24 stundir - 06.09.2008, Blaðsíða 54
Eftir Trausta S. Kristjánsson
traustis@24stundir.is
„Þetta er svona blint stefnumót
fyrir 25 ára og eldri. Hver borgar
8.500 krónur og innifalið er matur,
ball, gisting, morgunmatur og
auðvitað ótakmarkað magn af
smokkum,“ segir hótelstjórinn Óli
Jón Ólason, sem stendur fyrir þess-
um viðburði fyrir einhleypa laug-
ardaginn 13. september.
Leyfir ráp milli herbergja
Hótel Hvolsvöllur er í rúmlega
klukkutímafjarlægð frá Reykjavík
og segir Óli tilvalið fyrir einhleypa
að bruna austur. „Ég mun taka frá
25 herbergi fyrir stráka og 25 her-
bergi fyrir stelpur. Það er tilvalið
fyrir vinahópa að mæta saman, því
það eru tveir saman í herbergi. En
hver veit hvað gerist síðar um
kvöldið, það er alls ekkert víst að
allir gisti í sínum herbergjum, og
það er bara í góðu lagi mín vegna,“
segir Óli og hlær.
Hann mun þó ekki bjóða upp á
ostrur, né annað frygðaraukandi
sælkerafæði. „Nei og Viagra verður
heldur ekki í boði, þrátt fyrir að
aldurstakmarkið sé 25 ára! En það
verður mjög góð þrírétta máltíð í
boði, svo enginn ætti að þurfa að
svelta,“ segir Óli, en hann fékk
hugmyndina að slíku blindu hóp-
stefnumóti í Noregi, hvar hann
vann í mörg ár.
„Ég er svosem ekkert að finna
upp hjólið neitt, ég vildi bara
brjóta aðeins upp dagskrána hjá
okkur og gera eitthvað fyrir þessa
einhleypu, því það er nóg í boði
fyrir pör og hjón. Og er það ekki
eins með allar góðar hugmyndir,
eru þær ekki allar stolnar!?“
Sólóklúbburinn kemst ekki
Á Íslandi er starfræktur Sóló-
klúbburinn, sem Óli segir meira en
velkominn. Jóhannes Egilsson,
stjórnarmeðlimur klúbbsins, lofaði
framtakið. „Okkar félagsskapur
byggist á að gera eitthvað
skemmtilegt saman og þetta virðist
sannarlega flokkast undir slíkt. En
því miður höfum við í klúbbnum
þegar skipulagt jeppaferð þessa
helgi, en framtakið er vissulega
lofsvert.“
Óli lumar einnig á fleiri hug-
myndum. „Ég býð kannski þeim
sem settu öryggið ekki á oddinn
skírnarveislutilboð að níu mán-
uðum liðnum,“ sagði Óli hlæjandi
að lokum.
Hótelstjóri býður einhleypum á blint stefnumót
Heitt í kolunum á
Hótel Hvolsvelli
Hótelstjórinn á Hvolsvelli
vonast eftir góðri mæt-
ingu einhleypra um þar-
næstu helgi. Hann hyggst
bjóða góð kjör á skírn-
arveislu að níu mánuðum
liðnum.
Óli Jón Sjálfskipaður hjúskaparmiðlari.
Hönd í hönd Kannski
kviknar ástin á Hvols-
velli um aðra helgi.
54 LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 2008 24stundir
Hjá okkur fáið þið mikið
úrval af barnabílstólum
Skeifunni 8 - s. 568 2200 - Smáralind - s. 534 2200
www.babysam.is
„Ég er argasti femínisti.
Samt hugnast mér ekki sú tegund
femínisma sem vill ekki kannast
við að konur geti verið kvenlegar.
Eða karlar karlmannlegir. Ég held
að til sé nokkuð sem heitir kven-
leg mýkt, kvenleg hlýja og kven-
leg smekkvísi. Og mér finnst
karlmannlegt að vera nagli.“
Séra Svavar Alfreð Jónsson
svavaralfred.blog.is
„Vesturbæjarísbúðin er uppá-
halds. Eina leimóið eru nið-
ursoðnu jarðaberin. Stundum er
samt svoooo löng röð þar. Sem
varð til þess að við uppgötvuðum
nýja ísbúð. Núna förum við í ís-
búðina í Garðabæ. Við höfum
alltaf fengið svo góða þjónustu
þar (og fersk jarðaber.“
Katrín Atladóttir
katrin.is
„Ég vil fá vin minn Valtý Björn
Valtýsson aftur í útvarp með
„Mín skoðun“. Ég sakna þess að
geta ekki hlustað á Valtarann í
essinu sínu; jákvæðan, einlægan
og skemmtilegan. Enginn Valtýr,
engin gleði, ekkert, bara tóma-
rúm. Eins og þetta sumar var sem
senn er að líða.“
Tómas Meyer
blogg.visir.is/meyerinn
BLOGGARINN
HEYRST HEFUR …
Það eru ýmsar leiðir reyndar til að afla sér fjár í
kreppunni. Þetta fékk ungt par í heilbrigðisgeir-
anum að reyna þegar því var boðið að mæta í viðtal
á Útvarp Sögu. Böggull fylgdi hins vegar skammrifi
því unga parið átti að greiða 50.000 krónur fyrir
viðtalið og var því boðið afþakkað. Arnþrúður
Karlsdóttir og félagar hennar á Sögu eru greinilega
miklir frumherjar. vij
Elli í Steed Lord, er kallar sig AC Bananas, er fluttur
til London. Kærasta hans, ljósmyndarinn Saga Sig-
urðardóttir, er að hefja nám þar og rapparinn ákvað
að fylgja á eftir. Aðrir liðsmenn Steed Lord fullyrða
að þetta hafi engin áhrif á starfsemi sveitarinnar og
að vera hans í höfuðborg Englands komi jafnvel til
með að spara ferðakostnað. Steed Lord spilar á
Airwaves-hátíðinni í London í næstu viku. bös
Á nýrri plötu Emilíönu Torrini er að finna fjör-
ugan ástaróð er ber heitið Jungle Drum en í nýlegu
viðtali við 24stundir uppljóstraði söngkonan að
hinn nýi kærasti hennar hefði orðið ansi hissa þegar
hann heyrði lagið. Það sem kom þó ekki fram í við-
talinu er að nýr kærasti Emilíönu er um tíu árum
yngri en hún og því sannast það enn og aftur að ást-
in spyr ekki um aldur. bös
Áætlunum aðstandenda Iceland
Airwaves-hátíðarinnar var ógnað
fyrr í vikunni þegar tónleikastað-
urinn Organ hætti skyndilega
starfsemi sinni. Staðurinn var einn
af þeim sex stöðum er hátíðin ætl-
aði að nýta sér fyrir fjölda lista-
manna sem þegar er búið að bóka
á hátíðina. Nú er allt í lausu lofti
og eru hátíðarhaldarar að skoða
hvaða möguleikar eru í stöðunni.
„Við vonumst til þess að komast
þarna inn samt sem áður,“ segir
Egill Tómasson, starfsmaður hátíð-
arinnar. „Við erum ekki búnir að
slá staðinn út af borðinu eins og
staðan er núna. Við erum miklir
bjartsýnismenn og vitum að allt er
hægt. Þetta hefur komið fyrir áður
en þá lentum við í þessu með
Gaukinn. Það ár rákum við stað-
inn sjálfir á bráðabirgðaleigu fram
að hátíðinni.“
Ófremdarástand
Egill talar um að ófremdar-
ástand sé í Reykjavík í húsnæðis-
málum fyrir tónleikahald. Hann
hefur þó sínar hugmyndir um
hvernig bæta megi ástandið.
„Mér finnst koma til greina, eins
og er í öðrum skandinavískum
borgum, að þeir sem stjórna
mennta- og menningarmálum í
borginni hjálpi þessari starfsemi.
Staðurinn Vega í Kaupmannahöfn
er til dæmis algjörlega rekinn af
ríkisstyrkjum. Þar er bara örygg-
isnet í kringum þetta. Þeir eru
löngu búnir að átta sig á því þar að
svona grasrótarsena þarf aðstoð.“
biggi@24stundir.is
Lokun Organs setur Airwaves í vandræði
„Vonumst til að
komast samt inn“
Egill Tómasson Skorar á stjórnvöld að
styrkja grasrótina betur.
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og
lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má
aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis.
Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Su doku
8 4 5 9 1 7 3 2 6
7 9 2 3 4 6 8 1 5
1 6 3 8 2 5 4 7 9
2 3 6 1 8 9 7 5 4
4 1 7 5 6 2 9 3 8
5 8 9 4 7 3 1 6 2
6 7 4 2 3 8 5 9 1
3 5 1 6 9 4 2 8 7
9 2 8 7 5 1 6 4 3
Ef þú ætlar að stunda jóga á hverju kvöldi,
þá vil ég mitt eigið sjónvarp.
a
Klárlega, guli liturinn er trúar-
brögð hérna, en hann kannski
passar ekki alls staðar
Gísli, munuð þið ekki sýna lit í verki?
Gísli S. Einarsson er bæjarstjóri Akraneskaupstaðar, en
bæjaryfirvöld samþykktu næstum því að mála íþrótta-
mannvirki bæjarins á Jaðarsbakka blá að lit, en Skaga-
menn eru þekktir fyrir að vera gulir og glaðir.
FÓLK
24@24stundir.is fólk