24 stundir - 04.07.2008, Page 20

24 stundir - 04.07.2008, Page 20
20 FÖSTUDAGUR 4. JÚLÍ 2008 24stundir Múffur eru alltaf góðar og auð- velt að búa þær til. Tilvalið er að skella í nokkur lítil form fyrir af- mælisveislu eða þegar von er á gestum. Í þessari uppskrift þarf 150 g af sykri, eina teskeið af van- illuþykkni, eitt egg, 125 g af bræddu smjöri, 175 ml af grískri jógúrt eða venjulegri, hreinni jóg- úrt, 200 g af hveiti, eina teskeið af lyftidufti, 100 g malaðar möndlur og loks 250 g af steinalausum kirsuberjum sem skorin eru í tvennt. Aðferð Byrjið á því að hita ofninn í 180 gráður og takið fram 12 papp- írsmúffumót eða notið silíkonmót. Blandið saman í hrærivél sykr- inum, vanillunni, egginu, smjör- inu og jógúrtinni. Sigtið hveiti í skál og setjið út í lyftiduftið og möndlurnar og skellið síðan sam- an við blönduna og hrærið rösk- lega saman setið loks kirsuberin út í, hrærið saman við með sleif. Skiptið deiginu á milli mótanna og dreifið dálitlum sykri á topp- inn áður en kökurnar eru settar í ofninn og bakaðar í 20 mínútur, eða þar til þær eru fallega gull- brúnar. maria@24stundir.is Kirsuberja- og möndlumúffur Gott og einfalt Hafrasmákökur eru alltaf góðar sama hvort er með mjólk, te, kaffi eða köldum kaffidrykkjum á sumr- in. Púðursykur og hafrar Í uppskriftina þarf tvo bolla af haframjöli, hálfan bolla af púð- ursykri, eitt egg, fjórar matskeiðar af ólífuolíu og þrjár matskeiðar af hlynsírópi. Blandið saman höfr- unum og sykrinum í skál þar til engir kekkir eru í sykrinum lengur. Bætið út í egginu, olíunni og sír- ópinu og látið blönduna draga í sig í korter. Setjið síðan blönduna með skeið á bökunarpappír en gott get- ur verið að smyrja hann með þunnu lagi af smjöri fyrst. Bakið kökurnar síðan í 10 til 12 mínútur eða þar til þær eru orðnar fallega gullbrúnar. Setjið síðan á fallegan og sumarlegan disk og njótið! maria@24stundir.is Fljótlegt og einfalt með kaffinu Volgar hafrasmákökur Nefúðinn frá Weleda er með náttúrulegu Aloa vera sem hef- ur róandi og sótthreinsandi áhrif. Nefúðinn inniheldur saltupp- lausn sem losar stífluð nef svo öndunin verður eðlileg, hann er góður við kvefi Reynist mjög góður við frjókornaofnæmi. Nefúðinn inniheldur ekki auka- og rotvarnarefni. Weleda er lyfjafyrirtæki sem gerir klíniskar rannsóknir á öll- um sýnum vörum og starfar í samstarfi við lækna of Lyfja- fræðinga. Fæst í apótekum og heilsubúðum um allt land. www.weleda.is nefúði með Aloa vera, góður við frjókornaofnæmi Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur hilduredda@24stundir.is Kaffiunnendur gera sjaldnast rót- tækar breytingar á neysluvenjum sínum á sumrin þegar heitt er í veðri. En kaffi þarf ekki alltaf að vera rjúkandi heitt heldur er hægt að útbúa dísæta og svalandi kaffi- drykki til þess að svala sér í sum- arhita. Harpa Hrund Pálsdóttir, kaffibarþjónn í Kaffitári við Höfðatorg, segir kalda kaffidrykki vera vinsæla á sumrin. „Heitir, rammir kaffidrykkir eru sjaldnast mjög bragðgóðir þegar þeir hafa kólnað enda þarf að bragðbæta kalt kaffi með sætri sósu eða sírópi. Nýjasti drykkurinn hjá okkur heit- ir Svala senjórítan og er mjög vin- sæll. Hann er einmitt dísætur og algjört gúmmelaði, með súkku- laði- eða karamellusírópi og þeytt- um rjóma,“ segir hún og bætir því við að köldu drykkirnir verði að vera ískaldir. „Hvað kaffi varðar er enginn millivegur. Ískaldir kaffi- drykkir verða heldur ekki góðir þegar þeir volgna. Þess vegna not- um við vel af klaka.“ Fæ ekki leið á kaffi Harpa Hrund hefur starfað sem kaffibarþjónn í fullu starfi und- anfarin tvö og hálft ár og líkar starfið vel. Hún tók þátt í Íslandsmeist- aramóti kaffibarþjóna í lok apríl og lenti í öðru sæti ásamt því sem hún fékk viðurkenningu fyrir besta cappuccino-drykkinn, besta espresso-drykkinn og besta drykk- inn með frjálsri aðferð. Og hún segist aldrei fá nóg af kaffi. „Maður er alltaf að prófa nýjar tegundir enda er kaffiheimurinn afar stór. Það er endalaust hægt að læra meira inn á kaffi, ekki síst þegar maður starfar í þessum geira og tekur þátt í keppnum,“ segir hún. En þó svo að kalt kaffi sé ef til vill framandi í augum margra gegnir öðru máli um te. „Við erum líka með tedrykki, bæði heita og kalda, og þeir köldu eru sívinsælir á sumrin. Líkt og með kaffið eru þeir gjarnan bragðbættir með sír- ópi og sætum sósum og kældir með klökum.“ Álagstoppar Aðspurð segir hún starfið líflegt og annasamt. „Það eru náttúrulega alltaf álagspunktar og mikill straumur af fólki á morgnana, í hádeginu og svo eftir vinnu og margir eru hér fastakúnnar. Reyndar breytist mynstrið svolítið á sumrin þegar heitt er í veðri, þá koma fleiri og taka drykkina með sér út. En nú er verið að smíða sól- pall hérna á Höfðatorginu og hann verður að öllum líkindum tekinn í notkun strax í sumar. Þá er hægt að sitja úti í góða veðrinu með drykkina,“ segir Harpa Hrund. Tvær uppskriftir Einn vinsælasti drykkurinn á Kaffitári heitir Svala senjórítan og er dísætur kaffidrykkur. Svala senjórítan Góð kreista af Torani-sírópi með súkkulaði eða karamellu- bragði. Tvöfaldur espressó eða eitthvað annað gott, sterkt uppáhellt kaffi. Hrist með klökum og svo hellt, með klökunum, í bolla. Að lokum er þeyttum rjóma bætt ofan á og svo karamellu- eða súkkulaðisírópi hellt yfir, með sama bragði og notað er í drykkn- um sjálfum. Kalt ávaxtate Ávaxtate bragðast yfirleitt mjög vel ískalt og ekki er verra að bæta smá sírópi út í það. Jarðarberja- og kívíte eða annað ávaxtate að eigin vali, kælt með klökum í um 3 til 4 mínútur. Súkkulaðisírópi hellt út í. Magn- ið af því fer eftir því hversu sætur drykkurinn á að vera. Teið og sírópið er hrist vel með klökum og svo hellt í glært glas eða bolla. Lime- eða sítrónusneiðar til að bragðbæta og skreyta og svo er teið drukkið með röri. Svalandi sumardrykkir á sólríkum dögum Kaffið ekki síðra kalt og dísætt með rjóma Kaldir kaffidrykkir geta verið mikið gúmmelaði og svalandi á heitum sumardögum. Harpa Hrund Pálsdóttir, kaffi- barþjónn á Kaffitári, gef- ur uppskriftir að tveimur dísætum og bragðgóðum sumardrykkjum, einum með kaffi og hinum með te. Fæ aldrei leið á kaffi Harpa Hrund Pálsdóttir kaffibarþjónn. Ískalt ávaxtateSvala senjórítan

x

24 stundir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.