Eintak

Eksemplar

Eintak - 24.05.1994, Side 21

Eintak - 24.05.1994, Side 21
fyrir 25 árum er ágæt blanda °g yngri manna og hefur fengið sjálfan lAN Ross til liðs við sig. Einn sá dyggasti á Suðurnesjunum, Haraldur Magnússon, hefur ákveðnar skoðanir á málunum. „Ég hef haft dálæti á þessari íþrótt frá því ég var krakki. Ég hef íylgst grannt með Keflavíkurliðinu í gegnum árin og vil veg þeirra sem allra mestan. Þess vegna hef ég lagt það á mig að fylgja þeim eftir hvert Haraldur Magnússon Keflvíkingur „Auðvitað heitir liðið áfram Keflavík, en ég vil sjá breiðfylkingu Suðurnesjamanna um liðið og auðvitað um lið Grindvikinga líka. á land sem er. það hef- ur einfaldlega sýnt sig í mínu tilviki að þetta er baktería sem ekki er hægt að losna við.“ S t a n d a Keflvtkingar vel við bakið d sínum tnönn- um? „Iá, þeir gera það. Auðvitað er það meira þegar vel gengur' en ella en stuðningurinn er til staðar og áhuginn líka. Það leiðinlega er hins vegar með klæðnað áhorf- enda á öllum leikj- um hjá flestum lið- um. Menn eru þannig gerðir að þeir horfa á ítölsku og ensku knattspyrnuna á vet- urna. Þar eignast menn sín uppá- haldslið og auðvitað ekkert nema gott um það að segja. En það er að mínu mati afskaplega hallærislegt að koma á leik með sínu liði merkt- ur Manchester United í bak og fyr- ir. Það getur nefnilega verið alveg ómetanlegt íyrir leikmenn að sjá stuðningsmönnum sínum bregða íyrir uppi í stúku merkta félaginu. Þetta gera Skagamenn og virkar af- skaplega vel hjá þeim.“ Hverttig leggst þetta I „Mjög vel, vérð ég að segja. I upphafi eru ali- ir jafnir með núll stig og jafna möguleika. Fólk er farið að þyrsta í fótbolta og þetta á eftir að verða jafnt og skemmtilegt sumar. Liðin gera síðan auðvitað sitt besta og við meiru er aldrei að búast. það er hins vegar alveg ljóst að þörfin íyrir góða stuðningsmenn er aldrei meiri en þegar eitthvað bjátar á. Ég ætla að gerast djarfur og spá mín- um mönnum titlinum stóra í ár.“ Hefur satneiningin einhver áhrif þarna á? „Það ætla ég svo sannarlega að vona. Auðvitað heitir liðið áfram Keflavík, en ég vil sjá breiðfylkingu Suðurnesjamanna um liðið og auð- vitað um lið Grindvíkinga líka. Ég er nefnilega afskaplega fylgjandi rígnum á milli liðanna, tel hann vera af hinu góða og skapa skemmtilega stemmningu. Til að komast síðan í allra fremstu röð og halda sér þar er síðan alveg nauð- synlegt að skapa betri aðstæður og vera samtaka um breytingar tii batnaðar." „Frábært þegar Hörður skorar“ FH-ingum hefur gengið nokkuð vel að undanförnu og eru óðum að komast í þann flokk liða sem geta státað af einhverjum stöðugleika hvað deildina varðar. Einn allra skemmtilegasti sóknarmaður landsins, Hörður Magnússon, hefur yljað mörgum með leikni sinni og meðal annars föður sínum sem alltaf stendur á sama stað í brekkunni í Krikanum og horfir á. Reyndar átti Magnús Ólafsson sér áður annan fastastað á vellinum en sá var í línu við völlinn, og eftir að hann var einu sinni nánast leiddur af velli eftir mótmæli yfir rang- stöðudómi, færði hann sig úr sjón- línu við vafaatriðin. Magnús Ólafs- son er leikari, eins og flestir vita, og gamall handboltarefur úr FH. „Ég byrjaði að spila með fim- leikadrengjunum í handboltanum tiltölulega ungur. Ég er reyndar að- fluttur en konan mín er gegnheill gaflari og því kom aldrei neitt ann- að til greina en FH. I marki FIi stóð ég svo í þetta tíu eða tólf ár og vann eiginlega allt með liðinu sem hægt var að vinna nema kannski Evr- ópukeppnina. Hörður sonur minn var afskap- lega duglegur við að fylgja mér á æfingar og fylgjast með spriklinu í körlunum. Þess vegna kom það manni ekkert á óvart að hann umtumast þegar dóm- arinn flautar til leiks á fót- boltavelli. Um leið og boltinn fer að rúlla tapa þeir dómgreindinni og sjá aðeins það sem kemur betur fyrir félagið þeirra. Þeir gleyma öll- um mannasiðum og hrópa svívirðingar yfir dómarann og and- stæðingana sem þeir gætu aldrei komist óslasaðir ffá utan vallar. Og allan leikinn enj þeir á barmi taugaáfalls, sveiflast milli alsælu og dýpsta svartnættis eftir því hvemig liðinu þeirra vegnar. Þetta er eins konar áunninn greindar- skortur og sjálfskipuð villimennska. Björn Ingi ræddi við tíu eldheita stuðningsmenn lyrstu deildar félaganna tíu til að komast að því hvað þessum mönnum gengurtil. Magnús Olafsson FH-ingur „Einu sinni þegar ég hafði látið dæluna ganga á dómarann tók hann sig til og fór að svara mér fullum hálsi. Það fannst mér frekar kúnstugt. skyldi snemma byrja í íþróttum og var upp alla yngri flokkana bæði í hand- og fót- bolta. Hann var af- skaplega lunkinn handboltamaður og það kom mér mikið á óvart á sínum tíma þegar hann valdi knattspyrnuna, sagði hana skemmtilegra sport, sem er alveg rétt.“ Ferðu á alla leiki tneð liðinu? „Alla sem ég mögulega kemst á. Sem leikari er maður hins vegar oft bund- inn við tökur hingað og þangað um landið en ég mæti eftir bestu getu. Ég hef meðal annars einu sinni leigt litla rellu til að skjótast með mig suður frá Akureyri til að horfa á bikarúrslitaleik, þannig að það er allt reynt. Auðvitað hefur maður gert margt af sér í hita leiksins og einu sinni var ég mættur inn á völl- inn til að mótmæla rangstöðudómi sem átti að vera en aldrei varð. Og einu sinni þegar ég hafði látið dæl- una ganga á dómarann tók hann sig til og fór að svara mér fullurn hálsi. Það fannst mér frekar kúns- tugt. Gengi liðsins hefur verið afskap- lega jójólegt á undanförnum árum en nú eru blikur á lofti. Þetta gerir það að verkurn að fleiri stuðnings- menn koma á völlinn og meira kemur í kassann. Það hefur sýnt sig hjá liðum eins og í A og KR að meiri peningar þýða sterkara lið.“ Náið þið titlinum? „Það er auðvitað ómögulegt að spá um það en þetta á eftir að verða skemmtilegt sumar. Annars sýnist mér að KR séu bara búnir að kaupa titilinn þetta árið.“ Kópavogsfélag númer eitt Það verður að segjast alveg eins og er að ekki hefur fárið of mikið fyrir konum á áhorfendapöllunum í boltanum á fslandi. Margir eru þó á því að þetta sé að breytast og knattspyrnan sé að breiðast út sem skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Ein þeirra kvenna sem sjaldan láta sig vanta á völlinn er Sóley Stef- ánsdóttir, verslunarmaður í Kópa- voginum. Hún er græn og væn eins og sumir segja, Bliki í húð og hár. „Ég hef fylgst vel með fótboltan- um í gegnum árin. Við maðurinn minn og dóttir okkar erum öll miklir áhugamenn og látum okkur sjaldan vanta á völlinn. Dóttir mín spilar síðan með öðrum flokki kvenna þannig að þetta er farið að smita vel út frá sér. Við reynum að fylgja liðinu eftir en förum nú reyndar ekkert lengra í útileikjum en upp á Skaga. þetta er afskaplega gaman, maður kynnist fólki í gegn- um þetta og stemmningin verður mikil." Er UBKfyrst ogfremst Kópavogs- lið? „Já, það er það tvímælalaust. Bæjarbúar hafa verið nokkuð dug- legir að fylkja sér í kringum félagið en betur má ef duga skal. Ekki er nóg að mæta og hvetja sína menn þegar vel gengur því hitt er miklu mikilvægara að styðja við sína menn þegar mest þarf á að halda. Ég er að vonast til þess að nú fari að myndast einhvcr stöðugleiki í þetta hjá okkur og þetta verði ekki bein brekka niður aftur eins og stundum hefur verið.“ Ertu bjartsýn á tttótið? „Afskaplega. Við eigurn ntjög ÞRIÐJUDAGUR 24. MAÍ1994 21

x

Eintak

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.