24 stundir - 03.05.2008, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2008 24stundir
Ashutosh Muni
AUKIN LÍFSGÆÐI – BETRA LÍF
helgarnámskeið 9.-11. maí nk.
Fjallað verður um:
– Andlega vellíðan og tilfinningalegt jafnvægi
– Hvernig við tökumst á við erfiðar tilfinningar á jákvæðan
hátt
– Hvernig við getum hlúð betur að okkur sjálfum og fjöl-
skyldunni í nútíma samfélagi
– Hvernig við sköpum aukin lífsgæði með andlegri iðkun
Ashutosh Muni er einstakur meistari jógavísindanna,
sem miðlar visku sinni og kærleik af sannri umhyggju. Hann
leggur áherslu á að lifa innihaldsríku lífi og elska fjölskyldu
sína. Þetta er tækifæri til að njóta kennslu hjá einstökum
meistara sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara.
Námskeiðið verður í Valsheimilinu (hátíðarsal) að Hlíðarenda.
Nánari upplýsingar og skráning: Einar Ísleifsson 861 2101,
Áslaug Höskuldsdóttir 694 8475, Kristbjörg Kristmundsdóttir
861 1373 og yoga@simnet.is
24stundir
Útgáfufélag:
Ritstjóri:
Fréttastjórar:
Ritstjórnarfulltrúi:
Árvakur hf.
Ólafur Þ. Stephensen
Björg Eva Erlendsdóttir
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Þröstur Emilsson
Elín Albertsdóttir
Auglýsingastjóri: Gylfi Þór Þorsteinsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2, 110 Reykjavík
Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711
Netföng: frettir@24stundir.is, auglysingar@24stundir.is, 24stundir@24stundir.is,
Prentun: Landsprent ehf.
Minnkandi stuðningur við ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar
í skoðanakönnun Gallup kemur ekki á óvart. Í versnandi efnahagsástandi
liggur beint við að almenningur geri sitjandi ríkisstjórn ábyrga og refsi
henni með því að lýsa yfir stuðningi við stjórnarandstöðu.
Ríkisstjórnin getur sjálfri sér um kennt. Ráðherrum hennar hefur virst
fyrirmunað að lesa rétt í umhverfi sitt. Þjóðin hefur á tilfinningunni að
þeir vilji fremur vera í útlöndum en leysa efnahagsvanda þjóðarinnar. Rík-
isstjórn sem fékk heitið Þingvallastjórn á fyrstu dögum sínum er nú kölluð
Útlagastjórnin í háðstón vegna tíðra utanlandsferða ráðherra. Smámál
eins og þotuferð verður í hugum almennings tákn um firringu ráð-
herranna. Ríkisstjórnin hefði sennilega átt að huga að því í upphafi að
ráða í sína þjónustu skynsama upplýsingafulltrúa. Þeir hefðu ekki látið
leiguþotumál stórskaða ímynd ríkisstjórnarinnar.
Samfylkingin tapar fylgi meðan Sjálfstæðisflokkur heldur sínu. For-
maður Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra, Geir Haarde, er þó ekki
lengur jafn hátt skrifaður á ánægjuvog kjósenda og hann var. Honum hef-
ur ekki tekist að sannfæra þjóðina um að ríkisstjórnin standi efnahags-
vaktina. Þjóðin hefur á tilfinningunni að ríkisstjórnin viti ekki hvað hún
eigi að gera.
Samfylkingin á ekki að falla í þá gryfju að telja samstarfið við Sjálfstæð-
isflokk í ríkisstjórn aðalástæðu fyrir minnkandi fylgi. Flokkurinn, sem
auglýsti sig rækilega sem félagshyggjuflokk fyrir kosningar, hefur fallið á
nokkrum prófum síðan þá. Ráðherrar flokksins virka flestir úr takti við
vilja almennings.
Það er lán ríkisstjórnarinnar, og nokkuð sem hún ætti að þakka fyrir á
hverjum degi, hversu heimskulega stjórnarandstaða
landsins hagar málflutningi sínum. Kröfur stjórnar-
andstöðuleiðtoga um að ríkisstjórnin segi af sér eru til
marks um málefnagjaldþrot. Stjórnarandstaða sem
talar á þennan veg virðist ekki eiga nein svör. Nið-
urstaðan hlýtur að vera að núverandi ríkisstjórn sé sú
skásta sem völ er á. Meirihluti þjóðarinnar styður enn
ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar og sá
stuðningur mun mjög líklega vara lengi. Ríkisstjórn-
arinnar bíður hins vegar það verkefni að sannfæra al-
menning um að hún sé ekki skásti kosturinn fyrir
þjóðina heldur sá besti. Ef rétt er á málum haldið ætti
það verkefni ekki að reynast erfitt.
Skásti kosturinn
SÆKTU LEIÐARANN Á WWW.MBL.IS/PODCAST
Ég lagði til að það mætti t.d.
taka upp sams konar fyr-
irkomulag og er í sumum
kjarasamninga
rafiðnaðar-
manna á hinum
norðurlandanna,
að setja þessa
frídaga við
þjóðhátíðardag
þannig að þá
yrði alltaf a.m.k.
þriggja daga
helgi. Ef 17. júní væri á
fimmtudegi þá væri frí á föstu-
dag líka, ef hann væri á þriðju-
degi væri frí á mánudegi og ef
hann lenti inn á helgi þá væri
frí á mánudag. Ef hann lenti á
miðvikudegi þá væri frí
fimmtudag og föstudag. Þetta
kerfi gengur upp á 7 árum …
Guðmundur Gunnarsson
gudmundur.eyjan.is
BLOGGARINN
Breytt frí
Í tólf ár bjó Alfred Dubanovsky
ofan við kjallarann í húsi Josefs
Fritzl. Heyrði undarleg hljóð úr
kjallaranum og
varð var við
undarlega hegð-
un húseiganda
um kvöld og
nætur. Fritzl
bannaði honum
að hnýsast. Dub-
anovsky hlýddi,
enda taldi hann
þetta vera einkamál Fritzl.
Hundrað manns bjuggu á ýms-
um tímum í húsinu. Hneykslið í
Amsetten er dæmigert fyrir
samfélag, sem bannar forvitni
nágranna. Samfélag, sem setur
einkalífið á stall. Samfélag Aust-
urríkis og Norðurlandanna, þar
á meðal Íslands.
Jónas Kristjánsson
jonas.is
Í skjóli einkalífs
Það væri óskandi að aðrir ráð-
herrar í ríkisstjórninni gætu tek-
ið Guðlaug Þór sér til fyrir-
myndar. Ég á þá
sérstaklega við
sjávarútvegs-
ráðherra sem hef-
ur þverskallast
við að hlusta á
málefnalega
gagnrýni á núver-
andi óstjórn fisk-
veiða og jafnvel
þó svo að kerfið hafi verið úr-
skurðað ósanngjarnt af mann-
réttindanefnd Sameinuðu þjóð-
anna. Vísindamenn sem hafa
efast um ráðgjöf Hafró og hafa
bent á að veiðin virðist minnka
stöðugt eftir því sem uppbygg-
ingarstarf stofnunarinnar heldur
lengur áfram ...
Sigurjón Þórðarson
sigurjonth.blog.is
Gott hjá Gulla
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrun@24stundir.is
Formaður Framsóknarflokksins
hafði hátt í vikunni þegar hann
krafðist afsagnar ríkisstjórnarinnar vegna stöðu efna-
hagsmála. Guðna Ágústssyni voru gerð góð skil í
fréttum með kröfu þessa. 1. maí talaði Ögmundur
Jónasson, formaður BSRB, fyrir því að samið yrði til
skamms tíma, því samfélagið þyrfti að ná áttum.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra og
formaður Samfylkingarinnar óskaði eftir þjóðarsátt í
vikunni. Leiðari Morgunblaðsins í gær velti fyrir sér
hvort Ögmundur væri að viðra boð um annað og
meira en skammtímasamninga fyrir sitt stéttarfélag.
„Eru ráðherrann og Ögmundur að tala utan í sömu
hugmynd – þjóðstjórn, “ spurði Morgunblaðið og
áður en lesendur höfðu sest niður með blaðið, mátti
heyra Steingrím J. Sigfússon, formann Vinstri grænna
tala fyrir þjóðstjórn í Ríkisútvarpinu.
Stjórnmálafræðingar gefa lítið fyrir gildi yfirlýsinga
um að ríkisstjórnin sé komin í þrot og þurfi að fara
frá. Orð Guðna Ágústssonar sé ekki hægt að taka al-
varlega þannig að þau hafi eitthvert vægi sem krafa
um vantraust og að ríkisstjórnin víki. Reyndar hefur
margoft verið lýst vantrausti á ríkisstjórnir án þess að
nokkur einasta afleiðing hafi orðið af því önnur sú að
hrópandinn fær góða kvöldstund í fréttum.
Höfðað til þeirra sem ekki skilja pólitík
„Þetta er ekki alveg nógu málefnalegt,“ segir Stef-
anía Óskarsdóttir stjórnmálafræðingur. „Krafa um af-
sögn ríkisstjórnar er týpískur íslenskur leikur í pólitík
og þýðir ekkert. Mér finnst eins og verið sé að reyna
að fá stuðning hjá fólki sem ekki veit hvernig pólitík-
in virkar. Þetta er líka sérstaklega ótrúverðugt hjá
Framsóknarflokknum af því að engar afgerandi
breytingar hafa orðið á stefnu ríkisstjórnarinnar í
efnahagsmálum frá því hann var sjálfur við völd,“
segir Stefanía.
Ríkisstjórnir segja ekki af sér þótt formanni stjórn-
arandstöðuflokks finnist þær slappar. Ekki heldur
þótt almenningi finnist það líka. Ekki einu sinni þótt
fólkið í landinu sé hrætt og rambi á barmi gjaldþrots.
Meðan ríkisstjórninni sjálfri líður vel er allt í lagi með
hana og enn betra á meðan 60 prósent þjóðarinnar
styðja hana. Ríkisstjórn segir því aðeins af sér að
Venjuleg íslensk hávaðapólitík
SKÝRING