Morgunblaðið - 07.01.2005, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JANÚAR 2005 11
FRÉTTIR
Hverafold 1-3 • Foldatorg Grafarvogi • Sími 577 4949
Opnunartími: mán.-fös. frá kl. 11-18 • lau. frá kl. 11-14
Útsala
Útsala
40-80% afsláttur
Fyrstir koma fyrstir fá!
Komið og gerið
dúndur kaup
• LJÓSMYNDANÁMSKEIÐ •
• 8 VIKNA NÁMSKEIÐ Á STAFRÆNAR VÉLAR - Fjögur námskeið
Námskeiðin byrja 10. og 12. janúar. Kennt er einu sinni í viku, mánudaga/miðvikudaga frá kl. 17-19 eða 20-22.
Farið er ítarlega í allar helstu stillingar vélarinnar m.a. ljósop, hraði, White Balance, pixlar o.fl.
Kennd verður myndataka, myndbygging, ljósmæling, myndataka í stúdíói o.fl.
Útskýrt hvernig á að koma skipulagi á myndasafnið, setja myndir á geisladisk, senda myndir í tölvupósti o.fl.
• 8 VIKNA NÁMSKEIÐ Á FILMUVÉLAR - Tvö námskeið
Námskeiðin byrja 13. janúar. Kennt er einu sinni í viku, fimmtudaga frá kl. 17-19 eða 20-22.
Kennd verður myndataka, myndbygging, ljósmæling, notkun filtera, lýsing, myndataka í stúdíói o.fl.
Grunnhugtök eins og ljósop, hraði og dýptarskerpa verða útskýrð.
Á öllum námskeiðunum taka nemendur myndir af módeli í
ljósmyndastúdíói og fá önnur ljósmyndaverkefni til að glíma við.
Námskeiðin eru haldin á Völuteigi 8, Mosfellsbæ • Leiðbeinandi er Pálmi Guðmundsson.
Skráning á www.ljosmyndari.is eða í síma 898 3911 • Námskeiðsgjald er kr. 18.500.
VEIÐAR skipa HB Granda hf. gengu almennt vel á síð-
asta ári þrátt fyrir minni loðnu- og karfaafla. Heildarafli
skipanna var 222.410 tonn en í magni vega loðna og kol-
munni þyngst, rúm 65 þúsund tonn veiddust af loðnu á
árinu og af kolmunna veiddust 80 þúsund tonn.
Heildarafli í uppsjávarfiski var um 166 þús. tonn en
botnfiskafli skipanna var rúmlega 56 þús. tonn.
Heildaraflaverðmætið er tæplega 6,2 milljarðar króna
sem er um 290 milljóna króna lækkun frá árinu á undan.
Til samanburðar við árið 2003 var bolfiskaflinn um 5.400
tonnum minni árið 2004 og munar þar mest um minni afla
af úthafskarfa. Afli uppsjávarfisks var 22.300 tonnum
minni árið 2004 og munar þar mest um minni loðnuafla á
síðastliðnu ári.
Sé litið á frystitogarana var afli þeirra samtals 32.374
tonn að verðmæti 3,6 milljarðar króna. Helga María Ak
var með 6.274 tonn að verðmæti 671 milljón króna, Höfr-
ungur III AK með 4.668 tonn að verðmæti 760 milljónir,
Venus HF með 7.171 tonn og 780 milljónir, Þerney RE
með 6.919 tonn að verðmæti 700 milljónir og Örfirisey
með 7.342 tonn að verðmæti 702 milljónir.
Ísfisktogararnir voru samtals með 23.670 tonn að verð-
mæti 1,3 milljarðar króna. Ásbjörn RE var með 6.814
tonn að verðmæti 324 milljónir, Haraldur Böðvarsson
AK með 3.892 tonn og 364 milljónir, Ottó N. Þorláksson
RE var með 7.371 tonn og 366 milljónir og Sturlaugur H.
Böðvarsson AK var með 5.593 tonn að verðmæti 288
milljónir króna.
Uppsjávarskipin voru samtals með 166.366 tonn að
verðmæti 1,2 milljarðar króna. Faxi RE var með 61.040
tonn að verðmæti 422 milljónir, Ingunn AK var með
67.026 tonn og 472 milljónir og Víkingur AK var með
38.300 tonn að verðmæti 334 milljónir króna.
118.000 tonn
Ísfisktogaranum Haraldi Böðvarssyni hefur nú verið
lagt og úthaldi hans hætt. Skipið var smíðað í Kristian-
sund í Noregi og kom til Akraness í júlí 1975 og hefur því
verið í þjónustu í tæp 30 ár. Skipinu hefur ávallt verið vel
við haldið en engu að síður er nú komið að ýmsum stórum
viðhaldsverkefnum sem ekki verður ráðist í.
Skipið hefur verið hið mesta happafley og gott sjóskip.
Haraldur Böðvarsson AK 12 hefur fært mikinn afla á
land undir stjórn þriggja skipstjóra og nemur aflinn alls
117.784 tonnum af bolfiski og framreiknað aflaverðmæti
skipsins á þessum tíma er rúmir 6,5 milljarðar kr.
Kristján Pétursson var skipstjóri á skipinu frá 1975,
Gunnar Einarsson frá 1986 og Viðar Gunnarsson frá
1992. Skipstjóri í síðustu veiðiferðinni var Árni Einars-
son, 1. stýrimaður, og yfirvélstjóri Örn Helgason.
Skip HB Granda fiskuðu
fyrir 6,2 milljarða króna
ÚR VERINU
SIGRÚN Sumarliðadóttir, nemandi
á lokaári í arkitektadeild Tæknihá-
skólans í Delft í Hollandi, hlaut ný-
verið fyrstu verðlaun í verðlauna-
samkeppninni Café Cultur Prijs
2004 sem efnt var til sl. haust.
Menningarsamtökin Felix Meritis
standa að keppninni og var þetta
þriðja árið sem verðlaunin eru
veitt. Samtökin, sem stofnuð voru
árið 1777, hafa það að markmiði að
efla menningarumræðu og menn-
ingarviðburði í Hollandi og var með
samkeppninni verið að kalla eftir
hugmyndum um gervallt Holland
frá nýútskrifuðum arkitektum og
nemendum í arkitektúr um bygg-
ingu, sem örvað gæti jákvæð sam-
skipti borgaranna og rúmað sam-
komustað sem risið gæti á
fjölmennum stað í miðborg Rotter-
dam.
Dómnefnd keppninnar var skip-
uð fulltrúum frá lista- og menning-
arlífi Hollands, en formaður dóm-
nefndar er formaður Samtaka
hollenskra arkítekta. Í umsögn
dómnefndar um vinningshugmynd-
ina segir m.a.: „Verk Sigrúnar nýt-
ir á frumlegan hátt rými götunnar
og neðanjarðarganganna og tengir
það rými lestarkerfis miðborg-
arinnar. Þetta er raunhæf en frum-
leg hönnun sem býður upp á raun-
verulega útfærslu. Dómnefnd er
sammála um að í útfærslunni hafi
tekist vel að tengja innra og ytra
rými byggingarinnar og að úrlausn
Sigrúnar sé í góðu samræmi við
það sem keppnin kallaði eftir. Í
verkinu kemur fram arkitektónisk
hugmyndafræði sem er í takt við
stund og stað.“
Aðspurð segir Sigrún sigurinn
hafa komið sér í nokkuð
opna skjöldu. „Hvað þýð-
ingu verðlaunanna varðar
þá kom auðvitað í góðar
þarfir að fá verðlaunafé
upp á 2.000 evrur auk þess
sem þetta er að sjálfsögðu
afar gott fyrir ferils-
skrána,“ segir Sigrún og
bætir við að mjög mikil-
vægt sé fyrir arkitekta-
nema að hafa kost á að
taka þátt í keppnum á borð við
þessa þar sem vinnuferlið sé afar
lærdómsríkt. Að sögn Sigrúnar er
arkitektadeild Tækniháskólans í
Delft með þeim stærri í Hollandi
og þykir býsna góð. Þess má geta
að nemendum deildarinnar gekk af-
ar vel í keppninni, en fimm
af þeim sem komust í átta
manna úrslit keppninnar
stunda nám við skólann.
Sigrún útskrifaðist sem
stúdent af náttúrufræði-
braut Menntaskólans í
Reykjavík árið 2000 og
hafði samhliða því stundað
nám við í Myndlistaskól-
anum í Reykjavík frá unga
aldri. Hún lýkur BA-prófi í
arkitektúr frá Tækniháskólanum í
Delft nk. vor og segist aðspurð
stefna á mastersnám í framhaldinu.
Nánari upplýsingar um keppnina fá
finna á vefslóðunum: www.felix-
meretis.nl og www.cafecultuur-
prijs.nl.
Íslendingur sigrar arki-
tektakeppni í Hollandi
Hluti af verðlaunahugmynd Sigrúnar. Myndir sýna eina hlið á vinnings-
módelinu þar sem Sigrún gerir ráð fyrir að almenningur geti lagt sitt af
mörkum til skreytingar húsnæðisins, t.d. í formi veggjakrots.
Sigrún
Sumarliðadóttir
NÆSTU daga og vikur gengst
Sjálfstæðisflokkurinn fyrir opnum,
almennum stjórnmálafundum í öll-
um kjördæmum landsins í janúar og
febrúar undir yfirskriftinni Með
hækkandi sól – lægri skattar – auk-
in hagsæld. Fundirnir eru öllum
opnir.
Fundirnir verða 45 talsins og
hefst fundaröðin með fundi í Val-
höll, Háaleitisbraut 1, í Reykjavík, á
morgun, laugardaginn 8. janúar kl.
10.30. Þar verður framsögumaður
Davíð Oddsson, formaður Sjálfstæð-
isflokksins og utanríkisráðherra.
Sama dag verða fundir kl. 12 í
Ráðhúskaffi í Þorlákshöfn, kl. 14 á
Flughóteli í Keflavík og kl. 15 á
Hótel KEA, Akureyri. Framsögu-
menn í Þorlákshöfn verða Björn
Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráð-
herra, og Kjartan Þ. Ólafsson al-
þingismaður. Í Keflavík verða fram-
sögumenn Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir menntamálaráðherra
og alþingismennirnir Drífa Hjart-
ardóttir og Sólveig Pétursdóttir. Á
Akureyri verða framsögumenn Geir
H. Haarde, fjármálaráðherra og
varaformaður Sjálfstæðisflokksins,
Halldór Blöndal, forseti Alþingis, og
Arnbjörg Sveinsdóttir alþingismað-
ur.
Á sunnudag verða sex fundir: á
Egilsstöðum, Reyðarfirði, Hellu,
Stykkishólmi, Borgarnesi og Búð-
ardal. Nánari upplýsingar eru á vef-
síðunni www.xd.is.
Fundaröð Sjálfstæðisflokksins
Stjórnmálafundir í
öllum kjördæmum
UMBOÐSMAÐUR Alþingis finnur í
nýju áliti sínu að málsmeðferð
fangelsisyfirvalda á Litla-Hrauni
og dómsmálaráðuneytisins vegna
umsóknar fanga um fylgdarleyfi til
að hitta tvö börn sín og fyrir-
komulag heimsókna sambýliskonu
mannsins.
Umboðsmaður taldi að fangels-
isyfirvöld á Litla-Hrauni hefðu ekki
veitt manninum réttar leiðbein-
ingar um kæruleiðir við meðferð
umsóknar hans um dvalarleyfi utan
fangelsisins. Einnig taldi umboðs-
maður að ekki hefði að lögum verið
rétt af hálfu fangelsisins að senda
umsókn mannsins um fylgdarleyfi
til umsagnar Fangelsismálastofn-
unar. Ennfremur að dóms- og
kirkjumálaráðuneytið hefði ekki
litið á erindi fangans sem stjórn-
sýslukæru eins og rétt hefði verið.
Þá var afgreiðsla stjórnvalda á
beiðni mannsins um að hitta börn
sín ekki í samræmi við málshraða-
reglu stjórnsýslulaga.
Beinir umboðsmaður þeim til-
mælum til dómsmálaráðuneytisins
að það geri viðeigandi ráðstafanir
til að tryggja að málsmeðferð og
afgreiðsla beiðna og umsókna
fanga samrýmist framvegis þeim
sjónarmiðum sem í álitinu eru rak-
in.
Umboðsmaður Alþingis finnur að
málsmeðferð fangelsisyfirvalda