24 stundir - 03.05.2008, Blaðsíða 59

24 stundir - 03.05.2008, Blaðsíða 59
Listapósturinn 5 . t b l . • 1 3 . á r g a n g u r • 3 . m a í 2 0 0 8 • 1 4 9 . t b l . f r á u p p h a f i Listapósturinn · Útgefandi: Gallerí Fold, listmunasala · Rauðarárstíg 14, 105 Reykjavík · Sími: 551 0400 · fax: 551 0660 · Netfang: fold@myndlist.is · í Kringlunni, 103 Reykjavík · Sími: 568 0400 · Netfang: foldkringlan@myndlist.is · Heimasíða Gallerís Foldar og Listapóstsins er: www.myndlist.is · Ritstjóri: Tryggvi P. Friðriksson · Ábyrgðarmaður: Elínbjört Jónsdóttir · Umsjón heimasíðu: Jóhann Á. Hansen · Upplag: 95.000 prentuð eintök fylgja 24 stundum og 3300 rafræn eintök, send ókeypis til áskrifenda. Áhyggjur af myndlistinni Fyrir nokkru birtist í Morgunblaðinu lítil frétt um áform franskra yfirvalda til að styrkja listaverkamarkaðinn þar í landi. Þetta ætla Frakkar að gera með því að sjá til þess að almenningi bjóðist vaxtalaus lán til listaverkakaupa og auka á skattaafslátt sem fyrirtæki fá gegn kaupum á listaverkum. Rætt er um að lánin geti numið allt að 10.000 evrum.* Þá er ætlunin að styðja við uppboðshúsin til að gera þau samkeppn- ishæfari við erlend uppboðshús. Það sem veldur þessum áhuga yfirvalda í Frakklandi á að efla sölu á myndlist þar í landi, er að það kom í ljós í óháðri rannsókn að Kínverjar náðu þriðja sætinu af Frökkum í heimsverslun með listmuni. Ennfremur að vöxtur í sölu myndlistar var mun minni í Frakklandi en víðast annars staðar. Mennta- málaráðherrann franski, Albanel, sagði að nauðsynlegt væri að bregðast við. Skrifara datt í hug að setja niður á blað fáein atriði sem hann hefur áhyggjur af hér á landi og myndi ráða bót á væri hann mennta- málaráðherra, sem auðvitað verður varla úr þessu. a. Listasafn Íslands býr við allt of þröngan húsakost. b. Sýningarstefna safnsins veldur því að ís- lenskar þjóðargersemar eru í geymslum langtímum saman. Jafnvel yfir hásum- artímann, þegar erlendir ferðamenn sækja safnið heim í stórum stíl, er ekki gefið að þeir sjái það besta sem við eigum af myndlist. c. Fjármagnið sem safnið fær til nýkaupa er grátlega lágt. d. Ríkið og stofnanir þess gera lítið af því að kaupa myndlist og slíkt er jafnvel litið hornauga sem óhóf. e. Sífelld úlfúð er um starfslaun myndlist- armanna. f. Óhófsuppákomurnar í Feneyjum, sem ráðherrann fær að heimsækja á tveggja ára fresti, síðast til að leita að huldukind, vekja sáralitla eða enga alþjóðlega eft- irtekt. Sífellt er þó reynt að telja lands- mönnum trú um að framlag Íslands hafi vakið mikla og jákvæða athygli. g. Höfundarréttargjöld hérlendis eru þau hæstu í heiminum. Ef þessi óhóflega inn- heimta á ekki að endurspegla stefnu Sjálfstæðisflokksins í skattamálum þarf að lækka gjaldið til jafns við það sem ger- ist annars staðar. h. Höfundarrétturinn fellur aldrei niður á uppboðum, hversu gamalt sem listaverk- ið sem selja á er, en það er einsdæmi. Þessi galna regla getur valdið því að frek- ar verði farið með listaverk til útlanda í sölu en að reyna að selja þau hér heima. i. Nánast aldrei er fjallað um myndlist í Ríkissjónvarpinu. j. Fræðsla um myndlist er í mýflugumynd í skólum landsins. Þetta sést best á því að undantekning er ef nemendur sem keppa fyrir skólana í ýmsum spurningakeppn- um geta svarað spurningum tengdum myndlist. k. Full ástæða virðist vera til að hafa áhyggj- ur af kennslu í myndlistardeild Listahá- skólans, a.m.k. miðað við síðustu út- skriftarsýningar skólans. l. Sífellt koma fram falsaðar myndir úr stóra fölsunarmálinu sem ekki tókst að klára vegna ótrúlegs klúðurs. m. Íslenski menntamálaráðherrann mætti sækja fleiri sýningar. Skrifari gerir sér grein fyrir að mikill munur er á menningarstigi Frakka og Íslendinga, Frökkum í vil. Dæmi um það er að Frakkar keppast við að byggja söfnin sín upp og gera þau glæsilegri, meðan við höldum okkar þjóðlistasafni í spennitreyju. Þeir hafa löngu uppgötvað að þjóðararfurinn dregur gesti í milljónatali í söfnin. Hér virðist hins vegar tilhneiging til að breyta þjólistasafninu í nokkurs konar nýlistasafn. Hér er þörf á aðgerðum. TPF * Tekið skal fram að um skeið hefur verið boðið hér upp á vaxtalaus lán til listmunakaupa og er hámarks- upphæð 600 þúsund krónur. Þetta hefur verið til töluverðra bóta, en ríkið hefur ekki komið nálægt því framtaki. BOÐSKORT innrömmun við Rauðarárstíg Fullkomnasta rammaverkstæði landsins Mikið úrval af rammalistum · Gallerí Fold · Opið er í Galleríi Fold virka daga frá kl.10–18, laugardaga frá kl. 11–16 og sunnudaga frá kl. 14–16. Allir velkomnir á opnunina Laugardaginn 3. maí kl. 15 opnar Pétur Gautur sýningu í Baksal Gallerís Foldar. Sýningin stendur til 25. maí Pétur Gautur sýnir í Galleríi Fold Ný málverk · Blómastillur · Á fyrstu einkasýningunni minni fékk ég ósköpin öll af gestum og sama skapi af blómum. Og ég hugs- aði með mér að einhvern tímann myndi ég setjast niður og mála öll þessi blóm, öll þessi form og alla þessa liti. Nú í tilefni fimmtán ára „málara“ afmælis míns fannst mér tilvalið að efna við sjálfan mig gamalt loforð og mála loksins þessi blessuðu blóm. Kæruleysi og málaragleði var útgangspunkturinn fyrir þessa sýningu. Til að leggja áherslu á það ákvað ég að mála alla sýninguna heima í stofu, í bílskúrnum og í sumarbústaðnum. Ekki á vinnustof- unni í hundraðogeinum. Pétur Gautur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.