24 stundir - 03.05.2008, Page 54
54 LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2008 24stundir
Eftir Egil Bjarnason í Kabúl
egillegill@hotmail.com
Á Íslandi eru fíkniefnafundir lög-
reglunnar mældir í grömmum og
kílóum. Í Afganistan skipta þeir
tonnum. Alþjóðasamfélagið hefur
lagt fram hundruð milljarða króna
til að kveða niður valmúaræktun.
Og árangurinn? Á síðasta ári kom
93% af heróíni í heiminum frá Afg-
anistan, samkvæmt fíkniefnadeild
Sameinuðu þjóðanna.
Framleiðslan hefur aldrei verið
meiri í sögu landsins. Ennfremur
er búist við að valmúabændur slái
aftur met á þessu ári. Markaðurinn
veltir hátt í fjórum milljörðum
Bandaríkjadala en götuvirði efn-
anna er um 60 milljarðar dollara á
Vesturlöndum. Ópíum er þar með
langstærsta útflutningsafurð lands-
ins og meginstoð efnahagsins. Tal-
ið er að um 10% landsmanna, 3
milljónir Afgana, hagnist á
valmúarækt með einum eða öðr-
um hætti.
Fórnarlamb fátæktar
Valmúabóndi í Badakshan-hér-
aðinu í norðausturhluta landsins,
sem vildi ekki láta nafn síns getið,
sagðist framleiða ópíum til þess
eins að sjá fyrir fjölskyldunni. „Við
bændurnir rétt svo skrimtum.
Stórkaupmenn og smyglarar hirða
allan ágóðann. Yfirvöld ættu mun
frekar að grípa til aðgerða gegn
þeim en okkur.“
Samkvæmt könnun Sameinuðu
þjóðanna er auðfenginn gróði
ástæða 41% ópíumbænda en 12%
þeirra vísuðu til kostnaðarsamra
brúðkaupa í Afganistan.
Bændur fá aftur á móti aðeins
um 20% af veltu fíkniefnamarkað-
arins, samkvæmt opinberum töl-
um. Afgangurinn fer í vasa fíkni-
efnabaróna, smyglara og
uppreisnarhópa talibana sem inn-
heimta verndartoll af bændum.
Samt sem áður græða bændur 17
sinnum meira á því að rækta val-
múa en hveiti.
Viltu gerast burðardýr?
Ópíumuppskeran er mikið til
verkuð í heróínverksmiðjum ná-
grannaríkja Afganistans. Slíkum
verksmiðjum fer þó ört fjölgandi
innan landsins. Smyglið er stór-
tækast í Íran vegna nálægðar við
Evrópu. Næstmest fer til Pakistans,
ekki síst vegna þess að landið liggur
samsíða stærstu valmúahéruðum
Afganistans.
Blaðamanni 24 stunda var boðið
að gerast burðardýr fyrir smyglara
á alræmdum fíkniefnabasar í Pak-
istan, skammt frá landmærum
Afganistans.
„Ég er með marga viðskiptavini
eins og þig,“ sagði smyglarinn og
taldi upp fólk frá ýmsum Evrópu-
löndum. „Fyrirhöfnin er algjörlega
mín. Ég sé um að koma samtals
einu kíló af hreinu heróíni fyrir í
sérútbúnum skóm. Efnið verður
svo vel einangrað að lyktin fer
framhjá leitarhundum. Það eina
sem þú þarf að gera er að labba
gegnum flugvöllinn. Getur líka far-
ið með slatta í þörmunum.“
Skórnir kostuðu 300 þúsund
krónur. Með hassi aðeins 50 þús-
und. Varla þarf að taka fram að
götuvirði efnanna á Íslandi er
hundraðfalt.
Ópíum allra meina bót
„Eyðum valmúanum áður en
hann eyðir okkur!“ stendur á vegg-
spjaldi inni á skrifstofu Ahmads
Shuaib Shahpars, yfirlæknis á með-
ferðarheimili í Badakshan. Íbúa-
fjöldi héraðsins er um ein milljón.
Þar af eru yfir 26 þúsund dópistar,
segir alkalæknirinn, en hann getur
aðeins meðhöndlað 25 fíkla á mán-
uði.
„Íbúar héraðsins hafa afar tak-
markaðan aðgang að læknishjálp.
Þannig að fólk notar ópíum til að
slá á höfuðverki, kulda eða önnur
veikindi,“ sagði Shahpar í samtali
við 24 stundir. „Mæður nota dópið
jafnvel til að fá börnin sín til að
hætta gráta. Þetta er mun algeng-
ara meðal fávíss sveitafólks en þétt-
býlisbúa.“
Hann segir fíkniefnavandann
aukast með ári hverju. „70% at-
vinnuleysi leiðir marga út í dóp-
neyslu. Neyslan er líka áberandi
meðal flóttamanna frá Íran og Pak-
istan sem hafa snúið aftur á und-
anförnum árum.“
Að sögn Ahmads eru aðeins
fjórar sambærilegar meðferðar-
stofnanir í öllu landinu. „Þeim er
alfarið haldið uppi af evrópskum
góðgerðarsamtökum. Yfirvöld í
Afganistan gera afskaplega lítið til
að takast á við vandann. Á síðasta
ári vörðu stjórnvöld um 800 millj-
ónum króna í forvarnir en útkom-
an var engin. Peningarnir enduðu,
eins og svo oft áður, í vösum
spilltra embættismanna.“
Badakshan-héraðið er næst-
stærsta valmúahérað landsins.
Læknirinn segir vandann afleið-
ingu fátæktar og gríðarlegrar eft-
irspurnar. Þaðan séu ekki nema
400 kílómetrar í landamæri fjög-
urra ríkja: Pakistans, Kína, Tajik-
istans og Úsbekistans.
„Afganistan er gegnsýrt af ópí-
umframleiðslu. Hún er rót ófriðar
og afleiðing spillingar og dóp-
neyslufaraldurs,“ segir læknirinn
að lokum.
„Ópíum-
framleiðsla
er rót ófriðar“
Afganar framleiða 93% af heróíni í heiminum Dópfé fjármagnar
uppreisnarhópa talibana Mæður „lækna“ ungbörn með ópíum
➤ Ópíum er afurð valmúablómaog hægt er að vinna úr því
morfín og heróín.
➤ Frá því talibönum var steyptaf stóli í Afganistan hefur
valmúaræktun aukist ár frá
ári.
➤ Talið er að 10% landsmannahafi beinan hag af ópíum-
framleiðslu.
➤ Margir þeirra eru spilltir emb-ættismenn og talibanar. Ópí-
umbændurnir fá lítið fyrir
sinn hlut.
VALMÚARÆKTUN
Ópíum Uppskeran er að
mestu verkuð í heróín-
verksmiðjum í nágranna-
ríkjum Afganistans. Það-
an er duftinu smyglað
áleiðis til Evrópu.
Neyslufaraldur Dópisti
að reykja heróín í Pes-
hawar í Pakistan. Ópí-
umsprengjan í Afganist-
an hefur valdið
neyslufaraldri bæði inn-
anlands sem utan.
Meðferðarheimilið
Alkalæknirinn Ahmad
Shuaib Shahpar ásamt
sjúklingi. Sá sagðist hafa
byrjað í neyslu 13 ára.
Komst á bragðið þegar
hann bjó í flótta-
mannabúðum í Íran.
Hass, heróín eða óp-
íum? Fíkniefnasali við
landamæri Pakistans og
Afganistans réttir fram
klump af ópíum. „Kíló-
verðið er lægra en á
kjöti,“ laug hann. Félagi
hans er afslappaður með
Kalashnikov-riffil til fóta.