna er ver-
ið að þrýsta á fólk að segja upp út af
veikindum eða minnka við sig starfs-
hlutfall. Ég hef heyrt að minna sé um
þetta á almenna markaðnum þar
sem fólk er í mesta lagi með 4 mán-
aða veikindarétt.“
Að sögn Ragnars hefur í sumum
tilfellum tekist að leiðrétta málið.
„Við eigum góð samskipti við flesta
þessa vinnuveitendur sem segja
stundum að þeir hafi ekki áttað sig á
réttindum starfsmanna. Stundum
getum við ekkert gert þar sem fólk er
búið að skrifa undir uppsagnarbréf.“
Ögmundur Jónasson, formaður
BSRB, veit dæmi þess að starfs-
mönnum hafi verið sagt upp þegar
þeir hafi snúið aftur til vinnu eftir
veikindi. „Við lítum þetta mjög al-
varlegum augum og blöndum okkur
í málið.“
Þvingað til
að hætta í
veikindum
Yfirmenn á opinbera markaðnum beita
starfsfólk þrýstingi Efling varar fólk við að
afsala sér umsömdum veikindarétti
➤ Þar sem starfsmenn á op-inbera markaðnum eru með
lengri veikindarétt en þeir
sem eru á almenna mark-
aðnum borga atvinnurek-
endur þeirra minna í sjúkra-
sjóð.
➤ Þar með fá starfsmenn á op-inbera markaðnum ekki
greitt jafnlengi úr sjóðnum
og starfsmenn á almenna
markaðnum, eða 3 mánuði á
móti 6 mánuðum.
DAGPENINGAR
Minnihlutinn á Akranesi gagn-
rýnir samning við Securstore um
tölvuþjónustu fyrir bæinn. Sonur
forseta bæjarstjórnar er eigandi
Securstore og endurskoðandi bæj-
arins endurskoðar líka
Securstore.
Tekist á um
tölvusamning
»2
Tvær nýjar bjórverksmiðjur hefja
starfsemi á þessu ári og verða inn-
lendir bjórframleiðendur þar með
orðnir sjö. Hlutdeild innlends
bjórs vex ört og eru nú seldir tveir
íslenskir bjórar á móti
einum innfluttum.
Sífellt fleiri
brugga bjór
»28
Hvítlaukssmjör me› steinselju
Listhúsinu Laugardal
Reykjavík
Sími: 581 2233
Dalsbraut 1
Akureyri
Sími 461 1150
Eftir að ég fékk mér IQ-CARE
hef ég ekki fundið til í bakinu!
Sölvi Fannar Viðarsson
Framkvæmdastjóri Heilsuráðgjafar
Ég mæli hiklaust með
6 mán.
vaxtalausa
r raðgr.
»14