24 stundir - 04.07.2008, Page 2
2 FÖSTUDAGUR 4. JÚLÍ 2008 24stundir
ostur.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
Grill og
ostur
– ljúffengur
kostur!
VÍÐA UM HEIM
Algarve 18
Amsterdam 9
Alicante 2
Barcelona 17
Berlín 10
Las Palmas 21
Dublin 12
Frankfurt 12
Glasgow 10
Brussel 9
Hamborg 9
Helsinki 1
Kaupmannahöfn 6
London 9
Madrid 18
Mílanó 12
Montreal -21
Lúxemborg 9
New York -7
Nuuk -11
Orlando 7
Osló 5
Genf 12
París 12
Mallorca 17
Stokkhólmur 6
Þórshöfn 7
Dálítil rigning eða súld með köflum á Norð-
austur- og Austurlandi í dag. Hiti 10 til 22
stig, svalast með austurströndinni en hlýjast
inn til landsins.
VEÐRIÐ Í DAG
11
15
11
10 14
Hlýjast inn til landsins
Hæg austlæg eða breytileg átt. Súld suðaust-
anlands fram eftir degi, annars bjartviðri að
mestu. Hiti 12 til 19 stig, en 19 til 23 stig
norðanlands.
VEÐRIÐ Á MORGUN
Að 23 stigum norðanlands
10
15
15
10
16
„Þetta ætti ekki að koma á óvart og er ein
birtingarmynd vandamálsins sem er að leika
markaði grátt,“ segir Jón Steinsson, lektor í hag-
fræði við Columbia-háskólann í New York, um
spá Seðlabanka Íslands um þriðjungs raun-
verðslækkun á húsnæði fram til loka árs 2010.
Spá Seðlabanka Íslands jafngildir um 19 pró-
senta lækkun nafnverðs.
Jón segir spána hóflega sé tekið mið af mikilli
þenslu í hagkerfinu undanfarin ár. „Raunverðið
á húsnæði hefur rúmlega tvöfaldast á þremur
árum og þess vegna ætti það ekki að koma nein-
um á óvart ef verðið lækki vegna lausafjárþurrð-
arinnar. Spá Seðlabankans gerir ráð fyrir því að
yfir tveggja til þriggja ára tímabil þá gangi verð-
hækkunin til baka að tiltölulega litlu leyti og það
held ég að sé hóflega áætlað,“ segir Jón.
Jón segir aðgerðir ríkisstjórnar, meðal annars
niðurfellingu stimpilgjalda við kaup á fyrstu
íbúð og víkkun á lánsheimildum Íbúðalána-
sjóðs, ekki líklegar til þess að hafa afgerandi
áhrif á þróun á fasteignamarkaði. „Þetta frestar
einkennum vandans en eyðir þeim ekki. Ég er
ekki talsmaður þess að reyna með stjórnvalds-
aðgerðum að glæða fasteignamarkað lífi. Of
miklar aðgerðir geta skapað meira vandamál
seinna meir. Vandinn mun taka sinn tíma í að
vinda ofan af sér og frestun á því að hann nái
botni þarf ekki endilega að vera til góðs. Það er
tvíeggjað að ríkið sé að blása út hlutverk sitt í
svona árferði, sérstaklega þegar horfur eru óljós-
ar eins og nú,“ segir Jón.
Í Peningamálum kemur fram að „nokkrar lík-
ur séu á meiri samdrætti“ í efnahagslífinu al-
mennt en spá bankans segir til um. Er þar vitn-
að til þess að fyrirtæki finni í vaxandi mæli fyrir
lausafjárþurrð og eigi í erfiðleikum með að
greiða af skuldum. Segir meðal annars að fyr-
irtæki gætu þurft að grípa til frekari sölu á eign-
um sem líklega verði til þess að lækka verðmæti
eigna enn meira en nú hefur gerst.
magnush@24stundir.is
Seðlabanki Íslands spáir verðhruni á húsnæðismarkaði þrátt fyrir aðgerðir ríkisstjórnarinnar
Segir fasteignaspá Seðlabanka hóflega
Aðeins 2% stjórnenda í 400 stærstu
fyrirtækjum landsins telja að-
stæður í efnahagslífinu vera góðar.
Um 76% stjórnendanna telja að-
stæður hins vegar vera frekar eða
mjög slæmar og 22% telja þær
hvorki góðar né slæmar.
Þetta kemur fram í ársfjórðungs-
legri könnun Capacent Gallup um
stöðu og horfur í atvinnulífinu sem
fyrirtækið gerði fyrir Samtök at-
vinnulífsins, Seðlabankann og fjár-
málaráðuneytið, en sagt er frá niðurstöðunum á heimasíðu Samtaka
atvinnulífsins.
„Þegar litið er hálft ár fram í tímann eru efnahagshorfur á hinn bóg-
inn skárri“, segir þar janframt. Stjórnendur 32% þessara fyrirtækja
telji að aðstæður verði þá betri, um 26% telja að ástandið verði svipað
en 42% búast við verri aðstæðum. hos
Slæmar efnahagshorfur
Landspítali og Lýðheilsustöð hafa
gengið til samstarfs um að vinna
gegn tóbaksnotkun sjúklinga
með skipulagðri fræðslu, viðeig-
andi meðferð og með fræðslu
starfsfólks á spítalanum. Mark-
miðið er að þeir sem leita til
Landspítala verði reyklausir á
meðan þeir liggja á spítalanum.
Kennt að hætta
að reykja
Stjórn Seðlabankans tók í gær
ákvörðun um að halda stýrivöxt-
um óbreyttum í 15,5%. Fram
kom er ákvörðunin var kynnt að
verðbólguhorfur hafi versnað frá
spá bankans í apríl, og því þurfi
að halda stýrivöxtum háum leng-
ur en þá var spáð.
„Stýrivextir verða að meðaltali
15,5% fram að fyrsta fjórðungi
2009 er þeir taka smám saman að
lækka. Vaxtalækkunarferlið hefst
því um hálfu ári síðar en gert var
ráð fyrir í apríl. Samkvæmt
spánni nú haldast stýrivextir háir
fram á árið 2010,“ segir í Pen-
ingamálum bankans. hos
Stýrivaxtalækkun síðar en spáð var
Eftir Elías Jón Guðjónsson
elias@24stundir.is
Fyrrverandi og núverandi starfs-
menn Reykjavík Energy Invest
(REI) segja það hafa verið óviðun-
andi ástand að vita ekki hvert
stefna ætti, samkvæmt heimildum
24 stunda. Þeir benda á misvísandi
skilaboð frá borgarfulltrúum Sjálf-
stæðisflokksins og nefna sem dæmi
nýleg ummæli tveggja borgarfull-
trúa Sjálfstæðisflokksins, þeirra
Hönnu Birnu Kristjánsdóttur og
Gísla Marteins Baldurssonar, þess
efnis að REI eigi ekki að sinna verk-
efnum á erlendri grundu á sama
tíma og fulltrúi flokksins í stjórn
REI hafi unnið að slíkum verkefn-
um.
Skýr stefna meirihlutans
Hanna Birna segir stefnu meiri-
hlutans í borgarstjórn vera skýra og
að nú standi yfir sameiginleg vinna
meirihluta og minnihluta að því að
móta stefnu REI til frambúðar.
„Við viljum lágmarka áhættuna af
verkefnum á erlendri grund. Við
viljum að það sé meginverkefni
Orkuveitunnar að skila Reykvík-
ingum góðri þjónustu á góðu verði
og að standa vörð um þá þjónustu
sem Orkuveitan veitir hér á landi.“
Hún segir það nauðsynlegt að unn-
ið sé að þeim verkefnum sem nú
eru í gangi þar til stefnumótun liggi
fyrir síðar í sumar. „Það er skylda
fyrirtækisins að halda þeim gang-
andi þannig að fjárfesting í þeim
glatist ekki.“ Hún segir nauðsyn-
legt að ljúka þessari stefnumótun í
sem bestri sátt og í anda þeirrar
niðurstöðu sem borgarstjórn
komst sameiginlega að. „Stundum
er það þannig að lýðræðið tekur
aðeins lengri tíma en hlutir hjá
hefðbundnum markaðsfyrirtækj-
um. Þannig verður það að vera.“
Búinn að eyðileggja fyrirtækið
Óskar Bergsson borgarfulltrúi
Framsóknarflokksins segist óttast
að með uppsögnum starfsmann-
anna fjögurra sé REI orðið að
engu. „Það er mikil óvissa sem er
þarna í gangi og mér finnst Sjálf-
stæðisflokkurinn vera búinn að
rústa fyrirtækinu. Á sama tíma og
Sjálfstæðismenn eru í bullandi
orkuútrás annars staðar.“
Orkuveitan í
rúst eða í útrás
Hanna Birna Kristjánsdóttir segir stefnu meirihlutans vera skýra
Óskar Bergsson segir Sjálfstæðisflokkinn hafa eyðilagt REI
Óljós stefna Starfs-
menn REI segjast flýja
óljósa stefnu.
➤ Fimm af sex starfsmönnumsögðu upp störfum í upphafi
vikunnar.
➤ Samkvæmt heimildum 24stunda hafa þeir allir fengið
að minnsta kosti eitt atvinnu-
tilboð.
➤ Eina núverandi verkefni REIer í Djíbútí.
STAÐAN Í REI
24stundir/Ómar
STUTT
● Hönnun á Húsavík Elsa
Guðbjörg Borgarsdóttir opn-
aði í gær gallerí og vinnustofu
við Garðarsbraut á Húsavík.
Þar framleiðir hún og selur
eigin hönnun, flíkur og fylgi-
hluti undir nafninu Elsa
Gugga, Local Design. Hún
hefur hannað leðurfatnað fyr-
ir vélhjólamenn á Norður-
landi og fengið góð viðbrögð.
● Mótmæla takmörkun SUS,
Samband ungra Sjálfstæð-
ismanna, sendi í gær frá sér
ályktun þar sem 23 ára ald-
urstakmarki fyrir gesti á
tjaldstæðinu á Akranesi á
írskum dögum er mótmælt.
Leiðrétt
Ritstjórn 24 stunda vill leiðrétta hvaðeina,
sem kann að vera missagt í blaðinu.
Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2.
Kínverjinn Fan Jinchuan
hlaut í vikunni viðurkenn-
ingu fyrir að taka að sér svín,
sem hafði fundist á lífi eftir
að hafa þurft að þrauka í rúst-
um húss á skjálftasvæðunum í
Sichuan-héraði í 36 daga.
Fan varð svo snortinn af
raunasögu svínsins að hann
ákvað að kaupa það og lofaði
að hlúa að því allt til æviloka.
aí
Jarðskjálftinn í Kína
Þrautseigt svín
SKONDIÐ