24 stundir - 03.05.2008, Side 10
10 LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2008 24stundir
Stjórnvöld í Suður-Afríku
hafa ákveðið að aflétta fíla-
veiðibanni sem staðið hefur í
þrettán ár. Umhverfisvernd-
arsinnar segja ákvörðunina
geta haft alvarlegar afleiðingar
í för með sér og sett fílastofn-
inn í hættu. Fílum hefur að
jafnaði fjölgað um fimm pró-
sent á ári síðustu ár, en þeir
voru í mikilli útrýming-
arhættu fyrir fáeinum árum. aí
Suður-Afríka
Heimila fíla-
veiðar á ný
Eftir Atla Ísleifsson
atlii@24stundir.is
Hryðjuverkaárásir gegn óbreyttum
borgurum í Pakistan voru rúmlega
tvöfalt fleiri í fyrra en árið 2006.
Þetta kemur fram í nýrri skýrslu
bandaríska utanríkisráðuneytisins.
Aukningin er rakin til vaxandi
óstöðugleika í fjallahéruðum
landsins og fjölgunar árása gegn
embættismönnum og öryggisliði.
Flestar árásir í Írak
Í skýrslunni segir að á heimsvísu
hafi fjöldi hryðjuverkaárása nokk-
urn veginn staðið í stað, um 14.500
talsins. Mannfallið jókst hins vegar
nokkuð og fór úr 20.872 árið 2006 í
22.685 árið 2007. Russ Travers,
einn skýrsluhöfunda, segir það
staðreynd að hryðjuverkamenn séu
orðnir skilvirkari þegar kemur að
því að drepa annað fólk.
Um sextíu prósent þeirra sem
létust í hryðjuverkaárásum í fyrra
féllu í Írak, en rúmlega helmingur
allra hryðjuverkaárása í heiminum
átti sér stað í Írak. Þrátt fyrir það
fækkaði slíkum árásum í landinu
um níu prósent milli ára.
Al-Qaeda mesta ógnin
Dell L. Dailey, starfsmaður
bandaríska utanríkisráðuneytisins,
segir hryðjuverkasamtökin al-
Qaeda og tengd samtök enn vera
mestu ógnina við Bandaríkin og
bandamenn þeirra. „Margar
kjarnasellur al-Qaeda eru þraut-
seigar og með mikla aðlögunar-
hæfni. Með nýtingu staðbundinna
sella hefur hryðjuverkamönnum
tekist að sneiða hjá mörgum örygg-
isráðstöfunum okkar.“
Bandaríkjastjórn lýsti nýverið
yfir vaxandi áhyggjum af því að al-
Qaeda hefði eflst til muna í fjalla-
héruðum Pakistans. Er talið að
leiðtogar samtakanna, þeir Osama
bin Laden og Ayman al-Zawahri,
séu þar í felum.
Aukið
mannfall
Flestar árásirnar og flest dauðsföllin í Írak
Al-Qaeda enn mesta ógn Bandaríkjanna
HÆKKUN HÆKKUN
© GRAPHIC NEWS Heimild: U.S. National Counterterrorism Centre
Rúmlega 22 þúsund manns létu lífið í hryðjuverkaárásum á síðasta ári og fjölgaði
fórnarlömbum úr 20.872 árið 2006, samkvæmt Stofnun Bandaríkjastjórnar sem berst
gegn hryðjuverkum. Al-Qaeda bar ábyrgð á að minnsta kosti 5.400 dauðsföllum
óbreyttra borgara árið 2007 og af þeim voru rúmlega helmingur múslímar.
Norður-Kórea
Afganistan Pakistan
Sýrland
Afganistan
Fjöldi látinna
í hryðjuverkum
árið 2007
Breyting frá 2006
Írak
Pakistan: Al-Qaeda
hefur fundið skjól í
afskekktum héruðum
til að endurheimta
fyrri styrk.
Súdan
Írak
Íran: Stjórnvöldum þar í landi er lýst sem þeim virkustu
í stuðningi við hryðjuverkastarfsemi, vegna stuðnings
þeirra við Hizbollah í Líbanon, Hamas í Palestínu og
vegna þjálfunar uppreisnarmanna úr röðum sjíta í Írak.
Ríki sem styðja
við hryðjuverka-
starfsemi
HÆKKUNHÆKKUN
➤ Í skýrslunni er bent á að al-Qaeda hafi styrkt ítök sín í
Mið-Austurlöndum, Norður-
Afríku og Evrópu.
➤ Hryðjuverkaárásum í Afgan-istan fjölgaði um 16%.
➤ Stjórnvöld í Íran, Sýrlandi,Súdan, Kúbu og Norður-
Kóreu eru sögð styðja við
hryðjuverkastarfsemi.
HRYÐJUVERK
Yfirkjörstjórn í Simbabve lýsti í
gær loksins yfir að Morgan Tsvang-
irai, leiðtogi stjórnarandstöðunnar,
hefði hlotið flest atkvæði, eða
47,9%, en forsetinn Robert Mu-
gabe 43,2%, í forsetakosningum
sem fram fóru í landinu 29. mars.
Þar sem enginn frambjóðandi
hlaut hreinan meirihluta verður
boðað til annarrar umferðar.
Talsmaður stjórnarandstöðunn-
ar sagði yfirlýsingu kjörstjórnar-
innar hneykslanlega og að Tsvang-
irai hefði í raun hlotið meirihluta
atkvæða. Stjórnarandstaðan sakar
liðsmenn stjórnarinnar um kosn-
ingasvindl og að hafa haft í hót-
unum við kjósendur. Tafirnar á
birtingu úrslitanna hafi gefið víga-
sveitum hliðhollum forsetanum
tíma til að skipuleggja árásir á
stjórnarandstæðinga. Talsmaður
Mugabe sagði hins vegar útkom-
una ekki koma á óvart.
Yfirmaður kjörstjórnar sagði að
síðar yrði tilkynnt um tímasetn-
ingu síðari umferðarinnar, en að
hún yrði innan þriggja vikna.
Tsvangirai hefur áður lýst því yfir
að hann taki ekki þátt í annarri
umferð, án aðkomu erlends kosn-
ingaeftirlits. atlii@24stundir.is
Úrslit forsetakosninga í Simbabve loks birt
Tsvangirai vann en
þörf á annarri umferð
Vinsældir George Bush Banda-
ríkjaforseti halda áfram að
minnka og hafa aldrei verið
minni en nú. Samkvæmt skoð-
anakönnun CNN er Bush óvin-
sælasti Banda-
ríkjaforsetinn
frá upphafi
slíka mælinga
sem hófust
um 1930. 71
prósent
Bandaríkja-
manna segjast
nú vera
óánægð með
störf forsetans, en einungis 28
prósent ánægð.
Bush er óvinsælli en Richard Nix-
on, rétt áður en hann sagði af sér
í kjölfar Watergate-hneykslisins
árið 1974, en 66 prósent sögðust
þá óánægð með störf Nixons.
Truman var áður sá forseti sem
hafði mælst með mestar óvin-
sældir, 67 prósent árið 1952. aí
Skoðanakönnun CNN
Vinsældir Bush
minnka enn
Sérstök bænamessa verður haldin
í Nossa Senhora da Luz-kirkjunni
í portúgalska bænum Praia da
Luz í dag, en eitt ár er nú liðið frá
hvarfi bresku stúlkunnar Made-
leine McCann.
Foreldrarnir Gerry og Kate
McCann hafa verið sérstaklega
áberandi í fjölmiðlum síðustu
daga. Þau segjast enn telja dóttur
sína vera á lífi og ætla aldrei að
hætta leit sinni. Madeleine litla
hvarf af hótelherbergi fjölskyldu
sinnar þegar foreldrar hennar
voru úti að borða með vinafólki.aí
Madeleine McCann
Eitt ár liðið frá
hvarfinu
ORLOF 2008
STUTT
● Faraldur Hátt í þrjú þúsund
börn í austurhluta Kína hafa nú
greinst með hina banvænu
EV71 veiru sem leggst á melt-
ingarfærin. 21 barn hefur nú
látist af völdum veirunnar.
● Mótmæli Óeirðir sem brut-
ust út á götum Hamborgar 1.
maí, eru þær verstu sem orðið
hafa í borginni í mörg ár. Að
sögn lögreglu var kveikt í bíl-
um og sorptunnum. Um 300
manns voru handteknir.
FÓRNARLÖMBUM HRYÐJUVERKA FJÖLGAR MILLI ÁRA