24 stundir - 06.09.2008, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 2008 24stundir
Eftir Frey Rögnvaldsson
freyr@24stundir.is
Sýslumaðurinn á Eskifirði hefur
hafið rannsókn á starfsemi veit-
ingahússins Café Margrét á Breið-
dalsvík. Sýslumannsembættinu á
Seyðisfirði hefur jafnframt borist
kæra á hendur Horst Müller þar
sem farið er fram á að rannsakað
verði húsbrot á skrifstofu AFLs
starfsgreinafélags á Egilsstöðum og
líkamsárás á framkvæmdastjóra fé-
lagsins.
Enginn skráður starfsmaður
Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir,
formaður AFLs, segir að verkalýðs-
félagið hafi gert athugasemdir við
starfsemi veitingahússins síðustu
fjögur eða fimm sumur. „Ég hef
haft samband við skattayfirvöld og
sýslumann oftar en einu sinni og
vakið athygli á að starfsemin á Café
Margréti sé með óeðlilegum hætti.
Ég hef nú eftir síðustu atburði sent
inn formlegt erindi til sýslumanns-
ins á Eskifirði þar sem ég fer fram á
að rannsakað verði hvort farið sé
að lögum sem almennt gilda um
starfsemi sem þessa. Ég vænti þess
að eitthvað verði gert. Ég hef fengið
staðfest hjá lífeyrissjóðnum Stapa
að þetta fyrirtæki hefur aldrei skil-
að iðgjöldum þangað inn. Ég hef
sömuleiðis fengið staðfestingu frá
Vinnumálastofnun á að enginn
starfsmaður hefur verið skráður
hjá fyrirtækinu í sumar þrátt fyrir
að við vitum mætavel að þar hafa
verið starfandi þýskar stúlkur. Mér
finnst það segja allt sem segja þarf
um þessa starfsemi.“
Sýslumaðurinn á Eskifirði hefur hafið lögreglurannsókn á starfsemi veitingahússins Café Margrét á Breiðdalsvík
Hafa aldrei skilað iðgjöldum til lífeyrissjóðs
➤ AFL hefur áður sent erindi tilyfirvalda vegna starfsemi á
Café Margréti.
➤ Lítið hefur þó verið aðhafst ímálefnum veitingahússins og
gagnrýnir Hjördís seinagang-
inn.
AÐGERÐALEYSI
Formaðurinn Hjördís
Þóra Sigurþórsdóttir,
formaður AFLs starfs-
greinafélags, vill að-
gerðir af hálfu yfirvalda
vegna Café Margrétar.
Eftir Björgu Evu Erlendsdóttur
beva@24stundir.is
Útlendingastofnun hefur úrskurð-
að að Mark Cumara, 23 ára Þor-
lákshafnarbúi, þurfi að vera farinn
af landi brott um miðjan septem-
ber. Móðir hans og uppeldisfaðir
eru bæði íslenskir ríkisborgarar og
hafa búið á Íslandi síðasta áratug.
Systir hans, amma hans og afi á Ís-
landi eru líka íslenskir ríkisborg-
arar.
Skiljum þetta ekki
Mark er flakari hjá Frostfiski, og
þar vinnur öll fjölskyldan. „Hann
er duglegur, vinnur vel, mætir alltaf
á réttum tíma og borgar sína skatta
og sín lán. Nú á bara að senda hann
út,“ segir Alexander Aksel Andr-
ésson, pabbi Marks.
„Við þekktum ekki reglurnar og
vorum ekki vöruð við því að allt í einu yrði hann ólöglegur heima hjá
sér.“ Alexander skilur ekki hvers-
vegna vegna fjölskyldan fær ekki
frest. „Útlendingastofnun segir
nei.“ Hann trúir því ekki að vísa
eigi syninum úr landi, frá foreldr-
um sínum, heimili og vinnustað,
þar sem allt hefur verið í góðu lagi
árum saman. „Hann á bara eina
gamla ömmu á Filippseyjum,
hvernig á hann að lifa þar? Mamma
hans fékk ríkisborgararétt 2006 en
hann ekki, en okkur datt samt ekki
í hug að hann ætti bara að fara frá
landinu. Ofan á önnur vandræði er
nú verið að útvega Mark nýtt vega-
bréf með mikilli fyrirhöfn. Sú
vinna fer í gegnum Noreg, því Fil-
ippseyjar eru ekki með sendiráð
hér á landi. Við höfum hvorki flug-
miða né vegabréf ennþá og vildum
helst fá frest og hjálp við að gera
Mark löglegan í landinu, því hann
er ekkert minni Íslendingur en
við,“ segir Alexander. Útlendinga-
stofnun segir foreldra bera ábyrgð
á því að börn hafi dvalarleyfi þar til
þau eru lögráða og eftir það beri
þau ábyrgðina sjálf. Stofnunin geti
ekki tekið það að sér. Lög kveði á
um að útlendingur í ólögmætri
dvöl fari úr landi. Mál Marks er
ekki í brottvísunarferli, en engu að
síður er honum gert að hverfa úr
landi fyrir 16. sept. Hann bað um
lengri frest en fékk ekki. Sækja þarf
skriflega um frest og tilgreina
ástæður.
Kom 17 ára – sendur
úr landi 23 ára
Vísað úr landi því leyfi vantar Íslendingar þurfa að senda soninn til gamallar ömmu á
Filippseyjum Hann hefur búið hjá foreldrum sínum í Þorlákshöfn í 5 ár
Mark Með foreldrum sínum og
systursyni í Þorlákshöfn
➤ Fjölskylda piltsins er meðíslenskan ríkisborgararétt.
➤ Sjálfur hefur hann búið íÞorlákshöfn hjá foreldrum
sínum í fimm ár.
➤ Hann á að hverfa úr landifyrir 16. september.
ÍSLENDINGAR Í MÖRG ÁR
Enn er unnið að rannsókn
fíkniefnamálsins sem kom upp
á Seyðisfirði síðasta þriðjudag.
Þýskur karlmaður á sjötugs-
aldri situr í gæsluvarðhaldi
vegna málsins en aðrir hafa
ekki verið handteknir. Gæslu-
varðhaldið stendur til 16. sept-
ember. Efnin sem smyglað var
voru samkvæmt upplýsingum
lögreglu tæp tuttugu kíló af
hassi og tæp tvö kíló af amfeta-
míni. Lögreglan vill ekki stað-
festa að leitað sé að vit-
orðsmanni Þjóðverjans en
leiða má líkur að því. fr
Smyglmál á Seyðisfirði
Lögregla verst
allra frétta
Vaxandi verðbólga og hækk-
andi verðlag er farið að bitna á
vaxandi hópi öryrkja sem ekki
nær endum saman. Aðalstjórn
Öryrkjabandalagsins lýsir eft-
ir framfærsluviðmiði öryrkja
sem félagsmálaráðherra ætl-
aði að ljúka fyrir 1. júlí og er
ekki komið. Öryrkjar minna á
að í stjórnarsáttmála er lofað
að hlúa sérstaklega að tekju-
lægstu einstaklingum. bee
Áhyggjur öryrkja
Tekjur öryrkja
hafa ekki við
Afsagnar fjármálaráðherra, Árna
Mathiesen, er krafist í ályktun sem
samþykkt var á stjórnarfundi
Ungra vinstri grænna í fyrrakvöld.
Í ályktuninni er „mælt með því að
manneskja með betri skilning á
þörfum þjóðarinnar taki við.“
Bent er á að ríkisstjórnin verji
200 milljónum króna á ári í loft-
rýmiseftirlit á sama tíma og fjár-
málaráðherra segist ekki hafa svig-
rúm til að hækka laun ljósmæðra.
Ung vinstri græn skora á ríkis-
stjórnina að efna gefin loforð um
að leiðrétt verði kjör umönnunar-
stétta og að byrjað verði á ljós-
mæðrum.
Í ályktuninni er bent á að bæði
stjórnarliðar og stjórnarandstæð-
ingar hafi síðustu daga viðurkennt
í pontu á Alþingi að laun ljós-
mæðra væru óásættanleg miðað
við ábyrgð og menntun. Allt hafi
komið fyrir ekki og nú bitni verk-
föll ljósmæðra á barnshafandi kon-
um, nýbökuðum mæðrum og
börnum þeirra á mikilvægustu
augnablikum lífs þeirra.
ingibjorg@24stundir.is
Ályktun stjórnarfundar Ungra vinstri grænna
Krefjast afsagnar ráðherrans
Þarfir þjóðarinnar
Ung vinstri græn telja
skilning fjár-
málaráðherra á þörf-
um þjóðarinnar ekki
nægan.
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Alhliða útfararþjónusta
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Þorbergur
Þórðarson