24 stundir - 03.05.2008, Síða 28
sendar til Svíþjóðar og Þýskalands
og ég finn fyrir töluverðum áhuga á
bjórnum erlendis. Við höfum líka
verið að vinna töluvert af verðlaun-
um og það er góð kynning,“ segir
Andri og er þar að vísa til silfur-
verðlauna sem Ölgerðin vann fyrir
Egils Gull í World Beer Cup-
keppninni í apríl síðastliðnum.
Drög að fleiri tegundum
Nýjasti íslenski bjórinn er
Skjálfti frá Ölvisholti á Suðurlandi
en hann hefur verið í sölu í tvo
mánuði.
„Nú er reynslutíma lokið og
Skjálfti kominn í svokallaðan
kjarna hjá ÁTVR. Við reiknum
með að það taki smá tíma að koma
Skjálfta í dreifingu á landsvísu en
hann ætti að verða fáanlegur á all-
flestum útsölustöðum innan fárra
vikna,“ segir Bjarni Einarsson,
framkvæmdastjóri og einn eigenda
Ölvisholts.
Í Ölvisholti er verið að leggja
drög að fleiri tegundum að sögn
Bjarna en meira vill hann ekki gefa
upp.
Tekur bjórinn við af refunum?
„Ég vona að þetta verði ekki eins
og með refabúin um árið, að það
hlaupi allir í þetta,“ gantast Björg-
vin Rúnarsson, framkvæmdastjóri
fyrirtækisins 2B Company, en það
er annað tveggja fyrirtækja sem
hyggjast hefja bjórframleiðslu á
næstunni.
„Það er allt klárt frá okkar hendi,
það er búið að skrifa undir alla
samninga og gera áætlanir. Við
hins vegar ákváðum að bíða með
að hefja framleiðslu vegna ástands-
ins í þjóðfélaginu,“ segi Björgvin.
Framleiðsla bjórsins, sem hefur
fengið nafnið Volcano, verður í
Vestmannaeyjum og er búist við að
hún hefjist síðar á þessu ári eða í
upphafi þess næsta.
Brugga í fiskvinnsluhúsi
„Það er allt á fullu í undirbún-
ingi hérna. Það er verið að setja
upp tækin og við eigum von á
korninu hvað úr hverju,“ segir
Soffía Axelsdóttir en hún hefur
stofnað bruggverksmiðjuna Mjöð
ehf. í Stykkishólmi ásamt eigin-
manni sínum, systur sinni og mági.
Snæfellski bjórinn, sem er að
þýskri fyrirmynd, hefur fengið
nafnið Jökull og er búist við að
framleiðsla og sala hefjist innan
tveggja mánaða.
„Við byrjum á einni tegund en
stefnum á að vera með fleiri í fram-
tíðinni,“ segir Soffía.
Kaldarnir orðnir milljón
„Þetta hefur gengið tvöfalt betur
en við áætluðum. Við bjuggumst
við að ná því að framleiða milljón
flöskur eftir þriggja ára rekstur en
náðum markinu seinasta miðviku-
dag, sem sagt á einu og hálfu ári,“
segir Agnes Sigurðardóttir. Hún á
Bruggsmiðjuna á Árskógssandi
með eiginmanni sínum og fram-
leiða þau bjórinn Kalda.
Aðspurð um hvernig skýra megi
vinsældir bjórsins segist Agnes
þakka þær sérstöðu hans.
„Við bruggum bjórinn í fjórar til
fimm vikur til þess að það þurfi
ekki að setja í hann sykur auk þess
sem engin aukefni eru sett í bjór-
inn. Þannig er hann eins hollur og
hægt er.“
Bruggsmiðjan framleiðir tvær
tegundir af Kalda, bæði ljósan og
dökkan. Að auki verður framleidd-
ur jólabjór í fyrsta skipti fyrir
næstu jól.
„Við höfum ekki ákveðið ná-
kvæmlega hvernig hann verður á
bragðið en hann verður í sama stíl
og Kaldi. Einnig munum við reyna
að hafa litinn á honum aðeins út í
rautt,“ segir Agnes.
Seyðfirska ölið í dósir
„Við ætlum að fara af stað með
bjór í dósum og fara dósirnar á
markað eftir þrjá mánuði,“ segir
Jón Þór Eyþórsson sem með föður
sínum stofnaði fyrirtækið El Grillo,
sem framleiðir samnefndan bjór.
Nafnið á bjórnum er dregið af
olíubirgðaskipi bandamanna í
seinni heimsstyrjöldinni sem þýsk-
ar flugvélar sprengdu í Seyðisfirði
árið 1944. Skipið sökk og hefur síð-
an þá legið á botni fjarðarins.
El Grillo hefur verið í almennri
sölu frá því síðastliðið sumar. Upp-
skriftin er komin frá Seyðfirðingn-
um Eyþóri Þórissyni, föður Jóns
Þórs, en Ölgerð Egils Skallagríms-
sonar sér um framleiðsluna.
HVAÐ VANTAR UPP Á?
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á 24@24stundir.is
Þjóðernissinnuð bjórdrykkja
Þóra Kristín
Þórsdóttir
thorakristin@
24stundir.is
FRÉTTASKÝRING
Von er á tveimur nýjum íslenskum bjórframleiðendum Meira selt af íslenskum en erlendum bjór í ÁTVR
BJÓRBRUGGUN Á ÍSLANDI
Mjöður ehf.
2B Company
Volcano
Bruggsmiðjan á
Árskógssandi Kaldi
Vífilfell
Víking o.fl.
Egils Gull o.fl.
El Grilló
Framleiðsla
og sala hafin
Væntanlegt
Óhætt er að segja að íslenskur
bjór sé í sókn en von er á að tvær
nýjar bjórverksmiðjur hefji fram-
leiðslu á þessu ári.
Ef allt gengur upp verða þá bjór-
framleiðendur á Íslandi sjö talsins
og nær tuttugu tegundir íslensks
bjórs bruggaðar og seldar í vínbúð-
um ÁTVR auk léttbjórs og árstíða-
bundinnar framleiðslu.
Íslendingar velja íslenskt
Bjór er mest selda varan í vín-
búðum ÁTVR og nam 41,7%
áfengissölunnar í fyrra, skv. árs-
skýrslu fyrirtækisins.
Íslenskur bjór er í meirihluta af
þeim bjór sem seldur er og hefur
hlutfall hans af heildarbjórsölu far-
ið vaxandi undanfarin ár. Má sem
dæmi nefna að árið 1998 var nán-
ast selt jafn mikið af íslenskum og
erlendum bjór en nú eru seldir
tveir innlendir bjórar á móti hverj-
um erlendum.
Vinsældir íslenska bjórsins sjást
einnig á því að í fyrra voru inn-
lendar tegundir í þremur efstu sæt-
unum yfir mest selda bjórinn. Á
lista yfir tíu vinsælustu bjórana,
sem eru yfir helmingur bjórsöl-
unnar, eru fimm íslenskar tegund-
ir, fjórar erlendar tegundir sem
bruggaðar eru hérlendis og ein
innflutt tegund.
Íslendingar eru því talsvert þjóð-
ernissinnaðir í bjórneyslu sinni
enda vísa heiti bjóranna öll í sögu
lands og þjóðar, sbr. Víking Sterk-
ur, Egils Premium, Kaldi og
Skjálfti.
Íslenskur „stout“ á leið
á markað
Vífilfell og Ölgerð Egils Skalla-
grímssonar eru elstu og stærstu
bjórframleiðendur landsins og þeir
einu sem framleiða erlendar teg-
undir.
Vífilfell bruggar Carlsberg að er-
lendri fyrirmynd en af íslenskum
bjór framleiðir fyrirtækið Víking-
bjórana, t.d. Víking Gylltan og
Víking Sterkan auk Thule. Nú um
helgina bætist svo ný tegund við
þegar tilraunaframleiðsla á íslensk-
um stout fer á markað.
Fá silfur fyrir Gullið
Ölgerð Egils Skallagrímssonar
framleiðir Egils-bjórana, t.d. Egils
Maltbjór og Egils Gull. Að auki
framleiðir fyrirtækið Tuborg Gold
og Tuborg Grön.
Hingað til hefur fyrirtækið ekki
flutt vörur sínar út nema til Fær-
eyja en breyting getur orðið á því á
næstunni, að sögn Andra Þórs
Guðmundssonar forstjóra.
„Tilraunasendingar hafa verið
➤ Í heild seldi ÁTVR 15,2 millj-ónir lítra af bjór á seinasta
ári.
➤ Fimm söluhæstu bjórarnir2007 eru Víking, Víking Lite,
Thule, Carlsberg og Tuborg.
➤ Yfir 2,1 milljón lítra var seldaf Víkingi í fyrra. Af Víking
Lite, sem var í öðru sæti, voru
seldir tæplega 950 þúsund
lítrar og um 865 þúsund lítrar
voru seldir af Thule.
BJÓR Í ÁTVR
100
80
60
40
20
0
2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007
SKIPTING BJÓRSÖLU
56%
44%
56%
44%
60%
40%
61%
39%
64%
36%
64%
36%
64%
36%
66%
34% Sala árið 2007:
15.227 þús.
lítrar
Innfluttur
bjór
Innlendur
bjór
Kaldi Glansandi
tækin sem Kaldi
verður til í.
28 LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2008 24stundir
Skjálfti Forsvars-
menn Ölvisholts.