24 stundir - 03.05.2008, Page 2
viðtali við 24 stundir í janúar. Sagði
hann að sérfræðingar Neytenda-
stofu og TR myndu vinna að mál-
inu þar sem ganga þyrfti úr skugga
um hvað birta ætti af þeim upplýs-
ingum sem TR hefði undir hönd-
um og hvernig. Um leið þyrfti að
gæta þess að allur lagagrundvöllur
væri réttur.
„Það hefur enn ekki verið ákveð-
ið hvenær við hittumst,“ segir Sig-
urjón Heiðarsson, lögfræðingur
hjá Neytendastofu.
ibs
Sérfræðingar Neytendastofu og
Tryggingastofnunar ríkisins, TR,
hafa enn ekki hist til að ræða út-
færslu á birtingu gjaldskrár tann-
lækna.
Í janúar síðstliðnum greindi for-
stjóri Neytendastofu, Tryggvi Ax-
elsson, frá því að stofnunin hygðist
birta verð tannlækna til að neyt-
endur gætu borið saman verð
þeirra. Allt að þrefaldur verðmun-
ur var á einstökum aðgerðaliðum
tannlækna samkvæmt könnun
Neytendasamtakanna síðastliðið
haust.
„Við teljum ástæðu til að að-
stoða neytendur á þessum mark-
aði,“ sagði Tryggvi meðal annars í
Vinna við útfærslu á birtingu verðs hjá tannlæknum enn ekki hafin
Verðsamanburður dregst
2 LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2008 24stundir
Opið 10-20 virka daga Laugard. 10-18 Sunnud. 12-18
©
In
te
r I
KE
A
Sy
st
em
s B
.V
. 2
00
8
www.IKEA.is
295,-/stk.
SOMMER garðpokar,
ýmsir litir Ø40, H40 cm.
úti á túni
í garðvinnu
WWW.EBK.DK
Danskir gæðasumarbústaðir
(heilsársbústaðir)
Hafðu samband við okkur fyrir frekari
upplýsingar: Anders Ingemann Jensen
farsími nr. +45 40 20 32 38
netfang: aj@ebk.dk
Ert þú í byggingarhugleiðingum?
VÍÐA UM HEIM
Algarve 21
Amsterdam 15
Alicante 22
Barcelona 20
Berlín 14
Las Palmas 22
Dublin 13
Frankfurt 18
Glasgow 13
Brussel 15
Hamborg 15
Helsinki 21
Kaupmannahöfn 12
London 14
Madrid 26
Mílanó 20
Montreal 5
Lúxemborg 14
New York 12
Nuuk 5
Orlando 18
Osló 13
Genf 20
París 16
Mallorca 25
Stokkhólmur 12
Þórshöfn 10
Austlæg átt, 3-8 m/s, en heldur hvassari
norðvestan til. Skýjað og dálítil rigning eða
súld, en úrkomulítið austan til á landinu. Létt-
ir til þegar líður á daginn. Hiti 5 til 12 stig.
VEÐRIÐ Í DAG
6
8
5
3 3
Rigning eða súld
Austan- og norðaustanátt, víða 10-15 m/s og
rigning, en hægara og úrkomulítið norð-
anlands framan af degi. Hiti 5 til 12 stig.
VEÐRIÐ Á MORGUN
10
10
5
4 4
Rigning
Samninganefnd heilbrigðisráð-
herra og hjartalæknar hafa samið
um þjónustu læknanna, en þeir
sögðu sig frá samningi í kjaradeilu
fyrir rúmum tveimur árum. Sjúk-
lingar þurfa nú ekki lengur að
leggja út fyrir öllum kostnaðinum
og sækja svo endurgreiðslu til
Tryggingastofnunar eins og á
samningslausa tímanum. Nú þurfa
þeir aðeins að greiða hjartalækn-
inum sinn hlut en ríkið gerir hitt
upp við lækninn. Einnig fellur nið-
ur krafa um tilvísun frá heimilis-
lækni eða heilsugæslu þegar sjúk-
lingur leitar til hjartalæknis. Sömu
almennu reglur gilda nú um
greiðslur fyrir komur til hjarta-
lækna og annarra sérfræðinga, seg-
ir í tilkynningu ráðuneytisins.
Samningurinn er talinn kosta ríkið
306 milljónir á ársgrundvelli. bee
Hjartalæknar aftur á samning við ríkið
Samið eftir tvö ár
Kviðdómur í Old Baily í Lund-
únum fann í dag tvo karlmenn seka
um tilraun til að reyna að kúga fé af
karlmanni í bresku konungsfjöl-
skyldunni. Voru mennirnir dæmdir
í 5 ára fangelsi. Mennirnir heita
Sean McGuigan, sem er 41 árs gam-
all Íri, og Ian Strachan, 31 árs gam-
all Englendingur, öðru nafni Paul
Adalsteinsson en hann er af ís-
lenskum ættum. Sakborningarnir
neituðu báðir sök. Þeir voru handteknir í september í fyrra á hóteli í
Lundúnum og ákærðir í kjölfarið fyrir að hafa krafist þess að fá greidd
50 þúsund pund en ella myndu þeir birta myndband þar sem syst-
ursonur Elísabetar Englandsdrottningar var borinn ýmsum sökum,
þar á meðal að hafa neytt fíkniefna og átt kynmök við einkaþjón sinn.
Í réttarhöldunum kom fram, að mennirnir höfðu áður reynt að selja
breskum fjölmiðum segulbandsupptökur og myndskeið sem tengdust
málinu. Dómar fyrir fjárkúgun eru sjaldgæfir í Bretlandi. Afi Strac-
hans flutti frá Íslandi til Englands á fyrri hluta síðustu aldar. Foreldrar
Ians skildu er hann var níu ára og þá tók hann upp ættarnafn enskrar
móður sinnar. mbl.is
Fimm ár fyrir fjárkúgun
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir læt-
ur af embætti forseta Skák-
sambands Íslands á aðalfundi
sambandsins sem fram fer í dag.
Hún hefur gegnt embættinu síð-
astliðin fjögur ár og er fyrsta og
eina konan sem það hefur gert
auk þess að hafa gegnt embætti
forseta Skáksambands Norð-
urlanda. Tveir eru í framboði til
forseta; Óttar Felix Hauksson og
Björn Þorfinnsson. aak
Hrókeringar í
skáksambandi
Eftir Hlyn Orra Stefánsson
hlynur@24stundir.is
Minnihlutinn í bæjarstjórn Akranes-
kaupstaðar vill að endurskoðuð verði
ákvörðun meirihlutans um að semja
beint við fyrirtækið Securstore um að
sinna tölvuþjónustu fyrir bæinn, eftir
að fréttir bárust af því fyrr í vikunni
að sonur Gunnars Sigurðssonar, for-
seta bæjarstjórnar, hefði keypt hlut í
fyrirtækinu.
Gísli S. Einarsson bæjarstjóri lagði
ásamt Jóhanni Þórðarsyni, endur-
skoðanda kaupstaðarins, til að samið
yrði beint við Securstore, þrátt fyrir
að nefnd sem skipuð var til að fjalla
um málið hafi í byrjun febrúar lagt til
að verkið yrði boðið út.
Endurskoðar báðum megin
Athygli vekur að Jóhann er jafn-
framt endurskoðandi Securstore.
„Okkur [í minnihlutanum] þykir
mjög undarlegt að honum skuli
blandað í málið með þessum hætti,“
segir Hrönn Ríkharðsdóttir, bæjar-
fulltrúi Samfylkingar á Akranesi.
Gísli bæjarstjóri segist ekki hafa
vitað af því að Jóhann væri jafnframt
endurskoðandi Securstore. „En það
breytir engu um það að ég tel að
hann hafi unnið heill að þessu máli.“
Á fundi bæjarstjórnar 22. apríl sl.
lagði minnihlutinn til að umrætt
verk yrði boðið út, en tillagan var
felld með atkvæðum meirihluta
Sjálfstæðisflokks og Frjálslyndra.
Minnihlutinn bókaði mótmæli
vegna ákvörðunarinnar, þar sem seg-
ir að ákvörðunin sé óskiljanleg, ekki
síst í ljósi þess að öll útboðsgögn hafi
þegar legið fyrir. „Ber þetta vott um
mismunun gagnvart öðrum aðilum
á markaði,“ segir í bókuninni.
Rúmri viku eftir umræddan bæjar-
stjórnarfund var tilkynnt að félög í
eigu Bjarna Ármanssonar og Arnar
Gunnarssonar, sonar Gunnars for-
seta bæjarstjórnar, hefðu keypt helm-
ing í Securstore.
Hrönn segir minnihlutann hafa
grunað að verið væri að afhenda
einkavinum samning á silfurfati, en
ekki að um son forseta bæjarstjórnar
væri að ræða. „Það er hins vegar ekki
trúverðugt að Gunnar Sigurðsson
hafi ekki vitað að sonur sinn væri að
fara að kaupa hlut í fyrirtækinu.“
Sjálfur segist Gunnar ekki hafa vit-
að af kaupum sonar síns fyrr en um
síðustu helgi. Hann bendir auk þess á
að ekki sé víst að af samningnum
verði, heldur hafi aðeins verið tekin
ákvörðun um að reyna að semja við
Securstore. „Ég mun ekki taka þátt í
gerð slíks samnings,“ segir Gunnar.
Gagnrýna samn-
ing án útboðs
Sonur bæjarfulltrúa eignast hlut í fyrirtækinu sem semja á við
Ósætti Minnihlutinn er
ósáttur við að tölvuþjón-
usta bæjarins skuli ekki
vera boðin út.
➤ Ákveðið var af meirihlutanumað semja við Securstore um
tölvuþjónustu, án útboðs.
➤ Endurskoðandi bæjarins erjafnframt endurskoðandi Sec-
urstore, og einn eigenda fyr-
irtækisins er sonur forseta
bæjarstjórnar.
SAMIÐ ÁN ÚTBOÐS
Mynd/Mads Wibe Lund
STUTT
● Samkomulag stendur
Samkomulag geislafræðinga og
yfirstjórnar Landspítalans um
að geislafræðingar fresti upp-
sögnum sínum um mánuð
stendur. ,,Við ætlum að vinna í
því þennan mánuð að finna
lausn á þessu. Við ætlum að sjá
hvernig málin þróast. Það kem-
ur í ljós hvort þetta tekur lengri
tíma en mánuð,“ segir Katrín
Sigurðardóttir geislafræðingur.
Fyrsti vinnufundur fulltrúa
geislafræðinga og yfirstjórnar
spítalans var í gær. Næsti fund-
ur verður á þriðjudaginn, að
sögn Katrínar. Alls sögðu 40 af
52 geislafræðingum upp störf-
um.
Leiðrétt
Ritstjórn 24 stunda vill leiðrétta hvaðeina,
sem kann að vera missagt í blaðinu.
Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2.