24 stundir - 03.05.2008, Blaðsíða 49
24stundir LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2008 49
Arctic Spas Faxafeni 9 (ATH: aðkoma í kjallara bakhús)
Sími 554 7755 www.arcticspas.is & www.heitirpottar.is
Rýmingarsalan
heldur áfram
þangað til allt er selt!!
Geggjaður afsláttur
af öllum vörum.
Ekki missa af þessu
Opið í dag
frá kl. 10:00
Eftir Einar Jónsson
einarj@24stundir.is
Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur
stendur fyrir sérstakri dagskrá sem
tileinkuð er Póllandi og pólskri
tungu í Þjóðminjasafninu í dag.
Þar miðla sérfræðingar á ýmsum
sviðum af fróðleik sínum um sögu
og menningu þjóðarinnar.
„Þetta kom upphaflega til af því
að árið í ár er alþjóðlegt tungu-
málaár hjá Sameinuðu þjóðunum
og okkur fannst tilvalið að vekja at-
hygli á öðrum tungumálum og
menningarheimum,“ segir Laufey
Erla Jónsdóttir, verkefnastjóri hjá
Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur.
Síðar á árinu verður sjónum beint
að menningu annarra landa sem
tengjast Íslandi. „Okkur fannst
borðleggjandi að taka fyrir þau
lönd sem tengjast okkur Íslending-
um sterkum böndum. Nú búa
náttúrlega margir Pólverjar á Ís-
landi þannig að okkur fannst til-
valið að byrja á Póllandi,“ segir
Laufey.
Talsverð menningartengsl hafa
verið milli þjóðanna í gegnum árin
og hafa til dæmis Íslendingar
stundað nám í Póllandi og Pólverj-
ar hér á landi. Engu að síður er
pólsk menning mörgum framandi
og hátíðin því upplagt tækifæri til
að bæta úr því. „Það eru kannski
fáir sem gera sér grein fyrir því
hversu ríkum menningararfi Pól-
land býr í raun og veru yfir. Þetta er
náttúrlega gamalt stórveldi í Evr-
ópu og stendur mjög sterkt meðal
annars á sviði klassískrar tónlistar,
bókmennta og kvikmyndagerðar,“
segir hún.
Hátíðin fer fram í fyrirlestrasal
Þjóðminjasafnsins og hefst dag-
skráin kl. 14.
Menningarþjóð
Pólland á sér mjög
ríkan menningararf
að sögn Laufeyjar
Erlu Jónsdóttur.
Pólsk menningarhátíð í Þjóðminjasafninu
Mikil menningarþjóð
Pólskri menningu í nútíð
og fortíð verður gert hátt
undir höfði á menning-
arhátíð í Þjóðminjasafn-
inu í dag. Sérfræðingar á
ýmsum sviðum ausa af
viskubrunnum sínum.
➤ Þorleifur Friðriksson sagn-fræðingur flytur erindi sem
heitir Pólland - fiðrildi Evr-
ópu.
➤ Ljóðalestur verður á pólskuog íslensku.
➤ Stanislaw Bartozek málfræð-ingur fjallar um gömul hand-
rit og pólskan orðaforða.
➤ Þrándur Thoroddsen kvik-myndagerðarmaður fjallar
um pólskar kvikmyndir.
➤ Vilborg Dagbjartsdóttir lesþýðingu á ljóði eftir Czeslaw
Milosz.
PÓLSK MENNINGARHÁTÍÐ
Um helgina gefst almenningi
kostur á að kynna sér verk Die-
ters Roth í safneign Nýlistasafns-
ins. Á síðustu vikum hefur safnið
unnið að skráningu og ljósmynd-
un á verkum Dieters og kennir
ýmissa grasa í verkum meistar-
ans. Safnið á yfir 300 verk eftir
listamanninn í safneign sinni.
Yfir 100 nýskráð verk hafa litið
dagsins ljós á síðustu mánuðum
sem hafa ekki áður verið sýnd.
Hægt verður að fá óformlega
leiðsögn um verkin á milli kl. 13
og 17 í dag.
Kynning á verkum Dieters Roth
Yfir 100 nýskráð verk
Verslunin Nexus við Hverfisgötu
fagnar ókeypis myndasögudeg-
inum í dag ásamt þúsundum
myndasöguverslana um heim all-
an. Í tilefni dagsins gefur versl-
unin sérútgefin myndasögublöð
frá ýmsum útgefendum. Mynda-
sögublöðin eru af ýmsu tagi og
höfða jafnt til yngri sem eldri les-
enda.
Viðburðurinn hefst kl. 12 og
verða blöð gefin meðan birgðir
endast. Nánari upplýsingar um
blöin og útgefendur má nálgast á
vefsíðunni www.freecomicbook-
day.com.
Myndasöguveisla
Myndasögur verða
gefnar í versluninni
Nexus í dag.
Ókeypis myndasögur
Feðginin Erla Stefánsdóttir söng-
kona og Stefán S. Stefánsson,
saxófónleikari og útsetjari, leika
lög Bítlanna í djössuðum útsetn-
ingum á tónleikum á Domo
sunnudaginn 4. maí kl. 21. Á efn-
isskránni eru lög á borð við I
Will, Fixing a Hole, Got to Get
You into my Life og Things We
did Today. Tónleikarnir eru liður
í tónleikaröð Jazzklúbbsins Múl-
ans. Aðgangseyrir er 1.000 kr en
500 kr. fyrir nemendur.
Bítlatónlist í
djassbúningi
Sýning á verkum alþýðulista-
mannanna og hjónanna Óskar
Guðmundsdóttur og Michaels
Guðvarðarsonar verður opnuð í
Boganum í Gerðubergi í dag kl.
15. Hjónin Ósk og Michael leiða
saman hesta sína á þessari sýningu
þar sem gefur að líta landslags-
málverk úr íslenskri náttúru. Ósk
og Michael mála bæði með akrýl-
litum og styðjast gjarnan við ljós-
myndir í listsköpun sinni. Verkin
nálgast þau á ólíkan máta, hjá Ósk
skín nákvæmni hannyrðakon-
unnar í gegn en hjá Michael tekur
sköpunarkrafturinn völdin með
frjálslegri tækni.
Hjón opna
sýningu saman
Helgina 3.-4. maí eru síðustu
forvöð að sjá sýninguna Til
gagns og til feg-
urðar í Þjóð-
minjasafninu
en hún fjallar
um útlit og
klæðaburð Ís-
lendinga í ljós-
myndun frá
1860-1960.
Sýningu lýkur
MENNING
menning@24stundir.is a
Þetta er náttúrlega gamalt stórveldi
í Evrópu og stendur mjög sterkt
meðal annars á sviði klassískrar tónlistar,
bókmennta og kvikmyndagerðar.