Eintak

Ataaseq assigiiaat ilaat

Eintak - 24.05.1994, Qupperneq 18

Eintak - 24.05.1994, Qupperneq 18
Þridjudagur P O P P Hljómsveitin Þúsund andlit veröur á Gauki og stöng og rífur fólk upp úr helgislepjunni sem fylgir hvitasunnuhelginni. BAKGRUNNSTÓNUST Hermann Ara syngur viö eigin undirleik á Fógetanum. L E I K H Ú S Galdrakarlinn í Oz sýndur í Tónabae kl. 17:00 undir leikstjórn Gunnars Gunnsteinssonar. Sí- gild saga um sígilda stelpu. UPPÁKOMIIR A Sóiori Islandus stendur Heimdallur. lélag sjálfstæöismanna í Reykjavík fyrir menningar- uppákomu. Dagskráin er fjölbreytt en felst þó aðallega í söngatriöum og Ijóðalestri, auk þess sem stuttmyndir þeirra félaga, Reynis og Arn- ars, um ýmsa kvilla er hrjá lólk veröa sýndar, þ.á.m. er myndin Matarsýki sem hlaut lyrstu verðlaun á Stuttmyndahátíöinni sem haldin var f apríl síöastliðnum. F U N P I R Kynning á Niflungahringnum með tón- dæmum ter fram í Norræna húsinu kl. 17:00. Anna Magnúsdóttir og Reynir Axelsson sjá um kynninguna. SJÓNVARP RIKISSJONVARPIÐ 18.15 Táknmálslréttir 18.25 Frægöardraumar 19.00 Veruleikinn 19.15Dagsljós 20.00 Fréttir og veður 20.35 Framtarir felast í nýsköpun Seinni þáttur um ný- sköpun í alvinnulllinu alll Irá grunnrannsóknum lil markaðsselningar 21.05 Banvæn ást Bresk- ursakamálaþáttur22M Mótorsport Sýntlrá Norðurlanóamótinu I torfæruakstri I Svlþjóð 22.30 Gengið að kjörborði Akranes 23.00 Ell- efufréttir 23.15 HM í knattspyrnu Fjatlað um hollenska landsiiðið og George Best segir skoðun slna á keppninni. Einnig verður ritjaöur upp ferill Brassans Sókratesar23 AQ Dagskrár- lok STÖÐ TVÖ 17.05 Nágrannar 17.30 Pétur Pan 17.50 Gosi 18.15 í Tölvuveröld 18.45 Sjónvarpsmarkaðurinn 19.19 19.19 20.15 Ei- ríkur 20.35 Visasport 21.10 Barnfóstran 21.35 Þorpslöggan 22.30 ENG 23.20 Þjóð- garðurinn Stete Park Þrjár stúlkur fara í ferðalag og rekast á þungarokkara á nærbuxun- um. Það hlýtur að tæla þær til byggða 00.50 Dagskrárlok Miðvikudagur P O P P Hljómsveitin Stripp-Show hristir upp i gestum á Tveimur Vinum. BlÓHÖLLIN Ace Ventura ★★★★Jim Carrey fær alla nema þá sem eru langt leiddir af þunglyndi til að hlæja næstum allan tímann. Konungur hæðarinnar King of the Hill ★★ Þetta er ekki léleg mynd, en það er eitthvað sem vantar upp á til þess að myndin verði virkilega áhrifarík. Pelikanaskjalið The Pelican Brief ★★ Þrátt fyrir ágætt etni kemst þessi mynd aldrei á flug. Bókin er betri. I það minnsta fyrir þá sem hafa þokkalegt ímyndunarafl. Líf þessa drengs This Boy's Life ★★★ Mynd um það hvernig búa á til grönsj-kynslóð- ina, þó ekki eintóma Cobaina. Fráær leikur hjá Ellen Barkin, Ifka stráknum og meira aö segja hjá Robert de Niro. Fingralangur faðir Father Hood ★ Leiðinleg mynd um leiðinlegan pabba og enn leiðinlegri börn. Sister Act 2 ★ Nunnurnar hafa skipt út af fyrir krakka á glapstigum. Söngurinn er enn poppaö- ur gospel. Sagan enn þunn og Whoopi enn með of fáar línur og reynir að segja eitthvað með svipnum sem enginn skilur. En börnum finnst gaman af þessari mynd. Rokna Túli ★★★ Það er komið fslenskt tal við þessa mynd sem hefur fengist nokkuð lengi á vídeóleigunum. Börnin mæla með henni. HÁSKÓLABÍÓ Backbeat ★★ Mynd um frekar óspennandi samband Stu Sutcliffe og Astrid Kirchherr. Það bjargar myndinni að það er skilið við sögu Bítl- anna á þröskuldi Irægðarinnar og við dyrnar heima hjá Ringó. Stjarna myndarinnar er lan Hart - Kannski ekki furða þar sem hann leikur stjörnu Bítlanna, Lennon. Nakinn Naked ★★★ Hin ágæstasta skoðun- arferð um lægstu lendur Englands, neðan mittis og hungurmarka. Blár Blue ★★ Kieslowski-myndirnar verða þynnri og þynnri eftir þvf sem þær veröa fleiri. Litli Búdda Little Buddha ★★ Þrátt fyrir glæsilegan búning vantar einhvern neista í þessa tilraun Bertoluccis til að búa til mikla ep- íska sögu. Listi Schindler’s Schindler's List ★★★★ Verðskulduð Óskarsverðlaunamynd Spielbergs. Allir skila sínu besta og úr verður heljarinnar mynd. Meira að segja Polanski braut odd af of- læti sfnu og tór á ameríska mynd (en hann er nú reyndar gyðingur og missti mömmu sína í hel- förinni). í nafni fööurins In the Name of the Father ★★★★ Mögnuð mynd um réttarmorð í Eng- landi. Umdeild fyrir tilfærslur á smáum atriðum sögunnar en ísköld og sönn engu að síður. Þúsund andlit heldur álram á Gauknum þar sem frá var horfið á þriðjudagskvöldið. BAKGRUNNSTÓNUST Hermann Arason, Irúbador, plokkar gítar- strengi á Fógetanum og syngur með. F U N P I R Málstofa í hagfræði stendur fyrir fyrirlestrinum A Pernalist's Design of Optiman Social insurance for Erroneous Insurees Dr. Mi- chael Lundholm dósent við háskólann í Uppsöl- um heldur fyrirlesturinn en hann er jafnframt framkvæmdastjóri Norræna hagrannsóknarráös- ins. S J Ó N V A R P RÍKISSJONVARPIÐ 18.15 Táknmálsfréttir 18.25 Nýbúar úr geimnum 18.55 Fréttaskeyti 19.00 Eldhúsið Ullar Finnbjörnsson eldar gott 19.15 Dagsljós 19.50 Víkingalottó 20.00 Fréttir og veður 20.40 Nelson Mandela - Leið- in til frelsis Heimildamynd um leiðtogann sem vann stórsiguri kosningunum I Suður-Alríku. Eitthvað lyrirÁrna og Sollu 21.10 Framherjinn Breskur mynda/lokkur byggður á sögu eltir Gary Linekerumatvinnumann IIótbolta22.05 Lista- hátíð í Reykjavík 1994 Kynnlir verða helstu við- burðir hátíðarinnar22.35 Gengið að kjörborði 23.00 Ellefufréttir og dagskrárlok STÖÐ TVÖ 17.05 Nágrannar 17.30 Halli Palli 17.50 Tao Tao 18.15 Visasport 18.45 Sjónvarpsmarkaðurinn 19.1919.1919.50 Víkingalottó 20.15 Eiríkur 20.35 Á heimavist 21.30 Skólabærinn Akureyri 21.40 Sögur úr stórborg 22.30 Tíska 22.45 Á botninum 23.25 Á tæpasta vaöi 2 Die Hard 2Þrusu spennumynd með Bruce Willis í baráttu við hryðjuverkamenn. Bönnuð börnum 01.25 Dag- skrárlok B í Ó I N BIOBORGIN Ace Ventura ★★★★ Ógeðslega ógeðslega fyndin í fyrsta sinn en tólf sinnum leiðinlegri í næsta skipti, - segir Davíð Alexander, níu ára gagnrýnandi barnaefnis í EINTAKI. Ottalaus Fearless ★★★Mynd um efni sem fáir leikstjórar komast lífs frá, sjálfan dauðann. Weir tekst þó að búa til sterka mynd og sleppur næstum óskaddaður. Rosie Perez leikur frábær- lega. Leikur hlæjandi láns The Joy Luck Club ★ ★★ Indæl mynd um kínverskar konur. Hús andanna The House of the Spirits ★★★★ Frábær leikur. Myndin verður aldrei leiðinleg þrált fyrir þriggja tíma setu. LAUGARASBÍO Eftirförin The Chase ★★ Dágóður þriller ef veðrið væri verra. Ögrun Sirens ★★ Innihaldslaus og snubbótt saga sem hefði mátt klára fyrir hlé. Þótt sumar konurnar seú full jussulegar geta karlar skemml sér við aö horta á prestsfrúna. Og konurnar á Hugh Grant. Þessi tvö eiga stjörnurnar. Tombstone ★ Myndin er lengi í gang en svo loks þegar þeir byrja aö skjóta þá verður hún eins og verið sé að sýna úr timm vestrum í einu. REGNBOGINN Nytsamir sakleysingjar Needful Things ★★ Djöfullinn stígur upp til jarðar og breytir frið- sömu þorpi í hálfgert helvíti. Venjubundinn Stephen King. Kalifornia ★★★ Gróf eftirlíking af Badlands en nokkuð góð fyrir hlé. Trylltar nætur Les Nuits Fauves ★★★ Hrá mynd sem fjallar ef til vill frekar um ástsýki en alnæmi. Ung leikkona, Romane Bohringer, stel- ur senunni í sjálfsævisögulegu hlutverki leik- stjórans. Píanó ★★★ Óskarsverðlaunaður leikur í að- al- og aukahlutverkum. Þykk og góð saga. Kryddlegin hjörtu Como Aqua Para Chocol- ate ★★★ Ástir undir mexíkóskum mána. STJÖRNUBÍÓ Eftirförin The Chase ★★ Dágóður þriller et veörið væri verra. Fíladelfía Philadelphia ★★★★ Frábærlega leikin. Það hafa allir gott af að sjá þessa mynd og ekki kæmi á óvart þótt hún yröi notuð sem kennsluefni (alnæmisvörnum þar til annað betra býðst. Dreggjar dagsins Remains ol the Day ★★★★ Magnað verk. Morðgáta á Manhattan Manhattan Murder Mystery ★★★ Allen er fyndinn í þessari mynd. Hún er ekki ein af hans bestu en sannar að það er skemmtilegra að eyða tímanum undir Allen- mynd en undir annars konar myndum. SÖGUBÍÓ Fúll á móti Grumpy Old Man ★★ Bessi og Árni þeirra Ameríkana, Jack Lemmon og Walther Matthau, I tiltölulega saklausu og góðlátlegu gríni sem gengur ekki mjög nærri hláturtaugunum. En það má stund- um brosa. Hetjan hann pabbi My Father the Hero ★★★ Huggulegasta gamanmynd með ágætum leik Depardieu. Aladdin ★★★★ Meistaraverk frá Disney. AthygJisverðasta áhugaJeiksýnirigin Guðjón Sigvaldason „Það er fyrst og fremst gleðilegt að leikstýra leikhópi sem er fyrstur til ,a<3 hljóta titilinn, Athygliverðasta áhugaleiksýningin." Föstudagurinn 13. maí var happadagur fyrir Guðjón Sig- valdason, leikstjóra, og félaga í Leikfélagi Hornafjarðar því þá var þeim tilkynnt að sýning þeirra, „Þar sem djöflaeyjan rís“, hefði ver- ið valin athygliverðasta áhugaleik- sýning síðasta leikárs. Sýninguna setti þau upp í Sindrabæ á Höfn. „Þar sem djöflaeyjan rís“ er gert eftir samnefndri sögu Einars Kárasonar en leikgerðin er eftir Kjartan Ragnarsson. Leikritið var fýrst sett upp af Leikfélagi Reykja- víkur í Skemmunni fýrir nokkrum árum. Leikfélag Hornafjarðar er fyrsti áhugaleikhópurinn sem hlýtur við- urkenningu fýrir athyglisverðustu áhugaleiksýninguna og hefur titill- inn það í för með sér að leikfélagið setur sýninguna upp á sviði Þjóð- leikhússins hinn 12. júní næstkom- andi. „Félagar leikfélagsins eru bæði kvíðnir og glaðir,“ segir Guðjón um viðbrögð aðstandenda sýning- arinnar við þeim heiðri. Áhugaleikhópar þurftu að sækja sjálfir um viðurkenninguna og senda myndbandsupptöku af sýn- ingunni. Alls voru tíu umsækjend- ur. í dómnefnd sátu þau Stefán Baldursson, Þjóðleikhússtjóri, Sigrún Valbergsdóttir, leikstjóri, fýrir hönd Leiklistarsambands Is- lands og Bjarni Guðmarsson, frá Bandalagi íslenskra leikfélaga. Hvaða þýðingu hefur viðurkenn- ingin fyrir þig, Guðjón? „Það er fyrst og fremst gleðilegt að leikstýra leikhópi sem er fyrstur til að hljóta titilinn. Hún ber jafn- framt vott um að sú stefna sem ég hef unnið með haft skilað árangri. Ég hef unnið á þann hátt að leik- hópurinn fái að prófa sem flest sem við kemur leikhússtarfinu svo sem eins og hönnun lýsingar og leik- myndar. Ég reyni að skapa góðan hópanda og að halda þeim metnaði við sem farið var af stað með,“ segir Guðjón sem leikstýrir milli tveimur og fjórum sýningum á ári. „Það er misjafn gangur í þessu,“ segir hann. „Ég hef verið heppinn og fengið að takast á við skemmti- leg verkefni.“ En langar þig ekkert til að leika sjálfur fyrst þú ert menntaður leik- ari? „Mig klæjar alltaf í puttana að fara að leika sjálfur þótt leikstjórnin hafi átt hug minn allan að undan- förnu. Ég fer eflaust á svið þegar ástæður gefast.“ O KK-BAND í sveitinni Kristján Kristjánsson, betur þekktur sem KK, hefur haldið sig fjarri sviðsljósinu undan- farna mánuði en hefur verið að troða upp úti á landi á undanförnum vikum og ætlar að gera víðreisn í sveitinni í sumar. KK band ætla meðal annars að setja sig í stellingar fyrir Kántríhátíð í Kántríbæ um miðjan júlí. Um Verslunarmannahelgina taka þeir þátt í Síld- arævintýrinu á Siglufírði og fer maður að hallast á þá skoðun að sjómannsblóðið renni ólgandi í æðum söngvarans. KK er þessa dag- ana staddur í litlu sjávarplássi fyrir austan og segist vera að huga þar að sínum málum. „Ég er að fara út að vitja nets á grásleppu. Svo er búið að bjóða mér að fara í reynslutúr með togara hérna út á fjörðinn,“ segir hann stolt- ur. Það er þó engan veginn að tónlistin sé á undanhaldi því á milli þess sem KK nýtur náttúrunnar situr hann við að semja tónlist fyrir næstu plötu KK-bandsins sem áætlað er að komi út í haust. Þeir sem hafa verið með spádóma og full- yrðingar um að KK-band væri hætt störfum geta því étið þær fullyrðingar ofan í sig. Auk áður- nefndrar plötu segir KK að líklegt sé að gefin verði út plata með tónlistinni úr sjónvarpmynd- inni „Þið rnunið hann Jörund", sem Óskar Jón- asson leikstýrir og sagt var frá í síðasta EINTAKI. KK-band sér um allan tónlistarflutning í þeirri mynd. Á sumaráætluninni hjá KK-bandi eru aðeins einir tónleikar á höfuðborgarsvæðinu og verða þeir á Hressó á sjálfan lýðveldisdaginn, auk þess sem hljómsveitin tekur þátt í stórtónleikum sem Reykjavíkurborg stendur fýrir í tilefni af lýð- veldisafmælinu. Til Reykjavíkur kemur KK frá Danmörku þar sem hann spilar á Mid-Fyn Festival og mun sú tónlistarhátíð gefa Roskilde-hátíð- inni frægu lítið eftir hvað gæði varðar. KK var reyndar boðið að koma og spila á Roskil- de-hátíðinni en það boð var dregið til baka. „Þeir vildu okkur ekki,“ segir KK. KK-band lætur þó ekki bugast og verður í Danmörku á Skandeborg festival í ágúst og þar strax á eft- ir í Svíþjóð á Malmo festival. KK-band er með ýmislegt í sigtinu hvað útlönd varðar og er verið að kanna markaðsmöguleika, bæði fyrir útkomnar og tilvonandi plötur bands- ins, á Norðurlöndum. Segir KK að áhuginn sé mestur fyrir plötunni Lucky one og mun skýringin vera sú að öll lögin eru með ensk- um texta. Þrátt fyrir að útlit sé fýrir að KK muni sjást bæði á hljómsveitarpöllum og í plöturekkum á Norðurlöndum segir hann að það sé ekki frægðin sem hann sækist eftir. „Það er nógu slæmt að vera frægur á Islandi. Það reynir nógu mikið á.“ Þess vegna leitar hann í kyrrðina og rólegheitin í sveitina sína. „Ég á þetta land,“ segir hann. „Ég og þú, við eigum þetta land.“ O 18 ÞRIÐJUDAGUR 24. MAÍ1994

x

Eintak

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.