24 stundir - 03.05.2008, Qupperneq 30
30 LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2008 24stundir
Ég er alinn upp á verðbólgutím-
um. Langtímum saman í mínu
ungdæmi var verðbólga mæld í
tugum prósenta. Á fárra missera
fresti stefndi í óefni og þá lögðust
ríkisstjórnir undir feld og reyndu
að koma saman pökkum sem alltaf
voru kallaðir „ráðstafanir í efna-
hagsmálum“. Oft var verulega sárs-
aukafullt að koma þessum pökkum
saman og þeir voru undantekning-
arlítið eða jafnvel undantekningar-
laust alveg misheppnaðir.
Verðbólgan geisaði áfram
En síðan veit ég að það deyr eng-
inn úr verðbólgu. Því skulum við
ekki fara á taugum. En eigi að síður
er ljóst að ástandið í efnahagsmál-
um þjóðarinnar nú er ekki gott. Og
alvarlegar horfur framundan.
Mjög margir gætu lent í miklum
erfiðleikum.
Og menn líka farnir að kalla á að
ríkisstjórnin geri „ráðstafanir í
efnahagsmálum“. Sú herhvöt vek-
ur mér satt að segja dálítinn ugg.
Hefur þá ekkert breyst síðan í
þjóðarsáttinni gömlu? Var „stöð-
ugleikatímabilið“ bara stund milli
stríða – hlýskeið milli ísalda?
Þjóðarsáttin 1990
Ég hef sagt það áður og segi það
enn; það sem maður varð hissa
þegar tókst loksins að sigrast á
verðbólgunni. Með þjóðarsáttinni
sem aðilar vinnumarkaðarins
gerðu 1990 og ríkisstjórn Stein-
gríms Hermannssonar átti sinn
þátt í. Allt í einu virtist endalaust
stríðið við verðbólguna hafa verið
tómur misskilningur. Fyrst það var
þá hægt að vinna bug á henni
svona nánast fyrirhafnarlaust.
„Fyrirhafnarlaust“ er auðvitað
ekki rétt orð. Launafólk tók á sig
umtalsverðar kjaraskerðingar í
nokkur ár til að ná niður verðbólg-
unni. En þetta var samt ótrúlega
auðvelt. Það virtist ekkert hafa
vantað allan tímann, nema viljann.
Og er þá ekki hægt að sigrast á
þeirri nýju verðbólgu sem risin er
með jafn auðveldum hætti? Líklega
er málið ekki alveg svo einfalt.
Hvað sem líður andvaraleysi okkar
sjálfra, rangri peningamálastjórn
og gassagangi í góðærinu, þá er
augljóst að partur af verðbólgu-
skotinu nú stafar af aðstæðum er-
lendis sem við ráðum ekki vel við.
Og verðum líklega bara að láta
þetta yfir okkur ganga. Vona að
það gangi bara sem fyrst yfir.
Ekkert hefur verið gert
En samt sem áður er jafn aug-
ljóst að ýmislegt getum við gert hér
heima. Ef við tökum á okkur rögg.
Rétt eins og þeir menn sem
gerðu þjóðarsáttina 1990 tóku á sig
rögg og knésettu drauginn sem all-
an lýðveldistímann hafði vomað
yfir landinu – verðbólgudrauginn
alræmda.
Í marga mánuði hefur ríkis-
stjórnin vitað af því sem á döfinni
er í efnahagsmálum. Hún hefur
ekkert aðhafst. Það gengur nú ekki
lengur. Sennilega er full ástæða til
að stjórnvöld fari varlega og
ímyndi sér ekki að þau geti með
einhverjum „ráðstöfunum í efna-
hagsmálum“ leyst vandann. Það
mundi ekki reynast vel ef þau færu
fram með of miklum flumbru-
gangi.
En nú er samt svo komið að rík-
isstjórnin verður að sýna viðleitni.
Það er tími til að bregðast við og sá
tími er núna. Og vissulega er full
ástæða til að gera nú nýja þjóð-
arsátt. Við ættum að geta ráðið
fram úr okkar hluta vandamálsins
ef við leggjumst á eitt.
Ábyrgðin
En þá verðum við líka öll að
leggjast á eitt. Það gengur til dæmis
ekki að það muni bara lenda á
launafólki að axla byrðarnar, eins
og raunin var því miður með hina
fyrri þjóðarsátt. Nú þurfa kaup-
menn og kaupsýslumenn (þar á
meðal bankaeigendur) að leggja
sitt af mörkum – ekki rjúka til og
hækka allt upp úr öllu valdi af því
gróði þeirra minnkar með lækk-
andi krónu. Þeir verða að sýna
ábyrgð, ekki síður en launafólk.
Ákveða að þreyja þorrann með
okkur hinum – enda, af hverju
ættu þeir ekki að sætta sig við
skerðingu á lífskjörum meðan við
erum að vinna okkur út úr vand-
anum, rétt eins og almenningur?
Verslunareigendur sem ruku til og
hækkuðu lagerinn sinn strax eftir
gengisfallið ættu náttúrlega bara að
skammast sín. Og það ætti að leiða
þá fram og láta þá horfast í augu
við þjóðina í þrengingum hennar
og láta þá viðurkenna hreinskiln-
islega: Já, ég gerði þetta af því ég sá
þarna færi á að græða svolítinn
aukapening.
Skítt með verðbólguna. Skítt
með kjör almennings.
„Þjóðarsátt“ felur í sér að þjóðin
gerir sátt við sjálfa sig. Ekki bara að
launafólk og lántakendur í bönk-
um sætti sig við hvað sem er.
Nýja þjóðarsátt?
aIllugi Jökulsson skrifar um ráðstaf-anir í efnahagsmálum
„Þjóðarsátt“
felur í sér að
þjóðin gerir
sátt við sjálfa
sig. Ekki bara
að launafólk
og lántak-
endur í bönk-
um sætti sig við hvað
sem er.
Viðleitni Í marga mánuði
hefur ríkisstjórnin vitað af
því sem á döfinni er í
efnahagsmálum. Hún
hefur ekkert aðhafst.
50% afsláttur
af völdum vörum
Suðurlandsbraut 50
(Bláu húsunum Fákafeni)
www.gala.is • S:588 9925
Opið 11-18 og 11-16 lau.
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Alhliða útfararþjónusta
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Þorbergur
Þórðarson
Skógarhlíð 18 · 105 Reykjavík
Sími: 591 9000 · www.terranova.is
Akureyri sími: 461 1099
Hafnarfjörður sími: 510 9500
Súpersól til
Salou
23. maí
frá kr. 39.995
Terra Nova býður frábært tilboð til Salou í sumarbyrjun. Salou er
fallegur bær á Costa Dorada ströndinni, sunnan Barcelona. Þar
er Port Aventura, stærsti og glæsilegasti skemmtigarður Spánar.
Stórkostlegar strendur, fjölbreytt aðstaða og litríkt næturlíf. Þú
bókar og tryggir þér sæti og 4 dögum fyrir brottför færðu að vita
hvar þú gistir.
Kr. 39.995
Netverð á mann. M.v. 2-4 saman í
herbergi/stúdíó/íbúð. Súpersól tilboð. 23. maí í viku.
Aukavika kr. 12.000.
Birt með fyrirvara um prentvillur. Terra Nova áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.