24 stundir - 06.09.2008, Qupperneq 24
Þjóðin Virkjunin
áað gera Djíbúti
samkeppnishæft.
REI Í DJÍBÚTÍ
➤ Fyrirtækið sem REI mun vera ísamstarfi við heitir Electricite
de Djibouti (EDD) og er í rík-
iseigu.
➤ Verði virkjunin að veruleikamun framleiðsla hennar fara
inn á dreifingarnet EDD.
➤ Yfirvöld í Djíbútí hafa skuld-bundið sig til að kaupa fram-
leiðsluna
Minni fjárhagsleg áhætta fylgir verkefnum REI en þeim virkj-
unum sem Orkuveitan byggir á Íslandi Arðsemiskröfur þó hærri
Minni áhætta
en meiri arðsemi
dóttur, stjórnarmanni í REI, verður
sú fjárhagslega áhætta sem fyrir-
tækið tekur í þeim verkefnum sem
það mun sinna á erlendri grund
mun minni en sú áhætta sem fylgir
verkefnum OR innanlands. Þegar
virkjanir eru byggðar á Íslandi fell-
ur allur kostnaður á OR, og
Reykjavíkurborg, sem er lang-
stærsti eigandi fyrirtækisins, er
ábyrg fyrir þeim skuldum sem slík
verkefni skapa. Fjármagnið í Djí-
bútí-verkefnið kemur hins vegar að
mestu frá yfirþjóðlegum bönkum.
Þannig hefur Alþjóðabankinn
skuldbundið sig til þátttöku í Djí-
bútí-verkefninu og þróunarbankar
Evrópu og Afríku eru áhugasamir
um þátttöku. Á sama tíma er sú
arðsemiskrafa sem REI gerir á það
rafmagn sem verður framleitt
hærri en OR gerir til þeirra virkj-
ana sem það reisir á Íslandi.
skemmstu voru rannsóknarboranir
boðnar út. Engin tilboð bárust í út-
boðinu en forsvarsmenn REI telja
það ekki verða til vandkvæða því
það gefi þeim tækifæri til að semja
beint við þann aðila sem mun sjá
um boranirnar.
Minni áhætta og meiri arðsemi
Samkvæmt Sigrúnu Elsu Smára-
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@24stundir.is
Reykjavik Energy Invest (REI), er
þó með verkefni í pípunum víða.
Það sem líklega er lengst komið er
uppbygging jarðvarmavirkjunar í
Afríkuríkinu Djíbútí.
REI undirritaði viljayfirlýsingu
um samstarf um könnun á jarð-
varmasvæðum þar í febrúar 2007. Í
byrjun apríl síðastliðins var síðan
undirritaður samningur um hag-
kvæmnisathugun og fyrir
Útrásararmur Orkuveit-
unnar hefur verið meira í
fjölmiðlum vegna þeirra
stjórnmálaátaka sem
hafa verið í borgarstjórn
en fyrir það sem það
raunverulega gerir.
24 LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 2008 24stundir
Gunnar Hjartarson, verkefnastjóri Djí-
bútí-verkefnisins og framkvæmdastjóri
Afríkuverkefna REI, telur mjög líklegt
að hægt sé að virkja jarðvarmann í Djí-
bútí. „Það er búið að vinna forrann-
sóknir og í raun allar rannsóknir sem
hægt er að gera ofanjarðar. Þær lofa
mjög góðu. Þetta er saltur vökvi þarna
sem er ekkert sem er óþekkt. Þetta eru
þekktar stærðir. Það eru vissulega meiri
vandræði þar sem er saltlögn, en það er rekin
virkjun á Reykjanesi og víðar um heim í svona
vökva. Við erum ekkert að finna upp neitt hjól.
Við kunnum þetta og munum gera þetta eins og
við gerum hérna heima. Í fullkomnum heimi
væri hægt að byrja að framleiða þarna árið
2012.“
Tilraunaboranir á svæðinu sem ætlunin er
að virkja voru boðnar út fyrir skemmstu
en ekkert tilboð barst. Gunnar segir það
ekki endilega tefja verkið. „Við erum búin
að uppfylla þau skilyrði um útboð sem Al-
þjóðabankinn setti okkur og fylgja inn-
kaupareglum Orkuveitunnar. Þar sem það
bárust engin tilboð þá erum við frjálsir til
að semja við hvern sem er um þetta verkefni. Við
erum að fara á fullt að ræða við borfyrirtæki.
Þetta þarf ekkert endilega að tefja málið og flýtir
því jafnvel.“ Hann segir að meðal annars verði
rætt við íslenska fyrirtækið Jarðboranir.
Gunnar Hjartarson, verkefnastjóri í Djíbútí og framkvæmdastjóri Afríkuverkefna REI
Mjög líklegt að hægt verði að virkja
Djíbútí er í Austur-Afríku og
liggur að Erítreu í norðri, Eþíópíu
í vestri og suðri og Sómalíu í suð-
austri. Svæðið er iðulega kallað
horn Afríku.
Landið var frönsk nýlenda allt
til 27. júní 1977 þegar sjálfstæði
var lýst yfir. Strandlína landsins er
314 kílómetra löng og liggur að
Rauðahafinu. Landið þekur um 23
þúsund ferkílómetra sem er tæpur
fjórðungur af Íslandi.
Fólk
Talið er að um 800 þúsund
manns búi í Djíbútí en þær tölur
eru þó nokkuð á reiki.
Stærsti hluti þjóðarinnar er
múslímar en nokkur prósent eru
kristin. Meðalaldur er mjög lágur
og ungbarnadauði algengur. Meira
en þriðjungur þjóðarinnar er tal-
inn búa við sára fátækt og at-
vinnuleysi er gífurlegt.
Efnahagur
Efnahagur landsins byggist fyrst
og síðast upp á þjónustu við höfn
landsins, flugvöll og fjármála-
stofnanir. Frakkar eru með her-
stöð í landinu sem útheimtir tölu-
verða þjónustu. Þá hafa
Bandaríkin leigt gamla franska
herstöð, Camp Lemonier, af Djí-
bútum og hafa gert frá árinu
2001. Hún gegnir hlutverki í stríði
Bandaríkjanna gegn hryðjuverka-
starfsemi.
Ýmsar efnahagslegar umbætur
hafa verið keyrðar í gegn í landinu
síðastliðinn áratug í samstarfi við
Alþjóðagjaldeyrissjóðinn (IMF).
Þær aðgerðir urðu meðal annars
til þess að dregið hefur úr verð-
bólgu, ríkisstarfsmönnum hefur
fækkað og launakostnaður hins
opinbera hefur lækkað.
Stjórnarfar
Forseti landsins heitir Ismail
Omar Guelleh og hefur setið við
völd frá því í apríl 1999. Hann var
áður yfirmaður leyniþjónustu rík-
isins í tíð forvera síns og frænda,
Hassan Gouled Aptidon.
Sá hafði verið forseti frá því að
sjálfstæði var lýst yfir, eða í 22 ár.
Guelleh var endurkjörinn til sex
ára án mótframboðs árið 2005.
Stjórnarskrá landsins meinar hon-
um að bjóða sig fram oftar og því
er þetta síðasta kjörtímabil hans.
Forsetinn er bæði þjóðhöfðingi
og leiðtogi ríkisstjórnarinnar.
Hann skipar því ráðherra lands-
ins. Þingkosningar fara fram á
fimm ára fresti og þar eru kosnir
65 þingmenn. Flestir ráðherrar
landsins eru einnig þingmenn.
Spilling
Í skýrslu sem var unnin fyrir
bandarísk stjórnvöld um ástandið
í Djíbútí árið 2005 segir að spill-
ing hamli þróun viðskipta og fjár-
festinga í landinu. Þar segir að op-
inberir starfsmenn þrýsti mjög á
þá sem vilja fjárfesta í landinu að
gera þá að samstarfsmönnum sín-
um. Þá er sagt frá því að við-
skiptamenn erlendis frá hafi
kvartað töluvert undan því að til
þess að koma á fót rekstri í land-
inu þyrfti að múta fjölmörgum
aðilum.
Skýrslan segir litla eftirfylgni
vera á þeim lögum sem til staðar
eru um spillingu og að spillingin í
landinu ógni trúverðugleika
dómskerfisins.
thordur@24stundir.is
Djíbútí var frönsk nýlenda
Hlaut sjálfstæði
fyrir 31 ári
Kort af Djíbúti
Eritrea
Jemen
Sómalía
a
Talið er að um 800
þúsund manns búi í
Djíbútí en þær tölur eru
þó nokkuð á reiki.
Stærsti hluti þjóðarinnar
er múslímar en nokkur
prósent eru kristin.
Úrval af silfur skartgripaefni,
gott verð.
Perlulengjur frá kr. 1200.-
Hraunlengjur frá kr. 990.-
Allt til leir- og glergerðar.
Námskeið í boði.
ALLT EFNI TIL SKARTGRIPAGERÐAR
Glit ehf. Krókhálsi 5,
110 Rvk. sími 587 5411 www.glit.is
FRÉTTASKÝRING
frettir@24stundir.is