24 stundir - 04.07.2008, Qupperneq 16
16 FÖSTUDAGUR 4. JÚLÍ 2008 24stundir
ÍÞRÓTTIR
ithrottir@24stundir.is a
Auðvitað er drengurinn númer eitt, tvö
og þrjú og verður það alltaf. En á meðan
það gengur svona vel með hann þá ætla ég
að spila golf.
Eftir Skúla Unnar Sveinsson
skuli@24stundir.is
Veikindi drengsins urðu til þess að
Ólöf María snerti varla golfkylfur
í langan tíma en er nú komin á
fullt á nýjan leik, sigraði á móti í
Kaupþingsmótaröðinni hér heima
á dögunum og verður með á
næstu tveimur mótum á Evrópu-
mótaröðinni, á Írlandi í næstu
viku og Ítalíu vikunni þar á eftir.
„Það kom strax í ljós fyrstu
nóttina að það væri ekki allt í lagi
með hann. Barnalæknarnir fundu
samt ekki hvað það var en daginn
eftir kom í ljós að það var eitthvað
alvarlegra en þeir höfðu talið og
hann var fluttur á gjörgæsludeild.
Þar fannst heldur ekki neitt og
það endaði með að hann var sett-
ur í aðgerð og þá kom í ljós hvað
var að,“ segir Ólöf María þegar
hún rifjar upp þessa erfiðu lífs-
reynslu.
„Þetta var gríðarleg lífsreynsla.
Fyrir það fyrsta þá er það lífs-
reynsla að eignast barn og ég held
það sé ekkert hræðilegra en að
horfa upp á veikt barn. Ég þekki
fólk sem átti veik börn og missti
barnið sitt og maður kenndi í
brjóst um það, en það veit held ég
enginn hvernig þetta er nema
lenda í því sjálfur og þá finnst
manni þetta hræðilegra en allt
hræðilegt.
Hvernig fæðast heilbrigð
börn?
Ég held að fólk sé ekki nógu
duglegt að þakka fyrir að eiga
heilbrigð börn. Svo þegar maður
lendir í þessu og sér öll hin veiku
börnin á sjúkrahúsinu þá hugsar
maður með sér: „Hvernig fæðast
heilbrigð börn. Miðað við allt sem
getur komið fyrir þegar barn fæð-
ist, alla þá sjúkdóma og annað
sem getur herjað á fólk þá er það í
raun kraftaverk að stærstur hluti
barna skuli fæðast heilbrigð.
Það sem var að drengnum var
að það var snúið upp á smáþarm-
ana þannig að blóðflæðið stöðv-
aðist og það kom drep í þá og nið-
urstaðan var að það þurfti að taka
90% af smáþörmunum. Það er
mjög sjaldgæft að það þurfi að
taka svona mikið.
Þetta var rosalega erfitt enda
var hann á sjúkrahúsinu í mánuð
og síðan var hann með næringu í
æð við hjartað og með slöngu
beint í maga, svokallaða sondu, í
24 tíma á sólarhring. Núna er
hann laus við næringuna sem lifr-
in braut niður en hann er enn þá
með sonduna, en þarf bara að fá
næringu þannig í tíu tíma á sólar-
hring og það er gert á nóttunni,“
segir Ólöf María sem er stödd hér
á landi þessa dagana en heldur á
mánudaginn til Írlands til að taka
þátt í móti á evrópsku mótaröð-
inni.
Gústaf Andri dafnar vel og er
Ólöf María bjartsýn. „Hann verð-
ur aldrei fullkomlega heilbrigður,
en læknarnir telja að hann eigi
ekki að þurfa að fara í neinar að-
gerðir, enga líffæraflutninga eða
neitt. Við þurfum samt að fara
varlega og reyna að koma í veg
fyrir að hann fái umgangspestir.
Það þarf að vanda fæðuvalið því
hann má ekki fá of mikinn sykur,
sama hvort það er ávaxtasykur eða
strásykur. Svo verður tíminn að
leiða í ljós hvernig þetta þróast allt
saman,“ segir Ólöf María.
Hún segir að fyrstu vikurnar
eftir fæðinguna hafi verið erfiðar
enda þurfti að vaka yfir drengnum
allan sólarhringinn. „Við
ákváðum að leyfa engum að koma
nærri honum þarna fyrst og ég
sagði meira að segja upp heima-
hjúkruninni og lærði að gera þetta
allt sjálf. Maðurinn minn er í
læknisnámi og vinnur mikið
þannig að þetta lenti mikið á mér
og mér fannst því bara rétt að gera
þetta. Við vildum alls ekki að
hann fengi sýkingu og mér fannst
því best að gera þetta sjálf – mað-
ur er að hugsa um sitt eigið barn
og ég lærði þetta bara, en það varð
að sótthreinsa allt sem kom nærri
honum,“ segir Ólöf María.
Hún hugsaði ekki mikið um
golf á þessum tíma. „Nei, ég gerði
það ekki, en ég fór samt tvisvar
eða þrisvar út á æfingasvæði, bara
til að halda geðheilsunni. Annars
voru engar æfingar.
Gubbaði megnið
af meðgöngunni
Meðgangan var líka nokkuð
skrautleg hjá mér því ég kastaði
upp í 35 vikur. Ég var bara í sóf-
anum fyrst og ég varð að hætta í
golfi þegar ég var komin átta vikur
á leið. En svo lagaðist þetta, þá
kastaði ég bara upp tvisvar til
þrisvar í viku. Ég reyndi að halda
mér við eins og ég gat,“ segir Ólöf
María og þvertekur fyrir að hún
hafi verið ælandi úti á golfvelli.
„Reyndar lá við að ég ældi þegar
ég var að spila hérna í sveita-
keppninni, en þá var ég komin
einhverjar sex til átta vikur á leið.
Ég veit ekki hvernig ég komst í
gegnum þá keppni,“ segir hún og
skellihlær við tilhugsunina. „Með-
gangan gekk samt mjög vel þrátt
fyrir að ég væri alltaf gubbandi.
Þannig að þegar maður fór á
sjúkrahúsið til að eiga barnið þá
hugsaði maður með sér að það
versta sem gæti komið fyrir væri
að fara í keisaraskurð. Svo eftir á
þá skilur maður ekki hvernig í
ósköpunum maður gat hugsað
þannig að það væri það hræðileg-
asta sem gæti gerst,“ segir Ólöf
María.
Í vinnuna heimshorna á milli
Það þykir sjálfsagt ekkert til-
tökumál að íþróttamenn ferðist
heimsálfanna á milli til að keppa,
en það hlýtur að teljast nokkuð
óvenjulegt að taka með sér korna-
barn í slíkar ferðir og mömmu
eða tengdamömmu eins og í til-
felli Ólafar Maríu.
Hún hafði um tíma gefið upp
alla von um að leika aftur á evr-
ópsku mótaröðinni, en hún varð
fyrst Íslendinga til að tryggja sér
óskorðaðan rétt til að leika á evr-
ópsku mótaröðinni. Það gerði
hún árið 2004 og lék þá á móta-
röðinni. Hún er enn með réttinn
til að leika þar og ætlar sér að
halda honum, en hin miklu veik-
indi sonarins og mikill kostnaður
við ferðalög og keppni gera henni
erfitt fyrir.
„Auðvitað er drengurinn núm-
er eitt, tvö og þrjú og verður það
alltaf. En á meðan það gengur
svona vel með hann þá ætla ég að
spila golf og ég ætla að halda kort-
inu á mótaröðinni, er alveg ákveð-
in í því. Tengdó er hætt að vinna
og getur passað fyrir mig á meðan
ég er að spila og svo er mamma í
sumarfríi þannig að hún getur líka
komið með mér á mótinu núna.
Þetta er því alls ekkert púsluspil
að koma þessu saman,“ segir Ólöf
María.
Gríðarleg lífsreynsla
Fyrsta barn Ólafar Maríu var mikið veikt og hún snerti varla golfkylfu í heilt ár Sagði heimahjúkruninni
upp og annaðist son sinn sjálf Er nú komin á fullt á nýjan leik á Evrópumótaröð kvenna í golfi
Lífið er ekki alltaf dans á
rósum og það hefur Ólöf
María Jónsdóttir, at-
vinnukylfingur úr Keili í
Hafnarfirði, fengið að
reyna. Hún og Randal
Aschenbeck eiginmaður
hennar, eignuðust sitt
fyrsta barn í mars í fyrra,
Gústaf Andra, sem vart
var hugað líf fyrstu vik-
urnar, en er nú allur að
braggast.
➤ Fjórfaldur Íslandsmeistari íhöggleik er staðráðin í að
halda keppnisrétti sínum á
Evrópumótaröðinni
➤ Verður að komast í eitt af 80efstu sætum peningalistans
til að halda kortinu
AFREKSKYLFINGUR
Hún býr í Texas í
Bandaríkjunum og
segir það hafa bæði
kosti og galla. „Það er
ódýrara að búa þar en
hér og eins er aðstaðan
þar frábær. Ég þarf að
labba einn kílómetra
til að komast á æf-
ingasvæðið og það er
hægt að æfa allt árið.
Æfingaaðstaðan er
mjög góð og ég fer oft
með Gústaf Andra í
kerrunni og spila níu
holur. Ef menn ætla að
ná árangri í golfi verða
menn að búa erlendis
– það þýðir ekki fyrir
neinn að reyna að
segja mér eitthvað
annað. Ég kann ekki
við mig við Miðjarð-
arhafið og ég myndi
aldrei geta búið þar.
Maðurinn minn er í
framhaldsnámi í
Bandaríkjunum þannig
að það er ekkert á dag-
skrá að flytja þaðan á
næstunni,“ segir Ólöf
María.
Hægt að
æfa allt árið
Ólöf María á eftir að velja þau mót sem hún ætlar
á síðari hluta sumars. „Eins og staðan er núna hef
ég ekki pening til að klára árið, en ég er að vinna í
því. Hvert mót kostar mig um 300 þúsund með
öllu og komist maður í gegn um niðurskurðinn
fær maður að lágmarki um 80 þúsund krónur og
Hvert mót kostar 300.000 kr.
það dekkar varla hótelið. Til að halda kortinu
á mótaröðinni þarf ég að vera á meðal 80 efstu
á peningalistanum og þar fyrir aftan fær mað-
ur takmarkaðan þátttökurétt, en ég ætla að ná
fullum réttindum,“ segir Ólöf María og von-
ast til að mæta velvilja fyrirtækja hér heima.