24 stundir - 06.09.2008, Side 31
24stundir LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 2008 31
RÝNIR
frettir@24stundir.is a
Carola sagði jafnframt að fyrstu viðbrögð
sín hefðu verið vangaveltur um hvernig hún
gæti sungið dúett með manninum sem hefði gert
barnfóstrunni þetta.
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@24stundir.is
Tito Beltrán, óperusöngvaranum
frá Chile sem söng hlutverk Edg-
ardos í Luciu di Lammermoor í Ís-
lensku óperunni 1992, er ekki leng-
ur boðið að syngja í uppfærslum
stóru óperuhúsanna úti í heimi.
Í viðtali við sænsku fréttastofuna
TT nú í vikunni kennir hann ásök-
unum um nauðgun og kynferðis-
brot gegn barni um.
Tito, sem er 42 ára, var dæmdur
í tveggja ára fangelsi í héraðsdóm-
stólnum í Ystad í Svíþjóð í byrjun
þessa árs fyrir að hafa árið 1999
nauðgað 18 ára barnfóstru.
Málinu var áfrýjað til hofréttar-
ins í Gautaborg þar sem frægir Sví-
ar í skemmtanabransanum munu
bera vitni á næstu dögum.
Nornaveiðar
Í hofréttinum er einnig tekið
fyrir mál sem höfðað var gegn Tito
fyrir kynferðisbrot gegn sex ára
stúlku á árunum 2000 til 2002 þeg-
ar hún var stödd á heimili hans.
Óperusöngvarinn var sýknaður af
þeirri ákæru í héraðsdómstólnum í
Varberg í fyrra, að því er greint er
frá á fréttavef Svenska dagbladet.
Tito hefur allan tímann neitað sak-
argiftum. Það er skoðun hans að
saksóknararnir í báðum málunum
hafi unnið í sameiningu gegn hon-
um og að um nornaveiðar sé að
ræða.
Óperusöngvarinn var í miklu
uppnámi við réttarhöldin í Ystad í
janúar síðastliðnum og grét þar til
hann féll í yfirlið samkvæmt frá-
sögnum sænskra fjölmiðla. Við
réttarhöldin í Ystad sagði barn-
fóstran frá því sem á að hafa gerst
sumarið 1999 á tónleikaferðalag-
inu með Tito, Eurovision-stjörn-
unni Carolu Häggkvist, tónlistar-
manninum Robert Wells,
leikkonunni Mariu Lundkvist og
fleirum.
Bauðst til að nudda fóstruna
Barnfóstran hafði gætt fimm
barna um kvöldið og hana verkjaði
í axlir og bak eftir að hafa burðast
með börnin til og frá. Eftir tónleika
í Svaneholms-höllinni bauðst Tito
til að nudda hana. Barnfóstran
taldi sig vita að hann væri mennt-
aður nuddari og að hann hefði fyrr
á tónleikaferðalaginu nuddað Ca-
rolu. „Ég treysti honum fullkom-
lega,“ sagði hún við réttarhöldin.
Samkvæmt frásögn hennar fóru
þau saman upp á hótelherbergi Ti-
tos, hún klæddi sig úr og lagðist á
rúmið. Hún var í nærbuxum og
með handklæði breitt yfir sig. Tito
byrjaði að nudda kálfana á henni
og svo færðust hendur hans ofar.
Hann stakk upp á því að hún færi
úr nærbuxunum og hún hlýddi
honum.
Nuddið varð hins vegar sífellt
óþægilegra, að því er hún greindi
frá. „Ég fann eitthvað á milli fót-
anna og þegar mér varð ljóst hvað
var að gerast fraus ég.“ Að sögn
barnfóstrunnar hélt hann henni
fastri. Henni tókst loks að losa sig,
klæddi sig og hljóp upp á hótelher-
bergið sem hún deildi með leik-
konunni Mariu Lundkvist. Barn-
fóstran kvaðst alls ekki hafa viljað
kæra Tito en hélt heim á leið
nokkrum dögum síðar.
Baðst fyrir með Carolu
Það var svo ekki fyrr en átta ár-
um síðar, eða í fyrra, sem hún
ákvað að greina frá atvikinu. Það
var þegar óperusöngvarinn hafði
verið sýknaður af ákærunni um að
hafa beitt sex ára stúlku kynferð-
islegu ofbeldi. Við réttarhöldin í
Ystad greindu tvær aðrar konur frá
því að Tito hefði reynt að beita þær
ofbeldi eftir að hafa boðist til að
nudda þær.
Carola Häggkvist bar fyrir rétt-
inum að daginn eftir meintu
nauðgunina hefði leikkonan Maria
Lundkvist verið í uppnámi og
greint frá því að barnfóstrunni
hennar hefði verið nauðgað. Ca-
rola kvaðst hafa tekið um hendur
stúlkunnar og spurt hana hvort
þær ættu að biðja saman sem þær
hefðu gert.
Sagði Carolu ljúga
Carola sagði jafnframt að fyrstu
viðbrögð sín hefðu verið vangavelt-
ur um hvernig hún gæti sungið dú-
ett með manninum sem hefði gert
barnfóstrunni þetta. Ákveðið hefði
verið að halda áfram tónleikaferða-
laginu og að Tito yrði með. „Hann
ók oftast eigin bíl. Líta átti út eins
og ekkert hefði gerst og þar sem
barnfóstran vildi ekki kæra þá voru
haldnir fleiri tónleikar. Ég vildi þó
hvorki halda í höndina á Tito né
horfa framan í hann.“
Tito sagði Carolu ljúga. Til væri
myndbandsupptaka þar sem sjá
mætti að hún hefði haldið í hönd
hans, horft í augu hans, kysst hann
á kinnina og meira að segja faðmað
hann. Síðan hefðu þau hist í Glo-
ben í Stokkhólmi árið 2006. Þar
hefðu þau aftur sungið saman,
haldist í hendur og horfst í augu.
Margar konur í lífi hans
Tito viðurkenndi við réttarhöld-
in í Ystad að það hefðu verið marg-
ar konur í lífi hans. „Ég hef leitað
þeirrar réttu. En ég hef aldrei á æv-
inni gerst sekur um nauðgun.“
Það var um miðjan níunda ára-
tug síðustu aldar sem Tito Beltran
kom frá Chile til Svíþjóðar þar sem
hann sótti um pólitískt hæli. Tito
fékk styrk til að læra tónlist í Sví-
þjóð og hóf nám í óperusöng í
Gautaborg.
Fjölskylda Titos sótti einnig um
pólitískt hæli í Svíþjóð en hann var
sá eini sem fékk dvalarleyfi. Þegar
vísa átti móður hans úr landi 1989
gerði Tito allt sem hann gat til þess
að stöðva lögregluna. Hann beitti
bæði höndum og fótum og að lok-
um bílnum sínum. Söngvarinn var
handtekinn og þurfti að dúsa í
fangelsi yfir nótt, að því er greint er
frá á vef Aftonbladet.
Sama ár og móður Titos var vís-
að úr landi hitti hann tónlistar-
manninn Robert Wells og þeir hófu
samstarf sem fólst meðal annars í
tónleikahaldi vítt og breitt um Sví-
þjóð í mörg sumur.
Árið 1993 komst Tito í úrslit í
söngkeppninni Cardiff Singer of
the World og í kjölfarið rigndi yfir
hann tilboðum um hlutverk í óp-
erum í Evrópu og víðar.
Reifst við saksóknara um stæði
Árið 1994 lenti Tito í rifrildi við
fyrrverandi saksóknara um bíla-
stæði. Hann var ákærður fyrir of-
beldi en sýknaður. Ári síðar söng
hann fyrir Viktoríu krónprinsessu
Svíþjóðar á 18 ára afmælisdaginn
hennar. Nokkrum vikum áður
hafði Tito kvænst og meðal brúð-
kaupsgestanna 75 voru Carola
Häggkvist og Robert Wells.
Velgengni Titos hélt áfram utan
Svíþjóðar en óperuhúsin í Gauta-
borg og í Stokkhólmi hunsuðu
hann, að sögn Aftonbladet.
Árið 2000 var hann kjörinn lista-
maður ársins af alþjóðlega óperu-
tímaritinu Opera Now sem gefið er
út í einni milljón eintaka. Sama ár
hlaut hann Grammy-verðlaun.
Elti tengdó á BMW-inum
Sjö árum eftir að Tito sagði í við-
tali við fjölmiðla að konan hans
hlyti að hafa verið fallegasta brúður
sem nokkurn tíma hefði sést skildu
þau og í kjölfarið lenti honum
saman við tengdamóður sína.
Hann reifst við nágranna sem bað
hann um að draga úr hraðanum
þegar hann elti tengdó á BMW-in-
um sínum í Kungsbacka.
Nágranninn upp á vélarhlífina
Tito hlustaði ekki á nágrannann
og samkvæmt saksóknara í málinu
gegn honum keyrði hann með vilja
á nágrannann þannig að hann
kastaðist upp á vélarhlífina. Tito ók
síðan 180 m með nágrannann á
vélarhlífinni áður en hann stöðvaði
bíl sinn. Óperusöngvarinn var
dæmdur til að greiða dagsektir og
skaðabætur til nágrannans. Stuttu
síðar hitti hann núverandi eigin-
konu sína, Jenny, á flugvelli en hún
hefur stutt hann dyggilega í mála-
ferlunum á þessu ári og vísað öll-
um ásökunum á hendur eigin-
manninum á bug.
Bauðst til að nudda barn-
fóstruna á hótelherbergi
Tito Beltrán aftur fyrir rétt vegna meintra kynferðisglæpa Segir ferilinn í rúst vegna ásakananna
Tito Beltrán Heims-
frægi söngvarinn segir
ferilinn í rúst.
Carola Häggkvist
Bar vitni gegn Tito.
Í Íslensku óperunni Tito ásamt Sigrúnu
Hjálmtýsdóttur.
a
Tito ók síðan 180 m
með nágrannann á
vélarhlífinni áður en
hann stöðvaði bíl sinn.