Morgunblaðið - 07.01.2005, Síða 8

Morgunblaðið - 07.01.2005, Síða 8
8 FÖSTUDAGUR 7. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Sjálfstæ›isflokkurinn sími 515 1700 www.xd.is Með hækkandi sól Lægri skattar - aukin hagsæld Opinn stjórnmálafundur í Valhöll, Háaleitisbraut 1, Reykjavík, laugardaginn 8. janúar kl. 10.30. Framsögumaður: Davíð Oddsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og utanríkisráðherra. Fundarstjóri: Margeir Pétursson, formaður fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík. Allir velkomnir. Uss, það er ekki svo mikið sem smáilmur af skítalykt af þessum Sigmúnds-skrípóum, Teitur minn. Umfangsmiklarverðhækkanir ágjöldum og skött- um hjá bæði ríki og sveit- arfélögum, sem naga munu í kaupmátt heimil- anna, tóku gildi frá og með áramótunum. Það er orðið dýrara að eiga bíl, dýrara að reykja og drekka, dýr- ara að eiga fasteign í Reykjavík, dýrara að fara í háskóla eða á heilsu- gæslustöð og svo mætti lengi telja. Þessar hækk- anir munu koma ákaflega misjafnlega við fjölskyld- urnar í landinu, allt eftir samsetningu þeirra, hvar þær búa, neyslumynstri þeirra, eignastöðu o.s.frv. En auk þess að kroppa í kaupmátt launa mun hækkunin á gjöldum og sköttum hafa bein áhrif á vísitölu neysluverðs og þar með á verð- bólgu. Þær eru því ekki til þess fallnar að stuðla að því að verð- lagsforsendur kjarasamninga muni halda en þær forsendur standa nú sem kunnugt er tæpt. Étur upp lækkun á verði annarrar vöru og þjónustu Alþýðusamband Íslands (ASÍ) hefur nú birt yfirlit um hækkun á opinberri þjónustu og kennir þar margra grasa. ASÍ tekur fram að almennt hafi verið búist við tölu- verðum verðlækkunum um ára- mótin vegna útsalna, lækkunar á bensíni og áhrifa af styrkingu krónunnar. Nú sé aftur á móti hætta á að þessar miklu hækkanir á opinberri þjónustu taki þennan ávinning frá almenningi. ASÍ tel- ur að áhrifin af þessu verði þau að verðbólgan verði áfram mun hærri en gengið var út frá við gerð kjarasamninganna í fyrra. Þar hafi verið miðað við að verð- bólgan yrði um 2,5% eða í sam- ræmi við markmið Seðlabankans. Framan af árinu í fyrra hafi þessi forsenda haldið en síðasta vor hafi farið að síga á ógæfuhliðina þegar verðbólgan fór yfir 3,0%. Raunar má við þetta bæta að verðbólgan mælist nú mun meiri því hækkun vísitölu neysluverðs síðustu tólf mánuðina var um 3,9% þannig að ef ótti ASÍ gengur eftir mun verðbólgan því haldast nálægt 3,9% á næstunni sem auð- vitað er langt umfram verðlags- forsendur kjarasamninga á al- menna vinnumarkaðinum. Þegar hefur verið greint frá helstu hækkunum hjá ríkinu í tengslum við afgreiðslu fjárlaga en rétt að draga þær fram í stuttu máli: komugjöld á heilbrigðis- stofnanir og gjald vegna vitjana lækna hækka á bilinu 14–17%. Þá hækka skráningargjöld háskól- anna um 12.500 fyrir heilt skólaár eða um 38,5%. Bifreiðagjald hækkar um 3,5% en auk þess hækka ýmis gjöld fyrir opinbera þjónustu um 10% að jafnaði en þarna má nefna hækkanir á þing- lýsingargjöldum, gjöld fyrir út- gáfu margvíslegra leyfa, áritana, vottorða og skírteina. Ekki má heldur gleyma að í byrjun desem- ber hækkaði gjald á sterku víni og tóbaki um 7% en gjald á bjór og léttum vínum hélst aftur á móti óbreytt. Fjölmargar hækkanir hjá sveitarfélögunum Í samantekt ASÍ er tekið fram að víða sé ekki búið að samþykkja fjárhagsáætlanir sveitarfélaga fyrir árið 2005 eða þá að vinnu við breytingar á gjaldskrám er lokið en dregnar eru fram hækkanir sem liggja fyrir hjá nokkrum stærstu sveitarfélögunum. Fyrir liggur að útsvar hækkar í Reykja- vík úr 12,7% í 13,03% og í Kópa- vogi mun útsvar hækka úr 12,94% í 13,03. Þá hækkar fasteignaskatt- ur í Reykjavík úr 0,32% í 0,345% af fasteignamati. ASÍ tekur þó sérstaklega fram að fasteignamat hækki um 13–14% nú um áramót- in og þá um leið stofn til útreikn- ings gjaldanna. Þannig verða heildaráhrifin í Reykjavík tæp- lega 23% hækkun fasteigna- gjalda. Sorphreinsunargjald hækkar í Reykjavík (30%), á Ak- ureyri (31%), í Reykjanesbæ (4%), í Garðabæ (40%), í Hafnar- firði (18%) og í Kópavogi (11%). Ekki er auðvelt að bera saman hækkanir á gjaldskrám leikskóla sveitarfélganna en bent er á að al- mennt gjald í Hafnarfirði fyrir átta tíma vistun hækki um 15%, um rúm 6% í Kópavogi (vistun og fæði), í Reykjavík um 0,65%, þar verði hins vegar mikil hækkun í haust fyrir foreldra þar sem ann- að er í námi. Í öðrum sveitarfélög- um verður hækkun leikskóla- gjalda á bilinu 4–6% nema á Akureyri (2,5%). ASÍ bendir á vegna nýrra raf- orkulaga megi ætla að raforka til hitunar muni hækka um 15–20%, hún hafi fram til þes verið nið- urgreidd af Rarik og Orkubúi Vestfjarða en það verði nú óheim- ilt. Greint var frá því að Orkuveita Reykjavíkur hækki almennt raf- orkuverð um 3,89%. Þá hækkar Hitaveita Suðurnesja almennt raforkuverð um 4,86% á veitu- svæðum sínum að undanskildum Vestmanneyjum og Árborg þar sem verðið lækkar um 3,58%. Hjá Rarik hækkar raforkuverð um 7,9% í dreifbýli en ekki þéttbýli og hjá Orkubúi Vestfjarða hækkar sé gert ráð fyrir að hækkunin verði innan við 10%. Fréttaskýring | Ríki og sveitarfélög Umfangsmikl- ar hækkanir Éta upp verðlækkunaráhrif af útsölum, bensíni og styrkingu krónunnar            !"  #"   $ %#$   & ' ( %#$& )          Hækkanirnar ógna for- sendum kjarasamninga  Búist var við töluverðum verð- lækkunum um áramótin vegna útsalna, lækkunar á bensíni og styrkingu krónunnar en ASÍ tel- ur nú að hætta sé á að hækkanir á opinberri þjónustu og sköttum taki þann ávinning frá fólki. Gangi þetta eftir þýðir það að verðbólgan haldist áfram í um 3,9%, eins og hún mældist síðustu tólf mánuðina, en það er langt umfram verðlagsforsendur kjarasamninga. arnorg@mbl.is Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.