24 stundir - 02.07.2008, Blaðsíða 38

24 stundir - 02.07.2008, Blaðsíða 38
Eftir Birgi Örn Steinarsson biggi@24stundir.is „Þetta er svokallað „spurious“- kvæði sem þýðir að það sé ekki hægt að tengja það beint til skálds- ins þó að allt bendi til þess að það sé eftir hann,“ segir Megas um Leppalúðakvæði er hann ætlar að skoða í ferð sinni til Vest- mannaeyja en spekingar telja að það sé eftir sjálfan Hallgrím Pét- ursson. „Ég fæ eflaust einhverja til- finningu fyrir því hvort það sé eftir hann, en það eru engin vísindi á bakvið slíkt. Þeir sem gefa út Hall- grím eru nokkuð tregir til þess að prenta meira en akkúrat það sem er talið öruggt að hann hafi samið, þeir hafa verið svolítið stífir á sönnunarbyrðinni.“ Grínistinn Hallgrímur? Kári Bjarnason, forstöðumaður bókasafns Vestmannaeyja, er hon- um sammála. Enda átti hann hug- myndina að koma þessu „týnda“ kvæði Hallgríms Megasi fyrir sjón- ir. „Þetta er svona grínkvæði sem sýnir skaplyndi Hallgríms,“ segir Kári. „Þarna lætur hann Leppa- lúða, eiginmann Grýlu, koma og heimta börn Guðríðar. Þetta er lip- urlega ort eins og allt eftir Hall- grím en um leið kastar hann svolít- ið frá sér að vera þetta trúarskáld og er bara grínisti. Það sýnir okkur ákveðna lund hans, sem sést ekki í Passíusálmunum.“ Kvæðið var upphaflega skrifað upp úr gömlum handritum af Jóni Samsonarsyni. Það vakti áhuga Kára þar sem Guðríður Sím- onardóttir, eiginkona séra Hall- gríms, er einn þekktasti íbúi Vest- mannaeyja í gegnum söguna. Það er mikill áhugi fyrir komu Megasar í Eyjum, en hann hefur ekki látið sjá sig þar svo lengi sem elstu menn muna... eða a.m.k. hann sjálfur. „Ég hef engin ártöl á hreinu. Ég veit að ég var þarna 8́5 og síðan hef ég farið nokkrum sinnum með Súkkat en man ekki hvenær.“ Hann segist þó vera spenntur fyrir ferðinni, enda sé alltaf gaman að koma til „útlanda“. „Upphaflega var þetta írsk ný- lenda, skilurðu? Þrælarnir sem flúðu þangað voru Írar.“ Tónleikar Megasar og Senuþjóf- anna í Eyjum fara fram í Höllinni á morgun en þeir marka upphaf gos- lokahátíðar þar. Megas yfirgefur meginlandið og ferðast alla leið til Vestmannaeyja Ætlar að lesa týnt ljóð Hallgríms Megas er á leið til Vest- mannaeyja í fyrsta skipti í fleiri ár en hann getur munað. Þar fær hann dul- arfullt ljóð í hendur, er talið að sé eftir sjálfan Hallgrím Pétursson. Hallgrímur Grínast með fjölskylduna. Megas Spenntur að sjá hið „týnda“ kvæði Hallgríms. 38 MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ 2008 24stundir Nýr lífrænn barnamatur frá Nestlé www.barnamatur.is Gott veganesti fyrir lífið Ósalta ð og ósykra ð „… þar sem ég gæddi mér á ham- borgara í sjoppunni við Selfoss- brúna sá ég hnakka hverfa á braut á svörtum Bens. Hann gaf óþarflega mikið í, eins og hann væri að flýja eitthvað. Sennilega fann hann að hans tími var liðinn og hann var að reyna að flýja, sjálfan sig eða tískulögguna.“ Jakob Smári Magnússon jakobsmagg.blog.is „Það er níðingslegt að veita ein- ungis einum meðlimi fjögurra manna hljómsveitar Fálkaorð- una. Nú fer hann örugglega að mæta með hana í barminum á æfingar. Þá er stutt í rifrildi og upplausn. Synd.“ Pétur Jónsson donpedro.medialux.com „Mér sýnist neikvætt og þungt tal Guðjóns vera farið að ná til liðs- ins. Gleðin víðs fjarri enda hafa leikmennirnir fína fjarvist- arsönnun fyrir genginu slaka. Þetta er ekki eingöngu þeim að kenna. Þeir eru í stríði við allt og alla.“ Rögnvaldur Hreiðarsson roggi.eyjan.is BLOGGARINN HEYRST HEFUR … Leikur FH og Fram í Landsbankadeild karla fór fram á sunnudaginn og var í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Hörður Magnússon lýsti leiknum, sem væri ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að hann lék sjálfur með liðinu um árabil og er mikill FH- ingur. Fór það fyrir brjóstið á einhverjum, sem lýstu eftir hlutlausum lýsendum. Hörður þótti þó standa sig með ágætum í lýsingunni. bba Það hefur ekki gengið alveg slysalaust hjá sveitinni Á móti Sól í Danmörku en þeir eru nú staddir í hljóðveri rétt fyrir utan Kolding að vinna nýja plötu. Harður diskur Heimis hljómborðsleikara gaf sig eftir mikið álag og neyddust því liðsmenn að fara í innkaupaleiðangur til að bjarga málunum. Ekki virðist þetta þó hafa haft áhrif á upptökuferlið og vinnsla plötunnar heldur áfram. bös Paul Simon rauk beint niður í Laugardalshöll eftir að hafa lent einkaþotu sinni á Reykjavíkurflugvelli í fyrrakvöld. Þar æfði hann svo með hljómsveit sinni til klukkan tvö um nóttina. Þetta þýddi að hann átti gærdaginn alveg lausan og var því ákveðið að bruna út úr bænum til þess að skoða Gullfoss, Geysi og Bláa lónið. Ekki er vitað hvort hann fór ofan í. Kappinn var spenntur að kynnast landi og þjóð. bös Einkaspæjarinn Harry Rögn- valds og hundtryggur aðstoð- armaður hans Heimir Snitzel (voff! voff!) eru á leið í leikhúsið. Félagarnir Örn Árnason, Karl Ágúst Úlfsson og Sigurður Sig- urjónsson eru nú að forvinna leik- gerð eftir útvarpsþáttunum vin- sælu, Með öðrum Morðum, er slógu í gegn á Bylgjunni fyrir akk- úrat tuttugu árum síðan. Einnig er nýútkomið fjögurra diska box er inniheldur fyrstu ellefu leikritin. „Okkur langar að koma þeim á svið,“ segir Örn, er var sögumaður þáttanna. Þeir félagar eru þegar byrjaðir að vinna að handriti fyrir væntanleg leikrit sem færi á svið á næsta ári. „Þetta er klikkaður húmor og það er klikkað ástand í þjóðfélaginu núna. Það er því góð- ur grunnur fyrir þetta núna.“ Spornað gegn netþjófnaði Örn segir að upptökurnar hafi fundist þegar Bylgjan fluttist yfir í Skaftahlíðina. Það hafi verið upp- hafið að endurlífgun persónanna ógleymanlegu. „Þetta hefur gengið manna á milli á netinu lengi. Við ákváðum að segja því stríð á hendur og gefa þetta út í góðum gæðum. Þannig að þetta sé frá okkur komið en ekki einhverjum netþjófum.“ En netþjófarnir hafa þó ennþá eitthvað til að moða úr, því boxið inniheldur ekki öll ævintýri Harry og Heimirs. „Það voru líka gerðir fjörutíu fimm mínútna þættir árið 9́3, en þeir bíða bara betri tíma,“ segir Örn að lokum. biggi@24stundir.is Varstu að kalla á mig Harry? Þegiðu Heimir! Harry og Heimir snúa aftur Örn Árnason beinir spjótum sínum aftur að Harry og Heimi. Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar. Su doku 6 5 3 2 9 8 1 7 4 9 1 4 5 7 3 2 8 6 2 7 8 4 1 6 3 5 9 1 8 6 3 2 4 5 9 7 3 9 2 7 6 5 4 1 8 5 4 7 9 8 1 6 2 3 4 6 9 1 5 7 8 3 2 7 3 1 8 4 2 9 6 5 8 2 5 6 3 9 7 4 1 Er lúðrasveitin enn fyrir framan mig ? Friðrik, varstu nokkuð með lús? Söngvarinn Friðrik Ómar í Eurobandinu brá á það ráð að krúnuraka sig um daginn, en Friðrik hefur þótt sérlega vel greiddur og snyrtilegur til höfuðsins. FÓLK 24@24stundir.is a Ég hef aldrei verið með lús, en var orðinn þreyttur á því að greiða mér og þetta er liður í sparnaði. fréttir

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.