24 stundir - 03.05.2008, Side 70
70 LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2008 24stundir
„Við erum svo oft eins og hvítu
meirihlutarollurnar sem taka
öllu gagnrýnislaust sem að þeim
er rétt. [...] Esther og félagar
hennar í samtökum rauðhærðra
eru glæsilegt dæmi um sjálf-
stæðar, gagnrýnar og skynsamar
rauðar rollur.“
Teitur Atlason
teitur-teitur.blogspot.com
„Heilt yfir er ég bara frekar sátt-
ur. Hef alveg auðmýkt í að greina
frá því að fyrir 9 árum fór ég í
prufu á X-inu. Mætti snemma
morguns alveg haugþunnur og
þær þrjár kynningar sem ég tók
eru án nokkurs vafa þær verstu í
útvarpssögunni. Það var pínlegt.
Ég viðurkenni það.“
Henry Birgir
blogg.visir.is/henry
„Nostalgískur gæsahúðar- og
kjánahrollur skiptist á að renna
eftir bakinu á mér þar sem ég er
staðsett í nýjum söngleik Hall-
gríms Helgasonar sem gerist árið
1980. […] Enginn nema húmors-
laus maður kemst svo frá verkinu
án þess að hlæja sig máttlausan
[…] Sem sagt frábær skemmtun.“
Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
bryndisisfold@blog.is
BLOGGARINN
Eftir Viggó I. Jónasson
viggo@24stundir.is
„Já, þetta er mikill heiður og Lee er
líka alveg að meika það þarna úti
sem lagahöfundur og því er frá-
bært að fá að halda áfram að semja
svona mikið með honum. Það er
hægt að læra svo margt af honum,“
segir söngkonan Jóhanna Guðrún
en hún heldur 3. júní til Nashville í
Bandaríkjunum til að vinna að
næstu plötu sinni. Plötuútgefand-
inn Sony Music hefur samið við
Jóhönnu um að hún, ásamt laga-
höfundinum Lee Horrock, muni í
Nashville vinna efni á næstu plötu
hennar ásamt því að semja efni
fyrir aðra listamenn á snærum út-
gáfurisans.
Lagt inn í lagabankann
Horrock er enginn nýgræðingur
í bransanum en hann hefur til
dæmis samið lög fyrir ekki ómerk-
ari tónlistarmenn en Celine Dion
og Enrique Iglesias. Hann var Jó-
hönnu innan handar við vinnslu
síðustu plötu hennar, Butterflies
and Elvis, og er ekki annað að sjá
en samstarfið hafi verið með ágæt-
um því platan vermir nú annað
sætið yfir mest seldu plötur lands-
ins.
Þau lög sem fara ekki inn á
næstu plötu Jóhönnu munu fara í
sérstakan lagabanka hjá Sony Mu-
sic sem útgefandinn getur síðan
deilt út til annarra listamanna.
„Þetta virkar þannig að maður
semur bara fullt af lögum sem fara
síðan inn í þennan banka. Maður
tekur frá lögin sem maður vill hafa
sjálfur og síðan eru hin lögin þarna
til staðar svo að fólk geti hlustað á
þau.“
Úr þessum lagabanka geta aðrir
listamenn á snærum Sony Music
náð sér í lög til flutnings og því
gæti vel svo farið að lag eftir Jó-
hönnu myndi fara á lagalistann hjá
heimsþekktum tónlistarmönnum.
„Við ætlum bara að semja sem
flesta stíla af tónlist, við ætlum
ekki að semja neitt eitt ákveðið.“
Kántríið heillar
Nashville er mjög þekktur stað-
ur í ameríska tónlistariðnaðinum,
sérstaklega sem mekka kántrí-
tónlistarinnar. Það er því spurning
hvort Jóhanna verði undir enn
meiri kántríáhrifum á næstu plötu
sinni. „Við erum aðeins að hugsa
um það. Það gæti alveg vel verið
því ég fíla það rosalega vel.“
Yohanna í boði Sony til Nashville
Semur fyrir sjálfa
sig og stjörnurnar
Söngkonan Jóhanna
Guðrún heldur til Nash-
ville í Bandaríkjunum 3.
júní næstkomandi á veg-
um Sony Music. Þar mun
hún semja efni fyrir
næstu plötu sína.
Vel tekið Nýjasta plata Jóhönnu hefur
fengið góðar viðtökur.
Gott samstarf Jóhanna Guðrún og
Lee Horrock náðu vel saman við
vinnslu Butterflies and Elvis.
HEYRST HEFUR …
Á Facebook-síðu Vesturports kemur fram að stór-
leikarinn Hilmir Snær Guðnason muni taka við
hlutverki Gaels Garcia Bernals í uppsetningu Vest-
urports á Kommúnunni. Ekki er annað hægt að
segja en að Hilmir Snær sé fullkominn í hlutverkið
því leikaraliðið berar sig reglulega í sýningunni og
enginn íslenskur leikari hefur berað sig oftar en ein-
mitt fyrrnefndur Hilmir Snær. vij
… og enn af Bubba Morthens. Á frídegi verka-
manna, 1. maí, hélt kóngurinn tónleika í Hlégarði í
Mosfellsbæ. Þar sá Bubbi sig tilneyddan til að gera
hlé á tónleikunum þegar hann sá að einn eldheitur
Bubba-aðdáandi var að mynda tónleikana með
upptökuvél. Eftir að hafa frætt aðdáandann um
hluti á borð við einka- og höfundarrétt hélt Bubbi
tónleikunum áfram eins og ekkert hefði í skorist. vij
„Ef þetta gengur vel núna þá er
planið að stækka þetta enn frekar á
næsta ári. Þá verður dagskrá á
föstudeginum og jafnvel á fimmtu-
deginum líka ef þetta gengur rosa-
lega vel,“ segir Stefán Jakobsson
sem ásamt Elísabetu Sigurð-
ardóttur og meðlimum hljóm-
sveitarinnar Thingtak vinnur nú
hörðum höndum að skipulagn-
ingu tónleikanna Úlfaldi úr mý-
flugu sem fram fara í Mývatnssveit
þann 12. júlí.
Tónleikastaðurinn sem hefur
orðið fyrir valinu er mjög sérstakur
en spileríið mun fara fram í gam-
alli hlöðu við Mývatn. „Ástæðan
fyrir því að við ætlum að hafa þetta
í hlöðu er engin sérstök nema bara
að það er svalt. Pabbi hennar Betu
á þessa hlöðu, hann er hættur bú-
skap þannig að hún stendur bara
tóm.“
Stefán segir að allur undirbún-
ingur hátíðarinnar gangi vel,
styrktaraðilasöfnun gangi með
ágætum og allt sé að smella saman.
Nú þegar hafa tvær hljómsveitir
staðfest komu sína, Thingtak og
Jan Mayen, en Stefán segir að fleiri
sveitir séu svo gott sem búnar að
staðfesta þátttöku sína.
Mývatn er að öðrum stöðum
ólöstuðum einn fallegasti staður
landsins og því er hreint ótrúlegt
að enginn skuli hafa fengið þá hug-
dettu fyrr að halda tónlistarhátíð á
staðnum. „Ég veit ekki af hverju
engum hefur dottið þetta í hug
fyrr. Það dettur öllum bara í hug
að halda einhverja kóratónleika og
eitthvað svoleiðis. Ég sé ekki í
fljótu bragði af hverju þetta ætti að
klikka,“ segir Stefán að lokum. vij
Efna til tónleika í hlöðu í Mývatnssveit
Hyggjast gera
úlfalda úr mýflugu
Skipuleggur hlöðutónleika Stefán er
bjartsýnn á að tónleikahaldið gangi vel.
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og
lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má
aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis.
Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Su doku
4 7 5 1 6 3 9 8 2
8 9 6 4 5 2 7 1 3
1 3 2 7 8 9 4 5 6
9 1 7 2 3 6 5 4 8
5 2 3 8 4 7 1 6 9
6 4 8 9 1 5 2 3 7
7 5 1 3 9 8 6 2 4
2 8 4 6 7 1 3 9 5
3 6 9 5 2 4 8 7 1
Ég er viss um að þið eruð öll spennt að
hitta nýja stjórnarformanninn.
24FÓLK
folk@24stundir.is a
Já, nú er ég búin að máta
og þá er að raða upp á nýtt
og tefla aðra.
Skák og mát?
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir lætur í dag af starfi sínu sem
forseti Skáksambands Íslands á aðalfundi sambandsins.
Hún hefur gegnt starfinu síðastliðin fjögur ár.
Meistari Bubbi Morthens hefur nú lokið tónleika-
ferð sinni um höfuðborgarsvæðið til að kynna
væntanlega plötu sína, 4 naglar. Á miðvikudags-
kvöldið lék hann fyrir gesti í Félagsgarði í Kjós. Á
meðal gesta var unnusta hans Hrafnhildur Haf-
steinsdóttir en Bubbi upplýsti tónleikagesti um að í
næstu viku myndu þau Hrafnhildur flytja formlega
inn í nýtt heimili sitt við Meðalfellsvatn. vij