24 stundir - 04.07.2008, Page 1
Ungt fólk telur að allt hækki nema
launin og að vinnutími fólks sé allt
of langur. Hærri húsnæðislán í er-
lendum gjaldmiðli hækka mest og
ungar mæður huga að
því að flytja til útlanda.
Óttast kreppu
vegna dýrtíðar
»8
24stundirföstudagur4. júlí 2008125. tölublað 4. árgangur
Birgir Haraldsson gerir góða hluti í
London með hljómsveit sinni
Blindfold. Hann berst þó á fleiri
vígstöðvum og seldi nýverið lag til
íþróttavörurisans Nike.
Spilar fyrir Nike
FÓLK»38
Ólöf María Jónsdóttir atvinnukylfingur
varð að leggja kylfuna á hilluna þegar
hún eignaðist veikt barn fyrir rúmu ári.
Hún segir þetta hafa verið erfiðan
tíma en er aftur mætt til leiks.
Erfið lífsreynsla
ÍÞRÓTTIR»16
Í sól og
sumaryl
11
15
11
10 14
VEÐRIÐ Í DAG »2
Fjölskyldustemning verður á Skag-
anum á morgun þegar Írskir dagar
standa sem hæst. Aldurstakmark er
23 ára á tjaldstæði en bú-
ist er við margmenni.
Írsk stemning
»26
Hólmsá og Suðurá, sem renna í Ell-
iðavatn, eru skemmtilegar silungs-
veiðiár. Veiðin þar hefst 1. maí á
hverju vori en þann 1. júlí
er lokað á veiðimenn.
Veiðimenn ekki sáttir
»30
Mikill spenningur er fyrir Íslands-
mótinu í rallakstri og mikil eft-
irvænting er fyrir leiðinni í Stykk-
ishólm um helgina, að
sögn Borgars Ólafssonar.
Rall á Snæfellsnesi
»28
SÉRBLAÐ
NEYTENDAVAKTIN »4
40% verðmunur
á rafhlöðum
Sjálfstæðismenn í borgarstjórn
segja stefnu meirihlutans í mál-
efnum REI skýra en lýðræðið taki
tíma. Starfsmenn REI
vildu ekki bíða lengur.
Tafsamt lýðræði
– REI ekki í rúst
»2
Íbúar á Hólavaði í Norðlingaholti
hafa hafið undirskriftasöfnun
vegna áætlaðs áfangaheimilis í
hverfinu. Þeir efast um að hægt sé
að fylgjast vel með svo
stórum hópi fíkla.
Fíklar ógna
öryggi barnanna
»4
Það eru ekki bara sveittir ham-
borgarar eða pylsur sem fást í bíla-
lúgum. Nú er hægt að fá úrvals-
humarsúpu í gegnum lúguna á
Kokknum á Höfn í
Hornafirði.
Humarsúpa
beint í bílinn
»15
Eftir Þóru Kristínu Þórsdóttur
thorakristin@24stundir.is
„Ég vona að Paul komi aftur til
Íslands því hér þekkjum við
margt fólk. Ef hann verður á Ítal-
íu fer ég þangað,“ segir Rosemary
Atieno Odhiambo, eiginkona
Paul Ramses sem sendur var til
Ítalíu í gær.
Hún segist ekki vita hvar hann
sé niðurkominn og er uggandi yf-
ir að hann verði sendur frá Ítalíu
til Keníu því þá hittist þau ekki
aftur því hann sé á dauðalista.
Forsaga málsins er sú að Ram-
ses sótti um pólitískt hæli hér-
lendis en Útlendingastofnun úr-
skurðaði að ekki bæri að fjalla
um málið hér þar sem Ramses
hefði ítalska vegabréfsáritun. Bréf
þess efnis barst þeim hjónum
hins vegar ekki fyrr en við hand-
tökuna á miðvikudag, en þó er
það dagsett 1. apríl síðastliðinn.
Katrín Theódórsdóttir, lögmaður
Ramses, staðfestir að þetta hafi
ekki verið tilkynnt og segir það
gróft mannréttindabrot. Að auki
hafi stjórnvöld með þessu stíað
fjölskyldunni í sundur því fjallað
verði um mál þeirra hjóna í sitt-
hvoru landinu.
Odhiambo hefur ekki dvalar-
leyfi hér á landi og er nú reiknað
með því að henni og syni þeirra,
Fídel Smára, verði vísað úr landi
á næstu dögum.
Boðað hefur verið til mótmæla
vegna málsins fyrir utan dóms-
málaráðuneytið á morgun.
Fjölskyldu
fleygt úr landi
Kona Keníumannsins óttast um líf eiginmannsins Vissu ekkert
fyrr en við handtöku Gróft mannréttindabrot, segir lögmaður
➤ Ramses hefur búið hér í tvö árog starfaði síðast sem upp-
vaskari á Geysi.
➤ Hann starfaði fyrir and-spyrnuhreyfinguna í heima-
landinu og komst á dauðalist-
ann. Hann flúði því hingað og
sótti um pólitískt hæli.
FORSAGA MÁLSINS
Fyrirvinnulaus Fjölskylda Ramses
hefur verið skilin eftir án fyrirvinnu
eftir að Ramses var sendur úr landi.
24stundir/Árni Sæberg
»12
Þeir ferðamenn sem njóta leiðsögu VilhjálmsGoða Friðrikssonar eiga von á góðu því hanner uppátækjasamur með meiru. Villi á það tilað gerast grasagudda, tína grös og grilla sil-ung, tekur stundum upp gítarinn og synguref sérlega vel liggur á honum.
Gítarspilandi fjallageit
»22
„Þegar kaffi er gert kalt verður að sæta þaðog þess vegna er t.d. hægt að velja um kara-mellu- eða súkkulaðisósu til að setja með,“segir Harpa Hrund, margverðlaunaður kaffi-barþjónn sem gefur lesendum uppskriftir aðsvalandi sumardrykkjum semauðvelt er að útbúa.
Svalandi sumardrykkir
»20
Útilegutíminn stendur nú sem hæst ogflykkist fjöldi fólks út í guðsgræna náttúr-una með tjöld, grill og gómsætan mat.Undirbúningur er mikilvægur til að ekk-ert gleymist heima og margt sem geturgert góða útilegu enn
betri.
Ómissandi í útileguna
»18
SUMARIÐ
AUGLÝSINGASÍMI: 510 3744 AUGLYSINGAR@24STUNDIR.IS