24 stundir - 02.07.2008, Side 16
16 MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ 2008 24stundir
Eftir Þorkel Gunnar Sigurbjörnsson
thorkell@24stundir.is
Alfreð á glæsilegan feril að baki sem
leikmaður og hefur einnig gert frá-
bæra hluti sem þjálfari. Hann á nú
væntanlega eftir að vinna fjölmörg
afrek til viðbótar.
Sjálfsagt þekkir enginn Íslend-
ingur betur til hjá Kiel en sálfræð-
ingurinn og fyrrum landsliðsþjálf-
arinn Jóhann Ingi Gunnarsson.
Hann þjálfaði liðið á árunum 1982-
86 og á marga vini sem tengjast fé-
laginu. Meðal annars er Uwe
Schwenken, framkvæmdastjóri Kiel
góður vinur Jóhanns Inga.
„Mér líst rosalega vel á að Alfreð
sé tekinn við Kiel. Þarna á hann
heima. Þetta er fornfrægt félag og í
borginni snýst allt um handbolta.
Ef við berum þetta saman við
knattspyrnuna þá er Kiel jafnstórt í
handboltanum og Bayern Münc-
hen er í fótboltanum. Það hefur
verið uppselt á hvern einasta leik
hjá liðinu í meira en 20 ár og árs-
kort ganga bara í erfðir. Það vill
enginn láta þau frá sér. Kiel er há-
borg handboltans.“
Aðeins þeir bestu eru hjá Kiel
„Það er ekki pláss fyrir neina
meðalmenn hjá Kiel. Félagið er rek-
ið sem hlutafélag og reksturinn
gríðarlega góður og gengur vel. Það
hefur verið stefna hjá félaginu að fá
aðeins til sín tilbúna leikmenn sem
eru í heimsklassa. Eins er það með
þjálfara. Uwe Schwenken hefur
ekki viljað bjóða leikmönnum og
stuðningsmönnum Kiel upp á neitt
annað en það frábæran þjálfara og
því leitað til Alfreðs.
Að greiða 100 milljónir fyrir
þjálfara er algjört einsdæmi og það
er mikið fé. Það sýnir kannski best
bæði hvað Alfreð er stórt nafn en
líka hvað metnaðurinn hjá Kiel er
mikill. Þeir ná sér í þá bestu og pen-
ingar eru ekki nein fyrirstaða.“
Jóhanni Inga finnst líklegt að Al-
freð hafi verið valinn í þjálfarastarf-
ið frekar en gamlar sænskar kemp-
ur af einfaldri ástæðu. „Það voru
fleiri nöfn en Alfreðs sem komu
upp á borðið sem eftirmaður Noka
Serdarusic þegar hann hætti í síð-
ustu viku. Ég giska hins vegar á það
að minn góði vinur Uwe Schwen-
ken hafi ekki viljað ráða sænskan
þjálfara þar sem þónokkrir Svíar
leika með liðinu. Félagið hefði því
geta fengið á sig einhvern stimpil
sem sænsk mafía eða eitthvað slíkt.
Hjá Kiel vilja menn hafa allt faglegt.
Það er heldur ekki hægt að bjóða
leikmönnum upp á hvað sem er og
þess vegna varð Alfreð fyrir valinu.“
Ekki tjaldað til einnar nætur
Vinnuumhverfið er mjög gott
hjá Kiel. Þó alltaf sé krafa á titla og
fallegan handknattleik virðist þó
vera ákveðin þolinmæði hjá félag-
inu.
„Serdarusic var mjög lengi hjá
félaginu. Hann stýrir liðinu í 15 ár
sem er enginn venjulegur tími þeg-
ar kemur að þjálfun. Honum voru
skapaðar mjög góðar vinnuaðstæð-
ur og fékk allt sem hann vildi hjá
félaginu. Noka var samt ekki eins
vinsæll síðustu árin hjá félaginu.
Hann hafði ekki mætt á morgunæf-
ingu hjá Kiel í nokkur ár. Svo var
það líka ansi sérstakt að hann fagn-
aði aldrei þegar liðið vann titla.
Hann fór alltaf bara inn í klefa. Í
þessu fjölmiðlaumhverfi í dag þá
gengur ekkert að draga sig inn í
einhverja skel.
Alfreð er þannig týpa að hann á
eftir að passa vel inn í þetta starf og
vinna hug og hjörtu allra mjög
fljótt. Þó vissulega sé krafa á titla þá
held ég að hann fái góðan tíma með
liðið. Það kæmi mér eiginlega á
óvart ef hann yrði ekki hjá Kiel í að
minnsta kosti tíu ár.“
Margir af bestu handbolta-
mönnum heims leika með félaginu
og heimavöllur liðsins er með þeim
allra sterkustu í heimi. Þess til
stuðnings má geta þess að Kiel tap-
ar ekki heimaleik nema á nokkurra
ára fresti. Heimavöllurinn er því
mikil gryfja en jafnframt eru áhorf-
endur orðnir góðu vanir. „Áhorf-
endur eru orðnir eins og leikhús-
gestir. Þeir vilja fá sýningu þegar
þeir koma að sjá Kiel spila. En þeir
verða nú líka sjaldnast fyrir von-
brigðum. Þeir ættu ekkert að verða
fyrir neinum vonbrigðum með Al-
freð heldur.
Alfreð á eftir að vinna hug og
hjörtu Kielar-búa. Ég er ekki í
nokkrum vafa um það, sagði Jó-
hann Ingi Gunnarsson.“
Í djúpu lauginni Alfreð Gíslason
mun stjórna einu sterkasta hand-
knattleiksliði heims næstu árin.
„Þarna á
hann heima“
Kiel er fornfrægt félag þar sem allt snýst um handbolta Uppselt
á alla heimaleiki „Bayern München“ handboltans í Þýskalandi
➤ Kiel greiðir Gummersbach um100 milljónir kr. til þess að fá
Alfreð. Sem er einsdæmi.
➤ Jóhann Ingi Gunnarssonþjálfaði Kiel í fjögur tímabil á
árunum 1982-1986.
VAGGA HANDBOLTANS
Meðmæli Jóhann Ingi Gunn-
arsson þjálfaði Kiel í fjögur ár.
Alfreð Gíslason var í gær
ráðinn þjálfari þýska
handboltarisans Kiel.
Staðfestir þessi ráðning
enn frekar hversu fær
þjálfari Alfreð er. Hann er
fæddur 7. september
1959 og verður því 49 ára
síðar á þessu ári.
Leikmaður
1976-79 KA.
1979-83 KR, bikarmeistari.
1983-88 Essen (Þýskalandi),
meistaratitill tvívegis, bik-
armeistari.
1988-89 KR.
1989-91 Bidasoa (Spáni), bik-
armeistari.
1991-95 KA, bikarmeistari.
Þjálfari
1991-97 KA, Íslandsmeist-
aratitill, og tveir bikarmeist-
aratitlar.
1997-99 Hameln (Þýskalandi).
1999-2006 Magdeburg (Þýska-
landi), Þýskalandsmeistaratit-
ill, og Evrópumeistaratitill.
2006-2008 Gummersbach
(Þýskalandi).
2006-2008 Íslenska landsliðið.
2008-? Kiel (Þýskaland).
Ferill Alfreðs
Markverðir:
Andreas Palicka, Svíþjóð.
Thierry Omeyer, Frakkland.
Útileikmenn:
Nikola Karabatic,
Frakkland.
Filip Jicha, Tékkland.
Daniel Wessig, Þýskaland.
Stefan Lövgren, Svíþjóð.
Moritz Weltgen, Þýskaland.
Börge Lund, Noregur.
Kim Andersson, Svíþjóð.
Christian Zeitz, Þýskaland.
Hornamenn:
Dominik Klein, Þýskaland.
Henrik Lundström,
Svíþjóð.
Vid Kavticnik, Slóvenía.
Línumenn:
Marcus Ahlm, Svíþjóð.
Igor Anic, Frakkland.
Leikmanna-
hópur Kiel
Þegar Noka Serdarusic tók við
liði Kiel árið 1993 voru akkúrat
30 ár síðan félagið hafði síðast
orðið Þýskalandsmeistari.
Meistaratitlar félagsins voru þá
þrír. Undir stjórn Serdarusic
varð Kiel 11 sinnum þýskur
meistari, 5 sinnum bikarmeist-
ari, vann meistaradeild Evrópu
einu sinni auk fjölda annarra
titla.
Serdarusic hafði áður þjálfað
Flensburg og Bad Schwartau
auk félaga í Júgóslavíu áður en
hann hóf störf hjá Kiel.
Noka Serdarusic er í dag 58 ára
gamall og hefur verið orðaður
við þýska liðið Rhein-Neckar
Löwen síðan leiðir hans skildu
við Kiel í síðustu viku. Hjá
Rhein-Neckar liðinu leikur ís-
lenski landsliðmaðurinn Guð-
jón Valur Sigurðsson.
Valinn fram yfir
Gunnar
Þegar Serdarusic var ráðinn
sem þjálfari Kiel árið 1993 stóð
valið milli hans og Gunnars
Einarssonar sem nú er bæj-
arstjóri í Garðabæ.
„Þegar Serdarusic var ráð-
inn var Uwe Schwenken, fram-
kvæmdastjóri mikið að velta
Gunnari fyrir sér. Hann var í
reglulegu sambandi við mig út
af Gunnari og spurði mikið
um hann. Það varð hins vegar
úr að ráða Serdarusic enda
hann kannski meiri goðsögn
og stærra nafn,“ sagði Jóhann
Ingi Gunnarsson.
Serdarusic sá
sigursælasti
Stofnað: 4. febrúar 1904.
Gælunafn: Sebrarnir.
Heimavöllur: Sparkassen-
Arena, 10.250 áhorfendur.
Framkvæmdastjóri: Uwe
Schwenken.
Þjálfari: Alfreð Gíslason.
Þýskalandsmeistari:
14 sinnum.
Bikarmeistari: 5 sinnum.
Meistaradeild Evrópu: 1 sinni.
Evrópukeppni bikarhafa:
3 sinnum.
THW Kiel
ÍÞRÓTTIR
ithrottir@24stundir.is a
Vinnuumhverfið er mjög gott hjá Kiel. Þó alltaf sé krafa
um titla og fallegan handknattleik virðist þó vera ákveðin
þolinmæði hjá félaginu.