24 stundir - 02.07.2008, Blaðsíða 27
24stundir MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ 2008 27
Neytendasamtökin hafa að undanförnu
kannað verð á tjaldsvæðum víða um land og
birt niðurstöðurnar á Neytendavaktinni í 24
stundum. Nú hafa niðurstöðurnar verið
teknar saman í heild sinni og birtar á heima-
síðu samtakanna www.ns.is.
Mismunandi afsláttarmöguleikar
Gerðar voru tvær kannanir, annars vegar
fyrir fellihýsi og hins vegar fyrir tjald. „Það er
svo mikið af afsláttarmöguleikum í boði.
Stundum er veittur afsláttur aðra nóttina eða
þriðja nóttin er ókeypis. Þess vegna var svo
vont að bera þetta saman öðruvísi en að gefa
sér ákveðnar forsendur,“ segir Þuríður
Hjartardóttir, framkvæmdastjóri Neytenda-
samtakanna. Í fellihýsakönnuninni er miðað
við hjón með tvö börn sem gista í fellihýsi í
tvær nætur á hverjum stað (á stæði með raf-
magni) en í tjaldkönnuninni er miðað við
tvær manneskjur sem tjalda í eina nótt.
Ekki er tekið tillit til gæða eða þjónustu
svæðanna í könnuninni. Þá er stjörnugjöf
ekki heldur tekin inn í dæmið en tjaldsvæði
geta fengið stjörnur eftir þjónustustigi (frá
einni upp í fimm stjörnur). „Við vildum ekki
birta stjörnurnar af því að það eru líka mörg
svæði sem hafa ekki látið gefa sér stjörnur en
það þýðir ekki endilega að það sé engin þjón-
usta þar,“ segir Þuríður.
Með í ferðalagið
Könnunin er skipt eftir landshlutum og er
einfalt að prenta út upplýsingarnar og taka
með í ferðalagið. Jafnframt fylgja símanúmer
á tjaldsvæðunum ef fólk vill hringja á undan
sér.
Þeir sem vilja kynna sér stjörnugjöf ís-
lenskra tjaldsvæða er bent á vef Ferðamála-
stofu www.visiticeland.com. Einnig má nálg-
ast upplýsingar um tjaldsvæði á síðunni
www.tjaldsvaedi.is.
Viðamikil verðkönnun á tjaldsvæðum á landinu
Verð á tjaldsvæðum á einum stað
Allt á einum stað Nú geta tilvonandi
ferðalangar kynnt sér verð á ólíkum
tjaldsvæðum á einum stað.
Ekki fara allir
innbrotsþjófar
hljóðlega um í
skjóli nætur.
Þvert á móti
þekkjast dæmi
þess að þeir reyni
að villa um fyrir
nágrönnum, til
dæmis með því að látast vera iðn-
aðarmenn. Það er því full ástæða
til að athuga hvað sé á seyði ef
vart verður við mannaferðir í
næsta garði.
Þjófar sem villa
á sér heimildir
Nágrannar sem eru vel á verði
geta komið í veg fyrir innbrot
eða veitt upplýsingar sem leiða
til þess að þau upplýsist. Fjöl-
mörg dæmi eru um innbrot
sem upplýstust vegna slíkra
upplýsinga. Það geta þeir til
dæmis gert með því að hafa
vakandi auga með grun-
samlegum ferðum manna og
bíla, tekið niður bílnúmer og
haft samband við lögreglu ef
minnsti grunur um eitthvað
misjafnt vaknar.
Góðir grannar
vel á verði
Margir kjósa að setja upp
þjófavarnarkerfi til að koma í
veg fyrir heimsóknir óboðinna
gesta á heimilið. Fyrirtækin Sec-
uritas og Öryggismiðstöðin
bjóða bæði upp á slík kerfi fyrir
heimili. Þorsteinn G. Hilm-
arsson, markaðsstjóri Securitas,
segir að viðskiptin dreifist nokk-
uð jafnt yfir árið. „Við finnum
samt alltaf fyrir því að fólk er að
hugsa um þetta áður en það fer í
frí hvort sem það er jólafrí,
páskafrí eða sumarfrí,“ segir Þor-
steinn.
Bæði fyrirtækin bjóða upp á
viðvörunarkerfi sem fela meðal
annars í sér innbrotaviðvörun og
brunaviðvörun. Fólk greiðir að-
eins mánaðargjald af kerfinu en
engan stofnkostnað og fer verðið
eftir stærð heimilis og fjölda
skynjara.
Meiri áhugi
fyrir frí