24 stundir - 04.07.2008, Síða 23
24stundir FÖSTUDAGUR 4. JÚLÍ 2008 23
Þeim sem sæi börn sitja í heitum
potti frá fyrirtækinu Dutchtub
gæti vel dottið í hug atriði úr bíó-
mynd þar sem mannætur hafa
fangað óboðna gesti og hugsa sér
gott til glóðarinnar. Hugmyndin á
bak við pottinn er þó örlítið
huggulegri og kemur frá Floris
Schoonderbeek en hann vill með
hönnun sinni hvetja fólk til að
njóta náttúrunnar á almennings-
svæðum.
Dutchtub er framleiddur úr ryð-
fríu stáli og svipar til báts að efna-
samsetningu svo ekkert er því til
fyrirstöðu að skilja pott eftir úti,
því þeir eiga að geta enst allt að 50
árum. Vatnið í pottinum er hitað
upp með eldiviði sem hlaðið er í
þar til gerða grind og er bakki und-
ir henni fyrir öskuna. Hægt er að fá
einangraða yfirbreiðslu á pottinn
til að halda hitanum betur á
meðan vatnið hitnar eða ef láta á
vatnið standa í pottinum yfir nótt.
maria@24stundir.is
Eldstæðið Líka
til að grilla.
Börnin verða ekki höfð í kvöldmatinn
Bara notalegur
heitur pottur
Þessi skemmtilega taska kallast
BOXinBAG eða belja í brók er
sænsk hönnun. Hún er ætluð und-
ir rauðvíns- eða hvítvínsbeljur til
að vínið haldist í réttu hitastigi.
Töskurnar eru einangraðar með
einangrandi efni þannig að rauð-
vínsbeljur haldast við stofuhita og
hvítvínsbeljur haldast kaldar en
hægt er að setja frystikubb í
töskuna. Einnig er hægt að loka
gatinu sem stúturinn fer í gegnum
og þá er taskan orðin flott undir
vatnið, gosið eða bjórinn. Taskan
getur þannig nýst á ótal vegu og er
tilvalin í garðinn á heitum degi eða
í útileguna. Hún er til í nokkrum
litum og meðfylgjandi er axl-
arband sem auðveldar flutning í
næsta garð eða á brennuna. Tösk-
urnar fást hjá Yd bolighus.
maria@24stundir.is
Heldur drykkjunum í réttu hitastigi
Belja í brók fyrir sumarið
KYNNING
Soladey jónatannburstinn vinnur á
byltingarkenndan hátt en ljósvirk
titan málmstöng er innan í skafti
og haus burstans. Þegar ljós fellur á
stöngina verða neikvæðar jónir
virkar en þær gera munninn bas-
ískan og bakteríulausan auk þess
að tennurnar verða hvítari. Tann-
krem þarf ekki að nota á burstann
þar sem vatn (munnvatn) gerir
jónaferlið virkt. Soladey er japönsk
uppfinning og seljast um tvær
milljónir bursta á ári í Japan.
Tannburstann fann upp og þróaði
Dr. Yoshinori Nakagawa en miklar
rannsóknir hafa verið gerðar á
virkni jóna til
þess að eyða bakteríum og örver-
um. Jónir eru taldar mjög áhrifa-
miklar til þess að eyða bakteríum
sem valda óæskilegri munnsýru og
bæta þannig tannheilsu fólks.
Stöðva bakteríumyndun
Klínískar rannsóknir bæði í Jap-
an og Kanada hafa sýnt mjög mikla
virkni títan málms gegn Strepto-
coccus mutans bakteríum sem
finnast í munni og valda
tannskemmdum.Vísindalegar
rannsóknir sýna að Soladey getur
stöðvað bakteríumyndun í
munni og að blæðingar frá gómi
hafa stórlega minnkað eða horfið.
Ný kynslóð tannbursta
Patrick Holford, virtur breskur
náttúrulæknir, telur að Soladey
tannburstarnir séu bylting-
arkennd nýjung í tannhirðu og af
nýrri kynslóð tannbursta sem séu
líklegir til að leysa aðra tannbursta
af hólmi. Hann bendir á að ýmsar
rannsóknir bendi til þess að tengsl
séu á milli slæmrar tannhirðu og
hjarta- og æðasjúkdóma. Aðeins er
skipt um haus á burstanum á
nokkra mánaða fresti en skaft
tannburstans á að endast svo árum
skiptir. Hann fæst hér á landi í öll-
um heilsubúðum.
Byltingarkennd nýjung í tannhirðu
Notadrjúgur
Aðeins þarf að
skipta um haus á
nokkra mánaða
fresti en skaftið á
að endast svo ár-
um skiptir.
Þarf ekki tannkrem
KYNNING
Upphaf bresku verslunarinnar Laura Ashley má
rekja til þess þegar Laura og Bernard Ashley hófu
að prenta mynstur á efni heima á eldhúsborðinu
sínu í London árið 1953. Síðan þá hefur mikið vatn
runnið til sjávar en Laura Ashley-verslanir eru nú
reknar um allan heim og hefur slík verslun verið
starfrækt á Íslandi um áratugaskeið.
Breið vörulína
Ný og stærri verslun var opnuð í Faxafeni 14 í
vor en þar er nú seldur fatnaður, húsgögn og heim-
ilisvörur. Hjá Lauru Ashley fást meðal annars
skemmtilegar vörur fyrir barnaherbergi, t.d. fallegt
veggfóður, rúmteppi, rúmföt, dótakassar og hús-
gögn í barnaherbergið. „Nú í sumar hafa kyndlar í
lokuðum kerjum til að hafa úti verið afar vinsælir.
Ljóskerið á kyndlinum er lokað og því logar í því
þó það sé hvasst en kyndlunum má stinga niður í
blómabeð eða blómaker,“ segir Guðrún Helga
Theodórsdóttir hjá Lauru Ashley.
Léttur fatnaður úr góðu efni
Nýjung í sumar er sundfatalína með bikiníum,
sundbolum og tankiníum sem Guðrún Helga segir
að hafi hlotið góð viðbrögð. Þá eru léttar, hvítar
buxur úr hör sem og stuttermabolir og sumarkjólar
áberandi í sumarlínunni. „Fatnaðurinn er úr vönd-
uðum efnum, silki, bómull og kasmír og í góðum
stærðum frá 8 til 18, hann er þægilegur og vel
hannaður og hentar konum á öllum aldri. Rúmföt-
in eru líka mjög vinsæl en það kemur alltaf sum-
arlína í þeim og þau eru þá frekar í hvítu og stíluð
upp á sumarið en hafa þó ætíð þetta rómantíska
útlit sem einkennir rúmfötin frá Lauru Ashley,“
segir Guðrún Helga.
Úrval sumarvara hjá Lauru Ashley
Kyndlar, rúmföt og léttur fatnaður
Það gerir kraftaverk fyrir heildar-
útlit garðsins að hafa grasið á blett-
inum nýslegið. Sláðu grasið í garð-
inum að minnsta kosti á tveggja
vikna fresti eða sex sinnum yfir
sumarið. Ef þú hefur ekki tíma eða
einfaldlega nennir ekki sjálfur að
slá grasið er fjöldinn allur af fyr-
irtækjum úti í bæ sem bjóða upp á
slíka þjónustu. Fyrir utan að lífga
upp á garðinn jafnast ekkert á við
lyktina af nýslegnu grasi.
Sláðu garðinn
reglulega
Það hefur verið einstaklega veð-
ursælt í höfuðborginni það sem af
er sumri. Við þær aðstæður mynd-
ast oft mjög skemmtileg stemning
á Austurvelli og er engin breyting á
því í ár. Algengt er að vinahópar
hittist þar að vinnudegi loknum og
nái síðustu sólargeislunum áður en
sólin hverfur á bak við húsin í
kring. Það er tilvalið fyrir þá sem
vinna inni að koma við á Aust-
urvelli eftir vinnu.
Skemmtileg
stemning
Lífsstíll nútímamannsins verður sí-
fellt hraðari með hverjum deg-
inum. Það hefur gert það að verk-
um að reynist erfiðara fyrir marga
að njóta lesturs góðrar bókar en
áður fyrr. Það er tilvalið að nota
sumarfríið í að lesa allar bækurnar
sem þig hefur langað til að lesa en
ekki haft tíma til. Það finnst mörg-
um leiðinlegt að flatmaga í sólbaði
en góð bók gæti breytt því svo um
munar.
Nýttu sólbaðið
í lestur bóka