24 stundir - 03.05.2008, Síða 8
Volkswagen – kolefnisjafnaður útblástur
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
PassatGolfPolo
5,0
l/100 km
4,5
l/100 km
Touran
5,9
l/100 km
5,8
l/100 km
Miðað við TDI® vél frá Volkswagen í blönduðum akstri.
Tiguan
6,9
l/100 km
8 LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2008 24stundir
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@24stundir.is
„Þetta er almenn gagnasöfnun sem
fer fram hjá öllum markaðsaðilum,
ekki bara Vodafone, og er hluti af
okkar reglubundna eftirliti. Voda-
fone er eini aðilinn sem neitaði að
afhenda okkur gögn hvað þetta
varðar,“ segir Hrafnkell V. Gíslason,
forstjóri Póst- og fjarskiptastofnun-
ar (PFS), um ákvörðun hennar að
beita Og Fjarskipti, móðurfélags
Vodafone á Íslandi, dagsektum ef
fyrirtækið afhendi ekki tölfræðiupp-
lýsingar.
Málið á sér lengri aðdraganda
Dagsektirnar sem hótað var að
beita voru að upphæð 100 þúsund
krónur á dag. Vodafone afhenti
upplýsingarnar í kjölfarið og því var
sektunum ekki beitt.
Ákveðið var að hóta dagsektun-
um eftir að Vodafone neitaði að
veita PFS tilteknar upplýsingar um-
rekstur fyrirtækisins vegna eftirlits á
leigulínumörkuðum. Hrafnkell
segir málið þó eiga sér lengri að-
dranganda. „Við höfum viljað auka
gangsæi markaðarins með því að
birta ákveðnar tölfræðiupplýsingar.
Stofnunin tók saman tölfræðirit út
frá þeim gögnum sem við höfðum
aflað með venjubundnum hætti í
okkar eftirliti. Við kynntum þær fyr-
irætlanir okkar fyrir markaðsaðil-
um, þar á meðal Vodafone. Þeir
mótmæltu því einir fyrirtækja að
upplýsingarnar yrðu birtar og
kærðu það fyrir úrskurðarnefnd
póst- og fjarskiptamála þar sem það
mál er enn til úrskurðar. Þessi deila
núna snerist hins vegar um það
hvort við gætum fengið upplýsingar
frá þeim yfirhöfuð og þar með sinnt
okkar eftirlitshlutverki. Að lokum
hótuðum við dagsektum þar sem
við teljum það algjörlega óásættan-
legt að fyrirtæki neiti að afhenda
þessar upplýsingar.“
Von á úrskurði innan skamms
Hrannar Pétursson, upplýsinga-
fulltrúi Vodafone, segir að í ljósi þess
að PFS sé hugsanlega að fara út fyrir
heimildir sínar til að birta gögn hafi
þeim fundist eðlilegt að láta á það
reyna hvort úrskurður um birting-
arheimildir hennar ætti að vera fyr-
irliggjandi áður en fyrirtækið af-
henti stofnuninni fleiri gögn. „Þegar
málið var síðan komið í þann farveg
að okkur voru settir þessir afarkostir
um dagsektir var það mat manna
hér að skynsamlegast væri að verða
við þessu, enda held ég að von sé á
úrskurði úrskurðarnefndarinnar
innan skamms.“
Vodafone neitaði að afhenda Póst- og fjarskiptastofnun gögn um leigulínumarkað og sætti í kjölfarið afarkostum
Vodafone var hótað 100 þúsund króna dagsektum
➤ Vodafone kærði ákvörðunPFS um birtingu tölfræðiupp-
lýsinga af fjarskiptamarkaði
til úrskurðarnefndar.
➤ Fyrirtækið telur upplýsing-arnar einungis gagnast sam-
keppnisaðilum sínum.
KÆRA VODAFONE
Hrannar Pétursson upp-
lýsingafulltrúi Vodafone.
Félögum í samtökum blaða- og
fréttamanna fjölgar ár frá ári. Sam-
tals voru félagar í Blaðamanna-
félaginu og Félagi fréttamanna á
RÚV nærri 700 í fyrra. „Við höld-
um að það séu hátt í 500 sem vinna
í faginu,“ segir Arna Schram, for-
maður BÍ, og telur fríblöðin skýra
fjölgunina.
Karlar hafa verið og eru enn
langtum fleiri en konur í fjölmiðl-
un, bæði á RÚV og frjálsu miðl-
unum. 48 karlar eru skráðir í Félag
fréttamanna en 27 konur. 384 karl-
ar eru skráðir í Blaðamannafélagið
en 215 konur. Þetta þyrfti að jafna
til að tryggja breidd í umfjöllun um
samfélagið, segir Arna. bee
Fjölgar í samtökum blaða- og fréttamanna
Fleira fjölmiðlafólk
Guðmundur Gunnarsson, for-
maður Rafiðnaðarsambands Ís-
lands, vill að stéttarfélögin í
Reykjavík endurskoði fyrirkomu-
lag hátíðarhaldanna 1. maí til að
koma boðskap félaganna betur á
framfæri með jákvæðum hætti.
„Það var einstaklega vel mætt í
kröfugönguna í ár enda var veður
gott og sjaldan hefur verið jafn
mikill óróleiki í samfélaginu eins
og um þessar mundir,“ segir Guð-
mundur.
„Síðustu ár hafa fáir félagsmenn
okkar mætt í gönguna en ýmsir
öfgahópar hafa hins vegar nýtt sér
tækifærið óspart til að vekja athygli
á sér.“
Guðmundur segir að á meðan
verkafólk hafi verið í minnihluta í
göngunni hafi verkalýðsfélögin
leigt stóra sali fyrir félagsmenn sína
sem hafi verið þétt setnir.
„Þarna eru fjölskyldur launa-
manna samankomnar en ekki í
kröfugöngunni. Þess vegna finnst
mér eðlilegt að verkalýðsforrystan
velti fyrir sér hvort hún sé að gera
annað en félagsmenn hennar vilja.“
Guðmundur vill að verkalýðs-
félögin haldi daginn hátíðlegan
sameiginlega og slái upp einni
stórri hátíð með breyttu fyrir-
komulagi.
„Þarna væru haldnar ræður og
boðið upp á vegleg skemmtiatriði
og verkalýðsfélögin gætu nýtt tæki-
færið til að kynna starfsemi sína, en
hún vefst fyrir mörgum. Þarna
gætu félögin komið boðskap sínum
á framfæri á mun jákvæðari hátt en
nú tíðkast.“ aegir@24stundir.is
Formaður Rafiðnaðarsambandsins vill breyta hátíðarhöldum 1. maí
Skilaboð á jákvæðum nótum
Baráttudagur verka-
lýðsins Hugmyndir eru
uppi um að breyta sniði
hátíðarhalda 1. maí.