24 stundir - 04.07.2008, Page 13
24stundir FÖSTUDAGUR 4. JÚLÍ 2008 13
Kalt stríð ríkir á milli borg-arstjórans í Reykjavík ogJórunnar
Frímannsdóttur,
borgarfulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins. Jór-
unn ku vera mjög
ósátt við borg-
arstjórann fyrir að
hafa trekk í trekk staðið í vegi fyr-
ir áformum hennar um að einka-
væða hluta velferðarþjónustunnar
í Reykjavík eins og rekstur Drop-
laugastaða. Sagt er frá því að
borgarstjórinn hafi hringt í Jór-
unni frá Færeyjum til þess að
stöðva áform hennar. Mun Ólaf-
ur F. Magnússon meðal annars
hafa spurt Jórunni hvort hún átt-
aði sig ekki á því hver væri borg-
arstjóri í Reykjavík, segja vitni
sem fylgdust með.
Dómsmálaráðherra svararEvrópuskoti við-skiptaráðherra með föstu
umhverfisskoti á heimasíðu sinni.
„Í kvöldfréttum
hljóðvarps ríkisins
var vitnað í Björg-
vin G. Sigurðsson
um nauðsyn þess,
að sjálfstæðismenn
tækju innan flokks
síns afstöðu til Evrópusambands-
ins, sem væri Björgvini að skapi.“
segir Björn Bjarnason, og bætir
við að Björgvin starfi í ríkisstjórn
með skýra stefnu í Evrópumálum,
sem gildi meðan samstarfið sé við
lýði. Svo segir Björn: „Engum
sjálfstæðismanni dettur í hug að
krefjast þess, að Björgvin ræði um
umhverfismál og stóriðju við
Þórunni Sveinbjarnardóttur,
þótt allir sjái, að þess kunni að
vera þörf.“
Logi Bergmann Eiðsson,Ragnhildur Sigurð-ardóttir, Þorsteinn Hall-
grímsson og Eyjólfur Krist-
jánsson eiga hrós
skilið fyrir að
ferðast hringinn í
kringum landið og
spila gólf til styrktar
MND félaginu.
Vonandi safnast
sem allra mest fé til félagsins.
Það var örlítið vandræðalegt,
og sjálfhverft, þegar Svanhildur
Hólm Valsdóttir, eiginkona Loga
Bergmanns, tók við hann viðtal í
þættinum sem hún ritstýrir; Ís-
landi í dag. Svanhildur Hólm og
Logi Bergmann töluðu saman
eins og ókunnug í nokkurn tíma.
Síðan birtist á skjánum borði þar
sem Logi Bergmann var titlaður
sjónvarpsstjarna.
elias/magnush@24stundir.is
KLIPPT OG SKORIÐ
Hvað erum við að gera í um-
hverfismálum? Hvernig erum við
að standa okkur í samanburði
við önnur lönd heimsins?
Það er svo magnað að þegar
kemur að umræðu um álver og
aðra stóriðju hér á landi þá erum
við að bjarga heiminum. Við eig-
um samkvæmt stóriðjusinnum,
að hugsa um alheiminn og bjarga
heiminum frá þessum verksmiðj-
um sem annars væru reknar
áfram á orku úr kolum eða olíu.
Þetta er líklega í eina sinn sem
við eigum að hugsa út fyrir Ís-
land og bjarga heiminum. Með
því að hleypa hingað til okkar
öllum þeim sem vilja nýta okkar
hreinu orku til álversreksturs og
annarrar stóriðju.
Í ellefta sæti
Í nýjasta tölublaði Newsweek
er fjallað um hin grænu lönd.
Hvernig þjóðir heimsins eru að
standa sig í umhverfismálum og
við lendum þar í ellefta sæti. Ég
held við ættum að taka þetta al-
varlega, því við höfum hingað til
viljað kynna okkur sem hið
hreina land. Hér á að vera hrein-
asta náttúran og hreinasta vatnið
og ósnortin fjöll og dalir. Í þess-
ari úttekt Newsweek er ekkert
verið að tala um hvar við
skemmum landið okkar heldur
er verið að tala um raunverulegar
aðgerðir í umhverfismálum.
Hvar við erum á heimsvísu að
skemma út frá okkur með hugs-
analeysi.
Og við lendum í ellefta sæti, á
eftir Norðurlöndunum, á eftir
Sviss, Kosta Ríka og Kólumbíu, á
eftir Frakklandi og Lettlandi svo
eitthvað sé nefnt. Vissulega eig-
um við að fagna því að við lend-
um ofarlega á listanum, en þetta
er engu að síður aumt fyrir okk-
ur sem erum í kjöraðstæðum.
Við höfum ekki verið með kol
eða olíu sem orkugjafa í tugi ára.
Við höfum hreina orku til að
sækja og ættum auðveldlega að
geta verið í efsta sæti ef því er að
skipta. Við erum einnig svo fá að
það er auðvelt, vilji stjórnvöld
snúast á sveif með umhverfinu,
að koma hér á umhverfisstefnu
sem tekið væri eftir því aðgengi
að fólkinu er mikið. Hvernig
stendur til dæmis á því að dísil-
olían er miklu dýrari hér á landi
en bensínið? Hvers vegna eru al-
menningssamgöngur ekki öflugri
en raun ber vitni. Þarna gætu
stjórnvöld til dæmis gripið inn í
til að stuðla að því að við neyt-
endur yrðum umhverfisvænni.
Rík þjóð
Kínverjar hafa löngum haldið
því fram að þjóðin sé of fátæk til
að geta hugsað um náttúruvæna
hluti. Við getum ekki skýlt okkur
á bakvið slík rök. Hér höfum við
allt til alls og meira en það. Við
búum eins og áður sagði við
kjöraðstæður en svo virðist sem
að á meðan umheimurinn snýst
á sveif með náttúrunni þá förum
við í öfuga átt. Við kjósum að
loka augunum á meðan öll
heimsbyggðin verður umhverfis-
meðvitaðri. Við erum ekkert að
tala um að fara aftur inn í mold-
arkofana heldur hugsa alltaf um
náttúruna þegar við höfum tæki-
færi á. Að þegar við getum valið
sparneytin farartæki eða um-
hverfisvænan lifnaðarhátt þá ger-
um við það.
Setjum okkur mark
Nútíminn krefst þess að við
séum tengd rafmagni og kom-
umst á milli staða en það er ekki
þar með sagt að baráttan sé glöt-
uð og við getum ekki reynt að
spyrna við fótum. Stjórnvöld eiga
að fara þar fremst í flokki og þá
er víst að við hin fylgjum þeim
fast á eftir. Þetta er ekki glatað
tækifæri, við getum náð for-
skotinu að nýju ef við bara vilj-
um. Setjum okkur það markmið
að komast í efsta sæti á næstu tíu
árum. En til þess þurfum við að
koma í veg fyrir olíuhreinsunar-
stöð á fallegasta stað á landinu
og álver á öðrum stöðum.
Höfundur þráir ábyrga
umhverfisstefnu hjá stjórnvöldum.
Mýtan um hið græna land
VIÐHORF aHelga Vala Helgadóttir
Við erum
ekkert að
tala um að
fara aftur inn
í moldarkof-
ana heldur
hugsa alltaf
um náttúruna þegar við
höfum tækifæri á. Að
þegar við getum valið
sparneytin farartæki eða
umhverfisvænan lifn-
aðarhátt þá gerum við
það.
Það er meira
í Mogganum
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1800
í dag
Föstudagur 4. júlí 2008
Húsið hennar Gerðar
undan hrauni eftir 35 ár
» Meira í Morgunblaðinu
Viðkvæm stund
Þeir minna á Ferguson
en koma samt frá S-Kóreu
» Meira í Morgunblaðinu
Dráttarvélaþrá
Veiðimaður sem kann
líka vel á saumavélina
» Meira í Morgunblaðinu
Ótrúlega naskur
Getur verið að General
Motors verði gjaldþrota?
» Meira í Morgunblaðinu
Risi á brauðfótum
Sálgæsla presta snýst
oft um fjárhagsvanda fólks
» Meira í Morgunblaðinu
Krepputímar
Komdu til okkar,
taktu með
eða borðaðu
á staðnum
Alltaf góð
ur!
Kjúklingastaðurinn
Suðurveri
Nú er
orðin
n stór
LÍFRÆNIR SAFAR
Fæst í heilsubúðum og helstu
matvöruverslunum landsins