24 stundir - 04.07.2008, Blaðsíða 28
Eftir Björn Braga Arnarsson
bjornbragi@24stundir.is
„Það eru orðin ansi mörg ár síðan
við kepptum í Stykkishólmi en þar
eru einhverjar bestu rallleiðir á
landinu. Leiðirnar eru því nýjar
fyrir öllum og ríkir mikil eftirvænt-
ing,“ segir Borgar Ólafsson rallök-
umaður sem verður í eldlínunni á
morgun ásamt 14 öðrum áhöfn-
um.
Í miklum vexti
Borgar segir um helming þeirra
sem taka þátt í Íslandsmótinu gera
það af fullri alvöru, en aðra vera í
þessu meira til þess að leika sér.
Hann segir áhugann fyrir greininni
sífellt vera að aukast. „Þetta hefur
ekki verið mjög áberandi undan-
farin ár vegna þess að það eru fáir
menn í stjórninni sem hafa
kannski ekki haft tök á því að
kynna þetta mikið. En það er alltaf
að aukast og eins hafa fleiri menn
verið að koma inn í þetta. Þeir sem
eru að keppa hafa líka verið dug-
legir að koma sér á framfæri, bæði
á vefnum og með öðrum hætti.“
Borgar ekur ásamt Jóni Bjarna
Hrólfssyni og segir hann að mikið
traust verði að ríkja á milli öku-
manna og samstarfið gott eigi góð-
ur árangur að nást. „Þetta byggist á
gríðarlegu trausti. Eftir því sem
traust milli manna er meira því lík-
legri eru þeir til að ná betri tíma.
Menn geta verið að koma á 180
kílómetra hraða af blindhæð og þá
verða þeir að geta treyst því sem
aðstoðarökumaðurinn segir,“ segir
Borgar.
Öryggið í öndvegi
Þvert á það sem einhverjir halda
líklega segir Borgar að rallið sé alls
ekki hættuleg íþrótt en ströng skil-
yrði eru sett varðandi öryggisbún-
að. „Það er veltibúr í öllum bílum,
menn eru með hjálma, flestir keyra
með hálskraga eða hálsbúnað og þá
eru menn í sérstökum eldvarnar-
göllum. Stólarnir eru líka sérút-
búnir, eru í raun eins og stórir
barnabílstólar og öryggisbeltin sex
punkta. Auk þess er bíllinn allur
styrktur þannig að slys eru afar fá-
tíð,“ segir Borgar og kveðst aðeins
vita til þess að eitt alvarlegt slys hafi
átt sér stað í rallakstri á Íslandi.
Í Reykjanesrallinu
Borgar og Jón Bjarni
þeysa áfram. Bíll
þeirra er af gerðinni
Mitsubishi EVO VII.
Íslandsmótið í rallakstri heldur áfram í Stykkishólmi á morgun
Einhverjar bestu
rallleiðir landsins
Þriðja keppnin af sex á
Íslandsmótinu í ralli fer
fram í Stykkishólmi á
morgun. Rallið hefur ver-
ið í góðri sókn á Íslandi
undanfarin ár og laðar
að sér sífellt fleiri áhorf-
endur.
1. BÍKR 16.-17. maí
2. Reykjanes 7. júní
3. Stykkishólmur 5. júlí
4. Skagafjörður 26. júlí
5. Rallý Reykjavík 21.-23. ágúst
6. BÍKR 27. september
KEPPNISDAGATAL 2008
Aksturskappar Borgar ásamt Jóni
Bjarna Hrólfssyni.
Mynd/jak
28 FÖSTUDAGUR 4. JÚLÍ 2008 24stundir
Ertu að flytja, láttu fagmenn
sjá um verkið fyrir þig
Örugg og trygg
þjónusta
Þeir sem vilja eiga hávaðasaman
bíl ættu að velja sér ökutæki í
rauðum lit, ef marka má rann-
sókn sem nýverið var gerð í
Frakklandi. Hópi fólks var falið
það verkefni að hlusta á hljóðið í
vélum bifreiða á meðan sýndar
voru myndir af bifreiðum í ólík-
um litum; rauðum, bláum, ljós-
grænum og dökkgrænum. Hljóð-
in voru síðan leikin á
mismunandi hljóðstyrk í gegnum
rannsóknina. Niðurstöðurnar
sýndu að fólki þótti að jafnaði
mesti hávaðinn koma úr rauða
bílnum, jafnvel þótt það hafi alls
ekki verið raunin. Viðlíka nið-
urstöður fengust úr annarri
rannsókn þar sem kannað var
hvers kyns lestar fólki þætti há-
vaðasamastar. Þar urðu rauðu
lestarnar einnig efstar á blaði.
Rauðir hávaðasamastir
Tvítugur piltur var stöðvaður af lögreglu í
Newcastle á Englandi fyrir að aka á 170 kíló-
metra hraða, þar sem hámarkshraðinn er 50.
Á meðal þeirra sem urðu á vegi ökuníðings-
ins voru verkamenn sem unnu að brúargerð
og sögðu þeir að sáralitlu hefði munað að
kauði hefði ekið inn í hóp þeirra. Ökumað-
urinn náðist og var skikkaður til að sinna 120
klukkustunda samfélagsþjónustu, auk þess
sem hann missir bílprófið í tvo mánuði.
120 km yfir hámarkshraða
LÍFSSTÍLL
lifsstill@24stundir.is a
Menn geta verið að koma á 180
kílómetra hraða af blindhæð og
þá verða þeir að geta treyst því sem að-
stoðarökumaðurinn segir. bílar