24 stundir - 03.05.2008, Blaðsíða 61

24 stundir - 03.05.2008, Blaðsíða 61
24stundir LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2008 61 2.-4. maí í Fífunni Kópavogi Öflugustu götubílarnir, mest breyttu jepparnir, öflugustu spíttbátarnir, öflugasta jet ski-ið, Formula 3 bíll, böggý bílar, fjórhjól, þyrlur, Kristján Einar formúlukappi, Bensinn hans Gillzeneggers, frumsýning á 911 Turbo Capri, Íslandsmót fjarstýrðra bíla, o. fl. Stærsta bíla- og mótorsportsýning Íslandssögunnar P IP A R • S ÍA • 8 0 9 3 8 Föstudag: 16:00 - 21:00 Laugardag: 11:00 - 21:00 Sunnudag: 11:00 - 19:00 Opnunartími: 1500 kr. fyrir 14 ára og eldri 500 kr. fyrir 8-13 ára Frítt fyrir 7 ára og yngri, í fylgd með fullorðnum. Miðaverð: Það borgar sig að vanda orðbragðið ná- lægt gæludýrum eins og páfagaukum. Að minnsta kosti á það við um páfagaukinn Bar- ney í Bandaríkjunum. Sómakært fólk á það til að roðna í návist Barneys sem hefur meira að segja sagt presti með dónalegum orðum að hypja sig á brott. Þá hefur Barney kennt öðrum fuglum í búrinu, þeim Sam og Char- lie að segja dónaleg orð. Páfagaukurinn orðljóti hefur þurft að gangast undir meðferð við dónaskapnum hjá sérfræðingi. Eigandi Barneys, Geoff Grewcock, segir páfagaukana orðna afar óheflaða í fram- komu og svívirðingar þeira séu með ólík- indum. Hann segist kvíða framtíðinni, Bar- ney og félagar séu rétt um 7 ára en páfagaukar geta lifað í allt að 70 ár og á þeim tíma geti nú orðasafnið aldeilis vaxið. Að ala upp páfagauk er greinilega eins og að ala upp barn þar sem foreldrar þurfa alltaf að gæta að því hvað þeir segja svo barnið læri ekki að blóta og rífast. Ekki er mikið um svona páfagauka á Ís- landi en þó eru þeir nokkrir og flestir skipta þeir um heimili nokkrum sinnum á ævinni enda lifa þeir svo lengi að erfitt getur verið fyrir eina manneskju að ala páfagaukinn upp og annast hann í ellinni. Það væri þá helst ef barn fengi páfagaukinn í vöggugjöf þegar það fæddist en þá myndi páfagaukurinn alast upp með barninu og viðkomandi væri þá kominn með félaga fyrir lífstíð. Það gæti ver- ið mjög gaman að eiga þannig gæludýr. Páfagaukar geta lifað í 70 ár og lært fjölmörg orð Dónalegur páfagaukur veldur vandræðum Dónagaukur Páfa- gaukar segja það sem þeim sýnist. Í Borgarbókasafninu, Grófarhúsi, er alltaf eitthvað um að vera á sunnudögum fyrir börn. Sunnu- dagar eru barnadagar. Þá eru lesnar sögur í sögustund og oft lítur einhver skemmtilegur í heimsókn á safnið og kennir söng, leiki eða föndur. Það allra skemmtilegasta er að alla daga geta krakkar klætt sig í búninga og trallað og skemmt sér í barna- horninu sem er vel útbúið af leik- föngum og mjúkum púðum að hossast í. Þá má minna foreldra á að dvd-myndir fást til útláns þeim að kostnaðarlausu, lánstími er tveir dagar. Búningar og brall á safni Allar huðnur Fjölskyldu- og hús- dýragarðsins eru bornar en sú síðasta, Dís, bar síðastliðna nótt hvítum kiðlingi. Alls eru því 9 kiðlingar komnir í heiminn und- an huðnum garðsins og hafrinum Brúsa. Öllum kiðlingunum vegn- ar vel og eru sprækir. Sauðburður á að hefjast 10. maí og eru það ærnar Hviða, Gjóska, Eygló og Röskva sem munu bera en faðirinn er hrúturinn Mjölnir. Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn er alltaf jafn spennandi enda fátt skemmtilegra en að eyða deg- inum með dýrunum. Þau eru allt- af tilbúin til þess að fá smá klapp og gaman er að fylgjast með ný- fæddum dýrum sem hnoðast ut- an í mæðrum sínum. Á sumrin er svo að sjálfsögðu líka hægt að fara í leiktækin á milli þess sem þið heimsækið dýrin. Skoppandi kiðlingar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.