Eintak - 24.05.1994, Blaðsíða 32
Stórleikur KR-inga í seinni hátfleik
leiddi til 5.0 sigur á Blikum.
KR-ingar sýndu það og sönnuðu
í gær að það er engin tilviljun að
þeim er spáð meistaratitli í 1. deild-
inni í ár. Eftir nokkuð tíðindalaus-
an íyrri hálfleik, þar sem KR-ingar
þó misnotuðu vítaspyrnu, tóku
þeir öll völd í þeim síðari og sýndu
allar sínar bestu hliðar, reyndar
með dyggri hjálp öftustu varnar-
manna Blika sem áttu hreint afar
slæman dag.
Breiðablik varð snemma fyrir því
áfalli að missa Val Valsson meidd-
an af leikvelli. Við þetta riðlaðist
leikur þeirra töluvert og vörnin átti
í miklum erfiðleikum með að stilla
strengi sína, sérstaklega í seinni
hálfleik.
Bæði liðin fengu vítaspyrnur í
fyrri hálfleik, KR-ingar eftir að
Kardaklíja markvörður gerðist
brotlegur. Kardaklíja, sem fékk
áminningu frá Gylfa Orrasyni fyr-
ir vikið, gerði sér lítið fyrir og varði
vítaspyrnu Óskars Hrafns Þor-
valdssonar með tilþrifum. Áður
hafði Kristján hjá KR varið spyrnu
Arnars Grétarssonar.
I seinni hálfleik fóru hlutirnir að
gerast hjá KR. Miðjan fór að nýta
kantana töluvert betur og fram-
herjarnir að ógna meira en þeir
höfðu áður gert. Kantmennirnir
fóru að taka góðar rispur ásamt
skemmtilegum sprettum frá bak-
vörðunum Óskari Hrafni Þorvalds-
syni og Izudin Daða Dervic.
Dervic má gera meira af því að æða
upp kantinn, hann býr yfir miklum
hraða sem nýtist vel í upphlaupum.
Rúnar Kristinsson, Heimir
Guðjónsson og síðast en ekki síst
James Bett, nýkominn frá Skot-
landi, áttu stórleik í síðari hálfleik.
UBK - KR
0:5
Maður leiksins:
Tómas Ingi Tómasson KR
Mörk:
Tómas Ingi Tómasson (68., 82.,
85 v.), James Bett (72., 89)
UBK - Hajrudin Karda-
klíja, - Vilhjálmur Har-
aldsson, Sigurjón Krist-
jánsson, Úlfar Óttarsson
(Rastislav Lazorak), Valur Vals-
son (Jón Þórir Jónsson), Einar
Páll Tómasson, Guðmundur
Guðmundsson, Hákon Sverris-
son, Arnar Grétarsson, Grétar
Steindórsson, Kristófer Sigur-
geirsson.
KR - Kristján Finnboga-
son, - Óskar Hrafn Þor-
valdsson, Izudin Daði
Dervic, Þormóður Egils-
son, Sigurður B. Jónsson, Rúnar
Kristinsson (Sigurður Ragnar
Eyjólfsson), Hilmar Björrisson,
James Bett, Salih Heimir Porca
(Magnús Orri Schram), Heimir
Guðjónsson, Tómas Ingi Tómas-
son.
Þeir létu boltann ganga vel og dól-
uðu ekki of mikið með hann, nokk-
uð sem stundum hefur viljað bera
við hjá KR-ingum. Sendingarnar
heppnuðust vel og ekki spillti fyrir
að framherjinn, Tómas Ingi Tóm-
asson, var í feiknaformi og lék frá-
bærlega.
Fyrsta markið kom eftir baráttu
fyrir framan vítateig Blikanna.
Tómas Ingi Tómasson var þar að
verki og hann átti effir að koma
meira við sögu. t næsta marki KR-
inga voru Tómas Ingi og Bett í að-
alhlutverkum. Tómas Ingi tók
skemmtilega rispu hægra megin að
vítateignum eftir sendingu frá Bett,
gaf aftur á Bett sem setti hann ör-
ugglega í mitt markið. Við þetta var
sem allur vindur væri úr heima-
mönnum, varnarmennirnir fóru að
gefa eftir og þriðja mark KR-inga
kom eftir hræðileg mistök í öftustu
vörn Blika. Þar náði Tómas Ingi
boltanum af Einari Páli Tómas-
syni og skoraði auðveldlega fram-
hjá Kardaklíja markverði.
Varnarmenn Blika voru aftur í
aðalhlutverki skömmu síðar þegar
Salih Heimir Porca stal boltan-
um af varnarmanni Blika, sólaði
markvörð Blikanna, Kardaklíja,
sem brá á það ráð að fella Porca.
Gylfi Orrason var ekki í nokkrum
vafa, dæmdi réttilega vítaspyrnu og
veitti Kardaklíja aðra áminningu og
þar með rautt spjald. Blikarnir voru
þar með orðnir einum færri og
handboltajaxlinn, Jón Pórir
Jónsson, sem leikur með Blikum,
varð að klæðast markmannstreyj-
unni. Tómas Ingi Tómasson .skor-
aði örugglega úr vítaspyrnunni og
fullkomnaði þar með þrennu sína í
leiknum.
Síðasta markið skoraði síðan
skotinn James Bett. Hann fékk
ágæta sendingu við vítateigslínuna
og vippaði boltanum afskáplega
snyrtilega yfír Jón Þóri í markinu
og skoraði þar með fimmta mark
KR-inga.
Blikarnir vilja örugglega gleyma
Kardaklíja
FÆR RAUðA SPJALDlð
Markvörður Breiðabliks,
Kardakijía, gaf KR-ingum tvær
vítaspyrnur, fékk gult fyrir bæði
brotin og fór af velli með rautt.
Hér brýtur hann í seinna skiptið
á Salih Heimi Porca.
þessum leik sern allra fyrst, en áttu
þó ágæta spretti inn á milli og
þefðu getað skorað á undan KR-
ingum. Einar Páll Tómasson átti
hreint hrikalegan leik og þarf ör-
ugglega að taka sig saman í andlit-
inu. Þó er engin ástæða til að ör-
vænta, liðið er ekkert dæmt til að
falla eins og sumir vilja halda fram.
KR-ingar spiluðu hreint stór-
kostlega síðustu mínúturnar og
verða aðeins að passa sig á að of-
metnast ekki. Staðreynd eins og sú
að liðið lék í gærkvöldi án tveggja
lykilmanna er mikið áhyggjuefni
fyrir önnur lið og sömuleiðis þá
lykilmenn því erfitt er að breyta 5:0
sigurliði. ©
Markalaust jafntefli Þórs og IBV fyrir norðan
Friðrik bjargaði Eyjamönnum
Talsverður vorbragur var á við-
ureign Þórs og IBV í fyrstu umferð
1. deildar Islandsmótsins í knatt-
spyrnu, sem fram fór á Akureyri í
gærkvöldi. Knattspyrnan var ekki
rismikil sem liðin buðu upp á á
ósléttum vellinum. Leikurinn ein-
kenndist af miðjuþófi á löngum
köflum og mikið var um tilviljana-
kenndar sendingar. Þórsarar fengu
þó mun fleiri marktækifæri og voru
miklu hættulegri í sóknaraðgerð-
um sínum. En Friðrik Friðriks-
son, markvörður ÍBV, sá við öllum
skotum sem hittu á markið og
sýndi meistaraleg tilþrif þegar á
reyndi. Eyjamenn geta þakkað hon-
um að þeir sneru heim með annað
stigið. Gestirnir byrjuðu betur, en
smám saman náðu heimamenn yf-
irhöndinni. Lengst af síðari hálfleik
réðu Þórsarar ferðinni og færin
voru þeirra. Sveinn Pálsson átti
gott skot framhjá á 58. mín. og
tveimur mínútum síðar skallaði
Júlíus Tryggvason yfir fyrir opnu
marki. Páll Gíslason skaut fram-
hjá á 77. mín. og Friðrik þurfti síð-
an að taka á öllu sínu sex mínútum
síðar þegar hann varði skalla
Hreins Hringssonar sem kom inn
á sem varamaður.
Þórsarar voru sprækir á köflum
og óheppnir að missa stig á heima-
velli. Bestur í liði þeirra var Lárus
Orri Sigurðsson sem barðist af
krafti í vörninni. Ormarr Örlygs-
son skapaði oft hættu á hægri
kantinum, sérstaklega í fyrri hálf-
leik, og Páll Gíslason stóð sig vel í
framlínunni. Dragan Vitorovic
átti einnig góða spretti og ljóst er að
þar fer afburðalipur og Ieikinn leik-
maður. Honum var skipt út af um
miðjan seinni hálfleikinn sem kom
á óvart.
Friðrik bjargaði Eyjamönnum og
átti mjög góðan leik í marki ÍBV.
Steingrímur var líflegur í framlín-
unni en fékk lítinn stuðning. Átján
ára strákur, Bjarnólfur Lárusson,
sýndi oft skemmtilega takta og vert
að íylgjast vel með honum í sumar.
Talsvert mæddi á sterkri vörninni
en það virtist vanta grimmd í Eyja-
menn þannig að sóknartilburðirnir
voru ekki upp á marga fiska.
Leikurinn var auðdæmdur og
skilaði Eyjólfur Ólafsson dómari
hlutverki sínu með prýði. Hann gaf
þremur leikmönnum gul spjöld
fyrir brot; Lárusi Orra Sigurðssyni í
Þór og Þóri Ólafssyni og Bjarnólfi
Lárussyni IBV. O
Aukablaðum 1.
deildarliðin
Viðtal við
James Bett 24
Bandaríkjamenn
Reka tilraunadeild
fyrir nýjar reglur 2
Hallur Hallsson
Eraðrétta
skútuna af
Liðið sem íslend-
ingar munu halda
með í HM94
Allt um fyrstu
umférð Islands-
mótsins
ÞÓR - ÍBV
0:0
Maður leiksins:
Friðrik Friðriksson ÍBV
Þór - Ólafur Pétursson,
Július Tryggvason, Lár-
us Orri Sigurðsson,
Sveinn Pálsson, Örn
Viðar Arnarson, Ormarr Örlygs-
son, Dragan Vitorovic (Hreinn
Hringsson 75. mín.), Þórir Ás-
kelsson, Birgir Þór Karlsson, Páll
Gíslason, Bjarni Sveinbjörnsson.
IBV - Friðrik Friðriksson,
Friðrik Sæbjörnsson,
Magnús Sigurðsson,
Heimir Hallgrimsson,
Jón Bragi Arnarsson, Þórir Ólafs-
son, Hermann Hreiðarsson,
Sumarliði Árnason, Bjarnólfur
Lárusson, Nökkvi Sveinsson,
Steingrímur Jóhannesson.