24 stundir - 03.05.2008, Page 24
24 LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2008 24stundir
Lagersala
Einstakt tækifæri til að eignast glæsileg heimilistæki
á frábæru verði. Takmarkað magn af sýningar- og
lagertækjum ásamt lítið útlitsgölluðum tækjum.
Verið velkomin í Eirvík og kynnið ykkur
heimilistæki á tækifærisverði.
Lagersala Eirvíkur að
Suðurlandsbraut 20
-hágæðaheimilistæki
Baldursnes 6, Akureyri | Suðurlandsbraut 20, Reykjavík Sími 588 0200 | www.eirvik.is
Verðhrun
VASKAR
HELLUBORÐ
INNBYGGÐIR
ÍSSKÁPAR
FRYSTISKÁPAR
OFNAR
HÁFAR
VIFTUR
vi
lb
or
ga
@
ce
nt
ru
m
.is
Opið frá kl. 10-18 föstudaginn 2. maí
og 11-18 laugardaginn 3.maí.
Það kveður aldeilis við nýja tóna
í áliti Jafnréttisstofu til allsherjar-
nefndar um tímamótafrumvarp
Daggar Pálsdóttur hrl. og alþing-
ismanns, um breytingar á barna-
lögum nr. 76/2003 sem flutt var í
nóvember síðastliðnum.
Það frumvarp er nú til meðferð-
ar í allsherjarnefnd Alþingis og
mikill skilningur þar á bæ fyrir
nauðsynlegum breytingum á löngu
úreltum ákvæðum barnalaga. Þess
ber að geta sem vel er gert og deg-
inum ljósara að Jafnréttisstofa með
nýrri stýru hefur sagt skilið við úr-
elta stefnu undanfarinna ára, sem
hefur helst miðað að því að við-
halda svokallaðri „kvennagildru-
jafnréttisstefnu“. Stefnu sem fyrr-
verandi jafnréttisstýra með sínu
föruneyti hafði kappkostað að leiða
í einhvers konar kvenréttinda-
blindni – fullkomlega ómeðvituð
um afleiðingar til lengri tíma fyrir
konur og þeirra starfsframa.
Tímaskekkja
Sú stefna var tímaskekkja og
virtist á stundum ganga þvert á lög
um Jafnréttisstofu; almenn viðhorf
nútímafólks til jafnréttis sem og
þvert á almenna þróun í jafnrétt-
ismálum yfirhöfuð. Fyrrverandi
jafnréttisstýra virðist hafa verið úti
að aka; svo mjög og skrykkjótt, að
hennar eigin stefna hefur augljós-
lega endað úti í skurði. Kvenna-
gildru-jafnréttisstefnan hefur mið-
að að því að gera konur einar
ábyrgar fyrir börnum sínum og
lögheimili þeirra í 96 prósentum
tilfella eftir skilnað. Þær hafa átt að
rækja heimilis- og ummönnunar-
skyldur við skilnaðarbörnin sín,
sem telja nálægt 33 prósent af öll-
um börnum landsins. Feðurnir
hafa helst átt að stíga til hliðar,
huga að starfsframa sínum, sinna
framfærsluskyldum og vera gestir í
lífi barna sinna með takmörkuðum
heimsóknartíma þeirra og aðallega
sem skemmtanastjórar um helgar.
Skólaganga barnanna og hvers-
dagslífið hefur helst átt að vera ut-
an þeirra afskipta. Föðurfjöl-
skyldurnar hafa einnig átt að
fjarlægjast um leið. Þau fjögur pró-
sent feðra í dag, sem hafa lögheim-
ili barna sinna, teljast heppin.
Þannig hefur stefna úreltra jafn-
réttisviðhorfa verið. Nútímastefn-
an gerir ráð fyrir jöfnum réttind-
um og ábyrgð foreldra gagnvart
börnum sínum eftir skilnað; 50/50
stefnan, og þ.a.l. jöfnum tækifær-
um foreldra til starfsframa og
launa.
Lykill að betri framtíð
Í dag er allt skynsamt fólk sam-
mála um að jafnrétti sé lykillinn að
betri framtíð – alvöru jafnrétti.
Vegna þessa ber að fagna sérstak-
lega ljómandi góðu áliti Jafnrétt-
isstofu um umrætt frumvarp; áliti
sem kveður sérstaklega fast að for-
eldrajafnrétti, sem er alger undir-
staða launajafnréttis.
Í áliti Jafnréttisstofu segir meðal
annars orðrétt: „Jafnréttisstofa
fagnar því að lagt hafi verið fram
frumvarp til breytinga á barnalög-
um nr. 76/2003 þar sem grundvall-
arsjónarmiðið er aukið jafnrétti
kynjanna og sem jöfnust foreldra-
ábyrgð á öllum sviðum. 1. gr.: Jafn-
réttisstofa tekur undir það að karl
sem telur sig föður barns geti höfð-
að barnsfaðernismál þótt barn sé
feðrað og tekur undir þær athuga-
semdir sem koma fram í greinar-
gerð með 1. gr. frv., og telur þetta
sjálfsagðan rétt karls.
4. gr.: Jafnréttisstofa fagnar
þeirri breytingu á barnalögum (og
öðrum lögum) sem felst í 4. gr.
frumvarpsins. Þessi tillaga, að for-
eldrar geti samið svo um að barn
hafi tvöfalt lögheimili er til þess
fallin að gera stöðu foreldra sem
fara sameiginlega með forsjá jafn-
ari en nú er og ætti jafnvel að vera
meginregla. Þ.e. að ef forsjá er sam-
eiginleg þá sé lögheimili hjá báðum
foreldrum.“
Jöfn foreldraábyrgð
„Í frumvarpinu, 5. gr. – 8. gr., er
gert ráð fyrir því að dómari og
sýslumaður geti ákveðið/úrskurð-
að að barn skuli dvelja allt að 7
daga af hverjum 14 hjá því foreldri
sem barn hefur ekki lögheimili hjá/
sem barn telst ekki búa hjá. Jafn-
réttisstofa tekur undir þau megin-
sjónarmið sem búa að baki þessari
tillögu, þ.e. að það skuli teljast
meginregla, ef hagsmunir barnsins
standa til þess, að barn sé til jafns
hjá báðum foreldrum. Þessi regla
er betur til þess fallin að stuðla að
og koma á jafnri foreldraábyrgð og
um leið auknu kynjajafnrétti, auk
þess sem það er sjálfsagður réttur
barns að vera sem mest í samvist-
um við báða foreldra sína Það gæti
verið heppilegra að hafa regluna
með einhverjum öðrum hætti. Til
dæmis að úrskurða mætti að barn
væri allt að 6 mán. hjá því foreldri
sem það telst ekki hafa heimili hjá
eða allt að 14 dögum af hverjum 28
eða eitthvað þess háttar. Meginat-
riðið er að ná fram sem jafnastri
foreldraábyrgð, þó alltaf með hags-
muni barnsins að leiðarljósi. Í 7. og
8. gr. frumvarpsins er það sett fram
sem meginregla að kostnaður við
umgengni skuli skiptast jafnt milli
foreldra nema annað sé ákveðið
með samningi eða úrskurði. Þetta
er eðlileg og sanngjörn regla, séu
báðir foreldrar með í ráðum ef
annað t.d. flytur um lengri veg
þannig að kostnaður af ferðum
barns verði miklu meiri en áður.
Jafnréttisstofa tekur heils hugar
undir 9. gr. frv. um að forsjárlausir
foreldrar eigi einnig rétt á að fá
skriflegar upplýsingar um barn
sitt.“
Ekki er annað að sjá í áliti þessu,
en að ný stýra Jafnréttisstofu hygg-
ist hefja stofnunina aftur til vegs og
virðingar með réttum formerkjum
jafnréttis. Það væri heppilegra fyrir
aðra álitsgjafa að taka sér Jafnrétt-
isstofu til fyrirmyndar í þessu máli,
og þrýsta á um leið þær breytingar
sem liggja fyrir allsherjarnefnd Al-
þingis – börnum og foreldrajafn-
rétti til hagsbóta.
Höfundur er ritari
Félags um foreldrajafnrétti
Hrós til
Jafnréttisstofu!
UMRÆÐAN aStefán Guðmundsson
Fyrrverandi
jafnrétt-
isstýra virðist
hafa verið úti
að aka; svo
mjög og
skrykkjótt,
að hennar eigin stefna
hefur augljóslega endað
úti í skurði