24 stundir - 06.09.2008, Blaðsíða 34
Jóhann Ingi Hann veltir því fyrir sér á kvöldin hvað hann hafi gefið af sér
þann daginn.
störfum. Ég bendi hins vegar á að í
kínverskri tungu þýðir orðið krísa
annars vegar áfall en hins vegar
möguleiki. Í öllum erfiðleikum fel-
ast tækifæri. Það er til dæmis ein
af eftirlætissetningum Jóns Ásgeirs
Jóhannessonar að í erfiðleikum
þurfum við að sjá tækifærin svo
við festumst ekki í kreppunni. Á
þessa staðreynd bendi ég gjarnan
og flestir vita að lífið heldur áfram
þótt maður missi vinnuna tíma-
bundið. Stundum segir fólk, sem
kemur í viðtöl til mín, að það
hefði frekar viljað sjá á eftir maka
sínum í gröfina en að kæmi til
skilnaðar vegna þess að annar aðili
væri í spilinu. Eftir eitt ár er hug-
arfarið oft gjörbreytt. Þá segir fólk
að skilnaður sé það besta sem fyrir
gat komið. Konurnar til dæmis eru
eftir ár hugsanlega farnar í nám,
búnar að ná af sér kannski tuttugu
kílóum og hafa jafnvel kynnst
bráðmyndarlegum manni. Mögu-
leikar lífsins eru svo margir.“
Fagleg samkennd
Jóhann Ingi segir fólkið sem til
hans leitar sem sálfræðings eiga sér
jafnólíka sögu og það er margt. Og
margir glíma við mikinn vanda.
„Oft þegar ég hlusta á sögur þess
fólks sem til mín kemur gæti ég
hugsað mér að gráta með því.
Þannig myndi ég þó lítið gagnast.
Því reyni ég að halda ákveðinni
fjarlægð milli mín og skjólstæð-
inga minna og sýna faglega sam-
kennd. Þetta geri ég meðal annars
til að geta lesið í stöðuna og komið
með einhverjar leiðbeiningar svo
viðkomandi rati út úr öngstræt-
inu,“ segir Jóhann Ingi sem finnst
gagnast sér mikið í starfi sálfræð-
ingsins að eiga að baki feril sem
handboltaþjálfari. Í því starfi hafi
hann verið undir sífelldri pressu
og átt á hættu að missa starfið
næðist ekki viðhlítandi árangur.
„Í slíkum aðstæðum temur
maður sér að leggja sig allan fram.
Sama geri ég sem sálfræðingur þar
sem ég reyni alltaf að leggja eitt-
hvað jákvætt af mörkum til skjól-
stæðinganna. Ég hef engan áhuga á
því að vita hvort fólk hefur hitt eða
þetta afbrigðið af kvíðaröskun.
Slíkt breytir litlu þegar við höfum
sjúkdómavætt allt samfélagið. Þeg-
ar til mín kemur fólk sem er á ein-
hvern hátt brotið reyni ég að finna
styrkleika þess og byggja það
þannig upp. Þannig ná margir sér
á strik.“
Sjö árum lengur
Í samfélagi nútímans hefur hver
einstaklingur margvíslegum hlut-
verkum og skyldum að gegna. Að
því leyti er lífið stundum flókið,
þótt í slíku felist líka skemmtilegar
áskoranir.
„Mér finnst tilbreyting og hvíld
í því að sinna mörgum verkefnum.
Er í ágætu líkamlegu formi og finn
ekki fyrir því að vinna tíu til tólf
tíma á dag,“ segir Jóhann Ingi sem
er heildsali á morgnana en sál-
fræðingur síðdegis. Rekur með
systkinunum sínum, þeim Stein-
dóri og Aðalheiði, heildverslunina
J.S. Gunnarsson, en þau flytja inn
skó, íþróttavörur og fleira. Hann
hefur sömuleiðis skrifað allmargar
bækur og segist áfram um að
koma ráðum sálfræðinnar til al-
mennings á auðskildu máli. Þann-
ig skrifuðu Jóhann Ingi og félagi
hans Sæmundur Hafsteinsson,
sem einnig er sálfræðingur, bókina
„Með lífið að láni – njóttu þess“
sem kom út fyrir þremur árum.
Hagkaup gaf út bókina sem seldist
í meira en 10 þúsund eintökum.
Og nú er önnur bók í svipuðum
dúr væntanleg. Marteinn Steinar
Jónsson er meðhöfundur að bók-
inni nýju þar sem sálfræðingarnir
þrír fjalla um hvernig leysa megi
ágreiningsmál og komast í gegnum
lífið á seiglunni. Þá er fjallað um
leiða lesti frestunar- og fullkomn-
unaráráttu.
„Mér hefur tekist að koma
miklu í verk. Kannski vegna þess
að ég virkja fólk og er með gott lið
í kringum mig. Ég óttast alls ekki
að vinna með fólki sem er á ein-
hvern hátt mér fremra. Sumir eru
hræddir við að starfa með öðrum;
óttast að þá verði leyndarmálum
stolið frá sér. Sjálfum þykir mér
þetta fráleitt. Það er ekkert
skemmtilegra en að starfa í góðum
hóp. Mér finnst líka skipta miklu
að taka bara einn dag fyrir í einu.
Vera þakklátur fyrir hvern þeirra
og allt það sem mér hefur hlotnast,
svo sem að eiga fjölskyldu, hafa
góða heilsu og sinna áhugaverðum
verkefnum. Á kvöldin velti ég fyrir
mér hvað ég hafi gefið af mér þann
daginn og hvort ég hafi valdið ein-
hverjum óþægindum. Þetta virkar.
Að vera þakklátur skiptir miklu.
Þeir sem þannig hugsa, lifa að
jafnaði sjö árum lengur en aðrir.“
Fjögurra barna faðir
Jóhann Ingi Gunnarsson er
fjögurra barna faðir. Af fyrra sam-
bandi á hann dótturina Kristínu
Erlu sem er viðskiptafræðingur og
starfar hjá Kaupþingi. Með eigin-
konu sinni, Nönnu Gunnardóttur,
á hann svo þrjú börn; þau Gunnar
Inga tannlæknanema, Steindór
Björn og Indíönu sem er sextán
ára verslunarskólanemi.
Jóhann segir það hafa verið
mikla lífreynslu að eignast fatlað
barn en sonurinn Steindór er ein-
hverfur „Reyndar er búið að skil-
greina hann með flestar fatlanir
sem til eru. Hann fæddist með
svokallað „mohr syndrom“ og tal-
ar ekki þótt hann skilji margt.
Hann á erfitt með samhæfingu
hreyfinga jafnframt því sem hann
hefur þurft að glíma við ýmsar
geðraskanir, svo sem depurð og
þunglyndi. Löngum stundum hef-
ur Steindór jafnframt átt mjög erf-
itt vegna sjálfsskaðandi hegðunar
og hefur þurft að vera með spelkur
því lyf hafa engin áhrif,“ útskýrir
Jóhann Ingi.
Hann segir að þótt sonurinn
hafi dvalið á heimili fyrir einhverfa
frá átta ára aldri fylgi því eigi að
síður mikið umstang fyrir þau for-
eldrana.
„Móðir hans hefur verið hetjan í
þessu máli. Við tókum snemma þá
ákvörðun að hún væri heima við
og sinnti drengnum en ég ynni
tvöfalda vinnu. Þetta hefur haldist,
jafnvel þótt Steindór Björn sé
kominn á heimili fyrir einhverfa.
Foreldrar í okkar stöðu þurfa að
berjast fyrir hagsmunum
barnanna, meðal annars vegna
mikillar starfsmannaveltu í
umönnunarstörfum og eins þess
hve stofnanir sem sinna fötluðum
hafa úr litlu að spila. Hins vegar er
mjög vel um drenginn hugsað og
fyrir það erum við foreldrar hans
þakklát.“
Höfðum ekkert val
Fram að þeim tíma að Steindór
Björn fæddist segir Jóhann Ingi að
allt sitt líf hafi snúist um hand-
bolta. Hann þjálfaði Thw Kile og
Essem sem varð Þýskalandsmeist-
ari 1987 og hann var valinn þjálf-
a
Vissulega vildi
maður hafa
hlutina öðruvísi
þegar maður hugsar til
lífsgæða hans og þess
sem hann fær aldrei að
upplifa og njóta; svo sem
að eignast fjölskyldu og
börn.
ari ársins. Var fyrirlesari á öllum
helstu þjálfararáðstefnum heims-
ins og víða nefndur, sakir góðs ár-
angurs.
„Viðhorf mín gjörbreyttust hins
vegar við þetta, ég dró mig út úr
mestu hringiðunni og sá að lífið
gæti verið gott þótt handboltinn
væri ekki lengur til staðar,“ segir
Jóhann Ingi og bætir því við að í
fyrstu hafi þau hjónin spurt sig
hvers vegna það henti þau að eign-
ast fatlað barn. Þau hafi hins vegar
fljótlega farið að spyrja sig hvers
vegna ekki.
„Við höfðum ekkert val. Tók-
umst því á við verkefnið. Höfum
reynt að leysa það jafn vel og við
getum. Steindór Björn er líka af-
skaplega heppinn hafa komið inn í
okkar fjölskyldu. En oft hefur
reynt á og vissulega vildi maður
hafa hlutina öðruvísi þegar maður
hugsar til lífsgæða hans og þess
sem hann fær aldrei að upplifa og
njóta; svo sem að eignast fjöl-
skyldu og börn. En það er líka
ánægjulegt að sjá hjá honum, eins
og mörgum þeim einstaklingum
sem hafa takmarkanir, að gleðin
og hamingjan er yfir og allt um
kring. Eru alltaf brosandi. Að
kynnast þessu hefur gert mig að
betri sálfræðingi,“ segir Jóhann
Ingi sem hvetur foreldra fatlaðra
barna til að ætla sér ekki um of.
Lífið megi aldrei snúast um einn
einstakling þótt mikilvægur sé.
Fólk verði líka að hugsa um sjálft
sig og sækja sér stuðning eins og
við á hverju sinni.
Gaman að lifa
Finnst þér lífið hafa verið gott við
þig? „Lífið er kraftaverk. Ég vakna
glaður og held glaður til þeirra
starfa sem bíða mín á hverjum
degi. Í gegnum starf mitt hef átt
þess kost að hitta þúsundir manna
víða um heim og margir leita til
mín sem sálfræðings. Ég spyr mig
stundum að því hvort störf mín á
þeim vettvangi skili einhverju. Ég
held að svo sé. Árangur sést ekki
alltaf í núinu. Kemur þó í ljós á
endanum og því er til nokkurs
unnið. Mér finnst gaman að lifa.“
a
Oft þegar ég
hlusta á sögur
þess fólks sem
til mín kemur gæti ég
hugsað mér að gráta með
því. Þannig myndi ég þó
lítið gagnast.
24stundir/Kristinn
34 LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 2008 24stundir
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Montreal - Kanada
26. september
frá kr. 16.990 *
Allra síðustu sætin
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Verð kr. 16.990
*) Netverð á mann. Flugsæti aðra leið með
sköttum (Keflavík - Montreal), 26. september.
Verð kr. 32.990
Netverð á mann. Flugsæti báðar leiðir með
sköttum, 26.-29. september.
Verð kr. 49.990
Netverð á mann. Flug, skattar og gisting í tvíbýli
á Travelodge Montreal í 3 nætur. Aukagjald fyrir
einbýli kr. 12.000. Fjögurra nátta ferð 9.-13. okt.
kr. 54.990. Aukagjald fyrir einbýli kr. 16.000.
Verð kr. 54.990
Netverð á mann. Flug, skattar og gisting í tvíbýli
á Hotel Best Western Ville Marie **** í 3 nætur.
Aukagjald fyrir einbýli kr. 16.000. Fjögurra nátta
ferð 9.-13. okt. kr. 59.990. Aukagjald fyrir ein-
býli kr. 21.000.
Heimsferðir bjóða frábært tilboð á síðustu sætunum til Montreal 26. september. Bjóðum frábært sértilboð flugsætum, og á
helgarferðum með gistingu á Travelodge Montreal eða Best Western Ville Marie, sem er gott og vel staðsett fjögurra stjörnu
hótel. Þetta er einstakt tækifæri til að njóta lífsins í þessari stórkostlega spennandi borg. Í borginni mætast gamli og nýi tím-
inn, rík sagan og iðandi nýbreytni. Það er frábært að versla og njóta lífsins í Montreal; fallegar byggingar, endalaust úrval
verslana og veitingastaða og hagstætt verðlag. Gríptu tækifærið og smelltu þér til Montreal og njóttu þess besta sem þessi
spennandi heimsborg hefur að bjóða.