24 stundir - 03.05.2008, Qupperneq 44
44 LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2008 24stundir
Veggjakrot er samfélagsmein.
Sumir segja veggjakrot vera list-
form sem er ekki rétt, það er ekkert
annað en hrein og klár skemmd-
arverk. Strákar á aldrinum tíu ára
til tvítugs stunda veggjakrot, hluti
af þeim er sakhæfur og hluti ósak-
hæfur. Býsna stór hluti af hópnum
gerir þetta nánast fyrir hvatningu
og jafnvel með aðstoð foreldra
sinna sem kaupa tússpennana og
spreybrúsana fyrir börn sín. Þegar
lögreglan tekur þessa gaura og ætl-
ar að fá þá til að þrífa og hreinsa
eftir sig, sem er aðferðafræði sem
virkar mjög vel, þá berjast foreldr-
arnir á móti því. Þeir skilja ekki af
hverju í ósköpunum lögreglan hef-
ur afskipti af börnum þeirra sem
eru að þeirra mati búin að finna sér
fínt og gott tómstundagaman.“
Þegar þú tókst við embætti lög-
reglustjóra sagðir þú að auka ætti
sýnileika lögreglunnar. Mörgum
finnst þó að lögreglan sé ekki nægi-
lega sýnileg.
„Sýnileikinn hefur aukist en lög-
reglan má vera enn sýnilegri. Hún
á að vera sýnileg á þeim stöðum
sem skipta máli. Sýnileiki lögreglu
á stöðum þar sem ekkert er að ger-
ast hefur enga þýðingu nema bara
sem punt. Sýnileikinn skiptir gríð-
arlegu máli þegar barist er gegn
innbrotum, ofbeldisverkum og
veggjakroti. Við höfum verið að
einbeita okkur að því að kortleggja
nákvæmlega hvar afbrot eru fram-
in á höfuðborgarsvæðinu þannig
að hægt sé að skipuleggja löggæslu
í samræmi við það. Þetta er að skila
árangri. Við þurfum að setja enn
meiri kraft í sýnileikann en þá
þurfum við líka að fá aðstoð frá
fjárveitingavaldinu. Við vitum
hvað við getum gert fyrir þá fjár-
muni sem við fáum í dag og við vit-
um hvað við getum gert ef við
fáum aðeins meira.“
Það hefur vakið athygli að þú ferð
reglulega í göngueftirlit. Hversu oft
gerirðu þetta?
„Ég fer í göngueftirlit að
minnsta kosti mánaðarlega. Ég vil
sjá ástandið, ekki bara fá skýrslur
um það frá öðrum. Fyrir viku fór
ég niður í bæ ásamt félögum mín-
um og við komum að meðvitund-
arlausum manni í Austurstræti,
beint á móti Héraðsdómi. Hann
hafði sturtað í sig töflum úr pillu-
glasi og misst meðvitund. Við
komum honum í sjúkrabíl. Á þess-
um göngum mínum kemur fyrir
að ég þarf að sekta menn og þeir
taka því flestir alveg ágætlega. Í
hverju einasta göngueftirliti sem ég
hef farið í hefur fólk komið til mín
og þakkað fyrir störf lögreglunnar.
Ég hitti kollega mína á Norð-
urlöndum tvisvar á ári. Ég hef sagt
þeim að á Íslandi sé lögreglan að
leggja mikla áherslu á sýnileikann
og til að undirstrika það færum við
út að vinna á götunni að minnsta
kosti einu sinni í mánuði, yfirlög-
regluþjónar, aðstoðaryfirlögreglu-
þjónar, lögreglufulltrúar og aðal-
varðstjórar. Þeim fannst þetta mjög
athyglisvert og spurðu hvort við
værum með byssurnar með okkur.
Ég sagði að við værum aldrei með
byssur. Í Ósló og Stokkhólmi eru
yfirmenn byrjaðir að taka upp
þennan sið frá okkur.“
Þekki vitjunartímann
Með þér hafa komið ferskir
straumar inn í fremur íhaldssama
stofnun, þú hlýtur að hafa fundið
fyrir einhverjum mótbyr innan lög-
reglunnar.
„Ég er ekki lykilpersóna í stefnu-
breytingu innan lögreglunnar
heldur hluti af hreyfingu og tek
þátt í þeirri umræðu sem á sér stað
innan hennar. Ég hef ekki mætt
miklum mótbyr innan lögreglunn-
ar. Lögreglumenn eru almennt
fastir fyrir og þótt þeir séu kannski
íhaldssamir að vissu leyti þá eru
þeir um leið býsna opnir fyrir hug-
myndum og nýjungum. Þegar
ákveðið var að efla sýnileika lög-
reglunnar í borginni með því að
taka harðar á smærri brotum en
áður hafði verið gert þá voru lög-
reglumenn því mjög fylgjandi. Í
umferðarmálum einbeitum við
okkur nú að þeim stöðum þar sem
slysin gerast í stað þess að liggja í
leyni og sekta menn á stöðum sem
gefa vel, sem er gamaldags aðferða-
fræði sem skilar engu. Við stefnum
að því að fækka slysum og þá þurf-
um við að vera á þeim stöðum þar
sem slysin verða og reyna að hafa
áhrif á þá hegðun sem máli skiptir.
Þessi hugmyndafræði og nálgun er
sprottin innan úr lögreglunni.“
Þú segist ekki vera lykilpersóna í
stefnubreytingu en þú ert leiðtogi
hóps. Finnst þér þú hafa menn með
þér?
„Já, mér finnst það. Þegar nýr
stjórnandi kemur til starfa í stofn-
un þá hefur hann gjarnan nýja sýn
og nýjar hugmyndir sem eru
kannski að hluta til sprottnar upp
úr gagnrýni á þær starfsaðferðir
sem fyrir voru. En stjórnandi verð-
ur að átta sig á því að þegar nýja-
brumið fer af honum þá er hann
kannski ekki jafn opinn fyrir nýj-
ungum og hugmyndum og hann
var í byrjun. Því er mikilvægt að
menn þekki sinn vitjunartíma. Það
ætla ég svo sannarlega að gera.“
Þú ætlar ekki að vera í þessu starfi
í áratugi?
„Nei. Skipunartíminn er fimm
ár og það getur verið kostur að vera
fimm ár til. En í opinberri og mik-
ilvægri stöðu eins og lögreglu-
stjóraembætti er engum hollt,
hvorki stofnuninni né lögreglu-
stjóranum sjálfum, að vera þar
lengur en fimm til tíu ár.“
Þú átt samstarf við Björn Bjarna-
son dómsmálaráðherra sem er
þekktur fyrir að vera fastur fyrir.
Hvernig gengur það samstarf?
„Gríðarlega vel. Björn er fram-
sýnn stjórnmálamaður með ákaf-
lega skýra sýn. Á ráðherratíma
hans í dómsmálaráðuneytinu hefur
verið unnið að grundvallarbreyt-
ingum á öllum lykilþáttum lög-
gæslu og öryggismála í landinu.
Það eru einungis örfá atriði á þess-
um langa lista af lagabreytingum
og skipulagsbreytingum sem hafa
vakið deilur og pólitískar umræð-
ur. Þetta er varalið lögreglu, grein-
ingardeild ríkislögreglustjóra og
auknar rannsóknarheimildir lög-
reglu. Gagnrýnin hefur verið af
tvennum toga, annars vegar að það
sé engin þörf fyrir allt þetta hér á
landi, sem ég er algjörlega ósam-
mála, og síðan hitt að gæta verði að
mannréttindum og friðhelgi einka-
lífs gagnvart auknum heimildum
lögreglu, sem ég er algjörlega sam-
mála. Það er mjög mikilvægt að
lögreglan fái ekki of miklar heim-
ildir á kostnað friðhelgi einkalífs,
persónuverndar og mannréttinda.
En þörfin fyrir varaliðið, greining-
ardeildina og auknar rannsóknar-
heimildir lögreglu er alveg jafn
mikilvæg og þörfin fyrir auknar
fjárveitingar til löggæslu.“
Hvernig viltu að lögreglan starfi?
„Ég vil að hún starfi, eins og hún
gerir, í samfélagi þar sem hún nýtur
mikils trausts almennings. Á síð-
ustu fimmtán árum hefur lögregl-
an ekki mælst jafn hátt í könnun-
um Gallup og nú, 80 prósent íbúa
landsins treysta henni. Ég vil um-
fram allt að lögreglan sé sýnileg og
öflug og eðlilegur hluti af samfélagi
okkar.“
24stundir/Júlíus
Stefnubreytingar Þegar nýr stjórn-
andi kemur til starfa í stofnun þá hef-
ur hann gjarnan nýja sýn og nýjar
hugmyndir sem eru kannski að hluta
til sprottnar upp úr gagnrýni á þær
starfsaðferðir sem fyrir voru.
a
Strákar á aldr-
inum tíu ára til
tvítugs stunda
veggjakrot, hluti af þeim
er sakhæfur og hluti
ósakhæfur. Býsna stór
hluti af hópnum gerir
þetta nánast fyrir hvatn-
ingu og jafnvel með að-
stoð foreldra sinna sem
kaupa tússpennana og
spreybrúsana fyrir börn
sín.
a
Við munum
sennilega sjá
meira af götu-
vændi, vasaþjófnaði og
ránum á götum úti ef
ekki er brugðist við í tíma
og löggæslan sett á þann
stall sem hún á að vera á
þegar kemur að fjárveit-
ingum.
Skólavörðustíg 21 - Sími - 551 4050 - Reykjavík
Gullfalleg
sængurverasett
aldrei meira úrval