Eintak

Eksemplar

Eintak - 24.05.1994, Side 16

Eintak - 24.05.1994, Side 16
Islensk menning er tvískipt og hver Islendingur getur aðeins lifað á öðrum helmingnum. Þannig var það á þeim tímum þegar Mál og menning og Almenna bókafélagið vonj verðugir andstaeðingar, þannig var það á uppgangnstímum panels og parkets og þannig er það í kosningabaráttunni í Reykjavík. Glíma þessara tveggja heima hefur leitt til þess að íslendingum er gjarnt að Irta á hluta af hinum. heiminum sem hættulega, hjákátlega eða hreinlega mannskemmandi. Gunnar Smári Egilsson reynir að skilja þessa tvískiptingu og afneitunina sem henni tylgir og kemst að því að íslendingar hafi kosið að hafa heiminn lítinn og leiðinlegan. Og vilji aðeins nota helminginn af honum. Eg var að tala við Mörð Árna- son á Kaffibarnum um dag- inn. Um kosningarnar, enda talar hann ekki um annað þessa dagana. Sem er skiljanlegt þar sem hann ætlar sér að vinna þær. Eins og reyndar allir aðrir. Ég hef alla vega ekki enn hitt neinn sem ætlar að tapa þeim. Og þegar hann var búinn að tala nokkuð lengi um hvað þyrfti að géra til að vinna þessar kosningar spurði ég hann hvort hann ætlaði ekki að skrifa greinar í Moggann eins og hinir. Hann horfði á mig með samblandi af undrun og móðgun í augunum og sagði: „Ég skrifa ekki í Mogg- ann.“ Ég hló náttúrlega að þessari einstrengislegu þrjósku aftan úr kommúnískri fortíð Marðar og hann hló líka. Það er svona álíka gáfulegt af honum að vernda þessa sérvisku og að taka ekki bílpróf og renna sér frekar á gönguskíðum en almennilegum skíðum sem eitt- hvert gaman má hafa af. Stuttu síðar sat ég á skrifstofunni og Hilmar Örn Hilmarsson leit við í einhverri erindisleysu. Ég var að undirbúa mánudagsútgáfu EIN- TAKS og vildi ekki tala um annað. Hilmar spurði hvernig ég ætlaði að hafa blaðið og ég sýndi honum plan af því. Hann renndi augunum nið- ur eftir því og rak upp óp þegar hann kom að síðum sem voru merktar íþróttir. Síðan las hann þetta orð upphátt jafnoft og hann fann það á nýjúm síðum og alltaf með háværari vandlætingu. Ég spurði hann hvort honum þætti ekki gaman af -íþróttum. Hann sagði þær tilræði við mannlega reisn. Mikið vorkenndi ég honum Hilmari að hafa ekki fundið gleðina í íþróttunum. Miklu meira en ég vorkenndi Merði fýrir að neita sér staðfastlega um að skrifa í Moggann af öllum blöðum. Og jafnvel meira en ég vorkenni Mogganum fyrir allt sem hann neitar sér um, vill ekki segja frá og gætir þess að snerta ekki Eg hef nefnilega fyrir löngu komist að því að fólk er miklu frekar það sem það gerir ekki og hefur aldrei reynt heldur en að fólk sé það sem það gerir eða býr yfir reynslu af. Ég komst endanlega að þessu þegar það vann hjá mér blaðakona sem var svo pólitískt rétt þenkjandi að í raun hafnaði hún veröldinni. Eins og svo margir aðrir taldi hún aðrar skoðanir en þær sem hún hafði eins konar gálla hjá þeim sem þær höfðu. Þetta hefði svo sem verið í lagi ef hún hefði ekki verið saman- súrraður femínisti af lesbískum stofni og alin upp í Keflavíkur- göngum með tilheyrandi þjóðernis-BSRB-sósíal- ískum viðhorfum og söng. Það var því flest allt fólk gallað í hennar augum. Og flest það sem annað fólk tók sér fyrir hendur var ýmist hættulegt, fánýtt eða hreint og beint heimskulegt. Fólk borðaði vitlaust, klæddi sig vitlaust, hugsaði vitlaust, lét sér líða vel á vitlaus- um forsendum, gladdist á vitlausum stöðum og var hryggt af vitlausu til- efni. Þar sem ég hef gaman af því að reikna fann ég út að þessi kona sætti sig við rétt rúm þrjú prósent af heiminum. Hitt ’ var ýmist hjóm eða stórhættuleg1 árás á heimssýn hennar. Það er sama hvað ég reyni að rifja það upp sem þessi kona taldi gott og gílt, ég man það ekki. Ég gét hins vegar þusað daglangt um allt sem hún hafnaði. Ég man hana því fyrir það sem hún vildi alls ekki vera frekar en það smáræði af lífinu sem hún vildi eiga aðild að. Og þótt smávægileg sérviska þeirra Marðar og Hilmars sé ef til vill ekki í neinni líkingu við lífsafneitun þessarar konu þá finnst mér samt sem áður skipta meira máli að Mörður ætlar sér aldrei að skrifa í Moggann en í hvaða blöð hann telur hættulaust að birta hugsanir sínar í. Og að Hilmar telur íþróttir vera tilræði við manninn segir meira um hann en að hann sé áhugamaður um það sem kallað hefur verið dulrænt. Annars ætlaði ég ekki að blanda þeim Merði og Hilmari í það sem mig lang- aði til að skrifa um. Eg ætl- aði mér að skrifa pínulítið um fjöl- miðla, vitna í Pál postula og Felix Krull og nefna nokkur dæmi af fólki og fyrirbrigðum sem eru miklu heldur það sem það er ekki, heldur en það sem það er. Ástæðan fyrir því að ég ætla að blanda Páli inn í þetta mál er sú að hann sagði einu sinni að maður ætti að reyna ailt og halda því sem gott er. Það er voðalega fín afstaða til lífsins — bæði ótta- og for- dómalaus. Ef hann hefur komist að því að kon- ur ættu að þegja á samkund- um hefur það verið vegna þess að hann prófaði að hlusta á þær og fannst það vont. Það er ekki hægt að skamma hann fyrir að hafa komist að þessari niðurstöðu. Hún er áfrakstur tilraunar sem einfaldlega gekk ekki betur upp. Munurinn á Páli og blaðakonunni sem ég nefndi áðan er sú að sam- kvæmt speki Páls hef- ur hann hlust- að á konur eins og hana og komist að því að hann nennti því ekki. Blaðakonan borð- aði hins vegar aldrei hamborgara vegna þess að þeir voru tákn fyrir heimsvaldastefnu Bandaríkjanna og veikt geð annarra þjóða sem létu kanana valta yftr hámenningu sína með lágkúltúr sínum. Og blaðakonan margnefnda er ekki eini Islendingurinn sem vill teljast til intejligensíunnar í krafti andúðar sinnar á hamborgurum. Eitt sinn þegar ég var staddur í Alg- arve í Portúgal að leita leiða til að komast heim til íslands gekk ég milli veitingastaða í leit að íslensk- um pakkaferðalöngum í von um að geta flotið með þeim í leigufluginu heim. Þar sem ég gekk framhjá hamborgarabúllu sé ég Svein Ein- arsson, þá nýhættan Þjóðleikhús- stjóra, vera að gæða sér á hamborg- ara. Ég gekk rakleiðis til hans og kynnti mig. Honum svelgdist á hamborgaranum og náði að segja mér að hann væri ekki í sólarlanda- ferð þarna í Algarve heldur væri hann að skyggnast eftir heppilegu sumarhúsi til að leigja næsta vetur. Hann ætlaði sér nefnilega að ein- beita sér að skriftum. Mér fannst eins og honum tækist að afneita sólarlanda- ferðum, ham- borgurum og veru sinni á hamborgarstaðnum, öllu í þremur setningum. Mér var sögð svipuð saga af Degi Sigurðarsyni einu sinni. Þá gekk maður að honum þar sem hann var að úða í sig hamborgara á Tomma- borgurum á Laugaveginum. Dagur fann að hann var staðinn að verki en brást skjótt við, kyngdi bitanum og sagði: „Maður verður nú að éta.“ Þrátt fýrir að þeir Sveinn og Dag- ur hafi ekki alveg gert upp við ham- borgarafóbíu íslensku intellígensí- unnar þá heíði Páll verið hrifnari af þeim en blaðakonunni marg- nefndu. Þeir reyndu að borða ham- borgara og ákváðu að halda í hann jafnvel þótt það nagaði sálina í þeim. g vil taka það fram strax að ég er enginn hamborgara-maður. Mér finnst til dæmis hálf óviðkunnanlegt að þurfa að tilgreina hvernig ég vilji hafa hann steiktan eftir að ég bið um ham- borgara á veitingahúsi. Mér finnst það einhver oflátungsháttur. Fyrir mér eru hamborgarar svipaðir og spark í magann. Maður skiptir á hungurtilfinningu og magapínu. En til þess að Felix Krull komist að þá borðaði hann aldrei ham- borgara þrátt fyrir nokkurra ára störf í veitingahúsum. Ástæðan fyr- ir því að hann er dreginn inn í þessa grein er sú að hann sagði einhverju sinni að maður hefði tvo kosti. Annars vegar að líta á heiminn sem lítinn og skýranlegan. Hins vegar að hann sé stór og margbreytilegur. Felix gerði ekki upp á milli þessara tveggja heimssýna að öðru leyti en því, að hann hafði komist að því að síðari útgáfan væri skemmilegri. Þessa kennisetningu Felixar er vel hægt að nota í blaðaútgáfu. Frá því ég byrjaði í blaðamennsku hef- ur alltaf annað slagið komið til mín fólk og spurt af hverju sé aldrei rætt við venjulegt fólk í blöðunum. Og ég svara alltaf að venjulegt fólk sé leiðinlegt og á þá við sem blaðaefni —- þótt mér finnist venjulegt fólk líka leiðinlegt í Iifenda lífi. Ef blöð- um er ætlað að endurspegla veröld- ina standa þau frammi fyrir sama vali og Felix. Eiga þau að hafa ver- öldina litla og skiljanlega eða stóra og margbreytta? Eiga þau að segja að maðurinn sé að meðaltali 1,78 metrar á hæð eða eiga þau að segja að maðurinn geti verið allt frá 67 sentimetrum. og upp 2,45 metra? Og ef þau svara eins og Felix þá skiptir ekki máli hvort er réttara. Aðalatriðið er að fýrri kosturinn er svo dæmalaust Ieiðinlegur en það má hafa gaman af þeim síðari. Þessi lífsstefna Felixar Krull er andstaða yið lífsstefnu blaða- konunnar títtnefndu. Henn- ar veröld er ákaflega þröng og fábreytt eftir að hún hefur ýtt nánast öllu sem nöfnum tjáir að nefna út í ystu myrkur. I heimi Fel- ixar er hins vegar ekkert hættulegt, ekkert púkalegt, ekkert hégómi. Blaðakonan myndi hins vegar segja að hann liti á allt sem hégóma, en það er önnur saga. I tilefni af lýðveldisafmælinu er rétt að geta þess að Felix Krull er af- skaplega óíslenskur. Það eru ekki margir eins og hann hér heima. Ástæðan er líklega sú að íslenskt samfélag er ekki margbreytilegt heldur aðeins tvíhliða. Þessi tví- skipting endurspeglast vel þessa dagana í kosningabaráttunni í Reykjavík. Þar mætast þessar tvær tegundir Islendinga. Annars vegar þeir sem borða hamborgara, leggja parket, fylgjast með íþróttum og horfa á Stöð 2. Hins vegar þeir sem borða hýðishrísgrjón, búa í panel, finnast allir leikir marklausir og líta á Ríkisútvarpið sem útvarp allra landsmanna. Sökum þessarar tvískiptingar eiga íslendingar auðveldara með að afneita heilu og hálfu hlutum heimsins og mannlífsins. Annað hvort velja þeir epli eða appelsínu og þegar það er búið liggur ljóst fyrir hvað má og hvað ekki. Þeim er ekki eiginlegt að líta á veröldina, hugmyndasöguna og mannlífið sem risastóran konfektkassa sem þeir geta valið úr að vild. íslending- ar eru annað hvort Lindu- eða Maclntosh-menn. Annað hvort Ríó- eða Braga-fólk. Eða voru það lengst af. Gevalia, Marino og fleiri útlendir kaffiframleiðendur hafa plantað sér þarna mitt á milli. En þrátt fyrir að þessi tvískipting tilverunnar sé falin í kaffibollanum þá lifir hún enn djúpt í þjóðarsál- inni. Og það sorglega við þetta er að tvískiptingin leiðir ekki til þess að hver Islendingur fái hálfan heim Felixar Krull í sinn hlut. Því jafn- hliða þvi að skipta heiminum í tvennt — og ef til vill vegna þess — þá eru þeir svo vissir í sinni sök að heirnur þeirra verður lítill og rosal- ega vel útskýrður, einfaldur og fast niðurnegldur. Þeir eru því ekki 50 prósent manneskjur heldur aðeins fimm prósent fólk. © 16 ÞRIÐJUDAGUR 24. MAÍ1994 ~\

x

Eintak

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.